Morgunblaðið - 09.01.1983, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.01.1983, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1983 25 Golda Meir biður gyðingana að leyfa börnunum að sleppa fyrst á undan hinum fullorðnu. Golda Meir er mitt langbezta hlutverk Hin ástsæla leikkona Ingrid Bergman lést í haust, en myndir hennar lifa. Sjónvarpið sýnir um áramótin síðustu mynd hennar sem rétt tókst að ljúka áður en hún lést. Meðan á myndatökum stóð, gekk sá orðrómur fjöllum hærra, að heilsu leikkonunnar færi hrakandi, en hún harðneit- aði því allt undir það síðasta: „Heilsa mín er í lagi, mér líður vel og ég er ekki komin á graf- arbakkann," sagði hún Bert Reisfeld, blaðamanni Photo- plays. Hér á eftir fer stutt grein um síðustu mynd hennar, sem margir telja hápunktinn á löng- um, stormasömum en glæsi- legum ferli hennar. „Þeir hljóta að vera að grín- ast,“ hugsaði blaðamaðurinn Bert Reisfeld, þegar hann frétti að Ingrid Bergman ætti að leika Goldu Meir í sjónvarpsmynd um ævi þjóðarleiðtogans. Golda fæddist í Rússlandi, fluttist til Bandaríkjanna er hún var sex ára, gerðist bandarískur þegn og kennari, en fluttist á þrítugs- aldri, ásamt manni sínum Morr- is, til ísraels til að taka þátt í frelsisbaráttunni. „Ég hélt að framleiðendurnir hefðu snögglega brjálast," sagði Ingrid, er hún var beðin að leika Goldu Meir. „Ég hélt að sú sem léki Goldu þyrfti að líkjast henni, vera Gyðingur, og vera allrasíst sænsk." Henni var sagt að örvænta ekki. „Golda Meir var mesta kona veraldar í aug- um ísraela." Loks tókst að sannfæra Ingrid, en hún krafðist þess að leika fyrst í prufutökum. „Ég varð að vera algerlega trú þess- ari miklu konu,“ segir hún. — sagði Ingrid Bergman Þegar Ingrid var spurð að því hvaða hlutverk hún héldi mest upp á, svaraði hún: „í gamla daga hefði ég sagt „Jóhanna af Örk“ eða „Casablanca", en eftir að hafa leikið Goldu Meir er ég viss um að það er mitt besta hlutverk. Ég tel það vera mitt langbesta hlutverk og að leika Goldu hefur verið stórkostleg reynsla." Golda Meir var leiðtogi, og allt hennar lífsverk, að gera sitt besta fyrir Israel, yfirgnæfði allt annað: börn hennar, eiginmann- inn og einkalíf. Hjónabandið brást, en annað tókst. Astralska leikkonan Judi Dav- is (lék í Framadraumum) leikur Goldu á yngri árum. Saga Goldu Meir er ekki saga Gyðinga, hún er saga ofsótts fólks, sem óskar þess eins að fá að lifa í friði. Golda Meir var ekki bara eld- harður foringi, heldur var hún einnig húmoristi og fara margar slíkar sögur af henni. Nokkrum mánuðum áður en hún lést, árið 1978 (rúmlega áttræð), varaði einn vinur hennar hana við keðjureykingum. „Hvað, ertu hræddur um að ég deyi ung?“ var svarið. Þegar Golda heimsótti Rich- ard Nixon í Hvíta húsið, bað Nixon, sem þá var í vandræðum vegna Víetnam-stríðsins, Goldu að lána sér einn af generálum hennar, t.d. þennan með augn- pjötluna. — „Auðvitað," svaraði Golda, „bara ef þú lánar mér tvo generála." „Hverja?" spurði Nix- on og Golda segir: „General Mot- ors og General Electric ...“ HJÓ Ingrid Bergman leikur Goldu Meir. Við hlið hennar er Moshe Dayen, ísraelski varnarmilaráðherrann. Fjöldi þorskneta í sjó: Hámark 150 Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynn- ingu varðandi leyfilegan fjölda þorska- neta í sjó: Að gefnu tilefni vekur ráðuneytið athygli á, að samkvæmt gildandi reglum er leyfilegur netafjöldi í sjó þessi: Áhöfn 12 menn eða fleiri 150 net. Áhöfn 11 menn 138 net og fækk- ar síðan netum um 12 miðað við hvern mann sem fækkar í áhöfn. Það frávik er gert á þessari reglu, að sé sjálfvirkur netaafdráttar- búnaður um borð í veiðiskipum er slíkur útbúnaður lagður að jöfnu við einn mann og mega því bátar sem slíkan búnað nota hafa 12 netum í sjó meira, en gert er ráð fyrir hér að ofan. Innritun í prófadeildir fer fram mánud. 9. jan. kl. 17—21 í Miðbæjarskóla Eftirfarandi prófadeildir veröa starfræktar ef þátttaka reynist næg: Aðfaranám (fyrri hluti gagnfræöanáms). Fornám (grunnskóladeild). 1. önn Forskóla sjúkraliða 1. önn Viðskiptadeildar. Námsflokkar Reykjavíkur. Gengi verðbréfa 9. janúar 1983: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJOÐS: 1970 2. flokkur 1971 1. flokkur 1972 1. flokkur 1972 2. flokkur 1973 1. flokkur A 1973 2. flokkur 1974 1. flokkur 1975 1. flokkur 1975 2. flokkur 1976 1. flokkur 1976 2. flokkur 1977 1. flokkur 1977 2. flokkur 1978 1. flokkur 1978 2. flokkur 1979 1. flokkur 1979 2. flokkur 1980 1. flokkur 1980 2. flokkur 1981 1. flokkur 1981 2. flokkur 1982 1. flokkur Sölugengi pr. kr. 100.- 10.252.05 8.964.63 7.773,22 6.587.51 4.731.66 4.358,30 3.008,82 2.472.62 1.862.85 1.765,54 1.410.51 1.308.63 1.092,78 887,26 698,08 588.44 454.87 340,03 267,38 229,70 170,59 154.87 Meöalávöxtun ofangreindra flokka um- fram verðtryggingu er 3,7—5%. VEÐSKULDABRÉF ÓVERÐTRYGGÐ: Sölugengi m.v. nafnvexti (HLV) 12% 14% 16% 18% 20% 47% 1 ár 63 64 65 66 67 81 2 ár 52 54 55 56 58 75 3 ár 44 45 47 48 50 72 4 ár 38 39 41 43 45 69 5 ár 33 35 37 38 40 67 VEÐSKULDABRÉF MEÐ LÁNSKJARAVÍSITÖLU: Sölugangi nafn- Ávöxtun m.v. vaxtir umfram 2 afb./ári (HLV) verðtr. 1 ár 96,49 2% 7% 2 ár 94,28 2% 7% 3 ár 92.96 2Vi% 7% 4 ár 91,14 2%% 7% 5 ár 90,59 3% 7% 6 ár 88,50 3% 7’/«% 7 ár 87,01 3% 7'/«% 8 ár 84,85 3% 7 %% 9 ár 83,43 3% 7Vi% 10 ár 80,40 3% 8% 15 ár 74,05 3% 8% VERÐTRYGGÐ HAPPDRÆTTISLÁN RÍKISSJÓÐS B — 1973 C — 1973 D — 1974 E — 1974 F — 1974 G — 1975 H — 1976 I — 1976 J — 1977 1. fl. — 1981 ölugangi pr. kr. 100.- 3.266.14 2.777,76 2.403,13 1.808,03 1.808.03 1.198,59 1.142,08 869.00 808,57 161,50 Ofanskráð gengi er m.v. 5% ávöxtun p.á. umfram verötrygg- ingu auk vinningsvonar. Happ- drættisbréfin eru gefin út á handhafa. VerðbréfamarkaÖur Fjárfestingarfélagsins Lækjargötu12 101 Reykjavik lónaðarbankahúsinu Simi 28566 Þetta er mikilvæg spurning þegar leiöum til þess aö verðtryggja fé hefur fjölgaö og hægt er aö velja mismunandi ávöxtun. Yfirlitiö hér að neðan sýnir nokkra þá ávöxtunar- möguleika sem í boði voru á árinu 1982 og stööu þeirra um síöastliðin áramót. Avöxtunarleið: Peninga- eign 1. jan 82 Peninga- eign 31.des 82 Ávöxtun í% árið 82 JdaDDdr.skuldabréf Ríkissjóðs 100.000 167.769 68% _Spariskírteini Ríkissióðs 100.000 169.069 69% J/erðtrvaað veöskuldabréf 100.000 173.372 73% Qyerðtrygg&yeðskuldabréf •100.000 173.750 74% Verðbréfamarkaður Fjárfestingarfélagsins hefur sjö ára reynslu í veröbréfaviðskiptum og fjármála- legri ráðgjöf og miölar þeirri þekkingu án endur- gjalds. Viljir þú ávaxta sparifé þitt munum viö ráöleggja þér hagkvæmustu ráöstöfun þess. Veröbréfamarkaöur Fjárfestingarfélagsins Lækjargötu12 101 Reykjavik lónaöarbankahúsinu Simi 28566

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.