Morgunblaðið - 11.12.1982, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982
Reagan biðlar til þjóð-
arinnar um stuðning
Wa.shingi»n, 10. dewnber. Al*.
RONALD Reagan, Randarikjafor-
seti, reynir nú ákaft að ávinna sér
stuðning almennings við tillögu sina
um staðsetningu MX-flauganna í
Wyoming-ríki. Reagan er að sögn
fréttamanna orðinn mjög uggandi
fSf
eður
víða um heim
Akureyri 3 skýjað
Amsterdam 8 skýjað
Aþena 16 heiðakírt
Barcelona 19 skýjað
Berlin 10 skýjað
Briistel 9 skýjað
Chicago -3 skýjað
Dyflinni 8 skýjað
Feneyjar 7 þoka
Frankfurt 10 rigning
Færeyjar 7 skúr
Genf 11 rigning
Helsinki 1 skýjað
Hong Kong 21 heiðskírt
Jóhannesarborg 23 heiðskírt
Kairó 19 heiðskírt
Kaupmannahöfn 6 rigning
Las Palmas 20 súld
Lissabon 17 rigning
London 7 skýjað
Los Angeles 20 skýjað
Madrid 13 skýjað
Malaga 19 skýjað
Mallorca 19 skýjað
Mexíkóborg 22 heiðskirt
Miami 27 skýjað
Moskva -5 tkýjað
Nýja Delhí 27 heiðskírt
New Vork 7 heiðskírt
Ósló 0 skýjað
Paris 13 skýjað
Pekíng 8 skýjað
Perth 21 rigning
Reykjavík 4 skýjað
Rio de Janeiro 17 rigning
Róm 15 rigníng
San Francisco 18 heiðskírt
Stokkhólmur 4 skýjað
Sydney 23 tkýjað
Vancouver 6 skýjað
Vín 8 skýjað
um að tillaga hans nái fram að
ganga eftir að hún var felld í full-
trúadeild Bandarikjaþings í vikunni.
Reagan óttast nú mjög, að at-
kvæðagreiðslan í fulltrúadeildinni
hafi þau áhrif á almenning að
hann snúist gegn tillögunni. Líkur
eru taldar á því að Reagan ávarpi
þjóðina á morgun til þess að und-
irstrika þá skoðun sína, að Banda-
ríkjamönnum sé nauðsyn á að fá
þessar umræddu flaugar settar
niður í Wyoming.
Öldungadeild Bandaríkjaþings
greiðir atkvæði um tillöguna í
næstu viku, að því talið er líklegt.
Talsmenn deildarinnar telja ekki
loku fyrir það skotið að tillagan
hljóti samþykki, en hallast að því
að eins fari fyrir henni þar og i
fulltrúadeildinni.
Kolombíski rithöfundurinn Gabriel Garcia Marquez tekur við bókmennta-
verðlaunum Nóbels úr hendi Karls Gústafs, Svíakonungs.
Nóbelsverðlaun fyrir bókmenntir og vísindi afhent í gær:
Tók við verðlaununum
í hvítum þjóðbúningi
„E.T “ fær
einróma lof
gagnrýnenda
Lundúnum, 10. desember. Al'.
NÝJASTA mynd Steven Spielberg,
E.T., sem frumsýnd var í Lundúnum
í gær, og reyndar hér á íslandi á
sama tima, hefur hlotið einróma lof
breskra kvikmyndagagnrýnenda.
Myndin var frumsýnd með mik- '
illi viðhöfn og á meðal frumsýn-
ingargesta var Diana prinsessa
sjálf.
Lundúnablaðið The Times fer
hástemmdum Iýsingarorðum um
myndina og skipar henni á bekk
með ódauðlegum ævintýrum
kvikmyndanna á borð við King
Kong og Galdrakarlinn í Oz.
Fleiri dagblöð í Bretlandi tóku í
sama streng og jusu lofi á mynd-
ina. Daily Telegraph segir m.a.
eitthvað á þá leið um leið og leik-
urunum er hælt fyrir frammistöð-
una, að E.T., aðalsögupersónan,
lítill geimálfur, hljóti að teljast til
leikara fremur en tæknibrellu
þótt hann sé ekki lifandi vera. Slík
sé frammistaða þessarar furðu-
veru í myndinni.
Stokkhólmi, 10. október. Al\
Nóbelsverdlaunin fyrir
bókmenntir og vísindi voru
afhent í Stokkhólmi í dag við
hátíðlega athöfn. Mesta at-
hygli vakti rithöfundurinn
Gabriel Garcia Marquez frá
Kolombíu þar sem hann kom
til afhendingarinnar, íklædd-
ur skjannahvítum serk, þjóð-
búningi. Allir aðrir viðstaddir
karlmenn voru í kjólfötum.
Karl Gústaf, Svíakonungur, af-
henti verðlaunahöfundunum verð-
laun sín við lúðraþyt í tónleika-
höllinni í Stokkhólmi. Tæplega
2.000 manns, aðallega frammá-
menn í sænsku þjóðlífi, voru
viðstaddir athöfnina.
Marquez hafði að eigin sögn
ýmsar ástæður fyrir því að koma
ekki til afhendingarinnar í kjól-
fötum. Hann segir kjólföt boða
ógæfu, auk þess sem hann hafi
viljað heiðra þjóð sína með þvi að
taka við verðlaunum sínum í þjóð-
búningi. Gult er happalitur
Marquez og hann var með gula rós
í hendinni þegar hann gekk inn í
tónleikahöllina.
Sex vísindamönnum voru við
þetta sama tækifæri afhent verð-
laun sín. Aðeins tveir Bandaríkja-
menn voru í þeim hópi, en undan-
farna tvo áratugi hafa bandarískir
vísindamenn einokað þessi verð-
laun.
Bandaríkjamaðurinn Kenneth
G. Wilson fékk Nóbelsverðlaunin í
efnafræði, Suður-Afríkubúinn
Aaron Klug fékk efnafræðiverð-
launin, Svíarnir Sune K. Berg-
ström og Bengt I. Samuelsson
hlutu verðlaunin fyrir læknis-
fræði ásamt Bretanum John R.
Vane. Þá fékk Bandaríkjamaður-
inn George Stiegler hagfræðiverð-
laun Nóbels.
ERLENT
Ætla að byggja vara-
bækistöðvar í Bretlandi
Washinglon og Ixtndon, 10. des. Al\
TILKYNNT var í Pentagon í
dag, að Bandaríkjamenn hygðu
á byggingu varabækistöðvar í
Bretlandi fyrir herafla sinn í
Evrópu í öryggisskyni ef styrj-
öld kynni að brjótast út. Höfuð-
stöðvar Bandaríkjahers í Evr-
ópu eru í Stuttgart í V-Þýska-
landi.
Þá var um leið borin til baka
frétt breska blaðsins Guardian
um að Bandaríkjamenn hygðust
færa höfuðstöðvar sínar ti!
Bretlands innan fjögurra ára.
Enn finnst
blásýra
í töflum
San José, Kaliforníu 10. des. Al\
ENN hefur fundizt blásýra í töfl-
um, sem eru seldar í lyfjabúðum
í Bandaríkjunum og munaði
minnstu, að konan sem tók töfl-
urnar inn, létist. Læknum tókst
að bjarga lifi hennar, og i fyrstu
var talið að hún hefðu fengið
hjartaslag. Eiginmaður konunnar
afhenti læknum síðan töflur sem
eftir voru og kom þá í Ijós að í
þeim var blásýra. Lyfjabúðir
stöðvuðu samstundis dreifingu á
lyfinu og stendur rannsókn yfir.
Konan er cnn talin í lífshættu.
Jafnað við jörðu. Þau orð lýsa myndunum hér að ofan best. Gamalt hótel í Minnea-
polis varð að víkja fyrir nýju skipulagi og þetta var einfaldasta lausnin. Með
sérstakri sprengiaðferð var húsið jafnað við jörðu á örstuttri stundu.
Skæruliðar láta að sér
kveða í San Salvador
San Salvador, La Klorida, Kl Salvador 10. desc*
VINSTRI sinnaðir skæruliðar réðust
með eldsprengjum á fimm almenn-
ingsvagna, tvo vöruflutningabila og
öskubíl í höfuðborginni í morgun, en
í þeim mun enginn hafa slasazt.
Talsmaður hersins sagði að þrettán
ungmenni sem vinstrimenn hefðu
rænt hefðu komizt í burtu frá mann-
ræningjum, en þó eru enn margir
unglingar týndir.
A sunnudaginn hieyptu skæru-
liðar upp knattspyrnuleik í San
Sebastian og höfðu þá á brott með
sér um tvö hundruð manns. Þá
varð sá ömurlegi atburður í La
Florida að skæruliðar réðust fyrir
nokkru á samyrkjubú við La Flor-
mber. Al\
'ida og unnu þar hin ferlegustu
hryðjuverk, klufu þeir karla og
konur í herðar niður, misþyrmdu
börnum og unnu mikil skemmdar-
verk. Af þessum atburði fréttist
ekki strax, enda urðu flestir fyrir
meiri eða minni misþyrmingum og
hafa því lítt verið til frásagnar um
atburðinn fyrr en nú.
Norðmenn sitja uppi með rúm
tuttugu tonn af óseldri skreið
Osló, 10. desember. Frá Jan Krik Lauré, fréttaritara Morgunblaðsins.
VANDAMÁL norskra skreiðarframleiðenda hefðu aldrei átt að koma til
sögunnar. Norska sendiráðið í Nígeríu sendi strax í janúar á þessu ári
aðvörun heim til Noregs þess efnis að Nígeríumenn hygðu á stórfelldan
niðurskurð á innflutningi skreiðar frá Noregi.
Norskir skreiðarframleiðendur sendiráðsins virtist þjóta sem
sitja nú uppi með rúmlega 20 tonn vindur um eyru manna í sjávar-
af skreið, að verðmæti um 500 útvegsráðuneytinu og því er stað-
milljónir norskra króna. Aðvörun an í dag sú sem raun ber vitni.
Skreiðarframleiðslu var haldið
áfram af fullum krafti, eins og
ekkert hefði í skorist.
Mikil reiði ríkir nú hjá skreiðar-
framleiðendum í garð sjávarút-
vegsráðuneytisins og margir,
framleiðenda benda á að íslend-
ingar hafi haft pata af því sem var
í uppsiglingu þótt Norðmenn, sem
væru með sendiráð í Nígeríu,
fengju enga vitneskju um stöðuna.
Þessa dagana karpa utanríkis-
og sjávarútvegsráðneytið um hvor
aðilinn eigi sök á ástandinu, sem
nú ríkir í skreiðarsölumálum
Norðmanna.
Nýr sendiherra
Kínverja hjá SÞ
IVking, 9. denenber. Al\
Varaforsætisráóherra Kína,
Zhang Wenjin, einn af þekkt-
ustu stjórnmálamönnum Kín-
verja, var í dag skipaður sendi-
herra þjóðar sinnar hjá Samein-
uðu þjóðunum, að sögn kín-
verska utanríkisráðuncytisins.
Zhang, sem nú er 67 ára
gamall, er einn helsti sér-
fræðingur Kínverja í málefn-
um Vesturlanda. Hann verður
annar sendiherra Kínverja
hjá Sameinuðu þjóðunum frá
árinu 1979 er samskipti Kín-
verja og Bandaríkjamanna
urðu eðlileg á ný.