Morgunblaðið - 07.01.1983, Blaðsíða 2
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. j'ANÚAR 1983
Valgerður Jónsdóttir
í viðtali, sem nýlega
birtist í bandarísku
blaði, lýsir dr. Naunton
áhyggjum sínum yfir
hinum skaðvænlegu
áhrifum, sem heimilis-
tæki, iðnaðarvélar og
jafnvel stórir skammtar
af aspiríni hafa á heyrn
manna. Hann álítur, að
þessum þáttum í dag-____
legu umhverfi manna sé
alls ekki nægilegur
gaumur gefinn. Þá skýr-
ir hann frá nýjum að-
ferðum í skurðaðgerð-
um til þess að lagfæra
truflanir á heyrn og
bendir á einfaldan út-
búnað til að hlusta á há-
væra músík, án þess að
eiga á hættu að tapa
íeyrn.
Sp. Dr. Naunton, er akeröing é
heyrn, og heyrnarleysi að aukaat
í Bandaríkjunum?
Dr. R. Naunton: Já, þaö er fariö
aö aukast í fremur stórum stíl —
fyrst og fremst vegna þess, aö
meöalaldur fólks er oröinn hærri.
Viö álitum, aö af því fólki, sem
komiö er yfir fimmtugt, séu um 40
til 50 prósent með skerta heyrn í
meiri eða minni mæli, sem auövelt
er aö sýna fram á meö venjulegum
heyrnarprófunum. Um þaö bil 10%
eru meö alveg augljósa heyrnar-
skeröingu.
Sp. Er þá vaxandi hávaöi í um-
hverfi manna ein at ástæðunum
til þeaaarar aukningar?
Sv. Gífurlegur hávaöi, jafnvel
þótt hann standi aöeins i stuttan
tíma, getur valdiö heyrnar-
skemmdum; minni hávaöi, sem
varir í lengri tíma er einnig hættu-
legur heilsu manna.
Maður, sem stjórnar loftpressu
eöa pressubor í stálsmiöju á líka á
hættu, að heyrnartaug hans hljóti
skaóa af innan fárra ára. Þá grunar
okkur einnig, þótt þaö sé ekki
sannað, aö áralöng áhrif af hávaö-
anum i ryksugunni, hjólsög, upp-
Ljáðu mér eyra
Með vaxandi vinsœldum vasadiskóteka og ærandi diskó-
músik hefur heyrnarleysi farið gífurlega í vöxt að sögn
dr. Ralph Nauntons, en hann hefur með höndum yfir-
stjórn vísindalegrar rannsóknar á vegum bandarísku
heilbrigðisstjórnarinnar í Bethesda í Maryland, en þœr
beinast að truflunum á tali, málfari og heyrn.
þvottavél eða frá garösláttuvélinni
geti um síöir leitt til heyrnarskaöa,
sem ekki byrjar aö koma verulega
í Ijós, fyrr en fólk ef komið á sex-
tugsaldurinn.
Mér tókst alltaf aö hneyksla
nágranna mína meira en lítið, þeg-
ar ég setti upp heyrnarhlífar og fór
aö slá grasflötina heima hjá mér
meö kraftmikilli vélknúinni sláttu-
vél.
Sp. Er þaó hættulegt heyrn
manna aó hluata é músík, sem
spiluð er é fullu?
Sv. Af tilraunum meö apa höfum
viö komizt aö raun um, aö diskó-
tónlist í langan tíma leiöir til
skemmda á heyrnartaug þessara
dýra. Þaö er einkar líklegt, aö þeir
unglingar, sem sækja diskótekin
reglulega og ekki vernda eyru sín,
veröi fyrir allverulegum heyrnar-
skemmdum. Viö erum einnig tekn-
ir aö hafa vaxandi áhyggjur af því,
aó fólk er í síauknum mæli fariö aó
ganga um og trimma meö vasa-
diskótónlist í eyrunum. Þaö er
miklum mun auöveldara aö fram-
leiöa hávær hljóö gegnum heyrn-
artól vasadiskóanna heldur en
meö hátölurum í diskóteki.
Sp. Hverau margir Bandaríkja-
menn eiga vió heyrnarleysi aö
stríða?
Sv. Um þaö bil 13 milljónir
Bandaríkjamanna eiga viö ein-
hvers konar sljóvgun á heyrn, eöa
heyrnarleysi aö stríöa. Þaö er
næstum því einn af hverjum tutt-
ugu. Af þessum mikla fjölda fólks,
er þaö um þaö bil ein og hálf millj-
ón manna, sem eru alveg heyrnar-
lausir og þurfa því á sérstakri þjálf-
un aó halda til þess aö læra aó tala
og til aö læra aö nota táknmál.
Tvær milljónir manna aö auki eru
Eyrað er eitt af mikilvæguatu akynfaarunum og eru samtöl og öll
aöakiljanleg hljóö ef til vill þýöingarmeatu leiðir í tjáskiptum manna á
milli. Þegar þeasi leiö er lokuð geta menn ekki lengur haft fullt,
eðlilegt samband viö annaö fólk og þaö er skoöun margra aö sjón eða
jafnvel algjör blinda sé ekki eins mikil fötlun og heyrnarleysi.
Edison og hljóöritinn hans áriö 1888, löngu fyrir daga diskóteka og alls
kyns hávaöa af völdum vinnuvála og heimilistækja.
Forfaöir glymskrattans. Hlustendur fengu á þeim tíma aö heyra slitróttan tveggja mínútna flutning einhvers
vinsæls lags fyrir lágt gjald.
þaö mikiö skaddaðar á heyrn, aö
þaö reynist þeim mjög erfitt að
fylgjast meö samræöum. Flestir
hinna geta þó bjargaö sér nokkuö
og fylgst meö samræöum meö því
aö halla sér fram og leggja vel viö
hlustir.
Sp. Hvaða framfarir hafa ný-
lega orðið í iækniatræðiiegri
meðferð é heyrnarleyai?
Sv. Á síöastliönum áratug hafa
átt sér staö veigamiklar framfarir
— alveg sérstaklega meö tilkomu
nýrra aöferöa í skurðaðgeröum.
Meö því aö nota skuröaðgeröa-
smásjá geta skurölæknar núna
náö aö framkvæma aðgerö langt
inni í eyranu og til dæmis lagaö
skemmdir á hljóöhimnunni og á
litlu beinunum, sem eru heyrninni
svo bráönaunsynleg. Af þessu
leiöir svo, aö meöferö meiriháttar
heyrnarleysis — til dæmis
heyrnarleysis í miöeyra eöa i leiösl-
um eyrans — hefur stórbatnaö á
tiltölulega stuttum tíma. Þar aö
auki hafa fúkkalyfin oft gert hrein-
asta kraftaverk meö því aö koma í
veg fyrir sýkingu af völdum veira
og hindra skemmdir inni í eyranu,
sem af slíkri sýkingu gætu stafaö.
Sp. Hvaða aðrar nýjar skuröaö-
ferðir hafa verið teknar upp?
Sv. Skurðlæknar geta nú oröiö
skipt um eitt eöa fleiri hinna litlu
beina — hamarinn, steöjann og
ístaöiö — inni í miöeyranu, sem
sjá um aö flytja hljóöið áfram til
heyrnartaugarinnar. Þeir geta
hvort heldur er lagfært skemmdir á
hljóöhimnunni eöa skipt alveg um
hana. Tveggja til þriggja millimetra
beinflísar eru teknar bak viö eyrað
og þeim svo komið fyrir inni í miö-
eyranu. Skurölæknar geta einnig
notfært sér viö slíkar aögeröir bein
úr líkum, sem varöveitt eru einmitt
í þessu augnamiöi. Aörir hlutir,
sem notaöir eru til ígræöslu, eru
búnir til úr harðplasti og gleri.
Sp. Er óhætt að segja, að
ígræðsla gervihluta í miðeyra lofi
góðu?
Sv. Þessi þáttur heyrnarlækn-
inga er ennþá á byrjunarstigi.
jgræösla tilbúins innra eyra, þ.e. í
fremri hluta völundarhússins, er
einkum notuö til aö hjálpa því fólki,
sem er gjörsamlega heyrnarlaust
vegna skemmda, sem orðiö hafa á
sjálfri heyrnartauginni í innra eyr-
anu.
í þessari skurðaðgerö er raf-
skauti komiö fyrir inni í eyranu, og
þaö tengt viö talmyndunartæki,
sem breytir hljóðtáknum talsins í
ýmsar mismunandi rafbylgjur.
Þessar bylgjur eru svo lelddar
gegnum rafskautið inn í innra eyr-
aö.
Þessi ígræösla, ásamt varalestri
hefur gert sumu algjörlega heyrn-
arlausu fólki kleift aö fylgjast meö
samræöum.
Sp. Hverjar eru helztu éstæður
þess, að fólk tapar heyrn?
Sv. Heyrnarleysi af völdum
skemmda í miðeyra stafar oft af
kalkmyndun í miöeyranu, þaö er
aö segja, þegar frauöbein tekur aö
vaxa, sem svo kemur í veg fyrir að
hljóö berist inn til heyrnartaugar-
innar. Miöeyrabólga, sem er mjög