Morgunblaðið - 31.12.1982, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1982
25
Herlögum í Póllandi
aflétt á miðnætti í gær
Varsjá, 30. desember. AP.
YFIRVÖLD í Póllandi til-
kynntu í dag, að herlögum
yrði aflétt á miðnætti í kvöld,
rúmu ári eftir að þau voru
sett. Fyrri yfirlýsingar yfir-
valda höfðu gefið til kynna,
Sorsa beðinn um
að sitja áfram
Helsinki, 30. desember. AP.
KALEVI Sorsa, forsætisráðherra
fínnsku stjórnarinnar, baðst í dag
lausnar fyrir sig og stjórn sína, en í
gær neituðu kommúnistar, einn
stjórnarflokkanna, að fallast á örlitla
hækkun á útgjöldum til varnarmála.
Mauno Koivisto forseti veitti Sorsa
hins vegar ekki lausn að bragði, held-
ur bað hann að leita allra ráða til að
leysa stjórnarkreppuna.
Á blaðamannafundi, sem Sorsa
hélt, sagði hann, að kommúnistar
ættu ekki afturkvæmt í stjórnina
og ráðherraembættin þrjú, sem þeir
höfðu, yrðu skipuð jafnaðarmönn-
um. Auk kommúnista og jafnað-
armanna áttu Miðflokkurinn og
Sænski þjóðarflokkurinn aðild að
stjórninni, sem hefur, þrátt fyrir
það sem á undan er gengið, enn
meirihluta á „Eduskunta", finnska
þinginu, eða 103 þingmenn á móti
97.
Stjórnmálaskýrendur telja, að
ástæðan fyrir brotthvarfi kommún-
ista sé fylgisleysi þeirra meðal al-
mennings eins og fram hefur komið
í skoðanakönnunum að undanförnu.
Þess vegna vilji þeir fá tíma til að
auka á eininguna innan flokksins,
sem er í raun klofinn, og hressa upp
á andlitið út á við. Eins og aðrir
kommúnistaflokkar eru þeir líka
mjög friðelskandi um þessar mund-
ir og gera sér vonir um að njóta
góðs af friðarhreyfingunni finnsku.
Hækkunin á útgjöldum til varn-
armála var mjög lítil og stuðn-
ingsmenn hennar segja, að fénu
verði varið til kaupa á innlendum
varningi og muni því ýta undir at-
vinnu í landinu. Kommúnistar
segja hins vegar sem svo, að það sé
sannfæring þeirra, að „öryggi
Finnlands verði ekki tryggt með
vopnum".
að herlögunum yrði aflétt á
hádegi á morgun, gamlárs-
dag.
Fjölmiðlar í Póllandi réðust í
dag, öðru sinni á aðeins þremur
dögum, harkalega að Lech Walesa,
forvígismanni Samtöðu, og sökuðu
hann um lausmælgi og undirróður
í viðtölum við vestræn tímarit.
Pólska fréttastofan PAP, sagði
m.a., að Walesa hefði lýst ástand-
inu í Póllandi á þann veg, „að
þjáningar fólksins í Póllandi væru
sambærilegar við þjáningar
þýskrar alþýðu í síðari heims-
styrjöldinni."
„Stjórnin notar hvert það tæki-
færi sein gefst, til að grafa undan
áliti mínu, en ég gefst ekki svo
auðveldlega upp,“ sagði Walesa í
símaviðtali við vestrænan frétta-
mann.
PAP og málgagn pólska komm-
únistaflokksins birtu á mánudag
nákvæmlega eins orðaðar árásir á
hendur Walesa og vitnuðu þar í
viðtal, sem birtist í vestur-þýska
tískubiaðinu Bunte.
Walesa líkti þjáningum Pól-
verja alls ekki við þjáningar
þýskrar alþýðu í blaðinu, eins og
yfirvöld í Póllandi hafa látið
liggja að. Hann sagði, að Þjóðverj-
ar og Pólverjar „vissu hvað þján-
ingar væru“.
Jarðskjálftar í
N-Yemen á ný
ERLENT
Manania, Kahrain, 30. desember. Al\
FYRSTU FREGNIR af röð fimm öfl
ugra jarðskjálfta, sem gengu yfir
miðhluta Norður-Yemen snemma i
morgun, herma, að talsvert mann-
tjón hafi orðið og mikið tjón á eign-
um.
Engar staðfestar fregnir höfðu
borist af manntjóni er Morgun-
blaðið fór í prentun, en a.m.k. eitt
heilt þorp þurrkaðist hreinlega út
af landakortinu.
Þá ollu skjálftarnir í morgun
miklum usla í flóttamannabúðun-
um, sem komið var upp eftir að
mjög öflugur skjálfti hafði valdið
dauða hálfs þriðja þúsunds manna
og valdið gífurlegu eignatjóni
fyrir tæpum þremur vikum.
Víða flúði fólk úr húsum sínum
og hafðist við á dýnum á götum
úti af ótta við að húsin hryndu.
Orkusparnaðarnefnd
t
Útför bróöur míns,
GUÐLAUGS NARFASONAR,
Baldursgötu 25, Rvík,
fer fram frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 4. janúar kl. 15.00.
Ingibjörg Narfadóttir.
þakkar landsmönnum samstarfið
á liðnu ári
Hefjum nýja árið með þeim ásetningi
að draga enn úr orkunotkun okkar
Faöir okkar,
JÓN EIRÍKSSON,
akipstjóri,
Drápuhllö 13,
lést 30. desember 1982.
Ólafur H. Jónsson,
Ragnheiöur S. Jónsdóttir,
Einar J. Eiríksson.
t
Útför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
SVANHILDAR LILJU KRISTVINSDÓTTUR,
húsfreyju, Halakoti,
fer fram frá Selfosskirkju þriöjudaginn 4. janúar kl. 14. Jarösett
veröur frá Laugardælum.
Kristinn Helgason
og fjölskylda.
t
Útför eiginmanns míns, fööur okkar og sonar mins,
JÓNS BJARNA SIGURÐSSONAR,
Garöabraut 13, Akranesi,
fer fram frá Akraneskirkju þriöjudaginn 4. janúar kl. 13.30.
Þeir sem vilja minnast hins látna, láti Slysavarnafólag íslands njóta
þess. Vilhelmína Elísdóttir
og börn,
Sigurlín Jónsdóttir.
Húsnæði óskast
Ungur athafnamaöur meö 2 fyrirtæki í rekstri
óskar eftir aö taka á leigu einstaklingsíbúö í lengri
eöa skemmri tíma. /Eskilegt er aö húsnæðiö sé
meö húsgögnum. Fyrirframgreiðsla hugsanleg.
Uppl. ísíma 76218.
Orkusparnaðarnefnd
iðnaðarráðuneytisins
ORKUSPARNAÐUR
ÞINN HAGUR
ÞJ0ÐARHAGUR