Morgunblaðið - 09.01.1983, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JANUAR 1983
Þær greinar sem hér eru birtar eru
skrifaðar vegna skoðana tveggja
rithöfunda, annars vegar um andóf
Jerzy Kosinski gegn alræðishyggj-
unni og þær árásir sem hann hefur
orðið fyrir af þeim sökum, meðai
annars í Bandaríkjunum, og hins
vegar um málsvörn Gabriel Garcia
Marquez fyrir alræðishyggjuna og
þær vinsæidir sem hann nýtur af
þeim sökum meðai annars í Sví-
þjóð. Bækur eftir báða höfundana
hafa verið þýddar á íslensku, þrjár
eftir Garcia Marquez, en ein eftir
Kosinski, Fram í sviðsljósið, sem
bókaklúbbur Almenna bókafélags-
ins gaf út 1981. Sú bók var kvik-
mynduð og hefur myndin, Being
There, verið sýnd í tæpt ár í Bíó-
höllinni í Reykjavík.
William Safire höfundur greinar-
innar um Jerzy Kosinski er dálka-
höfundur hjá The New York Times
Hin greinin er úr sænska vikublað-
inu Tempus en höfundur hennar,
Mats Gellerfelt, er menningarrit-
stjóri blaðsins.
Greinarnar snúast um sama efni;
hve erfitt þeir eiga uppdráttar í
heimi lista og hugmyndafræði sem
ekki fara troðnar slóðir vinstri-
mennskunnar í menningarmálum.
Leyfa sér að nota frelsi hins opna
þjóðfélags og andæfa gegn meðvit-
aðri eða ómeðvitaðri þjónkun
drambsamra menningarvita og
sjálfskipaðra dómara við það
stjórnkerfí, sem kæfir frjálsa hugs-
un og vill að listsköpun lúti duttl-
Að rægja rithöfund
eftir William
Safire
Wieslaw Gornicki er áróð-
urssmiður kommúnista og starf-
ar um þessar mundir fyrir sov-
ésku leppstjórnina í Varsjá. Um
langt árabil hefur hann sem
starfsmaður Sameinuðu þjóð-
anna og í öðrum embættum varið
miklum tíma og fjármunum til
að sverta og vanvirða verk frjáls
manns frá Póllandi, Jerzy Kos-
inski.
^jEnginn sakar þá um
að vera kommúnista,
ekki einu sinni nyts-
ama sakleysingja. ||
Kosinski flúði frá Póllandi eft-
ir að nasistar höfðu lagt það und-
ir sig, settist að í Bandaríkjunum
og ritaði bókina The Painted
Bird — Málaði fuglinn — skáld-
sögu sem af flestum er talin lýsa
ógnarstjórn alræðisafla meist-
aralega vel, og fleiri hugmynda-
ríkar, átakanlegar bækur, þar
sem athyglin er oftar en ekki
dregin að hættulegum áhrifum
samhyggjunnar á einstaklinginn.
Áróðurssmiðurinn Gornicki
hefur eins og Javert, lögreglu-
fulltrúi, í sögu Victors Hugo sem
elti Jean Valjean, lagt Kosinski í
einelti með skömmum og ásökun-
um um að hann væri „verkfæri
Zíonista" eða útsendari CIA.
Fyrir nokkrum mánuðum birt-
ist löng árásargrein í vinstri-
sinnaða vikublaðinu The Village
Voice í New York, þar sem öllum
róginum var safnað á einn stað,
hann matreiddur fyrir lesandann
með löngum viðtölum og síðan
meira en gefið í skyn, að Kos-
inski hefði ekki aðeins logið um
eigin fortíð (eins og margir
skáldsagnahöfundar gera) held-
ur gerst sekur um anna'ð og
miklu verra — hann væri ritþjóf-
ur og höfundur sém ritstjórar
bókaútgefenda yrðu að skrifa
fyrir.
Tvö dagblöð — The Chicago
Sun-Times og The Los Angeles
Times tóku upp hanskann fyrir
hinn pólsk-bandaríska höfund.
Síðan kom John Corry hjá The
New York Times til sögunnar og
skrifaði 6000 orða bókmennta-
lega leynilögreglusögu sem ætti
að fá Pulitzer-verðlaun um „17
ára hugmyndafræðilegt árás-
arstríð á menningarmann". Þar
var með óhrekjandi hætti dregið
fram, hvaða menningarleg
grimmdarörlög geta beðið
ótrauðs andkommúnista í rithöf-
undahópi nái hin einangraða
klíka fram vilja sínum sem ræb-
ur öllu í hugmyndafræðilegum
menningarheimi New York-
borgar.
Þá komu Washington Post &
Newsweek til sögunnar. I grein,
sem fór eins og gleðileiftur meðal
allra þeirra sem enn eru eftir af
vinstrisinnum í New York, mat
blaðamaður hjá Newsweek ásak-
anirnar varðandi listræna hæfni
Kosinski og málsbætur hans og
komst hátíðlega að þessari niður-
stöðu: „Hvorki The Voice né The
N.Y. Times hafa fært fram
óyggjandi sannanir um það hver
sé höfundurinn" (að bókum Kos-
inski innsk. þýð.)
Veltið þessu fyrir ykkur: Hjá
þeim okkar sem meta lýðræðis-
lega hætti, hvílir sönnunarbyrð-
in á ákærandanum. En í veröld
Newsweek verður höfundur sem
hefur verið úthrópaður af hug-
myndafræðilegum fjandmönnum
að færa sönnur á það, að hann sé
„höfundur" eigin verka.
En Newsweek lét ekki staðar
numið við þetta heldur greip til
hefðbundinna aðgerða til að slá
þá út af laginu, sem dirfast að
taka upp hanskann fyrir þá lista-
menn sem eru í miðjunni eða til
hægri við hana og verða fyrir
gagnrýni sem gegnsýrð er af
hugmyndafræðilegri spillingu.
Ritstjórar The N.Y. Times A.M.
Rosenthal og Arthur Gelb voru
sakaðir um að nota vald blaðsins
til „umbuna vinum og refsa óvin-
um“. Þeir þekkja Kosinski per-
sónulega, og þess vegna mega
þeir ekki samkvæmt skringi-
legum kokkabókum vinstrisinna
fela blaðamanni að draga fram
hið sanna um baráttuna gegn
honum.
Hér er þó ekki allt sem sýnist:
Blaðamaðurinn sem ritstjórar
Newsweek völdu til að ráðast á
ritstjóra The N.Y. Times fyrir að
láta eigin tilfinningar hafa áhrif
á ritstjórn sína var ungur fyrr-
verandi starfsmaður The N.Y.
Times sem hafði yfirgefið blaðið
fullur fyrirlitningar, en með öllu
átölulaust af ritstjórunum —
hann hlaut að þurfa að koma
fram hefndum.
The Washington Post sem er
systurblað Newsweek hélt áfram
tilraunum til að þagga niður í
andmælendunum og enn var hið
slóttuga orð „óyggjandi" notað í
fyrirsögn The W. Post stóð:
Grein The New York Times veitir
ekki óyggjandi svör. Þar af leið-
andi liggur tilgangur verjenda
|| Þar var með óhrekj-
andi hætti dregið
fram, hvaða menning-
arleg grimmdarörlög
geta beðið ótrauðs
andkommúnista í rit-
höfundahópi. . . ||
Kosinski ekki óyggjandi fyrir eða
að þeir séu óvilhallir.
Hér er þó ekki heldur allt sem
sýnist: Einmitt þeir sem hafa
verið að úthrópa Kosinski með
kröfum um að hann sanni sak-
leysi sitt — en Joe McCarthy,
öldungardeildarþingmaður, var
brautryðjandi í þessari listgrein
— reyna að gera sjálfa sig að
fórnarlömbum McCarthy-isma.
Þeir grípa til þess ráðs að segja:
„Þið sakið okkur um að vera
kommúnista!"
Enginn sakar þá um að vera
kommúnista, ekki einu sinni
nytsama sakleysingja, það er í
senn heimskulegt og úrelt að
vera með slíkar aðdróttanir.
Enginn hefur heldur haldið því
fram að áróðurssmiður, sem
heitir Gornicki og er í Varsjá ( en
hann fær brátt það verkefni að
grafa undan Lech Walesa í fjöl-
miðlum heimsins), hafi komið að
máli við einhvern menningarvita
á á einhverju afkáralegu rithöf-
undaþingi og sagt: „Nú skaltu
taka Kosinski til bæna.“ Þessum
aðferðum hefur ekki verið beitt.
Það er enginn snillingur sem
heldur öllum þráðum í hendi sér
þegar unnið er að því að eyði-
leggja rithöfund, sem neitar að
fara í einu og öllu eftir því
vinstrirugli sem setur svip sinn á
viðhorf stórra bókmenntahópa.
Áróðurssmiðurinn sáir aðeins og
bíður svo. Þeir sem hafa verið
blekktir vinna verkið á þeim
vettvangi þar sem fulltrúar Ag-
7... Verður höfundur
sem hefur verið út-
hrópaður af hug-
myndafræðilegum
fjandmönnum að færa
sönnur á það, að hann
höfundur“ eigin
se
verka.
»
itprop vita að þeir eiga ekki að
láta til sín taka.
Þetta er ekki samsæri heldur
fylking skoðanabræðra í bók-
menntaheiminum, sem lætur
hvern þann listamann finna fyrir
því sem hafnar viðteknum for-
dómum. Eins og venjulega fylgja
fjölmiðlasmámenni fylkingunni í
atlögu hennar og ata þá auri sem
gæta skyldu sinnar með því að
leita að upptökunum og kanna
aðferðirnar við gagnrýnina.
Jerzy Kosinski er margþættur
og sérkennilegur snillingur. Af
því að ég hef aðeins lítillega
kynnst honum, finnst mér ég
hafa fullt frelsi til að hampa
honum vegna þess hve hann er
stórhuga í beinskeyttri ádeilu
sinni og vegna þeirra sem hann
hefur gert að óvinum sínum.
Hér aé«t P«t*r Scltor* I aöalhlutverki
Kvikmyndarinnar Baing Thara, sem gerð er eftir bók Jerzy
Koeinaki og sýnd er I Bíóhöllinni.
Áróðursamiðurinn sem hóf
árásirnar é Kosinski starfar
nú á vegum leppstjórnarinnar
í Póllandi. Hann hefur
þar það hlutverk að gera veg
Lech Walesa sem minnstan
í fjölmiðlum vítt og
breitt um veröldina.
Jerzy Kosinski hefur verið
lagður í einelti og þess er nú
jafnvel krafist að hann
„sanni“ að hann sé „höfundur"
bóka sinna.
Armando Valladeres ésamt eiginkonu sinni
Mörtu í París, en til hennar hélt hann, þegar honum var
sleppt úr fangelsi Castrós. I Svíþjóð finnst
ýmsum, að þeir séu búnir að fá nóg af einhliða
upplýsingum um þetta landflótta, kúbanska Ijóðskáld.