Morgunblaðið - 14.01.1983, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1983
+
Móöir okkar,
UNA EINARSDÓTTIR,
Valnsstíg 10,
lóst 12. þessa mánaöar í Hjúkrunardeild Heilsuverndarstöðvarinn-
ar.
Ásta Magnúsdóttir,
Einar Magnússon,
Inga Maríe Magnúsdóttir.
■ Móöir okkar. h
JÓRUNN SIGURDARDÓTTIR, Ysta-Skála, Vostur-Eyjatjöllum,
lést í Sólvangi 11. janúar. Börnin.
i Systir okkar og móöursystir. h
ÞÓRHANNA B. ÁRNADÓTTIR,
lést 11. janúar. Guöjón Árnason, Anaís N. Árnadóttir, Árný Ólafsdóttir Crano,
William A. Crane.
Bróöir minn, h
STEFÁN EGGERT BJÖRNSON,
lést í Landakotsspítala 12. janúar.
Fyrir hönd vandamanna. Glúmur Björnson.
/
t
Eiginmaöur minn,
ÞORVALDUR SKÚLI SÍVERTSEN,
Laufásvegi 10,
andaöist í Borgarsjúkrahúsinu 12. janúar 1983.
Ingibjörg Guönadóttir.
I
+
Maðurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
GUDMUNDUR B. VIGFÚSSON,
fyrrv. borgarfulltrúi,
Heióargeröi 6,
lést aö kvöldi 12. janúar.
Marta Kristmundsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabarn.
+
MAGNÚS JÓNASSON,
Smáratúni 13, Selfossi,
verður jarösunginn frá Selfosskirkju, laugardaginn 15. janúar kl.
14.00.
Sesselja Halldórsdóttir,
Jónas Magnússon, Aöalbjörg K. Haraldsdóttir,
Halldór Magnússon, Erla G. Kristjánsdóttir,
Ragr.ar R. Magnússon, Guöleif Sveinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Utför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur og ömmu,
INGIBJARGAR SIGURBJÖRNSDÓTTUR,
Tjarnargötu 20, Keflavlk,
er lóst í Landakotsspítala miövikudaginn 5. janúar sl., veröur gerö
frá Keflavíkurkirkju, laugardaginn 15. janúar kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Styrktarfólag
aldraöra Suöurnesjum.
Karl Kr. Jónsson, María Karlsdóttir,
Stefán Geir Karlsson, Kristinn Karlsson,
Magnea Reynaldsdóttir, Sólveig Guómundsdóttir
og barnabörn.
Minning:
Friðrik Guðna-
son fulltrúi
Fæddur 11. september 1927
Dáinn 5. janúar 1983
Friðrik Guðnason lézt 5. janúar
sl. og vil ég með nokkrum orðum
minnast þessa góða drengs og fé-
laga míns úr Glímufélaginu Ár-
manni um margra ára skeið.
Hann var fæddur í Reykjavík
11. nóvember 1927 og var hann því
55 ára er hann lézt. Foreldrar
Friðriks voru Margrét Guð-
brandsdóttir ættuð úr Skagafirði
og Guðni Stígsson, ættaður úr
Hafnarfirði. Þau bjuggu lengst af
að Veghúsastíg 1 hér í borg og þar
bjó Friðrik, er kynni okkar hófust
árið 1943, en það ár hóf hann æf-
ingar undir leiðsögn minni í
hnefaleikum. Eins og svo margir
piltar heillaðist Friðrik af hinni
göfugu sjálfsvarnaríþrótt og
þeirri fullkomnu líkamsþjálfun er
hún veitir ungum fullhugum eins
og Friðrik var. Friðrik var einn
þeirra er sérstaka eftirtekt vakti,
sökum dugnaðar við æfingar.
Hann var einstaklega fljótur að
ná valdi yfir hreyfingum sínum.
Þær voru bæði snöggar og mjúkar
og framkoman öll drengileg og
traust. Hann varð þrjú ár ís-
landsmeistari í sínum þyngdar-
flokkum þ.e. 1944-1945 og 1947
auk þess að vera Ármanns-
meistari í sínum flokkum nokkr-
um sinnum.
Friðrik mun ásamt vini sínum,
Marteini Björgvinssyni, hafa
keppt fleiri kappleiki í hnefaleik-
um en nokkrir aðrir íslendingar
m.a. vegna þess hve eftirsóttir
þeir voru vegna keppna á vegum
Bandaríkjahers um nokkurra ára
skeið. Var hann einn örfárra ís-
lendinga er skrifað hefur verið um
vegna kunnáttu og getu í hinu
þekkta ameríska hnefaleika- og
glímublaði „The Ring". Friðrik var
sérstaklega hæglátur maður og
var þetta því á fárra vitorði, enda
var hann drengur góður og mis-
notaði aldrei hæfileika sína. Hann
var alla tíð félagi sínu til sóma og
er nú sárt saknað af sínum gömlu
félögum.
Friðrik hóf ungur nám í pípu-
lögnum hjá mági sínum, Sigurjóni
Fjeldsted pípulagningameistara,
og útskrifaðist með sveinspróf í
iðninni 30. nóvember 1949. Meist-
arabréf hlaut hann 9. desember
1952. Það var mjög kært með þeim
Sigurjóni og unnu þeir saman að
iðn sinni allt til ársins 1965, er
Friðrik hóf störf sem fulltrúi á
Löggildingarstofunni og starfaði
þar til dauðadags.
Friðrik kvæntist eftirlifandi
konu sinni, Helgu Þorsteinsdóttur,
árið 1954. Var hún honum alla tíð
góð kona og eignuðust þau tvö
börn, Auði, sem er gift Jóni Gísla-
syni, bónda að Réttarholti í
Skagafirði og eiga þau þrjú börn,
og Kjartan, sem er enn í foreldra-
húsum. Friðrik og Helga keyptu
fyrir nokkrum árum timburhúsið
Lindargötu 44b, sem þau endur-
nýjuðu og innréttuðu mjög
smekklega.
Fyrir ári bar skugga á líf þeirra,
en þá uppgötvaðist að Friðrik var
haldinn sjúkdómi þeim, er leiddi
hann til dauða. Þrátt fyrir þá raun
að uppgötva að kallið gæti komið
fyrirvaralaust, gætti ekki svarts-
ýni í viðhorfi hans til lífsins. Frið-
rik var fram á síðustu stund
bjartsýnn á lífið og framtíðina og
var ákveðinn í því, að nú eftir síð-
ustu áramót færi hann í aðgerð,
sem skæri úr um batahorfurnar.
Því miður fór það á annan veg.
Kallið kom og gerði ekki boð á
undan sér. Við vinir hans huggum
okkur við það, að Friðrik átti
skemmtilega æsku og ávallt
ánægjulegt heimilislíf, fyrst hjá
góðum foreldrum og systkinum, og
síðar hjá konu sinni og börnum.
Jesús sagði við lærisveina sína:
„Ég fer heim til að búa yður stað.
I húsi föður míns eru mörg hí-
býli.“
Af kynnum mínum við Friðrik
+
Eiginmaöur minn og faöir okkar,
TÓMAS SIGURÐSSON
fró Reynifelli,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 14. janúar kl.
13.30.
Hannesína Einardóttir og börn.
+
Útför fööur okkar,
VALDIMARS JÓNSSONAR,
veggfóörarameistara,
fer fram frá Lágafellskirkju, Mosfellssveit, laugardaginn 15. janúar
kl. 14.00.
Börn hins látna.
+
Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför,
SVERRIS SIGURÐAR ÁGÚSTSSONAR,
flugumferóarstjóra.
Guö blessi ykkur öll.
Ágústína Guörún Ágústsdóttir
og vandamenn.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
jaröarför
GÍSLA GUÐNASONAR,
fyrrverandi Póst- og símastjóra,
Breiðdalsvík.
Guö blessi ykkur öll.
Ingibjörg Guömundsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Guðnason trúi ég, að þessi orð
Frelsarans eigi einnig við hann og
að hann eigi sér góða heimkomu
hjá föður okkar á himnum.
Ég votta aðstandendum hans
öllum okkar dýpstu samúð og bið
góðan Guð að gefa þeim styrk í
sorg þeirra.
Guðmundur Arason
í dag verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Reykjavík Friðrik
Guðnason fulltrúi. Hann lést að
kvöldi 5. janúar 1983.
Friðrik var fæddur í Reykjavík,
11. september 1927, sonur hjón-
anna Margrétar Guðbrandsdóttur
og Guðna Stígssonar að Veghúsa-
stíg 1, Reykjavík.
17. apríl 1954 kvæntist hann
mágkonu minni, Helgu Þorsteins-
dóttur úr Reykjavík, dóttur hjón-
anna Sæunnar J. Jóhannesdóttur
og Þorsteins Á.G. Ásbjörnssonar
prentara.
Þau hjónin eignuðust tvö börn.
Þau eru Kjartan, fæddur 7. janúar
1954, hann er ókvæntur og Auður,
fædd 4. september 1955, gift Jóni
Gíslasyni bónda, Réttarholti,
Skagafirði og eiga þau þrjú börn;
Braga Þór, Lindu Björk og Róbert
örn. Voru þau sólargeislar afa
síns og oft dvöldu þau í Reykjavík
hjá afa og ömmu og var þá mjög
gaman hjá þeim. Einnig dvöldu afi
og amma oft í Réttarholti hjá
barnabörnum sínum, og veit ég að
það voru ógleymanlegar stundir
hjá þeim öllum.
Fiddi, eins og hann var alltaf
kallaður, lærði ungur pípulagnir
og starfaði við þær um langt skeið,
eða þar til hann hóf störf á Lög-
gildingarstofu ríkisins 1965, og
starfaði hann þar til síðustu
stundar. í þessu starfi var hann
mjög oft sendur út á land, stund-
um í stuttar ferðir en oft voru
þetta langar ferðir.
Ég kynntist Fidda 1969, er ég
giftist mági hans, og er það okkur
hjónunum og dætrum okkar mikil
ánægja að hafa fengið að kynnast
honum, þó að okkur finnist þetta
ekki langur tími sem við höfðum
hann, en við þökkum fyrir þennan
tíma. Alltaf var hann tilbúinn að
rétta hjálparhönd, enda var hann
mjög vel verki farinn. Ekki sá
hann heldur eftir tímanum sem
hann gaf tengdafólki sínu, eða al-
draðri tengdamóður, sem á honum
svo margt að þakka, en hann var
henni eins og sonur.
Við kveðjum góðan dreng og
hiðjum honum guðs blessunar.
Elsku Helga og fjölskylda, við
biðjum guð um styrk í ykkar
miklu sorg.
Guðný, Addi og dætur
Þegar góður samferðamaður á
lífsleiðinni kveður þennan heim,
setur mann hljóðan, en hugurinn
fyllist þakklæti fyrir að hafa notið
samfylgdar hans í gegnum mörg
ár.
I dag er kvaddur hinstu kveðju
Friðrik Guðnason. Hann fæddist
11. september 1927 og var því að-
eins 55 ára er hann andaðist 5.
janúar síðastliðinn. Foreldrar
hans voru hjónin Margrét Guð-
brandsdóttir og Guðni Stígsson,
sem bæði eru látin. Friðrik átti
ávallt heima í Reykjavík.
Hann nam pípulagnir við Iðn-
skólann í Reykjavík og starfaði
við þá iðngrein í áraraðir með