Morgunblaðið - 28.11.1982, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1982
39
• Ekki óalgeng sjón á knattspyrnuleikvöllum I Brasilíu. Áhorfendur hafa
hlaupið inní í lok leiks og fagna leikmanni eftir að sigur hafði unnist.
• Frá leik Flamengo og Liverpool um heimsmeistaratitil félagsliða. Liver-
pool var yfirspilað algjörlega og tapaði 3—0.
margt um styrkleika Flamengo
því Vitor er ekki fastur maður í
liðinu. Hins vegar valdi landsliðs-
þjálfarinn, Tele Santana, ekki Vit-
or og Adilio í sjálft liðið sem tók
þátt í lokakeppninni á Spáni.
Aðstaða félagsins, Estadio da
Gavea, er mjög fullkomin og auk
fótboltavallar býður hún upp á
marga möguleika á íþróttasviðinu,
svo sem sund, leikfimi, innan-
hússfótbolta o.fl. Ný íþróttahöll á
svæðinu ber nafn þjálfara þeirra,
sem drukknaði sl. vetur fyrir utan
strönd Rio de Janeiro. Hann náði
mjög góðum árangri með Flam-
engo en hafði áður starfað með
landsliðinu og hlaut gagnrýni
fyrir, einkum í heimsmeistara-
keppninni í Argentínu og eftir
hana. Þótti hann leggja of mikið á
leikmenn sína og skapa hjá þeim
of mikla spennu.
Eitt sinn þegar Flamengo hafði
sigrað Boca Junior, með Mara-
dona, 2—0 í vinaleik sagði hinn
reyndi markmaður Argentínu-
liðsins Hugo Gatti:
„Það er greinilegt að leikmenn
Flamengo hafa ánægju af því að
leika knattspyrnu. Þetta hugarfar
hefur því miður alveg gleymst hjá
okkur í Argentínu, því þar snýst
allt um tæknihliðina."
Það var hinum 33 ára Paulo
Cesar Carpegiani að þakka að liðið
hélt áfram á sömu braut. Hann
var leikmaður í brasilíska lands-
liðinu og jafnframt í Flamengo
þar til hann varð þjálfari þess árið
1981. Það ár lék Flamengo 80 leiki
en rúsínan varð svo sigurleikurinn
í Tokyo á móti Liverpool, sem fyrr
er getið.
Ævintýrið hélt áfram eftir leik-
inn þar sem leikmenn dvöldu eina
viku í Honolulu ásamt eiginkon-
um.
Þjálfarinn Carpegiani hefur
greinilega ekki áhyggjur af álag-
inu og fjölda leikja: „Á tæpum
mánuði spiluðum við 12 leiki, þar
á meðal mikilvægan leik í „Copa
de Libertadores“-keppninni og
keppninni um meistaratitil í Rio.
Við spilum best þegar við erum
undir miklu álagi, en þegar við
slöppum af þá stöndum við okkur
að því að gera heimskuleg glappa-
skot.“
400.000 fyrir leikinn
Frægð Flamengo skapast ekki
hvað síst af velgengni þess í
S-Ameríkukeppnum og eftir sig-
urinn á móti Liverpool fannst
stjórn Flamengo tilvalið að hækka
þóknunargjaldið fyrir slíka gesta-
leiki. Nú kostar það litlar 400.000
krónur að fá Flamengo til að leika
en þeir líta einungis við Evrópu-
löndum og lágmarkið eru fimm
leikir.
Brasilísk knattspyrna ber alveg'
sérstakt og einstakt yfirbragð sem
skapast af því að leikmennirnir
virðast hafa meðfædda knatt-
spymuhæfileika og ótakmarkaða
ást á tuðrunni.
Má með sanni segja að þar fari
saman og vel saman áhuga- og at-
vinnumennska.
Þýtt og endursagt.
SOPHIA
klassísk fegurö,nýtt ilmvatn frá
DALFELL HEILDVESLUN LAUGAVEGI 116 SÍMI 23099
Oxycut
Oxycut er logsuöu- og skuröartæki
sem vert er aö skoöa nánar.
Kynning á þessum
tækjum veröur hjá Istækni hf.,
Ármúla 34, laugardaginn 27. nóv.
frá kl. 9.00—17.00 og
sunnudaginn 28. nóv. frá kl. 10.00—16.00.
ösQagDsDDD OiíL
Ármúla 34
Símar 34060 — 34066