Morgunblaðið - 14.01.1983, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 14.01.1983, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1983 15 Elizabeth vill ætt- leiða ísraelskt barn London, 13. janúar. AP. ELIZABETH Taylor hefur sýnt áhuga á því að ættleiða eina litla ísraelska telpu, sem hefur verið á munaðarleysingjahæli í ísrael. Nú hefur faðir telpunnar hins vegar komið fram á sjónarsviðið og harðneit- ar að láta barnið frá sér og segist munu annast uppeldi dóttur sinnar. Frá þessu var sagt í Daily Mirror í London í dag og sam- kvæmt þeirri frásögn sá Eliza- beth barnið, sem er rúmlega árs- gamalt, þegar hún var í ísrael nú fyrir stuttu. Móðir barnsins lézt úr hvítblæði um jólaleytið og ekki var vitað hvar faðirinn var niðurkominn. Elizabeth Taylor, sem er nú komin til Bandaríkjanna, sagði í dag að hún vonaðist til þess að faðirinn skipti um skoðun og gerði sér grein fyrir því, að barn- inu væri bezt borgið hjá sér. Benti hún á hversu vel hefði tek- izt til með uppeldi Mariu Burton, sem er nú 21 árs og var korna- barn ættleidd af Elizabethu og Eddie Fisher. Kjarnorkutilraunir sjötta áratugarins I deiglunni í Bretlandi: Tólf þúsund manns fara í læknisskoðun Lundúnum, 13. janúar. AP. VARNARMÁLARÁÐUNEYTIÐ tilkynnti í dag að það muni láta fara fram mjög nákvæma læknisskoðun á þeim 12.000 hermönnum og óbreyttum borgurum sem tóku þátt í tilraunum Breta með kjarnorkusprengingar á sjötta áratugnum. Tilkynning þessi kom í kjölfar fullyrðinga um að 150 fyrrverandi hermenn sem tóku þátt í tilraun- unum, hafi annað hvort látist úr krabbameini vegna geislunar eða þjáist af öðrum sjúkdómum því tengdu. Þessar tilraunir, sem stóðu yfir í sex ár, fóru fram í Ástralíu og á Christmas Island í Kyrrahafi og voru sprengdar tuttugu kjarn- orkusprengjur. Talsmaður varnarmálaráðu- neytisins hefur staðfastlega neit- að áðurnefndum fullyrðingum sem komu fram í Observer síðast- liðinn sunnudag og einnig í sjón- varpi og sagt, að varúðarráðstaf- anir við tilraunirnar hafi verið meira en fullnægjandi: „Það eru enn engar sannanir fyrir því að fólk hafi sýkst af þessum völdum." Áhrif getnaðarvarna- sprautu könnuð í USA Wa.shington, 10. janúar. AP. NEFND ÚR matvæla- og lyfjaeftirlitinu hóf í dag vitnaleiðslur til að geta síðar kveðið á um það hvort leyfa eigi áframhaldandi notkun getnaðarvarna í formi sprautu, en áhrif hennar vara í þrjá mánuði og þykja öruggari en „pillan". Andstæðingar leyfisveitingarinnar halda því fram að þessi getn- aðarvörn auki til muna líkurnar á krabbameini. Getnaðarvörn þessi, „Depo Pro- vera“, er nú fáanleg í 84 löndum og er notuð af 1,5 milljónum kvenna, en hefur notið vaxandi andstöðu í Bandaríkjunum frá því matvæla- og lyfjaeftirlitið leyfði notkun hennar árið 1974. Rannsóknarnefndin sem að málinu starfar getur tekið sér þann tíma sem hún æskir í að ákvarða niðurstöðuna eftir að vitnaleiðslunum lýkur, en talið er að niðurstaða þessi muni koma til með að hafa mikil alþjóðleg áhrif, þar sem margar þjóðir hafa beðið með að taka afstöðu til getnaðar- varnarinnar þar til Bandaríkja- menn hafa gert upp hug sinn. Svíar setja upp rannsóknarnefnd — vegna kjarnorkuknúna gervitungls- ins sem stefnir stjórnlaust til jarðar Stokkhólmi, 13. ianúar. AP. SÆNSK STJORNVÖLD tilkynntu í dag, að þau hefðu sett almannavarna- og rannsóknarnefnd í kjarnorkumálum í viðbragðsstöðu vegna hins sovéska kjarnorkuknúna gervitungls, sem talið er að falli nú stjórnlaust til jarðar. Bandarísk yfirvöld tilkynntu í síðastliðinni viku um gervitunglið og hvöttu stjórnvöld annarra ríkja til að vera vel á verði. Gervitunglið, Cosmos 1402, sem Bandarikjamenn lýsa sem njósna- gervitungli, mun að öllum líkind- um koma inn í gufuhvolfið ein- hvern tíma milli 21. og 23. janúar og segjast vísindamenn geta gefið nánari upplýsingar um ferðir þess u.þ.b. fjórum dögum áður. Sænsk yfirvöld segja, að sovésk yfirvöld hafi tjáð þeim að gervi- tunglið verði að öllum líkindum úr sögunni á þeim tíma sem áætlað er að það komi inn í gufuhvolfið og því sé ekki um neina hættu að ræða. Begin kann að boða til nýrra kosninga Tel Aviv, 13. janúar. AP. LOKAYFIRIIEYRSLUR rannsóknarnefndarinnar, sem skipuð var í fsrael, til þess að grafast fyrir um orsakir fjöldamorðanna í flóttamannabúðunum fyrir utan Beirút, fara fram á sunnudag og telja heimildir, að lokaniðurstöðu sé að vænta eftir mánuð. í tilkynningu frá nefndinni, sem gefin var út í dag, sagði að hún hafi fengið í hendurnar skriflegan framburð átta þeirra níu hátt- Kambódía: Miðlar Belgíustjórn málum? Seoul. SuAur-Kóreu, 13. janúar. AP. LEO Tindemans, utanríkisráðherra Belgiu, sagði í dag, að ríkisstjórn hans hefði engar ráðagerðir eða tilboð fram að færa vegna ástandsins í Kambódíu, en bætti því við að hún myndi ekki neita, væri hún beðin hjálpar. Tindemans, sem kom til Seoul síð- astliðinn mánudag í fyrstu opinberu heimsókn sína til Suður-Kóreu, sagði þetta á blaðamannafundi í morgun, skömmu áður en hann lagði af stað til Thailands. Fregnir að undanförnu hafa hermt, að Belgíustjórn hafi verið beðin um að miðla málum í Kambód- íu, en ekki kom fram nein staðfest- ing á því í viðræðum við fréttamenn. settu embættismanna, sem varað- ir voru við því, að niðurstöður nefndarinnar kynnu að skaða mannorð þeirra. í tilkynningunni var ennfremur frá því skýrt, að Menachem Begin, forsætisráð- herra, hefði lýst því yfir, að skrif- legur framburður hans, sem barst nefndinni í desemberbyrjun, væri lokaorð hans í þessu máli. Samkvæmt lögum eru niður- stöður nefndarinnar ekki bind- andi, en talið er víst að þeim beri saman við almenningsálitið í öll- um meginatriðum. Heimildir herma einnig, að Begin muni efna til nýrra kosninga í landinu, kom- ist rannsóknarnefndin að því í niðurstöðum sínum, að ríkisstjórn hans eigi sök á því hvernig fór í flóttamannabúðunum. í STUTTU MÁLI: Þakka föngum fyrir liðveislu North Tarrytown, New York, 13. janúar. AP. SAUTJÁN gíslar sem lifðu af fangauppreisnina í hinu gamla Sing Sing fangelsi sögdust í dag þakka lífgjöfina Tóngum, sem béldu yfir þeim verndarhendi í þær 53 klukkustundir sem þeir voru í haldi. „Við vilum sérstaklega þakka föngum í B-álmu það sem þeir gerðu fyrir okkur meðan á uppreisninni stóð,“ sagði einn varðanna þegar hann las yfirlýsingu frá þeim í gær og bætti við: „Þrátt fyrir að við sæjum ekki andlit þeirra verður því sem þeir gerðu fyrir okkur ekki gleymt." Paul Dirac heiðraður Tallahassee, Flórida, 13. janúar. AP. SÆNSK stjórnvöld hafa gefið út frímerki til heiðurs Nóbelsverð- launahafanum Paul A.M. Dirac, sem er prófessor í eðlisfræði við ríkisháskólann í Flórída. Dirac, sem verður áttræður síðar á þessu ári, hlaut Nóbels- verðlaunin árið 1933 fyrir rannsóknir sínar og uppgötv- anir í eðlisfræði er hafa síðan þá auðveldað ýmsar tækninýj- ungar. Flórída: Hákarlatorfa veldur ugg Hallandale, Flórída, 13. janúar. AP. HÁKARLATORFA hefur valdið því að undanfarna daga hefur ekki verið hægt að synda i sjó á þessum miklu ferðamannaslóð- um, en eftirlitsþyrlur sem könn- uðu torfuna í gær telja að ekki sé um færri en fimm hundruð dýr að ræða. Yfirvöld á þessum slóðum hafa verið gagnrýnd fyrir að halda ströndunum opnum með hákarlatorfuna rétt fyrir utan, en þau segja ekki vera um neina hættu að ræða meðan að allir fara varlega og enginn fer í sjóinn. Sovétríkin: Andlát Podgornys vekur litla athygli Moskvu, 13. janúar. AP. ANDLÁTSFREGN Nikolai V. Podgornys, fyrrverandi forseta Sovétríkj- anna, var formlega birt í málgagni stjórnarinnar, Izvestia, i dag og hljóðaði upp á minna en fimmtiu orð. Hún var undirrituð af forsætisnefnd Æðsta ráðsins. í tilkynningunni kemur fram, að Podgorny hafi látist á þriðju- dag eftir langvarandi veikindi og var hún birt á látlausum stað í blaðinu án nokkurra eftirmæla eða umyrða. Hins vegar var far- ið mörgum orðum um Kiselev, aukafulltrúa í stjórnmálaráðinu, sem lést sama dag. Podgorny fæddist 18. febrúar árið 1903 í þorpinu Karlovka í Úkraínu. Árið 1917 hóf hann störf hjá vélaverslun nokkurri og tók að stunda nám í kvöld- skóla, en varð á sama tíma virk- ur innan kommúnistahreyf- ingarinnar. Það fór heldur lítið fyrir hon- um framan af, en hann starfaði í heimahéraði sínu í Úkraínu og frami hans innan flokksins var skjótur. Hann varð formaður flokksins í.Úkraínu árið 1957 og fór þá fyrst að bera á honum á æðri stöðum í landinu. Podgorny var kjörinn í mið- stjórn flokksins árið 1956 og varð fullgildur meðlimur í stjórnmálaráðinu árið 1960. Hann varð síðan forseti Sovét- ríkjanna árið 1965 og var þá einn þriggja æðstu manna í landinu ásamt þeim Leonid I. Brezhnev, þáverandi aðalritara Kommún- istaflokksins, og Alexei N. Kos- ygyn, forsætisráðherra. Hann tók við forsetaembættinu úr höndum Mikoyans, sem sjálfur tók þá ákvörðun að draga sig í hlé áður en dauði, sjúkdómar eða hreinsanir kæmu honum frá völdum. Vestrænir fréttaskýrendur höfðu í upphafi mikla trú á því að hann yrði leiðandi afl í sov- éskum stjórnmálum, en svo varð Podgorny ekki. Honum var vikið frá völd- um árið 1977 á fremur kulda- legan hátt, svo að Brezhnev gæti tekið við. Podgorny hélt fjölskyldu sinni ætíð fyrir utan opinberar skyld- ur sínar og ekkert kom fram um hana í hinni opinberu tilkynn- ingu sem birt var í dag. Hann mun hins vegar láta eftir sig eig- inkonu og þrjú börn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.