Morgunblaðið - 14.01.1983, Side 18

Morgunblaðið - 14.01.1983, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1983 Ólafsvík: Snjómokstur síðustu daga gerður að engu Olafsvík, 13. janúar. í MORGUN skall hér á hvassviðri með míkilli snjókomu sem stóð i 5—6 klukkustundir og nægði það alveg til að gera að engu þann snjómokstur sem búið var að vinna. Er nú kolófært um allt plássið og nágrenni. Margar gðtur hér hafa ekki verið opnar frá því um áramót, bæði vegna þess að ekki er hægt að losna við snjóinn nema keyra hann í burtu og eins vegna þess að svo stutt hefur verið á milli hríðanna. Ólafsvíkurenni er alveg ófært og ekki stóð til að opna það í dag vegna snjóflóðahættu, en verið gat að reynt yrði að stinga þar í gegn í kvöld til að komast á flugvöllinn vegna sjúkraflutnings. Leiðin inn í Grundarfjörð er trúlega erfið í mokstri, því svo til alla leið voru komnar mjóar, djúpar traðir, sem nú hafa kolfyllst í þessari síðustu gusu. Helgi Tvívegis ekið á hvít- an SAAB TVÍVEGIS var ekið á kyrrstæða bif- reið þar sem hún stóð við Garðahéð- inn að Stórási 4—6 í Garöabæ, án þess að eiganda væri gert viðvart. Að morgni miðvikudagsins var ekið á hægra afturbretti bifreiðar- innar, sem er hvítur SAAB, módel 1981, og ber einkennisstafina G- 17799. I gærmorgun var svo aftur ekið á bifreiðina á Stórási. Nú á hægra afturbretti en stuðari skemmdist einnig. Þeir sem kunna að hafa orðið vitni að ákeyrslum þessum eru vinsamlega beðnir að láta lögregl- una í Hafnarfirði vita. Ævar Kvaran með fyrir- lestra í Bíóbæ ÆVAR Kvaran flytur fyrirlestra á undan sýningum á myndinni „Að baki dauðans dyrum“, sem sýnd er í Bíóbæ í Kópavogi þessa dagana, en myndin er byggð á sannsögulegum heimildum um fólk sem dáið hefur líkamsdauða og reynslu þeirra af því hvað tekur við handan við mörkin. Erindi Ævars byggjast á efni kvikmyndarinnar og þeim hugleið- ingum sem hún vekur. Á laugardög- um og sunnudögum hefjast erindi Ævars og sýningar myndarinnar kl. 18.30 og 21, en á virkum dögum aðeins kl. 21. Úr leikritinu „Hiauptu af þér horn- ín . Leikfélag Kópa- vogs til Eyja NK. HELGI hyggur Leikfélag Kópa- vogs á leikfór til Vestmannaeyja, með gamanleikinn „Hlauptu af þér hornin", eftir Neil Simon. Verða sýningar í Vestmannaeyjum nk. fóstudagskvöld og laugardagskvöld. Var gamanleikur þessi sýndur 10 sínnum í Kópavogsleikhúsinu sl. haust. Með hlutverk í leikritinu , fara: Skúli Rúnar Hilmarsson, Eiríkur Hjálmarsson, Helga Harðardóttir, Ægir Geirdal, Kristín Atladóttir, Júlía Jóhann- esdóttir og Svanhildur Th. Valdi- marsdóttir. Leikstjóri er Guðrún Þ. Stephensen, lýsingu annaðist Lárus Björnsson en ögmundur Jó- hannesson sá um leikmynd. Þessi mynd, sem er á sýningunni, hlaut fyrstu verðlaun i flokknum „fólk í fréttum". Hún heitir „Hið lifandi Rushmore fjall" og tekur Ijósmyndarinn við nafngiftina mið af hinu fræga fjalli í Suður-Dakóta, en í það eru höggvin andlit nokkurra frægra Bandaríkjaforseta. Ljósmyndarinn er Harry N. Naltchayan hjá Washington Post. Listasafn alþýðu: Sýning á 160 frétta- ljósmyndum M 1982 Nk. laugardag kl. 16.00 verður opnuð sýning á 160 fréttaljósmynd- un frá World Press Photo ’82 í Hollandi, í Listasafni alþýðu að Grensásvegi 16, segir í fréttatil- kynningu frá Arnarflugi. Það er Amarflug sem hefur feng- ið sýninguna hingað og stendur hún í 3 vikur, lýkur sunnudaginn 6. febrúar. Sýningin verður opin frá kl. 14.00 til 19.00 á virkum dögum og frá kl. 14.00 til 22.00 á laugar- dögum og sunnudögum. Lokað á mánudögum. Ljósmyndarar hvaðanæva úr heiminum senda árlega sínar bestu myndir í samkeppnina. Úr þúsundum mynda sem berast, og skipt er í tíu efnisflokka, er valin mynd ársins. Verðlaunin eru 5 þúsund gyllini, eða tæplega 35 þúsund íslenskar. Úr hópi bestu myndanna í hverjum efnisflokki er síðan valin fréttamynd ársins, og verðlaunin þau sömu og fyrir mynd ársins. Þá hafa á síðustu árum verið veitt mjög myndarleg aukaverð- laun, svonefnd Oskar Bjarnack- verðlaun er nema 10 þúsund gyll- inum. Þessi verðlaun eru veitt fyrir myndafrásagnir er lýsa manninum og umhverfi hans. Auk verðlaunanna fá verðlauna- hafar fríar ferðir með KLM-flug- félaginu til og frá Hollandi. Sig- urvegarar í hverjum flokki fá styttu er nefnist „Golden Eye“, eða Gullna augað. Dómnefnd hverju sinni er skip- uð valinkunnu fólki úr bókaút- gáfu- og ljósmyndaheiminum, og gerir hún að vonum strangar kröfur til gæði myndanna. Þann- ig er ekki fyrirfram víst, að dóm- nefndin veiti verðlaun í öllum flokkum — í flokknum „Náttúra" voru að þessu sinni engin verð- laun veitt, aðeins ein viðurkenn- ing. í flokknum „Gleðilegar frétt- ir“ (myndröð) voru heldur engin verðlaun veitt, og kann það að vera tímanna tákn. Þá er það hlutverk dómnefndar að velja myndir í árbók samtak- anna, sem í ár er 112 síður, og ganga frá sýningu á myndunum. Sett er annarsvegar upp sýning á 300 myndum, og hinsvegar sýning á 150—160 myndum. Það er stðar- nefnda sýningin sem Arnarflug hefur fengið hingað. World Press Photo-stofnunin var sett á laggirnar árið 1956 af þremur hollenskum fréttaljós- myndurum, sem það ár breyttu árlegri sýningu hollenskra frétta- ljósmyndara í alþjóðlega sam- keppni. Stofnunin efnir m.a. til ráðstefnu um ljósmyndun, annast útgáfu ljósmyndabóka og lætur almenn málefni og réttindakröf- ur fréttaljósmyndara til sín taka. í síðustu samkeppni bárust 5319 myndir frá 915 ljósmyndur- um í 51 landi, þar af voru um 25% myndanna í lit. Þess má geta að Ragnar Axelsson, ljósmyndari hjá Morgunblaðinu, var eini ís- lenski þátttakandinn í síðustu samkeppni, en náði ekki að skipa sess meðal hinna fremstu að þessu sinni. Nú er að renna út frestur fyrir þátttöku í WPP fyrir 1983, þ.e. mestanpart myndir teknar 1982, og verður sú sýning opnuð í Amsterdam í apríl nk. Deilt um nýtt talstöðvarkerfi: Hið nýja kerfi dýrt og ekki nægilega öruggt — segir Jóhannes Ellertsson sérleyfishafi „Það eru um 10 ár síðan við feng- um bréf frá Landssíma íslands þess efnis að við yröum að leggja talstöövar okkar niður og taka upp annað kerfi, svokallað SSB-kerfi. Þessu var skotið á frest þangað til fyrir skömmu að við vöknuðum upp við það, að SSB-kerfið skuli nú tekið upp og að það er svo óhemju dýrt að engu tali tekur, talstöðin kostar 100—140 þúsund INNLENT krónur, auk þess sem við verðum að henda okkar gömlu stöðvum,” sagði Jóhannes Ellertsson, eig- andi Vestfjarðaleiðar, í samtali við Mbl. vegna ákvörðunar Pósts & Síma að taka beri upp nýjar tal- stöðar, svokallaðar SSB-stöðvar. „Við sjáum það í hendi okkar, að erfitt er að láta svona fjárfestingu bera arð. Sérleyfishafar vilja miklu heldur svokallað VHS-kerfi og það mál er nú loks komið á rekspöl. Það er ódýrara kerfi og það, sem ekki er minna um vert, öruggara í vondum veðrum. Vega- gerð ríkisins hefur reynt þetta kerfi svo og Selfosslögreglan og mikil ánægja ríkir með VHS-kerf- ið. Á þessari reynslu eigum við að byggja. Eins og þetta horfir við Vest- fjarðaleið, þá myndi það kosta 2—2,5 milljónir króna að setja SSB-kerfið í bíla Vestfjarðaleiðar. Ég er ekki tilbúinn til þess að snara út einu bílverði í talstöðvar. Ég tel að mínir kúnnar yrðu ánægðari að fá nýjan bíl. Við höfum dregið að kaupa talstöðvar vegna þessarar fyrir- huguðu breytingar. Sérleyfishafar fóru fram á það við ríkisvaldið, að tollar og aðflutningsgjöld væru gefin eftir af jafnmörgum tal- stöðvum og við yrðum að leggja til hliðar. Þetta er sanngjörn krafa, en henni hefur verið hafnað það ég best veit, þó ég vilji ekki fullyrða það. I þessu sambandi má benda á, að þegar hægri umferðin var tekin upp á sínum tíma, þurfti að taka hurðir vinstra megin af fólks- flutningabílum og færa yfir á hægri hliðina. Þessi kostnaður var þá greiddur og þetta tel ég mjög sambærilegt," sagði Jóhannes Ell- ertsson. KiKo Korriro, Þórður Valdimarsson, við eitt verka sinna. Morgunbla4íA/ólKm. KiKo Korriro sfnir LAUGARDAGINN 16. janúar kl. 14.00 verður opnuð í Listmunahúsinu, Lækj- argötu 2, sýning á verkum KiKo Korr- iro (Þórðar Valdimarssonar). Sýningin, sem er sölusýning, stendur til 30. janú- ar og er opin virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga og sunnu- daga frá kl. 14.00—18.00. Lokað mánu- daga. í fórmála að sýningarskrá segir Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur meðal annars um listamanninn: „En í þrjá áratugi, í einrúmi og undir nafninu KiKo Korriro, hefur Þórður átt skapandi viðræður við þær raddir, sagnaranda sem dem- óna, sem strítt hafa innra með hon- um og við hin skrúfum oftast fyrir, og fest útkomuna á ótal arkir og í hinum fegurstu litum. Og það af þörfinni einni og án minnstu vonar um fjárhagslegan ávinning eða ver- aldlega upphefð. Ég held meira að segja að er frændi Þórðar, Gunnar Orn listmálari, rakst á þessar mynd- ir af tilviljun, hafi listamanninum verið skapi næst að bera þær á eld.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.