Morgunblaðið - 31.12.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1982
7
HUGVEKJA
eftir sr.
Hjalta Guðmundsson
Gamlársdagur hefur algjöra
sérstöðu meðal dága ársins,
því að þá meira en endranær
reikar hugurinn til baka til
hins liðna. Auðvitað er þetta
rétt eins og hver annar dagur á
almanakinu, en einn dagurinn
til að marka spor tímans, og
það sem við segjum og gerum á
þessum degi mætti alveg eins
gera hvern annan dag sem
væri. Samt finnum við það svo
vel innra með okkur, að ákveð-
inn hluti af hinum sístreym-
andi tíma er að renna sitt
skeið með sínum tækifærum
og mistökum og atburðum,
sem þar hafa verið varanlega
skráðir. Við höfum látið af
hendi ákveðinn hluta af lífi
okkar, eitt ár sem við köllum
svo, og við sem erum orðin
eldri vitum, að eitt ár er ákaf-
lega stuttur tími.
Öll eigum við okkar ára-
fjölda til ráðstöfunar, og eng-
inn veit, hve mörg þau eru, og
nú er enn eitt að hverfa á
braut. Við höfum notað þann
tíma, notað hann vel eða illa.
Við könnumst við það, þegar
við erum á ferðalögum og gist-
um á hótelum, að við reynum
að gæta þess vel að gleyma
engu, því að annars gæti það
orðið okkur glatað að eilífu.
Við leitum vel, opnum skápa
og skúffur og athugum, hvort
nokkuð sé eftir.
Nú, þegar aðeins nokkrar
stundir eru eftir af árinu, leit-
ar hugur okkar. Hverju gleym-
um við, þegar við förum héðan
um miðnætti, förum frá árinu
1982 og til ársins 1983, höfum
nokkurs konar vistaskipti.
Vafalaust hefur ýmislegt
gleymst og sumt verið látið
ógert, sem við vildum hafa
gert. Við eigum okkar heild-
armynd hvert og eitt af þessu
ári, sem við geymum í hugan-
um. Sumum er það sem fjár-
sjóður, öðrum e.t.v. sem böl og
enn aðrir eiga ekkert, nema
sorglegar endurminningar.
Börnum þykir oft gaman að
vera í þykjustuleik. Þau þykj-
ast vera eitt og annað og skapa
sér sinn óraunverulega heim
og lifa þar góðu og skemmti-
legu lífi. Við höfum sjálfsagt
öll átt slíkan heim. En sá
heimur dugar ekki til lang-
frama. Alvara lífsins sér fyrir
því.
Það getur verið freistandi að
látast vera annað og meira í
augum annarra en maður er í
raun og veru. Það er stundum
erfitt að viðurkenna vanmátt
sinn og smæð sína. Allir vilja
verða miklir og láta bera á sér,
skara fram úr. Þá er stundum
gripið til þess ráðs að reisa sér
ótraustar undirstöður að tylla
sér á.
Þökkum
Guði
liðið
ár
Mér hefur stundum fundist
þetta um blessaða þjóðina
okkar, að hún vildi vera meiri
en hún er og að hún eigi sér
ekki nógu traustar undirstöður
í lífi sínu.
A þetta bendir vers úr Orðs-
kviðunum: „Betra er að láta
lítið yfir sér og hafa þjón en að
berast mikið á og hafa ekki
ofan í sig.“ (12,9).
Ég held, að þjóðin hafi lifað
langt um efni fram í mörg ár.
Það er ekki okkur gefið að vera
sparsöm og láta lítið yfir
okkur. Við viljum heldur ber-
ast mikið á, jafnvel þótt við
höfum ekki efni á því. Margur
maðurinn steypir sér í stór-
skuldir til þess 'að veita sér og
sínum ýmislegt það, sem hann
hefur í raun og veru ekki efni
á, og því fylgja síðan ótaldar
raunir og áhyggjur og vöku-
nætur. Menn reisa sér hurðar-
ás um öxl og sligast undir öllu
farginu, og margar fjölskyldur
hafa raunverulega brostið,
vegna þess að þær réðu ekki
við þær byrðar, sem þær höfðu
bundið sér.
Þá er betra að fara sér hægt
og hugsa sitt ráð og reyna að
gera sér grein fyrir því í
hverju raunveruleg hamingja
er fólgin. Margt af því, sem við
höfum í kringum okkur, veitir
okkur gleði, en sönn hamingja
kemur innan frá. Það er hinn
innri maður, sem þar ræður,
hugur og hjarta, og sá innri
maður þarf sína næringu.
Það er Guð og kraftur hans,
sem þarf að vera að baki og
skapa þann grundvöll, sem
byggt er á. Ef þann grundvöll
vantar, þá er allt í voða. Þá er
tómleiki inni fyrir, sem oft er
reynt að fylla með einhverju
óhollu. Nóg eru dæmin um það
í þjóðlífinu. Allt of margir vill-
ast á leið lífsins og láta glepj-
ast af fagurgala og lenda í ein-
hverju öngstrætinu, þaðan
sem erfitt er að rata til baka.
Sumir komast til baka eftir
mikil harmkvæli, en aðrir
verða þar fastir og komast
ekkert annað allt sitt líf.
Þessi fáu orð úr Orðskviðun-
um, sem vitnað var til, eru
okkur hvatning á þessum síð-
asta degi ársins um að ástunda
heiðarleika, þann heiðarleika,
að reyna ekki að vera annað en
við erum, *þ.e.a.s. að við reyn-
um að gera okkur það ljóst, að
hin sönnu verðmæti lífsins eru
einungis og algjörlega reist á
frelsara heimsins, Jesú Kristi,
og boðskap hans.
Nú er komið að kveðjustund.
Við kveðjum þetta ár, sem við
höfum lifað í sorg eða gleði og
þökkum góðum Guði, sem hef-
ur haldið verndarhendi sinni
yfir okkur og þjóðinni allri. Nú
horfum við fram til hins nýja
árs, sem brátt lítur dagsins
ljós, kemur sem óskráð blað
inn í líf okkar. Við vitum ekki,
hvað það ber í skauti sér okkur
til handa, en öll skulum við
fela okkur Guði í þökk og bæn
um gott og farsælt ár.
Megi góður Guð blessa þig,
lesandi góður, fjölskyldu þína
og þjóðina alla um ókomin ár.
hIEIEIEIEIEIEIEIIh
I Vegna vörutalningar
I verða allar deildir okkar
I lokaðar mánudaginn 3. janúar
I og þriðjudaginn 4. janúar.
IhIheklahf
| Laugavegi 170-172 Sími 21240
Óskum viðskiptavinum okkar, stétt-
arbræðrum og öðrum landsmönnum
gleðilegs nýs árs og þökkum sam-
starfið á liðnu ári.
Kjöreign
Ármúla 21.
s 85009 — 85988
f
Dan V.8. Wiium, lögfraaöingur.
ólafur Guömundsson sölum.
Keflavík
Nýtt megrunarnámskeiö hefst 4. janúar í Safnaöarheimilinu
Blikabraut 2, Keflavík. Námskeiöiö veitir alhliöa fræöslu um
hollar lífsvenjur og vel samsett mataræöi, sem getur samrýmst
vel skipulögöu, venjulegu heimilismataræöi.
NÁMSKEIÐIÐ ER FYRIR ÞÁ:
• Sem vilja grennast og koma í veg fyrir vandamáliö endurtaki
sig.
• Sem vilja foröast offitu og þaö sem henni fylgir.
• Sem vilja fræöast um hollar lífsvenjur og vel samsett matar-
NÁMSKEIÐID FJALLAR MEÐAL ANNARS UM
EFTIRFARANDI ATRIÐI:
• Grundvallaratriöi næringarfræöi.
• Fæöuval, gerö matseðla, uppskriftir.
• Þætti sem hafa áhrif á fæðuval, matarvenjur og matarlyst.
• Leiöir til aö meta eigið mataræöi og lífsvenjur.
Upplýsingar og innritun í síma 91—74204 í dag og næstu daga.
Óskum viðskiptavinum vorum svo og
landsmönnum öllum, gleðilegra jóla
og farsœls komandi árs, með þökk
fyrir viðskiptin á árinu sem er að h'ða.
Fasteigna ma rKaöu r
Fjárfesöngarfélagsins hf
SKÓLAVÖRÐUSTiG 11 SÍMI 28466
(HÚS SRARISJÖÐS REYKJAVÍKUR)
Lögfræðingur: Pétur Þór Sigurðsson
Sími 2-92-77 — 4
El/ Eignaval
Laugavegi 18, 6. hæd. (Húa Mála og menningar.)
Óskum viðskiptavinum okkar og
landsmönnum öllum gleðilegs ný-
árs og þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.
Oskum viðskiptavinum okkar. svo og öllum lands-
mönnum GLEÐÍLEGS NÝS ÁRS. og þökkum fyrir
viðskiptin á árinu sem er að líða
Viljum um leið benda á, að okkur vantar allar gerðir
eigna á sö/uskrá. verðmetum samdægurs se þess
óskað.
Strandgötu 28
54699
Hrafnkell Ajgeirsjon hrl.
Sölustjöri Sigurjon EgiLsjon