Morgunblaðið - 09.01.1983, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.01.1983, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JANUAR 1983 t Eiginmaöur minn og faðir, JENS VIGFÚSSON, veggfóðrari, Laugarnesvegi 84, lést í gjörgæsludeild Borgarspítalans 7. janúar. Fyrir hönd aöstandenda, Laufey Asbjörnsdóttir, Birgir Jensson. t Útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, MATTHÍASAR WAAGE, Rauöalæk 38, er lést 1. janúar sl., veröur gerð í Dómkirkjunni í Reykjavík, mánu- daginn 10. janúar kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Flugbjörgunarsveitina. Ingíbjörg Waage, Sigríóur Jónsdóttir, Gunnar Jónsson, Edda Petersen, Walter Petersen, Kristín Waage, örn Aðalsteinsson, og barnabörn. t Útför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóður og ömmu, INGIBJARGAR KRISTÍNAR SVEINSDÓTTUR, Ásvallagötu 35, fer fram frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 11. janúar kl. 15.00. Jóhannes Ó. Guömundsson, börn, tengdabörn og barnabörn. Faöir okkar, MAGNÚSÞÓRÐARSON frá Neóradal, Lönguhlíö 23, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni, þriöjudaginn 11. janúar kl. Þórarinn Magnússon, Sigmundur Magnússon, bóröur Eydal Magnússon. t Minningarathöfn um INGIBJÓRGU MARÍU (BUGGU) THOMPSON, áöur til heimilis Vesturgötu 21, Rvík, veröur haldin þriöjudaginn 11. janúar nk. kl. 15.00 í Fossvogskap- ellu hinni nýju. Þeir sem vildu minnast hinnar látnu eru beönir um aö láta Krabba- meinsfélag íslands njóta þess. Fyrir hönd vandamanna, Bergljót Ingólfsdóttir. t Eiginkona mín, móöir, dóttir og tengdadóttir, ÁSDÍS STEINUNN LEIFSDÓTTIR, kennarí, Sævangi 7, Hafnarfiröi, sem lézt í Landspítalanum 4. janúar sl., veröur jarösungin frá Hafnarfjarðarkirkju.-þriöjudaginn 11. janúar kl. 13.30. Guðfinnur G. Þóröarson, Eyrún Björg Guöfínnsdóttir, Leifur Steinarsson, Ingibjörg Bjarnadóttir, Þóröur Gíslason. t Faöir okkar, tengdafaöir, afi, langafi og langalangafi, JÓN EIRÍKSSON, skipstjóri, Drápuhlíö 13, veröur jarösunginn frá Háteigskirkju, þriöjudaginn 11. janúar kl. 13.30. Börn, tengdabörn, barnabörn og aörir niöjar. t KRISTJANA GUDMUNDSDÓTTIR frá Hjöllum, lést 3. janúar. Jaröarförin fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 10. janúar kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hínnar látnu er bent á Dvalarheimili aldr- aðra sjómanna. Sigríöur Kristjánsdóttir, Björn Kristjánsson, Ari Kristjánsson, Halldór Kristjánsson, Aöalsteinn Kristjánsson, Lilly Kristjánsson, Auöur Axelsdóttir, Hulda Sigurðardóttir, Hjördís Jónsdóttir, Anna Hjartardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Matthías Waage — Minningarorð Þann 30. desember sl. fylgdi ég föðurbróður mínum Matthíasi Waage á sjúkrahús, eins og svo oft áður, þegar hann fékk sín veik- indaáföll. í þetta skipti eins og hin skiptin sagði ég við hann: „Við sjá- umst fljótlega aftur Matti minn.“ Og grunaði mig þá ekki að þetta væri mín hinsta kveðja. En Matthías lést aðfaranótt 1. janúar sl. Matthías Waage var faeddur 20. júní 1907 í Reykjavík. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður E. Waage kaupmaður og kona hans Hendrikka Jónsdóttir Waage. Eft- irlifandi kona Matthíasar er Ingi- björg Waage f. 23. júní 1913, en þau höfðu verið gift í rúma hálfa öld. Naut hann einstakrar um- hyggju hennar og fórnfýsi í veik- indum sínum í gegnum árin og til hinstu stundar. Börn þeirra eru: Sigríður Reg- ina f. 22. janúar 1932. Gift Gunn- ari Jónssyni, búsett í Garðabæ. Edda f. 25. apríl 1934. Gift Walter Petersen, búsett í Bandaríkjunum. Kristín Helga f. 28. nóvember 1939. Gift Erni Aðalsteinssyni, búsett í Reykjavík. Það er ekki meining mín með þessum fáu orðum að skýra frá ævi þessa ágæta manns, heldur vildi ég mega þakka mínum góða frænda fyrir svo ótal margt sem hann gerði fyrir mig og fjölskyldu mína. Það verður aldrei fullþakk- að enda mun hann ekki hafa ætl- ast til þess, að haft væri orð á slíku. Avallt voru þau hjón góð og ljúf við mig og hann sem besti fað- ir. Þau hjónin tóku alltaf á móti fjölskyldu minni opnum örmum á heimili sínu og hlupu börnin mín þá ætíð upp í fang frænda. Þar sem börn eru svo næm á eðli mannsins hændust öll mín börn og barnabörn að Matta, því hann var einstaklega barngóður. Matti hafði næmt skopskyn, var gamansamur og léttur í lund en tilfinninganæmur. Hann var drenglyndur og heiðarlegur, og var hrókur alls fagnaðar á meðal vina og kunningja. Fals og ódrengskapur voru honum víðs fjarri. Hann hafði gaman af íþróttum og þá sérstaklega af knattspyrnu, en hann var í knatt- spyrnufélaginu Víkingi á sínum yngri árum. Söngur var þó honum hans aðaláhugamál. Ungur að ár- um byrjaði hann í kórnum Kátir félagar en fór síðan í Karlakórinn Fóstbræður. Hann starfaði í fé- laginu Gömlum Fóstbræðrum frá stofnun þess árið 1959. Hann tók af alhug þátt í sameiginlegu starfi þessara félaga og hélt tengslum og kynnum við Fóstbræður allt til hinstu daga sinna. Matti hóf störf hjá föður mínum er hann 1924 keypti fyrirtækið Sanitas, en 1939 var Sanitas gert að hlutafélagi og gerðist hann þá hluthafi þess, og var í stjórn þess í fjölda ára. Matta var alla tíð mjög annt um fyrirtæki sitt, en hann starfaði þar sem fulltrúi. Þegar ég ungur að árum hóf störf hjá fyrirtækinu var ég svo lánsamur að njóta þess að verða samstarfsmaður hans í fjölda ára. Nú síðustu árin starfaði hann hjá tengdasyni sínum Gunnari A. Jónssyni og má segja að hann hafi unnið til síðasta dags. Ég vil nú kveðja Matta frænda minn hinstu kveðju og þakka hon- um allar góðar stundir sem við höfum átt saman og bið góðan Guð að blessa hann. Eftirlifandi umhyggjusamri og góðri konu hans og börnum send- um við hjónin og fjölskylda okkar innilegustu samúðarkveðjur. Siguröur S. Waage Mig langar með nokkrum fá- tæklegum orðum að minnast bezta vinar okkar hjónanna, Matthíasar Waage, en hann andaðist á ný- ársnótt í Borgarspítalanum, þar sem hann hafði aðeins verið í einn t HÓLMFRÍÐUR JÓNA INGVARSDÓTTIR, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 11. janúar kl. 15.00. Haraldur Sæmundsson, dætur, tengdasynir, börn og barnabörn. t Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför, GUDJÓNS ÞORKELSSONAR frá Sandprýöi, Vestmannaeyjum. Þuríóur Einarsdóttír, Sigríður Guðjónsdóttir, Haraldur Hamar, Guðbjörg Guöjónsdóttir, Eðvar Ólafsson, Ruth Guöjónsdóttir, Bjarni Th. Mathiesen, Gylfi Guðjónsson, Kristín Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö fráfall sonar okkar og bróður, ÖLVERS THORARENSEN, Gjögri. Guö blessi ykkur öll. Foreldrar og systkini. + Þökkum innilega samúö og vináttu viö okkar, tengdamóður og ömmu. andlát og útför móöur SIGRÍÐAR HALLSDÓTTUR, Akranesi. Kristbjörg Þórðardóttir, Hilmar Þórarinsson, Skúli Þóröarson, Soffía Alfreösdóttir, Bragi Þóróarson, Elín Þorvaldsdóttir, Birgir Þóröarson, Ása Gústafsdóttír, og barnabörn. sólarhring. Hann hafði veikzt skyndilega, eins og oft undanfarin ár, en heilsa hans var orðin mjög tæp. Oft hafði hann farið á spítala og alltaf komizt heim aftur. Von- uðum við, að hann kæmi heim nú eins og áður, en sú von brást; dag- ar hans voru taldir. Matthías fæddist í Reykjavík 20. júní 1907. Foreldrar hans voru hjónin Hendrikka og Sigurður Waage. Hann átti tvo eldri bræð- ur, Sigurð Waage forstjóra Sani- tas og hálfbróður, Jónas Ólafsson vélstjóra. Var einkar kært með þeim bræðrum. Móðir þeirra missti Sigurð, mann sinn, á bezta aldri, og varð hún þá að sjá sonum sínum farborða. Hún setti upp matsölu og hafði kostgangara, því að hún var bæði dugleg og mikið myndarleg húsmóðir. Drengirnir hennar voru henni sérlega ástríkir og hjálpuðu henni eins og þeir gátu. Þann 28. nóvember 1931 kvænt- ist Matthías Ingibjörgu, dóttur hjónanna Regínu Helgadóttur og Vilhjálms Gíslasonar skipstjóra. Hún átti tvær eldri systur, Stein- unni og Kristínu, en Kristín var þá gift bróður Matthíasar, Sig- urði, sem missti hana svo langt um aldur fram eftir ástríkt hjóna- , band frá þremur börnum. Kom þá Steinunn á heimilið, annaðist börnin og síðar giftust þau Sigurð- ur. Það var mikill og góður sam- gangur milli heimila bræðranna. Matthías og Ingibjörg tóku miklu ástfóstri við börn Sigurðar, sem hafa endurgoldið þeim í ríkum mæli alla tíð. Sérstaklega ber að nefna Sigurð og Guðrúnu, sem bjuggu í nágrenninu, og alltaf mátti Ingibjörg hringja til þeirra, hvort sem það var á nóttu sem degi, ef eitthvað var að. Matthías og Ingibjörg eignuðust þrjár dætur, Gígí og Kristínu gift- ar og búsettar hér í borg og Eddu gifta og búsetta í Bandaríkjunum. Þær eiga allar góða maka og heimili og indæl börn, sem öllum þótti alveg sérstaklega vænt um afa sinn. Matthías og Ingibjörg fóru oft í héimsókn til Eddu, dótt- ur sinnar, og áttu þar góða daga hjá henni og fjölskyldu hennar. Nú síðast árið 1981 heimsóttu þau hana í nóvember og héldu þar upp á gullbrúðkaup sitt og dvöldust svo hjá þeim um jólin, þeim öllum til óblandinnar ánægju. Aður fyrr fórum við hjónin oft í sumarfrí með Matthíasi og Ingi- björgu og voru það ógleymanlegar ferðir. Við fórum oftast með börn- in með okkur, og var einlægt mikil kátína og skemmtun í öllum okkar ferðalögum utan lands sem innan. Síðastliðin 4—5 ár spiluðum við á hverjum fimmtudegi sólóvist, og var það alveg ómissandi skemmt- un. Síðast komu þau til okkar á annan jóladag, kát og hress að vanda, og þá var tekið í spil, en nú er það ekki lengur. Við hjónin og börn okkar kveðj- um elskulegan vin og þökkum hon- um samveruna á liðnum árum. Við biðjum Guð að blessa og styrkja Ingibjörgu, dætur hennar og fjöl- skyldur þeirra, vini og vandamenn alla, sem sakna hans. Með ljóðlínum Jónasar kveðjum við hann í Drottins nafni. Klýl |»ór, vinur, í fegra heim. Krjúptu art fólum frióarboóan.s °R njúgdu á vængjum mor^unroóans meira aó slarfa (*uds um Ki*im. Með innilegri saknaðar- og vin- arkveðju. Marta og Haraldur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.