Morgunblaðið - 11.12.1982, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982
7
, ituL
Malverkauppboð
aö Hótel Sögu sunnudaginn 12/12 ’82 kl. 20.30.
Myndirnar veröa til sýnis í Breiðfirðingabúö Skóla-
vöröustíg 6 B, laugardaginn 11/12 frá 1—6 og aö
Hótel Sögu, sunnudag 12/12 frá kl. 2—6.
Klausturhólar.
Orösending
frá
Bjargráðasjóði
Eftirleiðis verður ekki veitt fyrirgreiðsla úr
Bjargráðasjóði vegna tjóna á fasteignum og
lausafé af völdum óveðurs, þar eð ráðstöf-
unarfé sjóðsins er mjög takmarkað og unnt
er að tryggja gegn slíkum tjónum hjá trygg-
ingafélögum.
Stjórn Bjargráðasjóós.
áritar bók sína í kvosinni í nýju bókadeild-
inni í Pennanum, Hafnarstræti 18, í dag,
laugardag, kl. 16—18.
Sendum áritaðar bækur í póstkröfu.
Hafnarstrœti 18, sími 10130.
FÖKTUDAGUR 10. DESEMBER 1982
Guðmundur G. Þórarinsson um iðnaóarráðherra á Alþingi:
Rekur álviðræðuneftid eins
og rússneskt hænsnahús
Rússnesk rúlletta
Aö mati margra geta menn varla fariö í áhættusamara spil en
rússneska rúllettu, sem felst í því að menn leika sér aö því aö snúa
skothylki á skammbyssu, sem hlaðið er einu skoti;— skotið kemur
í hlut hins óheppna. í umræðum utan dagskrár á alþingi á fimmtu-
dag komst Guðmundur G. Þórarinsson svo aö orði, aö Hjörleifur
Guttormsson ræki álviðræðunefnd eins og „rússneskt hænsna-
hús“. Erfitt er aö átta sig á því hvaö þingmaðurinn er aö fara meö
þessum oröum, en þau segja ef til vill meira um stjórnarsamstarfiö
en virðist viö fyrstu sýn. Hitt er Ijóst, aö ríkisstjórnin hefur veriö í
rússneskri rúllettu um nokkurt skeiö og kannski má jafna álmálinu
viö hlaðiö skothylki.
Kærleiks-
heimilið
I forystugrcin Tímans í
gær segir: „Hinu er hins
vegar ekki hægt að neita,
að vinnuaðferðir Hjörleifs
Guttormssonar hafa oft
verið hinar ákjósanlegustu
fyrir álhringinn og auðveld-
að honum að sýna þrjósku
í viðræðunum við íslensk
stjórnvöld. I>að hefur lengi
verið opinbert leyndarmál,
að framsóknarmcnn hafa
verið gagnrýnir á vinnu-
brögð Hjörleifs, þótt opin-
berlega hafi verið látið
kyrrt liggja, bæði vegna
stjórnarsamstarfsins og
hins, að rétt þótti að reyna
til þrautar, hvort Hjörleifur
fengist til að taka upp
skynsamlcgri vinnubrögð."
I'essi klausa úr mál-
gagni Framsóknarflokks-
ins verður ekki skilin á
annan veg en þann, að meö
úrsögn Guðmundar G. l>ór-
arinssonar úr álviðræðu-
nefndinni hafi framsókn-
armenn gefið stjórnar-
samstarfiö upp á bátinn.
Kommúnistar vilja hins
vegar alls ekki túlka
brotthlaup Guðmundar
með þessum hætti, eins og
meðal annars kom fram í
blaðinu í gær, þegar for-
maður Alþýðubandalags-
ins, Svavar Gestsson, var
að því spurður, hvort flokk-
ur hans ætlaði að fórna rík-
isstjórninni fyrir Hjörleif
eða Hjörleifi fyrir ríkis-
stjórnina. l>á svaraði Svav-
ar: „l>etta er ruglspurn-
ing“.
Framsóknarblaðið sakar
Hjörleif um að hafa uppi
vinnuaðferðir sem „hafa
oft verið hinar ákjósanleg-
ustu fyrir álhringinn", en í
málgagni Alþýðubanda-
lagsins, l'jóðviljanum, seg-
ir í forystugrein í gær: „Við
sögðum á forsíðu 1‘jóðvilj-
ans í gær, aó fulltrúi Fram-
sóknarflokksins hafi þjón-
að Alusuisse. l>etta eru stór
orð. En hvaða fréttir frá ís-
landi gátu glatt auðjöfrana
sem stjórna Alusuisse,
meira en einmitt fregnin
um tillöguflutning Guð-
mundar G. l'órarinssonar.
Við höldum því ekki fram
að tillagan hafi verið flutt
eftir pöntun, en Alusuisse
hefði samt varla getað
óskað sér notalegri þjón-
ustu einmitt á þvi stigi sem
mál stóðu.“
Umræðurnar á kærleiks-
heimili rikisstjórnarinnar
snúast eins og sjá má um
það, hvort framsóknar-
menn eða kommúnistar
hafi þjónaó betur undir
Alusuisse. I þessu máli
eins og öðrum hefur þjóð-
arhagur lent í glatkistunni
vegna sundurlyndis og
stefnuleygis.
Tveir eða
þrír aurar
l'jóðviljinn birtir í gær
útreikninga sína á því til-
boði, sem Guðmundur G.
Þórarinsson vildi að Alu-
suisse yrði gert, þ.e. orku-
verð hækkaði strax um
20% og síðan meira með
samningi. Samningatækni
Guðmundar er hin sama
og Hjörleifs, þeir telja báð-
ir hcppilcgt aö bjóða fyrst
litla hækkun á raforku-
verði í von um að hún leiði
til hærra raforkuverðs að
lokum.'Morgunblaóió hef-
ur harölega gagnrýnt þessa
aðferð meðal annars með
því að spyrja: Hvaða maður
mundi hefja söluviðræður
um húsið sitt með því að
bjóðast til að gefa það?
l>á greinir því ekki á um
samningatæknina, Hjörleif
og Guðmund. Hins vegar
eru þeir ósammála um
hvað upphaflcga lioöið til
Alusuisse um ha-kkun á
raforku eigi að vera hátt.
I>jóðviljinn segir, að í ís-
lenskri mynt nemi tilboð
Guömundar hækkun á raf-
orkuverði, sem nemur
tveimur aurum á kíló-
wattstund, eða 7,74 mills í
staö 6,45 miils eins og það
er nú. Hinn 6. mai bauö
lljörleifur Alusuisse, að
raforkuverðið hækkaði í
9.5 mills, eða um 3 aura á
þeirra tíma verðlagi. l>eir
Hjörleifur og Guömundur
deila því ekki um háar upp-
ha'öir. Og svo sannarlega
eru þessar lágu tölur í litlu
samræmi við öll stóru orð-
in sem framsóknarmcnn
og kommúnistar hafa haft
um nauðsyn þcss að stór-
hækka raforkuveröiö til ál-
versins.
Hitt er svo rétt að hafa í
huga, að meðan framsókn-
armenn og kommúnistar
hafa staðið í þrasi um ál-
verið, hefur staða okkar til
samninga við Alusuisse
stórversnað vegna sílækk-
andi heimsmarkaðsverðs á
áli. Miöað við þá málsmeó-
ferð alla eru einn, tveir eða
þrír aurar bitamunur en
ekki fjár. A árinu 1980 var
álverð allt að 2.000 Banda-
rikjadollarar á tonn, en
verðið hefur nú lækkaó
niður fyrir 1.000 Banda-
ríkjadollara á tonn.
Skíöaganga er
besta heilsuræktin
Halldór Matthíasson,
skíöagöngugarpurinn
landskunni, leiöbeinir
viöskiptavinum í verslun-
inni um val og meðferð
Fischer gönguskíöa
föstudaginn 10. des.
kl. 15 til 19.
Laugardaginn 11. des.
kl. 14 til 18.
Fischer gönguskíði
Árangur og ánægja.
Á
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT8