Morgunblaðið - 11.12.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982
19
I vikunni var kveikt í gíiðarstóni jólatré við Rockefeller Center I New
York og var það gert við hátíðlega athöfn og þess minnzt að þetta væri
í 50. skipti sem jólatré væri tendrað á þessum stað. Kór SL Patricks-
kirkju söng jólalög og mikill mannfjöldi streymdi að til að vera við.
Jólatréð er rösklega 20 metrar á hæð, komið frá Noregi, það er prýtt
þúsundum marglitra Ijósapera.
Noregur:
Willoch hótar
stjórnarkreppu
Oslo, 10. desember.
Krá Jan Krik Lauré, fréttaritara MorgunhlaAsins.
KAARE Willoch, forsætisráðherra Noregs, hefur hótað stjórnarkreppu í
landinu ef þingið fer ekki að tilmælum stjórnarinnar um aukinn stuðning við
sjávarútveginn á næsta ári. Margir flokkanna vilja enn meiri stuðning við
sjávarútveginn en stjórnin hefur lagt til, en þær tillögur eru Willoch ekki að
skapi.
Samningaviðræður stjórnarinn-
ar við forsvarsmenn sjávarútvegs-
ins fengu snöggan endi í vikunni.
Síðasta tillaga stjórnarinnar var
stuðningur að upphæð einn millj-
arður norskra króna. Talsmenn
sjávarútvegsins fara fram á 1,6
milljarða styrk.
Stjórnin var á þeirri skoðun, að
einn milljarður væri meira en nóg
og sendi málið til þingsins til sam-
þykktar. í meðhöndlun þessarar
tiliögu stjórnarinnar hjá fisk-
veiðinefnd þingsins kom sú staða
upp, að fulltrúar þriggja stjórn-
málaflokkanna í nefndinni vildu
hafa styrkinn 2—300 milljónum
hærri.
Þingið fjallar um stuðning
þennan í næstu viku. Þróist um-
ræður á þann veg sem nú horfir,
eru allar líkur á að meiri styrkur
en stjórnin vill leggja til, verði
samþykktur.
Ríkisstjórnin er mjög föst fyrir
í þessu máli og fái hún vilja sínum
ekki framgengt segir hún af sér að
sögn Willoch. Hún er hrædd við
keðjuverkun, verði hærri styrkur
til sjávarútvegsins samþykktur,
og óttast að fá yfir sig skriðu af
alls kyns styrkjabeiðnum. Má þar
t.d. nefna landbúnaðinn, sem hef-
ur um langt skeið talið sig í fjár-
svelti.
Salmonella í pipar-
hylkjum í Noregi
Atlanta, (ieorgia, 10. desembor. AP.
YFIR 120 tilfelli af sérstakri salm-
onellasýkingu hafa verið tilkynnt í
Noregi á tímabilinu nóvember
1981 og september 1982, að því er
bandaríska heilbrigðiseftirlitið
skýrði frá í dag. Sýkingin var rakin
til ófullnægjandi pakkningar pip-
ars í nánast öllum tilvikunum, að
því er segir í málgagni eftirlitsins
og birt er í dag. Sjaldgæft er að
salmonella láti á sér kræla í Nor-
egi, að sögn ritsins, en kom nú upp
í 18 fylkjum landsins af 24. Sér-
fræðingar rannsaka nú umræddan
piparútbúnað.
Tala látinna kom-
in í 42 í Lesotho
Maseru, Lesotho, 10. desember. AP.
TALA látinna í árás Suður-Afríkumanna inn í dvergrtkið Lesotho hefur
hækkað í 42, þar sem nokkrir, sem særðust í atlögunni, létust í dag. Fulltrúi
lögreglustjóra Lesotho sagði að einnig væri líklegt að Suður-Afríkumenn
hefðu haft eitthvað af fólki á brott með sér.
í útvarpsfréttum í Lesotho var
sagt, að enn væri nokkur hluti
s-afríska liðsins í landinu. Suður-
Afríkustjórn segir að 37 manns
hafi látizt og fjórir hermenn frá
Suður-Afríku hafi særzt. Þetta
eru alvarlegustu og mannskæð-
ustu átök á þessum slóðum um
langa hríð og sú grimmilegasta af
hálfu. Suður-Afríkumanna. Opin-
berar heimildir í Maseru, höfuð-
borg Lesotho, sögðu að af hinum
látnu væru tólf óbreyttir Lesothar
og aðrir flóttamenn sem hefðu
fengið hæli í ríkinu. Talsmaður
Suður-Afríkustjórnar neitaði í
dag að segja neitt um það að-
spurður hvort verið gæti að tala
látinna hefði hækkað. Fréttamenn
í Lesotho og vestrænir diplómatar
þar segjast ekki hafa orðið þess
varir, að Suður-Afríkumenn hefðu
hrifið fólk á brott í árásinni.
Nicaragua:
Stjórnin telur þyrlu-
hrapið skemmdarverk
Managua, 10. desember. AP.
ERNESTO Cardenal, menntamálaráðherra Nicaragua, gaf í skyn í ræðu í
dag, að þyrluslysið sem varð í morgun í Jinandega-héraði með þeim afleið-
ingum að sjötíu og fímm létust, flest börn, væri „afsprengi heimsóknar
Reagans forseta til Honduras og þeirrar aðstoðar sem veitt hefur verið
gagnbyltingarsinnum í Nicaragua". Orð hans voru túlkuð svo að stjórnin í
Managua liti svo á að þyrlan hefði verið skotin niður. Síðar í ræðu sinni tók
ráðherrann þó fram, að rannsókn stæði yfír á þessum atburði til að ganga úr
skugga um, hvort vélarbilun hefði ef til vill átt þátt í að þyrlan hrapaði.
Þyrlan var að flytja börn af
ófriðarsvæðum í landinu áleiðis til
öruggari staða í landinu. Áhöfn
þyrlunnar komst af. I frétt um
slysið segir að þyrla, sem var að
bjarga sjö sem komust af, hafi
orðið fyrir skotárás frá ótiltekn-
um árásarmönnum. Ekki hefur
verið tekið fram af hvaða gerð
þyrlan var. Vitað er að börnin
voru flest indíánar, en ekki hefur
verið sagt frá því hvort þau voru
af ættbálkum Sumosar, Miskitoa
eða Rama. Allir þessir þrír ætt-
bálkar eru enskumælandi, flestir
mótmælendur og hafa verið and-
snúnir stjórn Sandinista.
Nú í
DÝRTÍÐINNI
biðja allir um
ÓDÝRU
STJÖRNU
JÓLAKORTIN
FAST I FLESTUM
BÓKA- GJAFA- OG
RITFANGAVERSLUNUM
LITBRA HF.
SÍMAR 22930 - 22865
Hefur
þúspóðí
„Spá-
manninn”?
Nýr höfundur. Nýstárleg saga.
Nútímaleg viðfangsefni. Þessi
fyrsta skáldsaga Jóns Orms
gerist á nokkrum
haustdögum í Reykjavík.
Aðalpersónan er
deildarstjóri í ráðuneyti.
Höfundi tekst að beina
athygli lesandans að þeim
þáttum í fari landans og
fylgsnum kerfisins, sem
þarfnast endurskoðunar
að mati Júlíusar
Jónssonar deildarstjóra.
ÓVENJULEG ÍSLENSK
SKÁLDSAGA, SEM ÞEGAR
ER FARIN AÐ VEKJA
ATHYGLI OG UMRÆÐUR.
o
HoWdlórssotv
VAKA
SÍÐUMÚLA 29 Simar 32800 og 32302