Morgunblaðið - 07.01.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1983
35
Eyrun eru öllum jafn mikilvng, hvort sem þau eru lítil eöa stórl
algengur sjúkdómur í börnum og
ungu fólki, getur lika valdiö heyrn-
arleysi í miöeyra.
Önnur helzta tegund heyrnar-
skerðingar á rætur sínar aö rekja
til skemmda á sjálfri heyrnartaug-
inni í innra eyra, en þetta er þá
kallað tauga-heyrnarleysi. Aöal-
ástæöur þessa eru áhrif of mikils
hávaöa og svo einnig eölileg
hrörnun sökum aldurs. Ef þaö á
fyrir okkur aö liggja aö lifa lengi,
eru öll líkindi á því, aö flest okkar
fái einhvern snert af taugaheyrn-
arleysi í meiri eða minni mæli.
Sp. Hver er artnars bezta vörn-
in gegn hávaða?
Sv. Sé ekki unnt aö forðast aö
halda sig þar sem gífurlegur há-
vaöi er, ber mönnum vitanlega aö
nota eyrnahlífar eins og þær, sem
flugvallarstarfsmenn nota úti á
flugvöllum. Til þess aö veröa sér
úti um sérstaka og öruggari vörn
gegn hávaöa, er ráölegt aö nota
eyrnatappa aö auki. Hér áöur fyrr
var fólk, sem vann á vinnustööum,
þar sem hávaöamengunin var
mjög mikil, oft á tíöum heldur tregt
aö nota eyrnahlífar sér til varnar. I
okkar þjóðfélagi þótti þaö víst ekki
sérlega karlmannlegt aö viröast
vera svo viðkvæmur og þurfa aö
nota eyrnahlífar. En til allrar ham-
ingju er þetta viöhorf manna tekiö
aö breytast mjög. Tíöni heyrnar-
skerðingar hjá mönnum, sem
starfs síns vegna veröa aö þola
mikinn hávaöa aö staöaldri, er
ennþá aö aukast, en þó er tíðnin
ekki eins mikil og hún var fyrir
nokkrum árum. Ég held, aö sú viö-
leitni aö hvetja verkamenn á há-
vaðasömum vinnustööum til aö
nota eyrnahlífar eöa eyrnatappa,
sé farin aö bera góöan árangur.
Sp. Geta sum lyf valdiö heyrn-
arleysi?
Sv. Sum fúkkalyf eins og til
dæmis streptomycin veldur skaöa
á vissum hluta eyrans, enda eru
slík lyf venjulega ekki gefin sjúkl-
ingum, nema þá á sjúkrahúsum,
þegar um lífshættulegt ástand er
aö ræöa.
Mjög algengt lyf, sem getur
valdiö heyrnarskemmdum, sé þaö
tekiö í mjög stórum skömmtum, er
aspiríniö. Þetta er hiö mesta
vandamál hjá fólki, sem þjáist af
liöagigt og tekur stóra skammta af
aspiríni til þess aö lina sársauk-
ann. Sá sem tekur 8 töflur eöa
skammta af aspiríni á dag, getur
átt þaö á hættu aö hljóta skemmd-
ir á eyra og heyrn. Tíðar aukaverk-
anir af stórum skömmtum af aspir-
íni er svokallaö tinnitus — þ.e. sí-
fellt suö eöa urg í eyrunum. Viö
vitum, aö „tinnitus" er merki þess,
aö skemmdir hafa orðiö í eyranu.
Fólk, sem þjáist af þessu suöi fyrir
eyrunum, ætti alveg aö láta það
vera aö taka aspirín.
Sp. Hvaöa læknismeöferö er
heppilegust viö „tinnitus“?
Sv. Fyrsta skrefiö er vitanlega
aö reyna aö útiloka þá þætti, sem
kynnu aö stuöla aö þessu sjúk-
dómsástandi. Auk aspiríns, ber aö
foröast aö drekka of mikiö af kaffi,
neyta áfengis eöa tóbaks. Stund-
um getur heyrnartæki hjáipaö
mönnum heilmikiö meö því aö
Heyrnarmælingar eru mikils viröi til aö finna heyrnargalla hjá börnum,
en ef ekkert er aó gert getur heyrnargalli haft veruleg áhrif á náms-
getu.
Þrjár bækur
Manfred Köhnlechner:
Die Sieben Siiulen der GesundheiL
Droemer Knaur 1982.
Höfundurinn er forstöðumaður
stofnunar í Míinchen, þar sem
lækningaaðferðir eru stundaðar
sem vakið hafa athygli viða og
ekki síður sú áhersla sem þar er
lögð á endurhæfingu,. „Leben ohne
Schmerz“ er ein bóka Köhnlechn-
ers sem hefur vakið hvað mesta
athygli og verið þýdd á mörg
tungumál. Þessi bók er af svipuð-
um toga.
Höfundurinn hallast að þeirri
venju Forn-Kínverja og Inka að
borga lækninum reglulega ein-
hverja fjárupphæð, meðan menn
voru heilsuhraustir, ef menn
veiktust lögðust greiðslurnar
niður.
Það kom i ljós við skoðanakann-
anir í Sambandslýðveldinu að 14%
karlmanna og 9% kvenna álitu sig
við góða heilsu, hinir töldu sig
þjást af einhverskonar krankleika
á mismunandi háu stigi. Höfund-
urinn vill koma fólki til aðstoðar
með þeim ráðum sem hann fjallar
um í þessari bók sinni og sem
beinast öll að því að fólk lifi sem
heilsusamlegustu lífi, með iðkun
hollra lífsvenja og með því að
forðast þá lífshætti, sem teljast
mega óheppilegir fyrir líkama og
sál.
Höfundurinn skiptir bók sinni í
sjö höfuðkafla og fjallar þar um
þær aðferðir sem iðka beri til þess
að halda heilsunni í góðu lagi og
auka heilbrigði líkamans. Bókin á
einkum erindi til þeirra, sem lifa
kyrrsetulífi, hreyfa sig lítið nema
þá í bílum og reyna takmarkað á
líkamann, vinna helst vinnu sína
sitjandi.
John Berger: Sau-Erde.
Gescbicbte vom Lande. Aus dem
Englishen ron Jörg Trobitius.
Carl Hanser Verlag 1982.
John Berger er listfræðingur og
hefur skrifað m.a. um Picasso og
einnig samið skáldsögur. Hann
Erlendar
bækur
Siglaugur Brynleifsson
bjó um árabil meðal franskra
smábænda í smáþorpi í suð-austur
Frakklandi og um það tímabil og
þá lifnaðarhætti sem þar tíðkast,
fjallar þessi bók, sem eru frásagn-
ir um störf og daga, lífshlaup
nokkurra einstaklinga og hug-
renningar og kvæði. I þessu þorpi
eru tíðkaðar erfðavenjur í sam-
bandi við sáningu og uppskeru,
slátrun og skepnuhald, sem komn-
ar eru aftan úr grárri forneskju.
Höfundinum tekst að lýsa störfum
og siðum þessa fólks á þann hátt
að það verður eftirminnilegt,
þrátt fyrir það að þetta eru hin
hversdagslegustu störf, en venj-
urnar og siðirnir sem tíðkast
glæða störfin dýpri merkingu og
þýðingu, sem utan að komandi
skynja ekki. Bændurnir lifa árs-
tíðirnar og hrynjandi náttúrunnar
og verða hluti þessarar sömu nátt-
úru. Barátta þeirra er og hefur sí-
fellt verið, að skrimta, að komast
af. Þeir lifðu við jaðar hins líf-
vænlega. Berger lýsir þessari af-
stöðu sinni í smáu og stóru, hann
lýsir tortryggni þeirra og því sem
kallað er hjátrú, húmor þeirra og
gleðitilburðum og þeim heimi, sem
þeir hafa lifað um aldir. En sá
heimur er nú á hverfanda hveli.
Berger skrifar sagnfræðilegan eft-
irmála, þar sem hann lýsir hinu
frumstæða samfélagi bændanna,
sem kyrrstæðu samfélagi, þar sem
hin eilífa endurtekning er rytmi
lífsins, hann telur að í heimi, sem
byggir á stöðugum „framförum"
og sífelldum breytingum, hverfi
þessi heimur innan skamms og að
landbúnaður muni taka svipuðum
breytingum og gerst hefur í
Bandaríkjunum og víðar, þ.e.
bændastéttin muni hverfa sem
sérstök stétt. Þetta er íhugunar-
verð bók.
Lawrence Durrell: Constance or
Solitary Practices.
Faber and Faber 1982.
Durrell hefur skrifað verk sem
er að nokkru hliðstætt þessu, „The
Alexandria Quartett". „Monsieur"
og „Livia" eru tvo fyrstu bindin í
þessari söguröð eða ferningi, þetta
er þriðja sagan. Minnisstæðu
sumri í Avignon og nágrenni er
lokið og leitnni að fjársjóði Must-
erisriddaranna er hætt af þeim
sem hófu hana. Persónurnar eru
margar hverjar þær sömu og í
fyrri sögum og aðalpersónurnar
þær sömu, sumar eru nú horfnar,
en einstaka skilar sér eina ögur-
stund. Styrjöldin er hafin og Þjóð-
verjar vaða yfir Evrópu og
Frakkland. Avignon er hernumin.
Constance er aðalpersónan,
freudisti sem kynnist ekki ástríð-
unni fyrr en annan stríðsveturinn
í Genf. Áður en það gerist fer
Hassad prins, Constance, Blanford
og fleiri til Egyptalands, þaðan
liggur svo leiðin til Genf og Con-
stance dvelur síðan um tíma á Tu
Duc, í Avignon, húsinu þar sem
dvalið var sumarið góða. Nú er
andrúmsloftið annað, kuldi, skort-
ur, hernám og gíslataka.
Og veturinn líður, lýsingarnar á
járnbrautarferðunum milli Avign-
on og Genf, svipmyndirnar frá
járnbrautarstöðvunum og myrkr-
ið sem grúfir yfir hernumdu land-
inu er hin algjöra andstæða við
„sumarið".
Genf á stríðsárunum er óasinn i
eyðimörkinni og þar eru miðstöðv-
ar njósnahringanna, sem aðal-
persónurnar fléttast inn í, leitinni
að fjársjóði Musterisriddaranna
er haldið áfram í Avignon fram í
stríðslok. Og svo líður að stríðs-
lokum. Það er gert upp við svikar-
ana í Avignon, lýsingarnar á skril-
æðinu verður eftirminnileg.
Franski herinn heldur inn í
Avignon og klukkur borgarinnar
taka að klingja. Eins og í fyrri
bókunum, tekst Durrell að skapa
einstakt andrúmsloft, heima sög-
unnar og inn í þá heima fléttar
hann nú hrylling striðsáranna.
Og hjóWö snýst og
snýst og snýst...
Mynt
Ragnar Borg
Starf Myntsafnarafé-
lagsins er í fullum blóma.
Formaður þess er Freyr
Jóhannesson, tækni-
fræðingur. Næsti fundur
verður á morgun, laug-
ardaginn 8. janúar. Hefst
hann kl. 14.30 í Templara-
höllinni. Menn geta
kynnst starfi félagsins á
þessum fundi og gengið í
félagiö ef þeim sýnist
svo. Á fimmtudagskvöld-
um milli kl. 8 og 10 eru
svo klúbbfundir í her-
bergjum félagsins á
Amtmannsstíg 2. Þeir eru
einnig ágætlega sóttir.
Á uppboðinu á morgun
verður Alþingishátíöarsett.
Lágmarksboð í tveggja krónu
peninginn eru 200 krónur, í 5
krónu peninginn 550 krónur
og 450 krónur eru settar á tí-
kallinn. Líklegast fara þó
þessir peningar á mun hærra
verði, því þetta eru ágæt ein-
tök sem eru flokkuð í 1+, en
mætti kannski flokka í 01. Svo
verður boðin upp sérsláttan
frá 1974, silfur og gull. Þar er
lágmarksboð sett 2000 krón-
ur.
„íslenzkar myntir 1983“ er
komin út, 64 blaösíöur. Allt
þar með hefðbundnum hætti.
Þó kemur þar fram, að talið er
að til sé 25-eyringur frá
N.C.H. Grams Handel. Þá er
einnig varpaö fram þeirri
spurningu, hvort nokkurn
tíma hafi verið til 5 og 10 aura
peningar Thorsteinsson á
Bíldudal með 97 þrykkt inn í
peningana. Ég leyfi mér að
fullyrða að þessir peningar
séu ekki til, því smæð myntar-
innar leyfði ekki að ártalið
væri slegið í þá. Ef svo ólík-
lega vill samt til, að einhver
lesenda þessa þáttar veit af
slíkum peningum, þætti mér
vænt um að fregna af því.
Seðlabankinn hefir látið slá
þrjá peninga árið 1982:
5 aurar 5 milljón stykki
10 aurar 30 milljón stykki
50 aurar 5 milljón stykki
Ekki voru slegnir krónu eða
5 krónu peningar.
Áður höfðu veriö slegin:
5 krónur 3 milljón stykki
1 króna 15 milljón stykki
50 aurar 5 milljón stykki
10 aurar 20 milljón stykki
5 aurar 10 milljón stykki
Verst er að öll þessi mynt
ber ártalið 1981, hvort heldur
hún er slegin árið 1980, 1981
eða 1982. Seðlabankinn hefir
haft fulla heimild til að halda
sig við sama ártalið, en nú er
nóg komið og banna ég frek-
ari sláttu á 1981-myntinni.
Það þætti þokkalegt eða hitt
þó heldur og sýndi skort á
hugmyndaflugi, ef póststjórn-
in héldi sig alltaf við sama
mótívið á frímerkjum!
Mér er sagt að fólk skili
ekki nýju koparmyntinni í
bankana og álíti hana verð-
lausa. Þess vegna þarf alltaf
að slá fleiri peninga, jafnvel af
5-eyringum, sem var einskis
virði strax í upphafi.