Morgunblaðið - 11.12.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982
23
5 íslenskir listamenn vekja
athygli í Vestur-Þýzkalandi
t'etur Eggerz sendiherra í Vestur-Þýskalandi heimsótti sýninguna en
þarna er hann á tali vid þýska menn.
í SL. MÁNUÐI lauk sýningu 5 ís-
lenskra listamanna í Vestur-
Þýskalandi. Sýningin var haldin í
mjög virtum sýningarstað Werkhof
Bissendorf við Hannover. Þau sem
verk áttu á sýningunni voru: Jens
Guðjónsson, Jóhannes Geir Jóns-
son, Bragi Hannesson, Sólveig
Eggerz Pétursdóttir og Sigurlaug
Jóhannesdóttir.
Sýninguna opnaði sendiherra
íslands í Vestur-Þýskalandi,
Pétur Eggerz. Var hún opin frá
19. september til 26. október og
var aðsókn mjög góð. Sagt var
frá opnuninni í blaðinu Hannov-
ersche Allgemeine Zeitung. Er
þar vitnað í ræðu sendiherrans
við opnunina, þar sem hann fer
viðurkenningarorðum um fyrir-
komulag og frágang sýningar-
innar.
Þá birtist gagnrýni í sama
blaði, þar sem rætt er um verkin
á sýningunni. Verkum Sólveigar
Eggerz Pétursdóttur er lýst sem
lifandi myndum gerðum á reka-
við. Rætt er um litmiklar og
kunnáttusamlega gerðar lands-
lagsmyndir Braga Hannessonar
í olíu. Jóhannes Geir Jónsson
fær lofsamleg ummæli fyrir
olíukrítarmyndir sínar af hest-
um og húsum. Sigurlaug Jóhann-
esdóttir þykir sýna kunnáttu við
að forma verk sín úr hrosshár-
um og Jens Guðjónsson hlýtur
viðurkenningu fyrir skartgripi
sína gerða úr silfri skreytta stór-
um steinum.
Sýningarstaðurinn, Werkhof Bissendorf, er menningarmiðstöð, sem rekin er af einstaklingum, en styrkt að
hluta af opinberum aðilum. Menningarmiðstöðin er til húsa í gömlum bóndabæ, sem var breytt fyrir myndlist-
arsýningar, upplestur, tónleika og fleira.
ViÖ erum á leiðinni:
Norrænir unglingar tjá
skoðanir sínar í myndum
í I)AG er opnuð sýning í kjallara
Norræna hússins á myndverkum
13—16 ára unglinga frá Finnlandi,
Svíþjóð, Noregi, Danmörku og fs-
landi. Það er Félag íslenskra mynd-
listarkennara sem stendur að sýn-
ingunni hér á landi, en sýningin hef-
ur þegar verið sett upp í hinum
Norðurlöndunum sem hlut eiga að
máli. Sýningin er kölluð „Við erum á
leiðinni“ og er fyrsta samsýning
13—16 ára unglinga á Norðurlönd-
unum.
Það var finnska teiknikennara-
félagið sem hafði frumkvæði að
skipulagi og framkvæmd þessarar
sýningar. Hugmyndina kynntu
finnskri myndmenntakennarar á
norrænu námskeiði fyrir mynd-
menntakennara sumarið 1979.
Sóttu Finnar um styrk til Nor-
ræna menningarmálasjóðsins og
fengu það mikið að hægt var að
hefja framkvæmdir. Þegar starfið
hófst haustið 1980 voru markmið-
in að myndgerðinni þessi:
— að gefa norrænum unglingum
sameiginlegan möguleika á því
að tjá hugsanir sínar á mynd-
rænan hátt.
— að kynna almenningi og skóla-
æskunni myndmenntakennslu
á Norðurlöndum.
— að kynna Norðurlönd hvert
öðru með myndverkum ungl-
inganna bæði það sem er líkt
ogólíkt með þeim. ,
— að vera öflug, áhrifarík og
Unnið að uppsetningu sýningarinnar
í Norræna húsinu. Þessi mynda-
samstæða er eftir unglinga frá ís-
landi.
áhugavekjandi sýning sem nái
til sem flestra og verði jafn-
framt hugmyndavaki að nýrri
virkni á þessu siði.
Alls eiga 36 skólar myndverk á
sýningunni, þar af 5 skólar á Is-
landi. Þeir eru: Garðaskólinn,
Heyrnleysingjaskólinn, Hóla-
brekkuskóli, Laugalækjarskóli og
Lækjarskóli. Flest viðfangsefnin
voru unnin í hópstarfi í venju-.
legum myndmenntatímum skól-
anna.
Asa Björk Snorradóttir, for-
maður Félags íslenskra mynd-
menntakennara, sagði að verkin á
sýningunni sýndu hvers ungl-
ingarnir vænta af framtíðinni og
hvað þeir óttast helst. Hún sagði
að það væri ekki ýkja mikill mun-
ur á myndunum eftir því í hvaða
landi þær væru unnar. Það væru
sömu atriðin sem unglingarnir
óttuðust: kjarnorkuvopn, mengun,
landeyðing. En þó væri sérstak-
lega sláandi hvað myndirnar frá
Finnlandi og íslandi væru líkar,
sérstaklega myndir sem sýndu
átök og samskipti stórveldanna
tveggja. Þá sagði Ása að íslensku
myndirnar hefðu hlotið mjög góða
dóma, og mættu íslenskir nemend-
ur vera stoltir af þeim viðtökum
sem myndir þeirra hefðu fengið á
hinum Norðurlöndunum.
Þá vildi Ása koma á framfæri
þakklæti sínu fyrir hönd Félags
íslenskra myndmenntakennara,
til Hafskips hf., sem flutti sýning-
una endurgjaldslaust til íslands,
Norræna hússins í Reykjavík, sem
lét í té sýningarsali án endur-
gjalds, og Þóris Sigurðssonar,
námsstjóra, sem ötullega hefur
unnið að því að gera sýninguna
mögulega.
Sýningin stendur til 13. janúar,
og verður opin daglega frá kl. tvö
til sjö.
Frá tónleikunum í Holtagörðum; Ólöf K. Harðardóttir syngur einsöng.
Sinfónían heimsækir sjúkra-
hús og dvalarstofnanir
MIKIÐ annriki hefur verið hjá Sin-
fóniuhljómsveit íslands á þessu
starfsári, sem hófst í september síð-
astliðnum, með hringferð um landið.
Auk fastra áskriftartónleika
hefur hljómsveitin haldið tónleika
í nágrenni Reykjavíkur, m.a.
Akranesi, einnig hefur hún leikið
á 8 tónleikum í skólum í Reykjavík
og á Seltjarnarnesi og aðrir 8
skólatónleikar eru fyrirhugaðir í
janúar nk. Það sem af er starfsár-
inu hefur hljómsveitin þegar hald-
ið 31 tónleika, gert hljóðupptökur
fyrir Ríkisútvarpið og sjónvarps-
upptökur.
Nýmæli í starfi hljómsveitar-
innar eru að heimsækja vinnu-
staði og sjúkrahús. Hljómsveitin
hefur þegar heimsótt einn vinnu-
stað, Holtagarða, en dagana 15.,
16. og 17. desember munu hópar úr
Sinfóníuhljómsveit íslands heim-
sækja sjúkrahús og dvalarheimili
í Reykjavík og nágrenni. Staðir
þeir, sem heimsóttir verða, eru:
Landakotsspítali, Borgarspítalinn,
Landspítalinn, DAS Hafnarfirði,
Kveikt á Ham-
borgartrénu
f DAG kl. 16.00 verður kveikt á
Hamborgarjólatrénu, sem Reykja-
vikurhöfn hefur nú eins og mörg
undanfarin ár fengið sent frá Ham-
borg.
Tréð er gjöf frá Klúbbnum Wik-
ingerrunde, sem er félagsskapur
fyrrverandi sjómanna, blaða- og
verslunarmanna í Hamborg og
nágrenni.
Annar af frumkvöðlum þess, að
senda jólatré til Reykjavíkurhafn-
ar, Hans-Herman Schlunz frá
Hamborg, er hingað kominn
ásamt konu sinni ti! þess að af-
henda tréð, sem að venju stendur
á hafnarbakkanum við Hafnar-
búðir, að viðstöddum borgarstjór-
anum í Reykjavík, sendiherra
Þýska sambandslýðveldisins á ís-
landi og öðrum gestum.
Gunnar B. Guðmundsson hafn-
arstjóri mun veita trénu móttöku.
Lúðrablásarar munu leika við
Hafnarbúðir frá kl. 15.45.
Sandgerði:
Aöventuhátíð
í húsi Slysa-
yarnarfélagsins
Sandgerði 10. deaember.
í TILEFNI af ári aldraðra gangast
félagasamtök í Sandgerði, þ.e. kven-
félagið, kirkjukórinn, Lionsklúbbur-
inn og knattspyrnufélagið fyrir að-
ventuhátíð í húsi Slysavarnarfélags-
ins á morgun, sunnudag, klukkan
14.00.
Á þessa aðventuhátíð og til
kaffidrykkju eru allir velkomnir,
aldnir sem ungir.
— Jón.
Kleppsspítalinn, DAS Laugarási,
Kópavogshæli, Reykjalundur,
Elliheimilið Grund, Sólvangur
Hf., St. Jósefsspítalinn Hf., og
Vífilsstaðir.
Efnisskrá sú, sem flutt verður,
er jólalög og jólasálmar, sem út-
sett hafa verið sérstaklega í tilefni
þessara heimsókna, auk þess verð-
ur flutt önnur tónlist tengd jóla-
hátíðinni.
(Kréttatilkynning)
Leiðrétting
ÞAU MISTÖK urðu í myndatexta
með frétt í Mbl. um gjafir til sjúkra-
hússins á Egilsstöðum að rangt var
farið með nafn í myndatexta.
Hið rétta var að formaður kven-
félagsins, Svanfríður Kristjáns-
dóttir, var að afhenda Einari
Rafni Haraldssyni, framkvæmda-
stjóra sjúkrahússins, fjögur rúm
sem kvenfélagið gaf til sjúkra-
hússins.
ODÝRAR
FALLEGAR
UPPHLEYPTAR
MYNBIR
EFTIR
FAST í FLESTUM
BÓKA- GJAFA- OG
RITFANGAVERSLUNUM
LITBRÁ HF.
SÍMAR 22930 - 22865