Morgunblaðið - 07.01.1983, Page 11
HVAD ER AÐ GERAST UNIHELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1983 43
Jói (Jóhann Siguröason) rædir við trúnaóarmann sinn, Súperman (Jón HJartarson).
Leikfélag Reykjavíkur:
Allra síðustu
sýningar á Jóa.
Hassið og
Skilnaður
halda áfram
í kvöld (föstudagskvöld) er 5.
sýning á Forsetaheimsókninni,
hinum nýja gamanleik Leikfé-
lagsins, sem frumsýndur var milli
jóla og nýárs. Höfundar eru
Rego og Bruneau en verkið fjall-
ar á gamansaman hátt um um-
stang það sem veröur á venju-
legu heimili, þegar von er á for-
setanum í heimsókn. Þýðandi er
Þórarinn Eldjárn, leikmynd og
búninga gerir ívan Török og
leikstjóri er Stefán Baldursson. j
helstu hlutverkum eru Kjartan
Ragnarsson, Sigríður Hagalín,
Soffía Jakobsdóttir, Guðrún
Ásmundsdóttir, Guömundur
Pálsson, Gísli Halldórsson,
Margrét Helga Jóhannsdóttir
og Hanna María Karlsdóttir.
Annaö kvöld hefjast aö nýju
sýningar á hinu vinsæla leikriti
Kjartans Ragnarssonar Skilnaði,
sem sýnt hefur verið fyrir fullu
húsi í allan vetur. Þar fara meö
hlutverk: Guðrún Ásmundsdótt-
ir, Jón Hjartarson, Soffía Jak-
obsdóttir, Valgerður Dan, Aöal-
steinn Bergdal og Sigrún Edda
Björnsdóttir. Höfundur er sjálfur
leikstjóri, leikmynd og búnínga
gerir Steinþór Sigurðsson.
Annaö kvöld er svo fyrsta
miönætursýning eftir jól á ítalska
gamanleiknum Hassinu hennar
mömmu eftir Dario Fo, sem not-
iö hefur fádæma vinsælda og
verið sýndur fyrir fullu Austur-
bæjarbíói um helgar síöan í
haust. Þaö er Jón Sigurbjörns-
son, sem er leikstjóri, leikmynd
og búninga gerir Jón Þórisson,
en í stærstu hlutverkum eru:
Margrót Ólafsdóttir, Gísli Hall-
dórsson, Kjartan Ragnarsson,
Emil G. Guðmundsson, Aðal-
steinn Bergdal, Guömundur
Pálsson og Ragnheiður Stein-
dórsdóttir. Miöasala á Hassiö er
í Austurbæjarbíói en sýningin
hefst á laugardagskvöld kl.
23.30.
Á sunnudagskvöld er 112.
sýning á leikriti Kjartans Ragn-
arssonar, JÓA, en verkiö var
frumsýnt haustiö 1981 og hefur
síðan veriö sýnt viö frábærar
viðtökur leikhúsgesta í lönó auk
þess sem fariö var meö þaö í
leikferð um Norður- og Vestur-
land í sumar. í verkinu segir frá
ungum hjónum, Lóu og Dóra,
hún er sálfræöingur, hann
myndlistamaöur og vanda þeim
sem þau standa frammi fyrir,
þegar móöir Lóu deyr og einhver
veröur aö taka aö sér andlega
þroskaheftan bróöur Lóu, Jóa. í
stærstu hlutverkum eru Sigurö-
ur Karlsson, Hanna María
Karlsdóttir og Jóhann Sigurðs-
son, sem leika þau Dóra, Lóu og
Jóa. Ennfremur eru í sýningunni
stór hlutverk leikin af Guömundi
Berglind Bjarna-
dóttir syngur í
Norræna húsinu
Sunnudaginn þann 9. jan. kl.
17, munu þær Bergllnd Bjarna-
dóttir, sópran og Guörún A.
Kristinsdóttir, píanóleikari, halda
tónleika í Norræna húsinu. Á
efnisskránni eru verk eftir nor-
ræn tónskáld. Berglind syngur
úr Ljóöakornum Atla Heimis
Sveinssonar og sænska söng-
lagabálkinn Gullebarns
vaggsánger eftir Wilhelm Pet-
Pálssyni, Þorsteini Gunnars-
syni, Elfu Gísladóttur og Jóni
Hjartarsyni. Kjartan er leikstjóri
en leikmynd og búningar eru eft-
ir Steinþór Sigurösson. Verkiö
hefur hlotiö mikið lof gagnrýn-
enda og leikhúsgesta. Jónas
Guömundsson í Tímanum sagöi
m.a. „eitt af bestu íslensku leik-
ritunum sem samin hafa verið
og sýnd í mörg ár.“ „ ... lætur
áhorfandann ekki í friði“ (ÓI.M.
Jóhannesson, Morgunblaöiö).
„Jói heillaði alla ... leikendur
Leikfélagsins fara á kostum.“
(Bryndís Schram, Alþýöubl.).
erson-Berger. Auk þess veröa
fluttir söngvar eftir Wilhelm
Stenhammar og Jean Sibelius.
Berglind Bjarnadóttir hóf söng-
nám hjá Elísabet Erlingsdóttur
viö Tónlistarskóla Kópavogs og
lauk þaöan burtfararprófi. Und-
anfarin þrjú ár hefur Berglind
verið búsett í Stokkhólmi, þar
sem hún stundar framhaldsnám
viö Stockholms Musikpedagog-
iska Institut. Þetta veröa fyrstu
sjálfstæöu tónleikar Berglindar
hérlendis.
Aögöngumiöasala er viö inn-
ganginn.
Utivist
Sunnudag 9. janúar klukkan
ellefu, fer feröafélagiö Útivist
sína árlegu kirkjuferö. í þetta
sinn verður fariö aö Saurbæ á
Kjalarnesi.
í Saurbæ er lítil falleg kirkja
og þjónandi prestur þar er séra
Gunnar Kristjánsson, en hann
situr sem kunnugt er á Reynivöll-
um.
Feröinni veröur hagaö þannig
aö ekið verður nokkru innar en í
Tíðaskarð og gengiö þaöan eftir
fjörunni aö Saurbæ. Klukkan tvö
verður hlýtt á messu í Saurbæj-
arkirkju hjá sóknarprestinum,
séra Gunnari Kristjánssyni, en
aö henni lokinni flytur hann
staöarlýsingu í stuttu máli.
Fararstjórar í ferðinni veröa
Jón I. Bjarnason og Þorleifur
Guömundsson. Fariö verður
stundvíslega frá BSÍ aö vestan-
veröu og komið tímanlega í bæ-
inn aftur. Frítt fyrir börn í fylgd
meö fullorönum. Búiö ykkur vel.
íslenska óperan
Nú aö loknu jólahléi eru hafn-
ar aö nýju sýningar íslensku
óperunnar á óperunni vinsælu
Töfraflautunni eftir Mozart. Hef-
ur hún nú verið sýnd 20 sinnum
viö ágæta aösókn. Fyrirhugaö er
aö halda áfram sýningum fram í
miðjan febrúar, en þá verður
frumsýnd ný ópera á sviðinu í
Gamla bíói. Er því ástæöa til aö
hvetja fólk sem áhuga hefur á aö
sjá Töfraflautuna til aö drífa sig
sem fyrst.
Sýningar íslensku óperunnar
á Töfraflautunni nú um helgina
verða sem hér segir: Föstudag 7.
jan. kl. 20.00. Laugardag 8. jan.
kl. 20.00. Sunnudag 9. jan. kl.
20.00.
Hrönn Hafliðadóttir tekur nú á
föstudaginn viö hlutverki einnar
af hirömeyjum Næturdrottn-
ingarinnar, sem Anna Júlíana
Sveinsdóttir hefur haft til þessa.
Aö lokum má geta þess að
sunnudaginn 9. janúar er eitt ár
liðið frá því aö Sígaunabaróninn
var frumsýndur í Gamla bíói og
þar meö eitt ár frá því að Gamla
bíó var formlega tekiö í notkun
sem óperuhús. íslenska óperan
mun í tilefni þessa standa fyrir
veitingum í hléi á syningunni
sunnudaginn 9. janúar.
Leíkfélag Akureyrar:
Siggi var úti
Leikfélag Akureyrar sýnir um
helgina leikrit Signýjar Pálsdótt-
ur, Siggi var úti. Tónlist er eftir
Ásgeir Jónsson. Sýningar veröa
á laugardag og sunnudag kl.
15.00. Þetta er leikrit fyrir
krakka á öllum aidri.
Miöasala er opin frá kl. 13.00,
en síminn er 24073.
Kjarvalsstaðir:
Sýning á nor-
rænni vefjarlist
Nk. laugardag, þann 8. janúar
kl. 14.00, veröur opnuð á Kjar-
valsstööum sýning á norrænni
vefjarlist. Sýningin er opin alla
daga frá kl. 14.00 til 22.00 fram
til. 31. janúar.
Á mánudaginn nk. 10. janúar,
veröur tekiö á móti verkum
ungra listamanna á Kjarvals-
stööum milli kl. 10.00 og 18.00.
Þaö er verið aö safna verkum á
sýningu sem hefst á Kjarvals-
stööum 5. febrúar og verður
kölluö Ungir listamenn á Kjar-
valsstööum. Það eru listamenn
30 ára og yngri sem mega eiga
verk á sýningunni.
Félag harmón-
ikkuunnenda
Fyrsti skemmtifundur ársins
1983, verður í Glæsibæ á milli
klukkan 15.00 og 17.00 sunnu-
daginn 9. janúar. Framvegis
veröa skemmtifundir fyrsta
sunnudag hvers mánaöar fram í
maí.
Frá Ferðafélagi
íslands
Á sunnudaginn kl. 13.00,
verður skíðagönguferö í ná-
grenni Reykjavíkur. Fariö veröur
þangaö sem færðin er bezt á
sunndaginn, í gott skíöagöngu-
land (Bláfjöll eða á Hellisheiöi).
En aö sjálfsögöu verður aö haga
seglum eftir vindi í þessu óstöö-
uga veðri sem ræöur ríkjum
þessa daga og bera niöur á
skíðasvæðum, sem aögengi-
legust veröa á sunnudaginn, en
trúlega þarf ekki aö aka langt til
þess aö komast í nægan skíða-
snjó.
Á miövikudaginn verður fyrsta
myndakvöld ársins að Hótel
Heklu. Þar veröa sýnda myndir
úr feröum félagsins ásamt fleiru.
Fylgist með auglýsingum í fé-
lagslifi blaösins um helgina.
Okkur langar aö koma á fram-
færi beiðni til þeirra farþega,
sem tóku myndir (slides) í ný-
afstaðinni áramótaferö Ferðafó-
lagsins um aö lána félaginu
myndirnar gegn loforði um góöa
meöferö og hafa þá samband
viö skrifstofuna, Öldugötu 3,
sími 19533.
Verslunin Edda
Gunnarssundi 5
Hafnarfirði.
UTSALA - BUTASALA
10% afsláttur af öllum gardínuefnum.