Morgunblaðið - 28.11.1982, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 28.11.1982, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1982 33 Afmælishátíð Bústaðasóknar — Borgarstjóri ræðumaður á kvöldsamkomu FYRSTI sunnudagur í aðventu hefur verið kirkjudagur Bústaðasóknar nú í mörg ár. Að þessu sinni er ríkulegri ástæða en fyrr til hátíðahalds, þar sem söfnuðurinn er þrjátíu ára á þessu ári. Mun formaðurinn, As- bjöm Björnsson, minnast i hátíðar- ræðu um kvöldið helztu þátta í sögu sóknarinnar, en auk hans hafa þeir Axel L. Sveins og Guðmundur Hans- son gegnt formennsku í sóknar- nefnd. Prestar hafa verið tveir, séra Gunnar Árnason til 1964 og séra Olafur Skúlason, dómprófastur, síð- an. Dagskrá kirkjudags er að hefð- bundnum hætti með barnasamkomu kl. II árdegis og guðsþjónustu kl. 2.00. Einsöng syngja þau Elín Óskarsdóttir og Kjartan Ólafsson, en organleikari er Guðni Þ. Guð- mundsson. Eftir messuna er boðið að veizluborði Kvenfélagsins, en kon- urnar hafa lengi verið rómaðar fyrir myndarskap og snilli í bakstri. En fjáröflun beinist nú að því að fá steinda glugga lista- mannsins Leifs Breiðfjörðs í kór- glugga kirkjunnar. Eru komnar 6 slíkar rúður nú þegar, aðrar 6 koma fyrir jól og síðan 12 — von- andi — á hverju ári þar til fulllok- ið verður. Hafa margar gjafir ver- ið þegnar og góður stuðningur vel þeginn enda eykur listaverkið mjög við fegurð helgidómsins. Kl. 8.30 í kvöld hefst síðan að- ventusamkoman með ávarpi for- manns Bræðrafélagsins Sigurðar B. Magnússonar, en ræðumaður er borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson. Guðni Þ. Guðmundsson leikur á orgelið og stjórnar kirkju- kórnum og sveit 7 ára barna, sem leikur á fiðlur og flautur, og flutn- ingi þverflautukvartetts. Ein- söngvarar eru Hjálmar Kjart- ansson og Kolbrún á Heygum. Og að venju lýkur samkomunni með' því að kertin eru tendruð og sókn- arpresturinn annast helgistund. Á liðnum árum hafa færri komizt í kirkjuna en vildu hinn fyrsta sunnudag í aðventu, svo að nú verður komið fyrir sjónvarpstækj- um í safnaðarsölunum, sem sýna altari kirkjunnar og það sem þar fer fram. Bústaðasöfnuður hefur um margt verið í fararbroddi í kirkju- legu starfi, og þó að 30 ár séu ekki langur tími sér þess víða stað, að á vegum safnaðarins hefur verið unnið gott og Guði þóknanlegt starf. Allir eru vitanlega velkomn- ir í Bústaðakirkju á sunnudaginn sem endranær, en kökum er veitt móttaka milli milli kl. 10 og 2 á sunnudaginn. Eigum hátið við upphaf aðventu og hefjum jólaundirbúninginn á réttan hátt. (Krá Itústaðakirkju) Aðventukvöld í Breiðholtssókn SUNNUDAGINN 28. nóvember verdur aðventusamkoma Breið- holtssafnaðar haldin í samkomusal Breiðholtsskóla, og hefst hún kl. 20.30. Að þessu sinni verður m.a. kirkjukórinn með söngdagskrá, en auk þess syngja ungar stúlkur, sem nefna sig Agape. Erindi kvöldsins mun Andrés Kristjánsson ritstjóri flytja. í lok samkomunnar verður helgistund við kertaljós. Auðvitað eru allir hjartanlega velkomnir. Aðventu- kvöldin eru orðin fastur þáttur í starfsemi safnaðarins hin síðari árin og full ástæða til að vekja á þeim athygli. í næstu viku fer fram fjársöfn- un til kirkjubyggingarinnar, því að nú er stórt verkefni framund- an: að fullgera kirkjuna að utan. og það þarf að gerast í einu átaki. Allt efni er tilbúið til þess að sú vinna geti hafist, en afla þarf meiri peninga, til þess að unnt sé að halda áfram án tafar. Fram- kvæmd þessarar fjársöfnunar er öll á vegum kirkjubyggingar- nefndar og vel að öllu staðið. Von- ir standa til, að allir sem leitað verður til, leggi þessu þarfa máli lið af góðum hug. Þökk sé öllum, sem þarna leggja hönd að. Safnaóarnefnd Breiöholtssóknar Við minnum á Elúiu Pábnadóttur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins Viö viljum Elínu á þing: • Vegna beinna kynna hennar af borgar- búum og málefnum þeirra sem borgar- fulltrúi um árabil og blaöamaöur á ferö í tvo áratugi. Hún hefur sýnt aö hún tekur mannlega á málum. • Hún hefur hugkvæmni, kjark og dugnaö til aö nýta sína reynslu af málefnum Reykja- víkur og þekkingu til aö koma málum fram. • Rétta þarf hlut kvenna í þingliöi Sjálfstæö- isflokksins. Studningsmenn Þeir sem eru sama sinnis og viö, hafi samband viö okkur í Dugguvogi 10 (Sigurplast) eftir kl. 5 og um helgina. Símar 35590 og 32330. Prófkjör sjálfstœðismanna í Reykjavík vinnum aö stefnufestu í stjórnmálum kjósum______ Ragnhildi á þing/ Ath. aó til þess aö kjörseöill sé gildur þarf aö krossa viö a.m.k. 8 nöfn, en mest 10. Stuöningsmenn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.