Morgunblaðið - 07.01.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1983
55
\fiktAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
Þessir hringdu .. .
Af hverju
var þögn á
Veðurstofunni?
Sk.S. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Mig langar til
að beina fyrirspurn til Veður-
stofunnar: Hvernig gat það gerst
að Veðurstofan, sem vissi að
óveður var að bresta á í gær-
morgun (þriðjudag), sendi ekki
út neina aðvörun, fyrr en fjöldi
bíla sat fastur í sköflum? Þá var
rokið til og fólk varað við að
senda börnin í skólann, þegar
mörg þeirra voru farin af stað.
Um kl. sjö um morguninn var
Veðurstofunni kunnugt um, að
vindhraðinn var kominn í u.þ.b.
50 hnúta við Vestmannaeyjar,
það var að verða vitlaust veður í
Keflavík og mikil lausamjöll lá
um allar jarðir. Þó var þagað á
Veðurstofunni. Hvað olli þeirri
þögn? Það er of seint að vara
fólk við, þegar það situr fast í
sköflunum. Eg sat fastur í mín-
um bíl, þó að hann væri ágæt-
lega búinn fyrir akstur í snjó, af
því að ég fékk engar viðvaranir.
Ég hefði skilið bílinn eftir
heima, ekki síst af því að ég
kannast við þann óvana sam-
borgara minna að leggja út í
tvísýnu í snjó og byl á illa bún-
um farartækjum, m.a. á sléttum
sumardekkjum. Menn eru nefni-
lega bara sektaðir, ef þeir eru
aðeins of lengi á snjódekkjunum
á vorin, en þeir mega alveg valda
náunganum og samfélaginu erf-
iðleikum og útgjöldum, ef það er
að vetrarlagi.
Hverjar
eru skyldur
sýslunnar?
Svanlaug Böðvarsdóttir hringdi
og hafði eftirfarandi að segja:
— Ég var að lesa þarna í dálk-
unum hjá þér í dag (miðvikudag)
það sem hann Jóhann Guð-
mundsson segir um sýsluvega-
sjóðsgjaldið í Árnessýslu og tek
undir það með honum, að það er
furðulegt að vera að innheimta
slíkt gjald af sumarbústaðaeig-
endum. Hverjar eru skyldur
sýslunnar sem í móti koma?
Einu virðist gilda, hvort viðkom-
andi sumargestir sveitarinnar
þurfi að nota troðning eða veg,
allir verða að borga gjaldið. Og
svo eru það fasteignagjöldin hjá
þeim og þau eru nú í hæsta lagi
finnst mér. Hvað verður um
þessa fjármuni? Ég held að það
sé löngu orðið tímabært, að
sumarbústaðaeigendur myndi
samtök til að gæta hagsmuna
sinna. Þetta voru orð í tíma töl-
uð hjá Jóhanni Guðmundssyni.
Ekkert annað
en fjárupptaka
Torfi Olafsson hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Jóhann
Guðmundsson hefur lög að
mæla, þegar hann gagnrýnir að
innheimt séu sýsluvegasjóðs-
gjöld af sumarbústaðaeigendum.
Það þarf einhver dugandi al-
þingismaður að skoða þetta mál
og uppræta óréttlætið, því að
gjaldið er ekkert annað en hrein
fjárupptaka í mörgum tilvikum,
t.d. hjá okkur sumarbústaðaeig-
endum við Meðalfellsvatn. Þar
er vegur sem þeir koma aldrei
nálægt, þessir innheimtumenn,
og við verðum að gera þar allt
sjálfir, meira að segja smíðuðum
brúna. — Samt erum við rukkað-
ir um sýsluvegasjóðsgjald.
Almenn reidi
yfir sýsluvega-
sjóðsgjaldinu
Kristín Bjarnadóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
— Mig langaði til að fá að taka
undir það sem Jóhann Guð-
mundsson segir í dag (miðviku-
dag) um sýsluvegasjóðsgjald í
Árnessýslu. Ég er með tólf fer-
metra kofa og á að borga 543
krónur í þetta gjald fyrir nokkr-
ar ferðir á ári. Mér finnst fylli-
lega koma til greina, að utan-
bæjarfólk verði látið borga vega-
gjald fyrir að aka á götum
Reykjavíkur. Við borgum með
almennu vegagjaldi fyrir afnot
af landsvegum, en þar að auki
þarf ég að fara 3 km leið niður
Vaðnesveg til að komast í kof-
ann minn. Þarna eru u.þ.b. 60
bústaðir, svo að það eru því engir
smáræðis peningar sem inn
koma, þegar búið er að inn-
heimta hjá öllu þessu fólki. Og
hvað verður eiginlega um alla
þessa peninga? Þar að auki borg-
um við fasteignagjöld og fleira,
allt fyrir nokkrar ferðir á sumri.
Mér er kunnugt um, að það ríkir
almenn reiði meðal fólksins yfir
þessari frekju.
Og mig Iangar að nefna annað
í leiðinni. í fyrra tóku Sam-
vinnutryggingar það upp hjá
sjálfum sér að láta endurmeta
bústaðina vegna trygginga á
þeim, sem félagið hefur með
höndum. Síðan sendir það okkur
sumarbústaðaeigendum reikning
fyrir matsgjörðinni, kr. 200,00
hverjum manni, eins og beiðni
um matið hafi komið frá okkur.
Ég neitaði alfarið að borga
þennan reikning og mun ekki
borga hann. Tryggingamat á
þessum bústöðum hefur í gegn-
um árin hækkað með vísitölu, og
ef Samvinnutryggingar telja af
einhverjum ástæðum nauðsyn-
legt að láta fara fram nýtt mat á
þessum eignum, þá er það þeirra
mál. Svona er endalaust reynt að
plokka okkur sumarbústaðaeig-
endur. Það endar sennilega eins
og Jóhann spáir, að mann langi
ekki til að standa í þessu.
Hafa SVR laga-
heimild til að
taka alla miða
úr umferð?
Anna Guðmundsdóttir hringdi
og hafði eftirfarandi að segja:
Mig langar til að gera fyrir-
spurn um það, hvort Strætis-
vagnar Reykjavkur hafi laga-
heimild til að taka úr umferð
alla miða, þó að búið sé að sam-
þykkja hækkun farmiðagjalda í
borgarráði, — á meðan borgar-
stjórn hefur ekki enn veitt sam-
þykki sitt til að hækkunin komi
til framkvæmda. Mér var tjáð
það í dag (miðvikudag) í miða-
sölu SVR við Lækjartorg, að all-
ir miðar hefðu verið teknir úr
umferð í gærkvöldi og væru
hvergi fáanlegir, og þó er borg-
arstjórnarfundur ekki fyrr en á
fimmtudag. Þetta finnst mér
beinlínis óforskammað. Þegar
svona millibilsástand ríkir er
hægt að skammta fólki eitt og
eitt spjald, ef talin er hætta á að
það hamstri, en ég tel útilokað,
að lagaheimild sé til að taka alla
miða úr umferð. Ég vona að rétt
yfirvöld geri sér það ómak að
svara þessu.
Óþolandi til lengdar
E.R.J. skrifar:
„Ég er tólf ára gömul og finnst
gaman að fara öðru hverju í bíó,
en því miður eru flestar myndir
bannaðar nú orðið, svo að það er
ekki úr mörgu að velja.
Ég greip Morgunblaðið einn
daginn og fletti upp á bíóunum. Af
þeim myndum sem þá voru í gangi
voru 9 bannaðar innan 16 ára og
sumar stranglega. Að auki voru 3
bannaðar innan 14 ára og 3 innan
10 ára. Aðeins 6 voru ekki bannað-
ar og sumar þeirra grautfúlar, t.d.
Funny People.
Jæja, ég vona að bráðum verði
einnig sýndar blandaðar myndir,
því að svona ástand er óþolandi til
lengdar. Það þarf að sýna fleira en
„vinsælustu og djörfustu porno-
mynd allra tíma“, en svona eru
auglýsingarnar frá sumum bíóun-
um.“
GÆTUM TUNGUNNAR
Rétt er að segja: Hann var uppi á fjallinu en kom ofan
hlíðina niður í dalinn og er nú niðri við árbakkann.
íslenzka fyrir
útlendinga
Vinsamlegast segið erlendum vinum yðar frá íslenzku-
kennslu Mímis. Nemendur eru þjálfaðir I talmáli allt frá
upphafi. Málfræðin er kennd með dæmum.
Sími 11109 og 10004
frá kl. 1—5 e.h.
Alúbarþakkir færi ég þeim, sem sýndu mér vinarhug
á áttræbisafmæli mínu hinn 2U. desember sl. Sam-
starfskonum mínum hjá Hildu hf. þakka ég gjafir og
heimsóknir á abfangadag jóla. Hjónunum Hönnu og
Tom Holton, svo og framkvæmdastjóra Hildu hf,
Þráni Þorvaldssyni, þakka ég ámabaróskir og gott
samstarf um nærri tveggja áratuga skeib og ég óska
eigendum og starfsfólki Hildu hf. farsældar á kom-
andi árum.
Glebilegt nýtt ár!
INGIBJÖRG PÁLSDÓTTIR,
Mjóuhlíð 8, Reykjavík.
Laxveiðimenn
Árnar Laxá og Norðurá í Engihlíðar- og Vindhælis-
hreppum, A-Húnavatnssýslu, eru til leigu næsta
sumar. Tilboðum sé skilaö fyrir 25. janúar til Árna
Jónssonar, Sölvabakka 541 Blönduósi. Sími 95-
4329, og veitir hann allar nánari upplýsingar. Róttur
áskilinn til að taka hvaða tilboöi sem er eða hafna
öllum.
Fyrir hönd veiðifélagsins Hængs,
ÁrniJónsson.
ALLTAF Á LAUGARDÖGUM
Mér er hugstæðust
birtan heima
Viðtal við Högnu
Siguröardóttur arkitekt í París
um nýja strauma í byggingar-
list og viöhorf hennar.
Heimkominn að hefna
föður síns og bræðra
Önnur grein í greinaflokki um Þórö kakala.
Líf án móðurástar
Dóttursonur Björnstjerne Björnson segir frá.
Vönduð og menningarleg helgarlesning
AUGLÝSINGASrOfA KRISTINAR HF