Morgunblaðið - 31.12.1982, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1982
9
1.
Alþýðubandalagið stefnir að
því, að samkomulag verði nú í
þinghléi um nauðsynlegar breyt-
ingar á kjördæmaskipuninni og
kosningalögunum, til þess að
draga úr því misvægi atkvæða eft-
ir búsetu og eftir flokkum, sem nú
á sér stað við kosningar til alþing-
is.
Margar leiðir hafa verið ræddar
og meðal forystumanna flokkanna
er mikill vilji til þess að ná sem
víðtækustu samkomulagi, jafnvel
fjögurra flokka, um málið, á al-
þingi því sem nú hefur senn störf
að nýju.
2.
Mér er kunnugt um, að stefnt er
að því, að koma stjórnarskrármál-
inu áleiðis á alþingi.
Hversu langt það kemst skal ég
ekki um segja á þessu stigi, enda
útilokað að átta sig á því nú, þar
sem stjórnarskrárnefnd hefur
ekki skilað sinni lokagreinargerð
til stjórnmálaflokkanna.
3.
Að sjálfsögðu verður alþingi að
afgreiða frumvörp til staðfest-
ingar á þeim bráðabirgðalögum,
sem sett hafa verið. Þá eru mörg
önnur þýðingarmikil mál þegar á
dagskrá þingsins. Eg nefni þar
húsnæðismál og málefni fatlaðra,
svo nokkuð sé talið úr mínum
ráðuneytum.
Ennfremur vil ég minna á, að
svo getur að sjálfsögðu farið, að
álmálið komi sérstaklega til kasta
alþingis áður en langur tími líður.
Verði skattamál óafgreidd við
þingrof, verður hins vegar nauð-
synlegt að þing komi saman mjög
fljótt eða strax að loknum þing-
kosningum, til að taka afstöðu til
skattamálanna í tæka tíð fyrir
álagningu tekju- og eignaskatta,
sem venjulega á sér stað á miðju
árinu.
3.
Eins og ég hef áður sagt tel ég
mjög æskilegt, að þau mál sem um
er rætt hér að framan nái fram að
ganga fyrir þingrof. Einnig væri
ákaflega æskilegt, að á Alþingi
næðist samstaða um þó ekki nema
þær aðgerðir í efnahagsmálum
sem sporna gegn vaxandi verð-
bólgu. Ég geri mér varla von um
að unnt sé að ná samstöðu um
róttækar aðgerðir, en ég teldi
ákaflega mikils virði ef það yrði að
Svavar Gestason
4.
Margt kemur til álita, til að
leysa hina stjórnskipulegu sjálf-
heldu á alþingi. Stjórnarandstöðu-
flokkarnir hafa hins vegar til
þessa ekki verið reiðubúnir til við-
ræðna við stjórnarsinna um nein
veigamikil efnisatriði þeirra mála
sem þurfa úrlausnar við á næstu
vikum og þess vegna stendur
sjálfheldan enn.
Ég tel óhjákvæmilegt að engu
að síður verði allt reynt sem unnt
er, til að kveðja stjórnarandstöð-
una til ábyrgðar varðandi lausn
hinna alvarlegri vandamála, bæði
í efnahags- og atvinnumálum. Ef
slík ábyrgðartilfinning dygði
henni til þess að taka þátt í því að
leysa hina stjórnskipulegu sjálf-
heldu á alþingi, þá bæri að fagna
slíku. Engin merki eru um það enn
sem komið er, og mér er ekki
minnsta kosti hægt að sporna
gegn því að verðbólgan vaxi. í
huga mínum vegur að sjálfsögðu
þungt, að vandi útgerðarinnar
verði leystur áður en þing er rofið.
4.
Ég hef verið og er þvi mjög
hlynntur að rætt sé við stjórnar-
andstöðuna um brýnustu úrlausn-
arefnin eins og fram hefur komið
og það olli mér vonbrigðum, að
þær viðræður báru ekki meiri
árangur í haust en raun ber vitni.
Ég fagna því hins vegar að til
dæmis í sambandi við hin mikil-
vægu útgerðarmál hefur stjórnar-
andstaðan fylgst með framvindu
mála og ég tel það spor í rétta átt
og er tilbúinn að hlusta á hug-
myndir hennar í því sambandi.
Ég sé nú varla, að það verði
mikið leyst með því að mynda nýja
ríkisstjórn til skamms tíma. Ég
óttast, að svo margt hangi þá á
spýtunni sem menn vildu ganga
frá, svo sem skipting embætta og
fjölmargt fleira, sem kannski tek-
ur ekki langan tíma en þyrfti þó
að sinna. Ég hefði því heldur kos-
ið, að stjórnarandstaða og ríkis-
stjórn gætu unnið saman að lausn
mikilvægustu mála þessar fáu vik-
ur, sem þing kemur til með að
sitja.
5.
Málefnin verða að ráða myndun
kunnugt um að neinn kostur sé
enn í boði á myndun meirihluta-
stjórnar, annarrar en þeirrar sem
nú situr.
5.
Ég tel að stefna beri að myndun
róttækrar félagshyggjustjórnar
eftir kosningarnar. Það þarf að
vera stjórn, sem hefur kjark til
þess að framkvæma þann upp-
skurð á efnahagslífinu, sem er
nauðsynlegur hér á landi. Þá
verða menn kannski að horfa á
eftir einhverjum heilögum kúm,
sem til þessa hefur ekki verið tek-
ið á hér á undanförnum árum
vegna þess, að um það hefur ekki
náðst pólitísk samstaða. Til að
leysa þau vandamál sem nú eru
mest knýjandi, þ.e. að draga úr
viðskiptahalla, leggur Alþýðu-
bandalagið áherslu á það í fyrsta
lagi að framleiðsla íslenskra at-
vinnuvega og verðmætasköpun
þeirra verði stóraukin frá því sem
nú er. í öðru lagi verði gerðar
ráðstafanir til að draga úr gjald-
eyriseyðslu með aukinni fram-
leiðslu heimaiðnaðar og með bein-
um og óbeinum takmörkunum á
innflutningi. í þriðja lagi tel ég að
gera verði ráðstafanir til víðtæks
sparnaðar í hagkerfinu, m.a. með
róttækri endurskipulagningu ým-
issa veigamestu þátta efnahags-
lífsins, þar sem stærstu efnahags-
ákvarðanirnar eru teknar. Ég
nefni Framkvæmdastofnun, sex
manna nefnd, verðlagsráð sjávar-
útvegsins og bankana sem dæmi.
Fleiri dæmi má nefna til marks
um það, hversu nauðsynlegt það er
að við reynum að létta á hinni
ofurþungu yfirbyggingu þessa
litla samfélags. Hér er um að
ræða skammtímaráðstafanir, en á
þeim grunni verður síðan að
byggja ráðstafanir til lengri tíma,
og þar eru áhersluatriði Alþýðu-
bandalagsins í fyrsta lagi að fé-
lagsleg þjónusta verði bætt, en
ekki skert, frá því sem nú er, í
öðru lagi að framkvæmd verði
ríkisstjórnar að kosningum lokn-
um. Það má segja, að svo eigi
ávallt að vera, en ég tel, að við
3éum komnir á ystu nöf í efna-
hagsmálum og það verði ekki leng-
ur við þetta búið. Ég tel ákaflega
mikilvægt að ná víðtækri sam-
stöðu um aðgerðir í efnahagsmál-
um og launþegar og atvinnurek-
endur, bændur og sjómenn séu
þátttakendur í því að mynda slíka
samstöðu. Málefnin verða sem sé
að ráða. Það kann að þurfa að
grípa til harkalegra aðgerða ef
ekki næst samstaða með hags-
munaaðilum, hverjir gera það er
kannski aukaatriði. Við framsókn-
armenn munum, hvort sem við er-
um innan eða utan ríkisstjórnar,
fylgja raunhæfri stefnu í efna-
hagsmálum og styðja aðgerðir í
samræmi við hana.
6.
Ég hef áður sett fram það sjón-
armið, að mér þætti eðlilegt að
kjósa í seinni hluta apríl. Fari
hins vegar svo á næstu vikum að
vandinn fer vaxandi og engin sam-
staða næst um aðgerðir til að
sporna gegn holskeflu dýrtiðar-
innar og stöðvun atvinnuvega, þá
hefði ég kosið að þing yrði rofið
strax og efnt til kosninga fyrr, svo
að nýr meirihluti fengi meira
svigrúm til að taka á málum. Jafn-
vel finnst mér þá koma til mála að
kjósa í febrúar, þótt veðurfar og
annað geri það erfitt.
myndarleg íslensk atvinnustefna
og í þriðja lagi að útlendum auð-
hringum verði ekki hleypt hér inn
í landið á þann hátt sem gert var í
Straumsvík, og að settar verði
skorður við umsvifum bandaríska
hersins i Keflavík. Hér hef ég
nefnt nokkur meginatriði, en
fjöldamörg önnur atriði mætti
nefna, sem Alþýðubandalagið
hlýtur að leggja áherslu á.
Það er vandséð að önnur stjórn
en vinstrisinnuð gæti framkvæmt
þá stefnu sem hér er um að ræða;
ekki er a.m.k. við því að búast að
Sjálfstæðisflokkurinn fáist til
þess að gera nauðsynlegar ráð-
stafanir til skipulagsbreytinga í
efnahagslífi okkar.
Að minnsta kosti hefur hann
staðið dyggan vörð um bankakerf-
ið, Framkvæmdastofnunina, olíu-
félögin og önnur tákn sóunarinn-
ar, sem hvarvetna má sjá hér í
okkar þjóðfélagi, að ekki sé
minnst á innflutningsverslunina.
6.
Ég vil að kosið verði sem fyrst
og þingrof verði þá einnig ákveðið
með tilliti til kjördags hið allra
fyrsta. Ég teldi æskilegast að
ákvarðanir í þessu efni af hálfu
ríkisstjórnarinnar lægju fyrir um
það leyti sem þing kemur saman.
Svavar Gesteson, formaður Alþýðubandalagsins:
Stefiia ber að mynd-
un róttækrar fé-
lagshyggjustjórnar
Símar
20424
14120
Fasteignaeigendur
Fasteignaviöskipti fara í gang meö hækkandi sól.
Óskum eftir öllum tegundum fasteigna á söluskrá.
Skoðum og verömetum strax.
Þökkum viðskipti liöins árs.
Gleðilegt árl
83000
I tilefni 10 ára starfsafmœlis Fasteigna-
úrvalsins þökkum við öllum viðskiptavin-
um okkar gott samstarf og óskum þeim
farsældar á komandi árum.
Landsmönnum öllum óskum við gœfuríks
komandi árs.
FASTEIGNAÚRVALIÐ
SÍMI83000 Silfurteigi 1
Söiustjóri: Auöunn Hermannsson, Kristján Eiríksson hæstaréttarlögmaöur.
«
KAUPÞING HF.
Húsi Verzlunarinnar
3. hæö, sími 86988
Fasteigna- og vardbréfmMia, Mgumiölun aMnnuhuanaeóls, fjárvarzta. þjóðhag-
fraaöi-, rakatrar- og tötvuréögjöf.
4ra—5 herb. íbúöir
Sigtún
5 herb. ca. 115 fm rishæö á rolegum staö, 3 svefnherbergi, 2 samliggjandi stofur.
Ibúöin er töluvert endurnýjuö. nýjar raflagnir. Danfoss-kerfi. Mjög litiö áhvilandi.
Verö 1250—1300 þús.
Grettiagata, 4ra herb. á 4. hæö ca. 80 fm. Talsvert búiö aö endurnýja t.d. nýtt
rafmagn og pipulagnir. Þarfnast áframhaldandi endurnýjunar. Verö 750—780 þús.
Kleppavegur, ca. 100 fm 4ra herb. endaibúö á 4. hæö. Ibúöin er nýlega endurbætt
og i mjög gööu ástandi. Stórar suöursvalir. Frábært útsýni. Mikil sameign. Verö
1250 þús.
Hvassaleiti, 110 fm 4ra—5 herb. ibúö á 4. hæö. Mjög skemmtileg eign á góöum
staö. Mjög gott útsýni. Bilskúr. Verö 1.5 millj.
Skúlagata, 100 fm mjög mikiö endurnýjuö ibúö á 2. hæö. Tveir inngangar. Verö
1150 þús.
Kóngsbakki, ca. 120 fm 5 herb., stór stofa, flísar á baói Rúmgott eldhús. Suöur-
svalir. Verö 1 millj. 270 þús.
Nökkvavogur, 110 fm sérlega rúmgóö 3ja—4ra herb. ibúö i steinhúsi. Danfosskerfi.
Nýr stór bilskúr. Verö 1,5 millj.
2ja—3ja herb. íbúðir
Fossvogur, sérlega falleg 80 fm 2ja herb. i Fossvogi á jaröhæö. Sér garður. Æskileg
skipti á 2ja—4ra herb. ibúó i Vesturbæ. Oóö milligjöf.
Kópavogur — Furugrund, 3ja—5 herb. Vorum aó fá mjög skemmtilega 3ja herb.
75 fm ibúö á 1. hæö ásamt 45 fm ibúö i kjallara. Möguleiki er á aó opna á milli hæöa
t.d. meö hringstiga. A efri hæö eru vandaöar innréttingar. flisalagt baö. Verö 1450
þús.
Álfaskeið, sérlega björt og vel meö farin 3ja herb. 86 fm ibúö á mjög góóum stað.
Sér inngangur. Gott útsýni. Ðilskúrsréttur. Verö 990 þús.
Krummahólar, skemmtileg, björt 3ja herb ibúö ca. 100 fm á 4 hæó Frystigeymsla.
bilskýli. Verö 1 millj 2 íbúöir i sama húsi.
Lindargata, 3ja—4ra herb. ibúö á 1. hæö Mjög skemmtilega innréttuö. 46 fm
bilskur. Verö 1,1 millj.
Æsufell, 98 fm serlega rúmgóö ibúö á 1. hæö. MikH sameign. Gott útsýni. Verö 950
þús.
Óskum landsmönnum gleöilegs nýs árs með þökk fyrir viðskiptin á líöandi ári.
86988
Jakob R. Guðmundsson
Ingimundur Einarsson hdl.
SigurAur Dagbjartsson.