Morgunblaðið - 31.12.1982, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 31.12.1982, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1982 Hvað segja þeir um áramót? á markaðnum höfum við, þegar svo ber undir, orðið að sæta því að lækka verð á útflutningsvörum okkar, sem samsvarar tollum og tollahækkunum í löndum, sem kaupa þær. Tolla á innflutning berum við einnig sjálfir. íslend- ingar hafa því tvöfaldan ávinning af fríverzlun. Fríverzlun í heiminum er nú ógnað, ekki með tollum, heldur styrkjum og niðurgreiðslum til at- vinnugreina og fyrirtækja, sem standast ekki samkeppni. Heims- viðskiptin drógust því saman á ár- inu 1981, í fyrsta sinn síðan 1958. Það er ekki vandalaust að bregð- ast við í þessari stöðu. Þessari ný- verndarstefnu þurfum við að mót- mæla á alþjóðavettvangi, en jafn- framt er okkur hollt að líta í eigin barm. Við erum engu bættari að gera Island að vernduðu láglauna- svæði með því að sætta okkur við ný og ný vörugjöld og hækkanir þeirra. Styrkir til fyrirtækja og at- vinnugreina í einu eða öðru formi eru aðeins endurgreiðsla á því, sem ríkisvaldið hafði áður oftekið frá atvinnulífinu. Tilsvarandi má segja um svokallaða skerðingu verðbóta á laun. Raunar er allt tal um kjarabætur og kjaraskerðing- ar út í hött, þegar samningar byggjast á skiptingu þess sem ekki er til. Sjálfvirk vísitala bætir ekki kjörin, fremur en óraunhæfir samningar. Kjarasamningar og launakjör mega ekki ráðast af valdbeitingarstyrk verkalýðs- hreyfingarinnar. Þeir verða að taka mið af efnahagsástandinu hverju sinni. Að öðrum kosti eykst glundroðinn. Reynslan hefur kennt okkur, jafnvel þótt verðbæt- ur á laun hafi ítrekað verið skert- ar, að víxlverkun launa og verð- lags hefur eyðilagt allar aðgerðir ríkisstjórna til að draga úr verð- bólgu og koma á jafnvægi í efna- hagslífinu. Er þá ekki kominn tími til að vísitölukerfið verði afnumið í heild eins og ýmsir hafa lagt til að undanförnu? í landinu situr dáðlaus og ráð- laus ríkisstjórn, sem hvorki hefur styrk né getu, og ef til vill ekki einu sinni vilja, til þess að ráða við efnahagsvandann. Landsmenn sjá ekki fram á nýjan þingmeirihluta og nýja ríkisstjórn, fyrr en á miðju næsta ári og enginn veit í hvert óefni verður þá komið. Slík sjálfhelda, sem jaðrar við stjórn- arkreppu, er virðingu alþingis al- varlegur hnekkir. Stjórnleysið og efnahagsvandinn, sem öllum er nú ljós, kallar á styrka stjórn án taf- ar. Ef alþingi tekst ekki að koma henni á, er knýjandi að utanþings- stjórn taki við unz ný ríkisstjórn hefur verið mynduð eftir kosn- ingar. Hverjar sem lyktir núverandi stjórnarkreppu verða er ljóst, að árangur í efnahagsstjórninni næst ekki nema með uppstokkun. Við þurfum frjálsræði og festu í stað upplausnar og óvissu. Vonandi þekkir þjóðin sinn vitjunartíma og gefur ótvírætt umboð til að tími endurreisnar fari í hönd. Til þess að svo verði þurfa athafnamenn að leggja lóð sitt á metaskálarnar. Sigurður Kristinsson forseti Landssam- bands iðnaðarmanna Vissulega væri að því nokkur tilbreyting, ef unnt væri við ára- mót að líta yfir farinn veg, og lýsa því yfir, að árið, sem senn heyrði sögunni til, hefði fært atvinnuveg- unum hagsæld, og þar með lands- mönnum öllum. Því miður gefst nú ekkert tilefni til þess. Þetta ár hefur reynst okkur, sem stöndum fyrir iðnaðarstarfsemi, afar þungt í skauti, og sjálfsagt er svipaða sögu að segja af öðrum atvinnu- vegum þjóðarinnar. Hætt er við, að þér, lesandi góð- ur, þyki þessi orð mín um erfið- leika ársins næsta keimlík þeim, sem ég og aðrir forystumenn hagsmunasamtaka atvinnulífsins höfum áður viðhaft á þessum vettvangi. Þetta séu næsta stöðluð inngangsorð að áramótaskrifum, í það minnsta sé litið til nokkurra síðustu ára, og að þessir pistlar okkar hafi oftar en ekki einkennst af bölsýni og barlómi. Hefði allt gengið eftir því, sem þar var fram sett, ættu flest ef ekki öll fyrir- tæki þessa lands að vera komin á höfuðið fyrir löngu. Það er á hinn bóginn ekki raunin, og því sé ekki ástæða til að taka enn ein svart- sýnisskrifin of hátíðlega. Hér vildi ég gjarnan staldra ögn við. Eg ber í brjósti þann metnað, að íslenskur iðnaður, og raunar allir aðrir atvinnuvegir okkar, nái að vaxa og dafna. Mér er því ekki nóg, að leitast sé við að halda í horfinu, eins og sumir virðast láta sér lynda. Ég fæ heldur ekki séð, að slík nægjusemi gagnvart iðnað- inum samrýmist þeim sjónarmið- um, sem flestir viðrast aðhyllast, að iðnaðurinn umfram aðra at- vinnuvegi þjóðarinnar verði að gegna stærra hlutverki í atvinnu- lífi landsmanna, og taka við veru- legum hluta þess unga fólks, sem á vinnumarkaðinn leitar á næstu árum. Ég vil leyfa mér að óska þess, að skrif mín séu skoðuð frá þessu sjónarhorni. A undanförnum árum hefur uppbygging í fjölmörgum greinum iðnaðar verið of hæg, og stórfellds samdráttar hefur orðið vart, eða er yfirvofandi í ýmsum greinum iðanðar. Slík stöðnun eða afturför hefur m.a. lýst sér á þann hátt, að þau iðnfyrirtæki, sem á síðustu árum hafa verið sett á laggirnar, verða talin á fingrum annarrar handar, er náð hafa því að byggj- ast eðlilega upp og halda upp verulegri starfsemi. Hafa „stórið- jurnar", sem ýmsir hafa sett traust sitt á, síst komið betur út í þessum efnum, þótt aðstaða þeirra hafi verið allt önnur og betri en hinna almennu iðnfyrirtækja. En það er ekki einungis hin nýrri iðnfyrirtæki, sem hafa átt við erf- iðleika að etja. Allt of fá gam- algróin fyrirtæki hafa getað að- lagað sig breyttum aðstæðum, hvað þá fært út kvíarnar. Hins vegar eru mörg dæmi um fyrir- tæki, sem orðið hafa að leggja niður starfsemi sína eða rifa segl- in verulega. Of lengi hefur það sjónarmið ráðið ríkjum, að sé fyrirtækið rekið „á núlli", sé allt með felldu, og við mat stjórnvalda á stöðu atvinnugreina er núllið nánast orðin helg tala, sem allt beri að stíla á. Slíkt gengur þó ekki til langframa, eins og margir hafa fundið óþyrmilega fyrir að undanförnu. Þessi hugsunarhátt- ur er rýrt veganesti, vilji menn að haldið verði á iðnþróunarbraut. Á árinu 1982 voru 50 ár liðin frá stofnun Landssambands iðnað- armanna, og var þess minnst á margvíslegan hátt. Á slíkum tímamótum er við hæfi að glugga í gamlar heimildir, og hyggja að því, hvað frumherjar Landssam- bandsins létu til sín taka fyrir 50 árum. Kom í ljós, að flest þau mál- efni, sem þá voru til umfjöllunar innan Landssambandsins eru enn á oddinum, og að þá sem nú voru gerðar margvíslegar kröfur um úrbætur á aðstöðumálum iðnaðar- ins á hendur stjórnvöldum. Það er eðlilegt, að mikilvægir málaflokk- ar iðnaðarins séu stöðugt til með- ferðar innan Landssambands iðn- aðarmanna, en hitt er furðulegra, sem í ljós kom, að enn eftir 50 ár, skuli mörg hin sömu vandamál bíða úrlausnar. Við, sem við iðnað fáumst, höf- um löngum bent á, að löggjafar- og framkvæmdavaldið hafi sett iðnaðinn skör lægra en aðra höf- uðatvinnuvegi þjóðarinnar. Það var því mikið fagnaðarefni, þegar á sínum tíma var skipuð nefnd til þess að bera saman starfsskilyrði iðnaðar, sjávarútvegs og landbún- aðar með tilliti til samkeppnis- stöðu í útflutningi og á heima- markaði. Nefnd þessi skilaði áliti í byrjun þessa árs. Niðurstöður staðfestu ótvírætt, að iðnaðurinn býr við lakari starfsskilyrði en aðrir höfuðatvinnuvegir lands- manna, og jafnframt, að innan iðnaðarins sjálfs er greinum mis- munað stórlega í fjölmörgum at- riðum, fyrst og fremst á grund- velli þess, hvort þær falli undir svonefndan samkeppnisiðnað eða ekki. Er þetta einnig mjög í sam- ræmi við málflutning Landssam- bands iðnaðarmanna, sem hefur lagt á það ríka áherslu, að þær umbætur í starfsskilyrðum iðnað- ar, sem smám saman hafa séð dagsins ljós í samræmi við gömul fyrirheit við inngöngu í EFTA, hafa fyrst og fremst komið sam- keppnisiðnaði til góða, einkum þó útflutningsiðnaðinum. Þær grein- ar iðnaðar, sem utan standa, svo sem byggingar- og verktakaiðnað- ur og margvíslegar þjónustugrein- ar, t.d. í málmiðnaði, hafi á hinn bóginn litlar leiðréttingar fengið á aðbúnaðarmálum sínum, þrátt fyrir þá staðreynd, að þær eigi í verulegri og vaxandi samkeppni, bæði beint og óbeint. Þessi mis- munun milli atvinnuvega og milli greina innan sama atvinnuvegar hefur haft í för með sé mikið tjón, og mun leiða til enn frekari ófarnaðar, náist ekki jöfnuður í þessum efnum. Því miður sjást ekki ýkja mikil merki þess, að stjórnvöld hyggist taka tillit til niðurstaðna starfsskilyrðanefnd- arinnar í bráð. Þó verður að játa, að starfsskilyrði þess hluta iðnað- ar, sem nýtur opinberrar viður- kenningar sem samkeppnisiðnað- ur, hafa nálgast þau skilyrði, er um aðra atvinnuvegi gilda. Hins vegar hefur enn engin tilraun ver- ið gerð, til þess að brúa það bil, sem ríkir gagnvart öðrum grein- um iðnaðar. Að minni hyggju er það einmitt þessi geiri iðnaðar, sem öðrum fremur á skilið athygli stjórnvalda á næstunni og á heimtingu á nokkurri úrlausn mála sinna. í þessum iðngreinum greiða fyrirtæki enn aðflutn- ingsgjöld af öllum aðföngum sín- um. Opinberar álögur á fyrirtæk- in, eins og launaskattur og að- stöðugjald, eru og hærri en tíðkast í öðrum greinum. Loks má nefna, að aðgangur fyrirtækjanna að rekstrarlánafyrirgreiðslu er afar takmörkuð, og sú fyrirgreiðsla, sem með harmkvælum er unnt að kría út, er á lakari kjörum en sam- keppnisiðnaði, landbúnaði og sjvaraútvegi stendur til boða í formi endurkaupalána Seðlabanka íslands. Sú viðleitni stjórnvalda síðustu mánuðina, til að koma á jafnvægi á lánamarkaðnum og auka aðhald í útlánum bankanna, hefur og komið verst við þau fyrir- tæki, sem utan þessa sjálfvirka endurkaupakerfis standa. Ég gat þess áðan, að eftir 50 ára baráttu Landssambands iðnaðar- manna biðu enn mörg hin sömu vandamál úrlausnar í íslenskum LjósiÖ sem gerir sjóinn bláan Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Matthías Johannessen: SAMTÖL I—IV Eiríkur Hreinn Finnbogason annaðist útgáfuna. Almenna bókafélagið 1977—1982. Það eru mörg ár liðin síðan fyrstu samtöl Matthíasar Johann- essens birtust í Morgunblaðinu. Matthías kallaði þau I fáum orð- um sagt. Eiríkur Hreinn Finn- bogason hefur valið úr þessum samtalsþáttum í fjórar bækur: Samtöl I—IV. í formála fyrsta bindis Samtala kveðst Eiríkur Hreinn hafa haft i huga „að fjöl- breytni gætti um val viðmælenda, bæði að því er snerti lyndi og lífsviðhorf". Þetta hefur að öllum líkindum verið gert til þess að bækurnar höfðuðu til sem flestra. Það er að minnsta kosti óvenjuleg blanda í Samtölum. í fyrsta bindi til dæmis hittir lesandinn fyrir Elías Hólm flöskukaupmann, Egg- ert Stefánsson söngvara, Helgu á Engi, Maríu Andrésdóttur 100 ára, Louis Armstrong, Þórarin Jónsson á Melnum og W.H. Auden. Þessi fjölbreytni í vali efnís set- ur svip sinn á öll bindin. Og þótt undarlegt megi virðast er ekkert hrópandi ósamræmi á milli skoð- ana íslensks alþýðufólks og heims- borgara eins og til dæmis Ellu Fitzgerald. Hún hefur jafn miklar áhyggjur af æskunni og bónda- kona úr Breiðafirði. „Við verðum að ná unga fólkinu af götunni, koma í veg fyrir að það lendi á refilstigum," segir Ella við Matthías í svítunni á Hótel Sögu 1966. Samtalið við Ellu er eitt af fáum dæmum um sambandsleysi milli Matthíasar og viðmælanda hans. Spurningar Matthíasar eru of almennar í fyrstu; hann víkur líka að viðkvæmu máli sem fer í taugarnar á Ellu: kynþáttabarátt- unni. En svo verður nafn Louis Armstrongs til að blíðka Ellu og undir lokin tekst Matthíasi að láta hana trúa sér fyrir leyndarmáli, ástarsögu. Eitt af því sem menn veltu fyrir sér þegar Matthías fór að skrifa samtöl í Morgunblaðið, tók við af Valtý Stefánssyni, var það með hvaða hætti hann fengi fóík tíl að opna hug sinn. í samtöium Matt- híasar voru jafnvel einkamál til umræðu, sumt sem engum hefði dottið í hug að segja upphátt, hvað þá hlaupa með í blöðin. Hjá Matthíasi voru þetta sjálfsagðir hlutir. Af ótrúlegri fimi tókst Matthíasi sífelldlega að komast að kjarna máls. Þetta var honum ekki alltaf jafn auðvelt, en furðu oft. Eitt af því sem greinir samtöl Matthíasar frá venjulegum blaða- viðtölum er það að hann hefur áhuga á persónunni sjálfri; í stað- inn fyrir að leitast við að fá fólk til að segja frá einhverju sem hef- ur komið fyrir það reynir hann að skilja manninn á bak við orðin. Matthías Johannessen Hann er sjaldan í gervi blaða- manns, heldur skáld í heimsókn. Mörg samtala hans eru myndir náskyldar ljóði, önnur gætu talist smásögur með smávægilegum breytingum. Það er til dæmis fróðlegt að bera saman samtals- þætti hans og smásögurnar sem hann hefur birt á víð og dreif í blöðum og tímaritum, en komu út hjá Þjóðsögu í fyrra undir heitinu Nítján smáþættir. Sá samanburð- ur leiðir í Ijós að bilið er stutt milli samtala og skáldskapar. Svo kemur kvöld, og þá er gott að fá sér snúning undir svefninn nefnist samtal við Valdimar Kristófersson bónda í fjórða bindi. Þótt þetta samtal sé kannski ekki endilega besta sýnishorn samtala Matthíasar við alþýðufólk er það um margt dæmigert. Um „mitt stærsta böl“ að þurfa að hætta að bragða það, segir Valdimar: „Vínhneigð var mitt einasta arfa- lóð eftir föður minn, en ég má víst ekki svala henni eins og efni standa til. Þó kemur það fyrir að eitthvað byrjar að sjóða innan í mér, og þá verð ég allur að einum brimgarði og sezt niður að hripa eitthvað, eina og eina stöku eða grein í blað. Svona er nú ástríðan í Skjaldartröð. Ég var eins og ný- sleginn túskildingur í marga daga á eftir. Það var eins og að sitja úti á túni og tala við Jökulinn um nóttina miklu og ljósið sem gerir sjóinn bláan". Samtalið við Valdimar segir mikla sögu, enda er hann óvenju hreinskilinn og lætur sig hafa það að opna allar gáttir fyrir Matthí- asi þótt hann fái ef til vill í „skelj- arnefið hjá frændfólkinu“ fyrir bragðið. Hann vill ekki kalla sann- leikann löst. Bollaleggingar um Ásgrím Hellnaklerk eru of fyrirferðar- miklar, þótt þarfar séu. Ómetan- legar eru aftur á móti frásagnir Valdimars af sjónum, vosbúðinni og þrælkuninni sem menn urðu að sætta sig við. Sagt er frá brim-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.