Morgunblaðið - 07.01.1983, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1983
47
EDD£
SKOLLER
meö mikla hæfileika
Þaö kannast áreiöanlega
margir viö söng Eddie Skoller í
laginu „What did you learn in
school to-day?“ og oft hefur ver-
iö leikiö í útvarpinu.
í þessu lagi syngur hann á
ensku og hermir þar eftir Breta,
Frakka, Itala, Þjóöverja, Amerík-
ana, Indverja, Svia og Dana og er
með ólíkindum hvernig hann nær
réttum hreim hverrar þjóöar vlö
framburö á enskunni. Þaö er
verst aö sá íslenski fyigdi ekki
með!
Eddie Skoller er 38 ára gamall
Dani, af gyöingaættum, og löngu
þekktur á Noröurlöndum.
Ekki alls fyrir löngu fréttist af
einnar klukkustundar löngum
þætti í danska sjónvarpinu, þar
sem hann skemmti löndum sín-
um, og þótti takast vel. Þaö væri
ekki ónýtt aö fá aö sjá slíkt
prógram frá frændum okkar hér í
sjónvarpinu.
Eddie Skoller var ungur aö ár-
um, þegar hann vissi aö hann
vildi veröa skemmtikraftur og
halda út á listabrautina. Tólf ára
gamall kvaö hann upp úr meö aö
hann vildi feta í fótspor Victor
Borge. Hann segir sjálfur, aö
hann hafi alltaf vitaö aö hann
gæti komist áfram á þessu sviði.
Foreldrarnir vildu hins vegar,
aö hann leitaö sér staögóörar
menntunar, og hann fór í versl-
unarskóla. Hann starfaöi viö slík
störf um tíma, en áriö 1969 tók
hann af skariö og hringdi til
manns aö nafni Thoger Olesen til
aö spyrjast fyrir um, hvernig
hægt væri að komast aö sem
söngvari viö eitthvert af veitinga-
húsunum í Tivoli. Er skemmst frá
því aö segja, aö hann var beöinn
aö koma og syngja til reynslu,
var ráöinn viö Tivoli til aö syngja
strax þaö sumar og var þaö upp-
hafiö aö ferli hans, sem sífellt
veröur glæsilegri meö hverju ár-
inu sem líöur.
Eddie Skoiler ólst upp í
Bandaríkjunum fyrstu sex ár
ævinnar, en eftir þaö fluttu for-
eldrar hans til Danmerkur. Hon-
um tókst þó aö halda viö ensku-
kunnáttunni meö miklum ágæt-
um. Móöir hans er sænsk og af
henni læröi hann máliö til fulln-
I ustu, hann læröi frönsku og
þýsku sem unglingur og síöan
spönsku í verslunarskólanum.
Auk þess, sem hér er talið, syng-
ur hann einnig á hebresku. Þeir
eru margir listamennirnir af gyö-
ingaættum, sem hafa hlotiö
heimsfrægð, auk Victor Borge
má nefna Peter Ustinov, Danny
Kay, Chaplin, Barbra Streisand
og Woody Allen, og þá ekki allir
upptaldir.
Eddie Skoller segist líkast til
vera þaö sem kallaö er þjóölaga-
eða vísnasöngvari. Hann hefur
aldrei blandaö stjórnmálum í
söngva sína, segír sig þess ekki
umkominn aö segja ööru fólki
fyrir verkum á því sviöi. Honum
fellur betur aö fara meö gam-
anmál.
Svo mikiö er víst, aö þaö er
undur gaman aö hlusta á söng
hans, á plötu, sem undirrituö
eignaöist fyrir um ári og haföi
mikiö fyrir aö ná f, eru afskaplega
þýö og falleg lög, mörg þeirra
frumsamin, sem hann syngur og
spilar undir á gftar. Auk lagsins
„Waht did you learn in school
to-day?“, er þar lag sem heitir
„Finnske historier" og þar syngur
hann á sænsku en meö sterkum
finnskum hreim.
Þessi plata, sem heitir En aft-
en med Eddie Skoller, er tileink-
uö minningu Thoger Olsesen,
mannsins sem gaf honum fyrst
tækifæri til aö koma fram í Tivoli,
áriö 1969.
Óskandi væri aö sjónvarpiö
tæki til sýningar þætti meö Eddie
Skoller, því enn er til fólk á ís-
landi, sem skilur danska tungu
vel og kann aö meta hina sér-
stæöu dönsku kímni.
B.I. tók saman.
Suðurnesjakonur ath.:
Líkamsþjálfun — leikfimi
Nýtt 6 vikna leikfiminámskeið hefst 11. janúar í
íþróttahúsi Njarðvíkur, dag- og kvöldtímar. Styrkj-
andi og liðkandi æfingar fyrir dömur á öllum aldri.
Upplýsingar og innritun í síma 6062.
Konur Sandgeröi
6 vikna leikfiminámskeið hefst 10. janúar í íþrótta-
húsinu Sandgeröi. Upþlýsingar og innritun í síma
6062.
Birna Magnúsdóttir
— 1x2
18. leikvika — leikir 3. janúar 1982
Vinningaröð: 1 X 1-X 1 2-X 11-1X1
1. vinningur: 12 réttir — kr. 120.265,00
72259(4/11) 87639(4/11)
2. vinningur: 11 réttir — kr. 1.431,00
2636 21096+ 64326 75945 88520+ 98077+
4619 24486+ 65316 77079 94098 98556+
4676 25349* 66797+ 80230+ 94539+ 98810+
5203 59775 66974+ 82181+ 94601+ 100312
8604 60705 68439 82316+ 95020+ 160036
9540 61510+ 70292 83490+ 95021+ Ur 16. viku:
15626 61819 70293 83941 95491 98275
16329 62443 72032 84051 95513+ Ur 17. viku:
18539 62836+ 73344 84053 96222+ 75690
21057+ 63019+ 73685+ 85774+ 96507+ 75693
21085+ 64112 74624 87551 97006+ * (2/11) Kærufrestur er til 25. janúar 1983, kl. 12 á hádegi. Kærur skulu
vera skriflegar. Kærueyöublöö fást hjá umboösmönnum og á
skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæöir geta lækkaö, ef
kærur veröa teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seöla(+) veröa aö framvísa stofni eöa
senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til
Getrauna fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR - íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK
SNJÓ-
HJÓL-
BARÐAR
Eigum fyrirliggjandi takmarkaðan lager af eftir-
töldum hjólbörðum.
Stærö Verö
600 X 12
A78 X 13
B78 X 13
P155/80 X 13
155RX13
165R X13
P175/80R X 13
C78 X 14
E78 X 14
F78 X 14
G78 X 14
H78 X 14
P195/75R x 14
P205/75R X 14
165R X 15
G78 X 15
P225/75R X 15
700 X 15/6PL
750 X 16/8PL
875 X 16.5/8PL
1.825.-
1.801.-
1.827.-
1.692.-
1.912.-
2.061,-
2.048-
1.984.-
2.124.-
2.211.-
2.356.-
2.400.-
2.333,-
2.338.-
2.197,-
2.432 -
2.829.-
3.280,-
4.445.-
3.804.-
A meðan birgðir endast gefum við 10% staðgreiðslu-
afslátt eða veitum góð greiðslukjör.
HJÓLBARÐAR
VéladeildSambandsins
Höfðabakka 9 Símar: 83490 og 38900