Morgunblaðið - 09.01.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 09.01.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1983 5 limvH Skíðaferðirnar til SÖLDEN í Austurríki og GRINDELWALD í hinu viðfræga * j Jungfrau - Region í Sviss eru skemmtilegar nýjungar fyrir íslenska skíða- menn. Staðirnir hafa verið valdir með hliðsjón af sem fjölbreyttustum skíða- ^ ^ li 11 möguleikum og bæði börn og fullorðnir, byrjendur og „fullfærir" finnar þar brekkur og B aðstöðu við hæfi. ■ Og það er auðvelt að láta sér líða vel víðar en í skíðabrekkunum einum. „Gasthof" gistingin í Sölden F eða hótelin í Grindelwald eru heimilisleg og þægileg, veitinga- og skemmtistaðir eru fjölmargir, sundlaugar og gufuböð má víða finna og uþþlagt er að auka tilbreytnina í vetraríþróttunum með því að leigja sér göngu- skíði eða skauta og þiggja stutta tilsögn eða fullkomna kennslu i leiðinni. AUSTURRÍKI - SÖLDEN 2ja vikna ferðir Sölden skíðasvæðið er 467 ferkílómetrar og telst stærsta skíðasvæði Austurríkis. Hæðarmismunur er 1.673 m. Auðvelt er að skiða á milli ólíkra skiðasvæða eða nema ný lönd með áætlunarvögnum sem ganga um allan Ötzdalinn. Brottfarardagar: 30. jan, 27. feb, 13. mars Flug: Beint leiguflug til Innsbruck. Akstur: U.þ b 1 Vi klst frá flugvelli til gististaða. Gísting: Fjórir „Gasthof" - gististaðir. Lítil og vingjarnleg gistihús. Öll herbergi með baði. Morgunverður innifalinn. Faeði: Unnt er að fá 'k fæði innifalið i verði og er kvöidverður allra Sölden farþega þá framreiddur á einum stað, midsvæðis í bænum, Lyftukort: Ma greiða i islenskum penmgum fyrir brottför Verð: Frá kr. 9.900.- Innifalið: Flug, gisting með morgunverði, flutningur til og frá flugvelli erlendis SVISS - GRINDELWALD 2ja vikna ferðir. Möguleiki á framlengingu og/eða aukadvöl i Amsterdam. Eitt allra þekktasta skiðasvæði Sviss er Jungfrau - Region og einmitt þar er áfangastaður okkar í bænum Grindelwald Hæðarmismunur er 1.422 m. og með því að ferðast um dalinn i skíðalyftum eða lestarvögnum, sem reyndar flytja þig alla leið upp á fjallatoppana, er hægt að ná yfir 2.000 m. hæðarmismun. Brottfarardagar: 4 feb, 18. mars Flug: Aætlunarflug til Amsterdam og framhaldsflug til Zúrich Akstur: U.þ b. 2’/? klst frá flugvelli til gististaða Gisting: Hótel Residence og Derby hotel. öndvegis góð hótel, öll herbergi með baði, sima, útvarpi og svölum og Derby hotel að auki með sjónvarpi og Mmi-bar" á öllum herbergjum Morgunverður innifalinn. Fæði: Unnt er að fá Vfe fæöi innifalið i verði og er kvöldverður þa framreiddur á hotelunum Lyftukort: Má greiða í islenskum peningum fyrir brottför Verð: Frá kr 11.600.- Inmfalið: Flug, gisting með morgunverði. flutningur til og frá flugvelli erlendis. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTR/ETI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 „Eyjan við enda himinsins“ — barnaleikrit eftir Asko Martinheimo Á dagskrá hljóðvarps kl. 16.20 á mánudag er barnaleikrit: „Eyjan við enda himjnsins“ eftir Asko Martinheimo. Áður útvarpað 1979. Þýðandi er Dagný Kristjáns- dóttir. Leikstjóri: Sigmundur Örn Arngrímsson. Leikendur: Margrét Örólfsdóttir, Gerður Gunnarsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson, Guðbjörg Þor- bjarnardóttir, Orri Vésteinsson, Einar Skúli Sigurðsson, Stefán Jónsson, Anna Kristín Arn- grímsdóttir, Ásdís Þórhannsd- óttir, Ólafur Sigurðsson, Felix Bergsson og Valdimar Helgason. Heath Lamberts í hlutverki predikarans. Kona er nefnd Golda Á dagskrá sjónvarps kl. 20.50 er síðari hluti bandarísku sjón- varpsmyndarinnar um ævi Goldu Meir (1898—1978), sem var utanríkisráðherra og síðar forsætisráðherra ísraels á mikl- um örlagatímum. Leikstjóri er Alan Gibson, en í aðalhlutverk- m um Ingrid Bergman, Jack Thompson, Anne Jackson, Leon- ard Nimoy og Nigel Hawthorne. —*Á myndinni sem hér fylgir með eru þau Robert Loggia og Ingrid Bergman í hlutverkum Anwar Sadats og Goldu Meir. Sjonvarp á mánudaiískvöld Kl. 21.40: llljóðvarp á mánudatí kl. 10.20: BLINDI TRUNNI — ný kanadísk sjónvarpsmynd Á dagskrá sjónvarps kl. 21.40 á mánudagskvöld er ný kana- dísk sjónvarpsmynd, Blind í trúnni (Blind Faith). Leikstjóri er John Trent, en i aðalhlut- verkum Rosemary Dunsmore, Allan Royal og Heath Lam- berts. í Vesturheimi hafa ýmsir söfnuðir og predikarar tekið sjónvarp í þjónustu sína til að boða kenningar sínar og afla þeim stuðnings. Myndin segir frá ráðvilltri húsmóður sem verður bergnumin af slíkum sjónarpspredikara og heittrúarboðskap hans. Verð miðað við fluq og gengi 10. nóv. 1982.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.