Morgunblaðið - 11.12.1982, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1982
Rabbað við Erlu
Olafsdóttur, nýjan
medeiganda í
tískuversluninni
Garbo
BREYTINGAR hafa orðið á
rek.stri og útliti tiskuverslunarinn-
ar Garbo i Austurstræti. Þann 1.
október sl. gerðist Erla Ólafsdóttir
meðeigandi að hálfu á móti Karna-
bæ, jafnframt því sem verslunin
fékk „andlitslyftingu** við það
tækifæri. Garbo er sex ára gömul
verslun og hefur alla tíð verið I
húsnæði Karnabæjar.
Jafnframt því að eiga verslunina
að hálfu er Erla verslunarstjóri.
Með henni í versluninni vinnur
Úr versluninni Garbo.
MorgunblaAM/KÖE.
„Þýðir ekkert að bjóða upp á
vörur, sem ekki eru í hátísku“
nafna hcnnar Gunnarsdóttir. Erla
er enginn nýgræðingur í þessum
„bransa". Hún hefur í 13 ár starf-
að hjá Karnabæ og þekkir því vel
til.
Morgunblaðið hitti hana að
máli í versluninni í vikunni og
innti hana eftir því hvort miklar
breytingar hefðu að hennar mati
orðið á innkaupum og viðhorfum
fólks til tískufatnaður á þeim
tíma sem hún hefði starfað við
þessa tegund verslunar.
„Já, það hefur tvímælalaust
orðið mikil breyting. Fólk kaupir
orðið miklu meira af fatnaði, all-
ur þessi fjöldi verslana ber því
best vitni. Annað er það, að fólk
fylgist miklum mun betur með
núna og kaupir föt ekki eins árs-
tíðabundið og áður, þegar föt
voru keypt þrisvar á ári og punkt-
ur basta."
— Hvaðan kaupið þið helst
fatnað?
„Við verslum langsamlega mest
við Frakkland, Ítalíu, Holland og
svo örlítið við England. Við leggj-
um á það áherslu að vera með
fatnað, sem passar vel saman,
þannig að konur geti keypt á sig
allt frá hatti og niður í skó. Núna
fyrir jólin fáum við t.d. mikið af
dömufötum, þ.e. jakka og buxur."
— Hvaða aldurshópur kvenna
verslar mest hjá ykkur?
„Það er eiginlega enginn hópur
öðrum meira áberandi. Við fáum
hingað kvenfólk allt upp undir
fertugt, en mest yngri konur.“
— Nú ríkir mikil samkeppni á
milli tískuverslana. Þýðir það
ekki að þið verðið að fylgjast
geysivel með?
„Jú, vissulega. Ég fer t.d. út
einu sinni í hverjum mánuði til
að skoða og kaupa tískufatnað.
Það þýðir ekkert annað ef vel á að
vera. Fólk, og þá sér í lagi kven-
fólkið, fylgist orðið geysilega vel
með því sem er að gerast í tísk-
unni erlendis og það þýðir ekkert
að bjóða upp á vörur, sem ekki
eru í hátísku."
— SSv.
„Smán hlutirnir skipta miklu máli,“ segir Erla Ólafsdóttir verslunarstjóri
og eigandi Garbo.
í Garbo er lögð áhersla á að eiga til alls konar fatnað, sem paanar vel
saman," segir Erla Ólafsdóttir. Hér er hún með starfsstúlkunum Erlu
Gunnarsdóttur og Önnu Lilju Valgeirsdóttur.
Stormsveipur
í stjórnmálum
Bók um kvenna-
framboð eftir Guð-
mund Sæmundsson
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur
hf. hefur gefið út bókina „Storm-
sveipur í stjórnmálum" eftir Guð-
mund Sæmundsson á Akureyri. Bók-
in fjallar um kvennaframboðin 1982,
aðdraganda þeirra, framkvæmd,
árangur og hugsanleg áhrif í fram-
tíðinni.
í kynningu forlagsins á bókar-
kápunni segir m.a. að bókin
„Stormsveipur í stjórnmálum" sé
nánast fréttaskýringabók á
kvennaframboðunum sl. vor og
GUDMUNDUP, SÆMUNISSON
kvennabaráttunni, innlegg í þá
sögu sem er að gerast og bókin
svipti hulu af mörgu, eins og t.d.
hvers vegna jarðvegur fyrir slík
framboð var svo frjór sem raun
ber vitni.
Þar segir að það hafi verið
meira en gustur sem fór um ís-
lensk stjórnmál í kosningunum —
kvennaframboðunum í Reykjavík
og á Akureyri megi líkja við
stormsveip. Framboðin höfðu víð-
tæk áhrif, ekki aðeins að því leyti
að „gömlu" flokkarnir tóku við sér
og skipuðu fleiri konum á
framboðslista sína en áður, heldur
fyrst og fremst vegna þess að á
báðum stöðum hlutu kvennalist-
arnir verulegt brautargengi í
kosningunum — hlutu þriðja
mesta atkvæðamagn listanna sem
í kjöri voru.
„Stormsveipur í stjórnmálum"
er sett, umbrotin, filmuunnin og
prentuð í Prentsmiðjunni Hólum,
en kápu gerði Sigurþór Jakobsson.
Afhenti
trúnaðarbréf
í Hollandi
EINAR Benediktsson, sendiherra,
afhenti 8. desember hennar hátign
Beatrix Hollandsdrottningu trún-
aðarbréf sem sendiherra Islands í
Hollandi með aðsetur í London.
Ljósmyndir Hallgríms
Einarssonar Akureyri
í upphafi nýrrar aldar
Þjóðskáldið séra Matthías Jochumsson sat um árabil á friðarstóli á Akureyri eftir að
hann lét af embætti þar sem sóknarprestur. Akureyringar kunnu líka að meta hann og
kusu hann fyrsta heiðursborgara Akureyrar.
Myndin sýnir höfund þjóösöngs okkar íslendinga þar sem hann situr lengst til hægri í
heimsókn hjá syni sínum Steingrími lækni og fjölskyldu hans.
Myndin er aðeins eitt sýnishorn af fjölmörgum Akureyrarmyndum í bókinni Akureyri
1895—1930, bókinni þar sem saga höfuðstaðar Norðurlands í byrjun tuttugustu aldar
birtist í listafallegum myndum á hverri síöu.
Myndperlur Hallgríms Einarssonar eiga erindi inn á hvert heimili, þar sem menn unna
fögru handverki — fallegum myndum — góðri bók — og sögu forfeöranna, fólksins
sem lagði grunn að velferð okkar í dag.
Bókaútgáfan
HAGALL
Bárugötu 11,101 Reykjavík, sími 17450.