Morgunblaðið - 07.01.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1983
51
fclk í
fréttum k.
Díana lét í
minni pokann
+ Sagt er að Díana prinsessa hafi
orðið að láta í minni pokann fyrir
tengdamóður sinni og neyðst til að
láta af þrjósku sinni varðandi hesta
og hestamennsku.
Hún varð fyrir því óhappi tíu
ára gömul að detta af baki og
handleggsbrotna og mun hafa
svarið þess eið að stíga aldrei
framar á bak. Fréttamenn blaðs-
ins Sun munu hins vegar hafa
komist í feitt síðastliðinn sunnu-
dag þar sem þeir gengu fram á
drottninguna og prinsessuna á
hestbaki á svæði hallarinnar þar
sem sú fyrrnefnda kallaði stöðugt
leiðbeiningar- og hvatningarorð
til prinsessunnar. Starfsmenn
hallarinnar hafa einnig látið hafa
það eftir sér að drottningin hafi
valið henni ljúfan gæðing til að
engin hætta væri á slysni og
kjarkmissi ...
Spánarkon-
ungur brák-
ast á skíðum
+ Jóhann Karl Spánarkonungur
varð fyrir því óhappi i fríi sínu í
Sviss síðastliðinn mánudag að bráka
mjaðmarlið þar sem hann var á skíð-
um við vetrarsetur sitt. Hann var
fluttur í skyndi til heimalands síns
þar sem hann var lagður á sjúkrahús
í Madrid til meðferðar, en mun ekki
vera mikið slasaður ...
Skipt um
leikkonu í
„ Woman of
the Year“
+ Mynd þessi sýnir þær stöllur Debbie Reyn-
olds (t.h.) og Raquel Welch í viðtali fyrir
skömmu, en Debbie mun koma til með að taka
við hlutverki Raquel í söngleiknum „Woman of
the Year“ á Broadway bráðlega.
+ Leikkonan Victoria Principal fékk meira en 15.000 aðdáendabréf í
tilefni jóla frá aðdáendum um heim allan ...
Aódáendabréfin
streyma inn...
„Þetta er yfirþyrmandi. Eg hef fengið nokkrar ungar stúlkur til
liðs við mig við að lesa bréfin yfir. Mörg bréfanna eru með smágjöf-
um og mér finnst ég verða að opna þau öll. Ég verð hins vegar að
valda aðdáendum mínum þeim vonbrigðum, að ég mun ekki svara
þeim, þar sem það tæki allan minn tíma í nánustu framtíð", sagði
Victoria í viðtali nokkru, sem birtist nú skömmu eftir áramótin.
En það eru fleiri leikendur í Dallas sem hafa fengið sinn skammt
af aðdáendabréfum með jólapóstinum. Pat Duffy, sem leikur
Bobby, kvað hafa fengið meira en 10.000 bréf og slegið með því J.R.
alveg út af laginu. Hann mun ekki ætla að svara sínum bréfum
fremur en Victoria, en huggar aðdáendurna með því að þau verða í
það minnsta lesin ...
COSPER
— Ert þetta þú, Siggi? Ég var að skríða upp í rúm og þá varð mér
hugsað til þín.
Jerry Lewis
í Þýskalandi
+ Jerry Lewis, hinn góðkunni
bandaríski leikari, hefur dvalið í
Þýskalandi um nokkra hríð, þar sem
hann var viðstaddur frumsýningu
nýjustu kvikmyndar sinnar „Slap-
stick“. Hann notaði einnig tækifær-
ið og hélt sýningu á nokkrum mál-
verkum sinna og tók þátt í nokkrum
sjónvarpsþáttum_
FRAM
TÖLVUSKÓLI
Nytsamt nám
á nýju ári
Tölvuskólinn Framsýn óskar nemendum, vinum og
velunnurum gleöilegs nýs árs, þakkar samstarfiö á
liönu ári og minnir um leið á aö innritun á janúarnám-
skeiöin er þegar hafin.
Almennt
grunnnámskeið
Á þessu námskeiöi eru kennd grundvallaratriöi tölvu-
fræöinnar, svo sem uþþbygging tölva, helstu geröir,
notkunarmöguleikar og fleira.
Námskeiöið er ætlaö öllum þeim er hafa áhuga á aö
kynnast tölvum og notkunarmöguleikum þeirra, sem
og starfsmönnum fyrirtækja er starfa nú þegar viö
tölvur eöa munu gera þaö í náinni framtíö.
Almennt
grunnnámskeið
fyrir unglinga
Námsefniö er að öllu leyti hiö sama og á almennu
grunnámskeiöi aö því undanskildu aö framsetning
efnisins er miöuð viö aö þátttakendur séu á aldrinum
12—16 ára.
BASIC
forritunarnámskeið
Efni þessa námskeiös er miöaö viö aö þátttakendur
hafi einhverja undirstööu í tölvufræöum, t.d. sólt al-
mennt grunnnámskeiö. Kennd eru grundvallaratriöi
forritunar, uþþbygging forrita og skiþulagning. Viö
kennsluna er notað forritunarmáliö BASIC. Aö loknu
þessu námskeiöi eiga þátttakendur aö vera færir um
að rita forrit til lausnar á ýmsum algengum verkefn-
um er henta til lausnar meö tölvu.
CP/M — COBOL
Framsýn býöur framhaldsnám.
Auk ofangreindra námskeiöa býöur Framsýn fram-
haldsnámskeið er hefjast á sama tíma. Meöal þeirra
möguleika er þar bjóöast, má nefna: Stýrikerfiö
CP/M og forritunarmáliö COBOL ásamt fjölda ann-
arra námskeiða fyrir þá sem svala vilja fróöleiksfýsn
og auka viö þekkingu sína.
Helgarnámskeið
Helgarnámskeiðin eru hönnuö meö þá í huga sem
vegna anna og/ eöa vegalengdar sjá sér ekki fært aö
sækja önnur námskeiö. Námsefni og tækjabúnaöur
eru valin meö þaö fyrir augum aö sem mestrar færni
veröi náö á sem skemmstum tíma.
Arnarflug veitir nemendum Framsýnar sérstakan af-
slátt af flugfargjöldum þegar haldiö er til náms og
heim aftur.
Innritun og upplýsingar um ofangreind námskeiö í
síma 91-39566 milli klukkan 13.00 og 18.00 og um
helgar milli klukkan 13.00 og 16.00.
TÖLVUNÁM ER FJÁRFESTING í FRAMTÍÐ ÞINNI
TÖLVUSKÓLINN FRAMSÝN, SÍÐUMÚLA 27,
PÓSTHÓLF 4390, 124 REYKJAVÍK, SÍMI: 39566.