Morgunblaðið - 31.12.1982, Side 26
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1982
Mótettukórinn
Tónlist
Egill Friðleifsson
Hallgrím.skirkja 29. des. 1982.
Flytjendur: Mótettukórinn, Hörður
Áskelsson, Manuela Wiesler,
strengjasv. Verkefni; úr ýmsum átt-
um og frá ýmsum timum.
Hinn nýstofnaði Mótettukór
við Hallgrímskirkju efndi til
tónleika í kirkjunni sl. miðviku-
dagskvöld. Þetta mun vera frum-
raun kórsins á tónleikapallinum
og ekki verður annað sagt en
hann fari vel af stað. Kórinn
skipa 26 manns, allt ungt fólk og
sumt kornungt. Kórinn flutti
jólalög frá ýmsum tímum. Sum
þeirra kannast hvert mannsbarn
við eins og t.d. „Það aldin út er
sprungið" en önnur eru fáheyrð-
ari. Verkið „A babe is born" er
var síðast á efnisskránni, hafði
ég aldrei heyrt áður, en fannst
bráðskemmtilegt og væri fengur
í að heyra það oftar. Ekki man ég
nú hver höfundurinn var, en ekk-
ert prógramm var fáanlegt á tón-
leikunum heldur var hvert atriði
kynnt sérstaklega.
Hljómur kórsins er yfirleitt
mildur og blæfagur. Samræmi
milli radda er bærilegt, þó sópr-
anin sé nokkuð ríkjandi. Texta-
framburður var alveg sérstak-
lega góður og skýr og „fraser-
ingar“ fallegar og músíkalskt
mótaðar. Kórinn söng ekki með
öllu hnökralaust en jákvæðu
hliðarnar voru yfirgnæfandi, þar
sem sönggleðin sat í fyrirrúmi.
Það er því ástæða til að óska
stjórnandanum, Herði Áskels-
syni, til hamingju með ágæta
byrjun í von um að þetta efnilega
afkvæmi hans vaxi og dafni í
framtíðinni. Með tilkomu Harðar
í stöðu kantors við Hallgríms-
kirkju hefur okkur bæst ungur,
velmenntaður hæfileikamaður á
akur listarinnar, sem mikils má
af vænta í framtíðinni.
Auk kórsins 'lék Hörður á
orgelið Pastural-tónlist eftir J.S.
Bach af smekkvísi og Manuela
vakti Partitu fyrir einleiksflautu
einnig eftir Bach. Manuela
Wiesler vakti á dögunum eigi all-
litla athygli fyrir að leika inná og
gefa út hvorki fleiri né færri en
fjórar hljómplötur og geri aðrir
betur. Ekki þarf að fjölyrða um
leik Manuelu sem var með ágæt-
um að vanda.
Nú mæna margra augu til
Hallgrímskirkju. Tilkomumikið
en ófullgert kirkjuskipið gefur
fyrirheit um góðan hljomburð,
þar sem meistaraverk kirkjutón-
bókmenntanna eiga væntanlega
eftir að hljóma fagurlega. Von-
andi dregst ekki úr hömlu að
koma því í gagnið.
Hinn ungi Mótettukór getur
vissulega horft björtum augum
til framtíðarinnar. í fyrsta lagi
vegna þess hve stjórnandi hans
er snjall, og í öðru lagi að eiga
von á jafn glæsilegu sönghúsi og
Hallgrímskirkj væntanlega verð-
ur fullbúin.
Áttræður:
Helgi Kristjáns-
son bifreiðastjóri
Sjáðu alla
vinninqana
eruíbo
ÍO pV5UND
&RÓNÆ 1//NN-
INóiARSt/K
ORDKJIR 'ZJVD
TALS/us
OCk SA
CjBFURL' 2.'/z~
MU-LJOti A
TJZomT/Ð ~
JERTU MT&Z
BRU
ALUR. ÍBÚAR
]/A SAUÐÁRKRÓ/Cl
0& /UÁ6RB/UAJ/
, tyrir áriö 19»3
500.000.-
100.000-
50.000-
30.000-
10 000-
2.000-
1.250-
5.000-
4.500 000-
900.000-
450.000-
5 940 000 -
27 000.000 -
56 610 000,
129^150^95^
224.550 000'
2750000,
220800000'
/0o
^n'o^ Urn
s-
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
HEFUR VINNINCINN
Á morgun, fyrsta janúar,
verður Helgi Kristjánsson,
Stórholti 26, Reykjavík, áttræð-
ur. Helgi fæddist að Högnastöð-
um í Þverárhlíð og fluttist árið
1904 að Grísatungu í Stafholts-
tungum ásamt foreldrum sínum,
frú Þuríði Helgadóttur og
Kristjáni Kristjánssyni. Þar bjó
fjölskyldan til ársins 1915, en þá
fluttist hún til Borgarness. Þau
hjón eignuðust tólf börn.
Helgi hefur búið í Reykjavík
síðan árið 1926 og unnið hjá
Eimskipafélagi íslands í um
fjörutíu ár auk þess sem hann
starfaði hjá Vörubifreiðastöð-
inni Þrótti. Hann var í fimleika-
glímuflokki íþróttafélagsins
rmanns um árabil.
Helgi er kvæntur frú Rögnu
Ingimundardóttur og eignuðust
þau fjóra syni.
Helgi heldur afmælisdaginn
hátíðlegan á heimili sonar og
tengdadóttur að Fellsási 5,
Mosfellssveit, á milli kl. 16.00 og
19.00, og eru vinir hans og
vandamenn boðnir velkomnir.
HJ
Dregið í
ferðahapp-
drætti KR
DREGIÐ hefur verið í ferða-
happdrætti handknattleiksdeildar
KR og komu upp þessi númer:
1. Þriggja vikna ferð til Mall-
orca 2124.
2. Vikuferð til Ibiza 2075.
3. Vikuferð til Ibiza 427.
4. Málverk eftir Pétur Friðrik
69.
Frá Alsír skrifar 24 ára karl-
maður, sem lýkur prófi í sál-
fræði í byrjun árs 1983. Hann
býr í lítilli borg skammt frá Al-
geirsborg. Segist hafa áhuga á
að fræðast um land og þjóð.
Hann skrifar á ensku, segist
vera 1,75 á hæð, með svart hár
og brún augu. Ferðalög, íþróttir,
dýr, bóklestur og tónlist eru
meðal áhugamála:
Chaouat Ahmed,
43a Rue des Dreres Sidi
Moussa M,ed.
Boufarik,
W.BIida,
Algeria.