Morgunblaðið - 14.01.1983, Síða 27

Morgunblaðið - 14.01.1983, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1983 27 Minning: Arthur Guðmundsson mági sínum, Sigurjóni Fjeldsted, allt til ársins 1965, að hann réðst til Löggildingarstofunnar, þar sem hann starfaði til dauðadags, lengst af sem eftirlitsmaður og verkstjóri, en síðustu 5 árin sem fulltrúi. Friðrik var mjög traustur starfsmaður, ráðagóður við lausn ýmissa daglegra verkefna. Hann var nákunnugur allri starfsemi Löggildingarstofunnar, sem nær yfir allt landið, og átti drjúgan þátt í að skipuleggja hinar ýmsu ferðir, sem senda þurfti í, út á landsbyggðina. Oft kom í ljós að hann þekkti ekki bara landið vel, heldur var hann einnig gjörkunn- ugur öllum aðstæðum á hverjum stað, sem fara þurfti til, enda hafði hann þrætt vegi og vegieys- ur landsins í erfiðum eftirlitsferð- um um margra ára skeið. Hann var mjög kunnugur ýmsum mönn- um landsbyggðarinnar, sem leita til okkar, og greiðvikinn svo af bar. Friðrik var ljúfmenni mikið og ráðhollur hinum yngri starfs- mönnum gegnum árin. Hann var lagtækur með afbrigðum, teiknaði og fylgdist með smíði margra tækja, sem notuð eru hér, því hann var hugmyndaríkur og ná- kvæmur í verki. Friðrik var snyrtimenni mikið í allri um- gengni og svo viljugur og vinnus- amur að eðlisfari, að segja má að hann gæti ekki verið verkefnalaus. Það er hverjum stjórnanda fyrir- tækis mikils virði að hafa slíkan starfsmann og er mér mikil eftir- sjá að Friðrik, ekki bara sem ötul- um starfsmanni heldur og vini, því hér höfum við starfað saman í þau 17 ár, sem honum auðnaðist að vinna hér. Hann var alla tíð boð- inn og búinn til starfa, að hverju sem var og hvenær sem var. Hann gegndi ýmsum trúnað- arstörfum fyrir starfsfólkið hér. Hann var mjög vel liðinn maður meðal starfsfólksins alls og er mikill söknuður hér ríkjandi. Ég og mín fjölskylda höfum átt því láni að fagna að hafa góða kynn- ingu af honum og greiðasemi hans. I einkalífi var Friðrik ham- ingjusamur. Hann kvæntist árið 1954 eftirlifandi eiginkonu sinni, Helgu Þorsteinsdóttur, sem staðið hefur við hlið hans sem styrk stoð, því oft reynir mikið á þær konur, sem þurfa að axla alla ábyrgð, þegar maki er fjarverandi vikum saman úti á landi vegna starfs síns. Þau hjón eignuðust tvö börn, Kjartan, starfsmann hjá O.J. & Kaaber og Auði, húsfreyju í Rétt- arholti í Skagafirði, gift Jóni Gíslasyni, og eiga þau þrjú börn. Fráfall Friðriks er mikill harmur fjölskyldu hans og vinum, en góð minning er hjálp í raunum. Frá starfsfólki Löggildingar- stofunnar fylgja honum hlýjar saknaðarkveðjur á þeim nýju veg- um sem hann nú kannar. Ég sakna vinar í stað og dvel við minningar frá samvinnustundum okkar. Hjartanlegar samúðar- kveðjur sendi ég og fjölskylda mín Helgu og fjölskyldu. Sigurður Axelsson Fæddur 8. mars 1908 Dáinn 6. desember 1982 Þær fregnir bárust mér fyrstar er ég kom heim til landsins um miðjan desember, að Arthur Guð- mundsson væri látinn, eftir skamma sjúkrahúsvist, en nokkuð langa glímu við þann sjúkdóm, sem er einn skæðastur vágestur á okkar dögum, hjartabilun. Þótt þessi illvígi sjúkdómur væri þegar búinn að hremma helstu krafta Arthurs þegar ég kvaddi hann í haust, og vita mátti að hið óumflýjanlega gæti gerst án frekari fyrirvara, þá hafði ekki annað hvarflað að mér, svo skömmu fyrir jól, en að leiðin lægi til Arthurs og Rögnu, í jólahald þeirra, einhverja daga hátíðarinn- ar, eins og svo oft áður. Ein af mínum fyrstu bernsku- minningum tengist Arthuri heitn- um á þann hátt sem mér finnst vel lýsa honum. Sem þriggja eða fjög- urra ára snáði bauðst mér eitt sinn að velja, hvort ég vildi fara með foreldrum mínum dagsferð frá Húsavík inn til Akureyrar, eða fá vasaljós. Þetta var erfitt val, en Akureyrarferðin varð fyrir valinu. Þegar svo Arthur ók okkur um kvöldið að rútunni og kvaddi okkur þar, þá laumaði hann litlum pakka í vasa minn, og sagði mér að opna hann ekki fyrr en rútan væri lögð af stað. Og það er rétt hægt að ímynda sér hamingjuna, svona í ferðalok, þegar veislu dagsins var lokið og eldra bróðurs- ins beið gljáandi nýtt vasaljós fyrir að bíða heima, þegar pakk- inn var opnaður og í ljós kom nákvæmlega sams konar vasaljós! Þannig kunni Arthur alla tíð að gleðja, og kannski helst börn. Og á lífsleiðinni lagði hann alla tíð gott til og var hinn hjálpandi. Arthur Guðmundsson var fædd- ur að Spítalavegi 1 á Akureyri, hinn 8. mars 1908, sonur hjónanna Helgu Guðrúnar Guðmundsdóttur og Guðmundar Vigfússonar, skósmiðs. Arthur var yngstur fimm systkina. Elst voru Dagný, sem var húsfrú á Akureyri og Garðar, fyrsti loftskeytamaður á farskipum, sem bæði eru látin, en eftir lifa systur hans, Lára, búsett í Reykjavík, og Fanney, húsfrú á Akureyri. Á heimilinu ólust einnig upp börn Dagnýjar, Haraldur og Ragnheiður. En húsið við Spítalastíg 1 var ekki aðeins myndarlegt heimili, þar var einnig til húsa skósmíða- stofa Vigfúsar, sem vann það góða verk að taka til vinnu hjá sér málleysingja og kenna þeim iðn- ina. Arthur var tengdur föður sín- um sterkum böndum. Hann hóf nám við Gagnfræðaskóla Akur- eyrar, sem síðar varð Menntaskól- inn á Akureyri, en þegar hann var í þriðja bekk, árið 1924, varð fjöl- skyldan fyrir því áfalli að heimil- isfaðirinn lést. Arthur hætti þá umsvifalaust í skóla til að gerast fyrirvinna fjölskyldunnar. Með sjálfsnámi hélt hann þó áfram að mennta sig, einkum í tungumálum og verslunarfræðum. Fyrstu árin eftir lát föður síns vann hann á verkstæðinu. En tímarnir voru að breytast, verslunin í landinu var að verða fjölbreyttari, og innflutt- ir skór voru að taka við af hinum smíðuðu. Skósmíðin var á undan- haldi en það biðu vandasöm og heillandi störf í verlsun lands- manna. Árið 1929 réðist Arthur til Kaupfélags Eyfirðinga, til versl- unarstarfa, og 1. janúar 1930 var hann gerður að deildarstjóra vefn- aðarvörudeildar. En nú var heims- kreppan mikla skollin á og erfiðir tímar að fara í hönd, þar sem reyndi á verslunar- og viðskipta- hæfileika hins unga deildarstjóra. Atvinnuleysi fylgdi að sjálfsögðu í kjölfar kreppunnar og peninga- leysi á mörgum heimilum. Sem eitt dæmi um hugvit Arthurs var að þá lét hann búa til snið að náttfötum og skyrtum, sem hann sendi út í bæ til kvenna, sem saumuðu eftir þeim og síðan voru fötin seld í vefnaðarvörudeildinni. Þótt þessi framleiðsla væri ekki mikil að vöxtum, þá reyndist hún dýrmæt hjálp ýmsum fjölskyld- um, sem úr litlu höfðu að spila, og var ef til vill vegvísir í atvinnu- málum á Akureyri. Árið 1939 tók Arthur við starfi innkaupastjóra KEA og gegndi hann því starfi til 31. júlí 1978, er hann lét af störfum vegna aldurs, eftir 49 ára starfsferil hjá KEA. Áður en stríðið skall á hafði Arthur farið í innkaupaferðir til Evrópu, en í stríðslok, árið 1945 biðu hans margar mikilvægar ferðir, langar, tímafrekar og erfið- ar. Nú þurfti að endurnýja gömul sambönd og koma upp nýjum samböndum. Þetta var ekki síst í Þýskalandi, þar sem uppbygging var hafin af miklum krafti. Vegna þess trausts sem Arthur naut frá fyrri viðskiptum, urðu margir til að leita til hans um viðskipti við ísland, og reyndust ferðir hans mikil stoð samvinnuversluninni í landinu. Þótt íslendingar byggju að sínu leyti norðan við stríð, þá blönduð- ust þeir á sinn hátt inn í gang stríðsins, og til Akureyrar kom norsk herdeild, sem kunnugt er. Ekki gekk deildinni í fyrstu auð- veldlega að útvega allt það sem þurfti, og kom þar hvort tveggja til, að vöruframboð var takmark- að, og svo hitt, að verðlag vildi hækka, þegar herdeildin átti hlut að máli. Vegna góðrar reynslu af viðskiptum við Arthur leituðu yf- irmenn herdeildarinnar fljótt til hans um útvegun á ýmsu öðru en deild hans seldi, og kunnugleiki hans og hjálpsemi varð herdeild- inni ómetanleg stoð, og hinn 5. september 1947 varð Arthur sæmdur Frelsisorðu Hákonar 7. Noregskonungs. Svo mjög var lið- veisla hans metin. Myndarbragurinn á heimilinu að Spítalastíg 1 var Arthuri veg- arnesti, bæði á starfsvettvangi sínum sem og í einkalífi. Þann 29. september 1942 kvæntist Arthur Ragnheiði Bjarnadóttur, dóttur Þórdísar Ásgeirsdóttur og Bjarna Benediktssonar kaupmanns og póstafgreiðslumanns á Húsavík. Það var mikil hátíð þennan dag í Bjarnahúsi á Húsavík, 65 ára af- mæli Bjarna, og tvær dætur þeirra Þórdísar giftar burt, Bryndís, móðir mín og Ragnheið- ur. Fyrstu fimm árin bjuggu þau Arthur og Ragna í hluta af því húsnæði, sem Hótel KEA hefur nú til afnota, en síðan reistu þau sér hús að Austurbyggð 10 á Akur- eyri. Þar hefur um 35 ára skeið staðið þeirra glæsilega myndar- heimili, hlýlegt og opið öllum. Þegar Bjarnahúss naut ekki leng- ur við á Húsavík tók heimili Arthurs og Rögnu við sem áfanga- staður allrar minnar móðurættar og þess mikla fjölda fólks sem þeirri ætt tengjast. Mér er sér- staklega ljúft að minnast þess, hversu Arthur varð öllum börnum sem þangað komu einstakur vinur, hlýr og rausnarlegur og með sér- stakan skilning á óskum yngstu gestanna. Þar var alla tíð gest- kvæmt, þangað komu ættingjar og venslafólk beggja hjónanna, vinir og kunningjar, og þau verða held- ur aldrei talin þau skiptin þegar viðskiptamönnum Kaupfélags Éy- firðinga, sem leggja þurftu leið sína til Akureyrar, var boðið inn á heimili þeirra að njóta þeirra miklu gestrisni. Börn þeirra hjóna eru þrjú og barnabörnin orðin átta. Elstur er Guðmundur Garðar, fæddur 1947, bankafulltrúi á Blönduósi, kvænt- ur Katrínu Ástvaldsdóttur. Þeirra börn eru þrjú: Katrín Ragnheiður, Ásta Valdís og Arthur Garðar. Næstur er Bjarni Benedikt, fædd- ur 1949, forstöðumaður Krist- neshælis. Hann er kvæntur Jónínu Jósafatsdóttur og þeirra börn eru einnig þrjú: Ragnheiður Dagný, Ingibjörg Marta og Ásgeir Pétur. Yngst er svo Þórdís Guðrún, meinatæknir, búsett á Akranesi. Hún er gift Hannesi Þorsteins- syni, líffræðingi, og þeirra synir eru tveir: Þorsteinn og Bjarni Þór. Fyrir um það bil ári, eftir að Arthur hafði kennt í vaxandi mæli áhrifa sjúkdóms síns, fluttu þau hjónin úr hinu stóra húsi sínu í Austurbyggð í minni íbúð að Eini- lundi 4a. Ég þykist vita að Arthur hafi verið viðbúinn því að kallið kynni að koma án mikils fyrir- vara, og hafi viljað sjá til þess að Ragnheiði væri búið léttara og minna heimiþ, ef svo færi sem óttast mátti. Áð minnsta kosti var það aðeins líkt öðrum háttum hans. Umhyggjan fyrir fjölskyld- unni sat í fyrirúmi og fyrirhyggju- semi. Ég vil hér flytja þakkir frá þeim fjölmenna og stóra hóp sem Árthur eignaðist að fjölskyldu fyrir 40 árum og hefur alla tíð síð- an notið þeirrar elsku og gestrisni, sem Arthur veitti ríkulega af. Bjarni Sigtryggsson Hjartalækningar: Vilja þróa hjálpardælur Turson, Arizona, 12. janúar. AP. Á SAMA tíma og vísindamenn ýmsir leggja nótt við dag að hanna æ minni gervihjörtu, eru aðrir sem telja eindregið, að hjálpartæki ým- iss konar séu betri valkostur og slik tæki beri að nota án þess að nema hjörtun úr hinum sjúku. Þriðji hópurinn telur, að hjarta- flutningar muni verða æ vinsælli og þá kunni gervihjörtu að reynast dýrmæt uns hjörtu finnast i hvern sjúkling. Dr. Phillip Oyer í Stanford- háskóla sagði, að mikilvægast væri að þróa hjálpardælur. „Við höfum hannað þær í réttri stærð og förum senn að nota þær í til- raunaskini. Þessar dælur geta haldið veiku hjarta gangandi, kannski nægilega lengi til að koma gervihjarta eða nýju hjarta fyrir. En ef veikt hjarta er numið burt og dælan bilar, þá er öllu lokið. En jafnvel veikt hjarta gæti kannski haldið nógu lengi út til að bjarga mætti sjúklingunum ef hjálpardælan bilar. Það er því skoðun mín og samstarfsmanna minna, að veik hjörtu eigi í flestum tilfellum ekki að nema burt,“ segir Oyer. Hjartalæknalið Stanford er í hópi þeirra virtustu og stefnir það að því undir stjórn Oyers, að hanna tækjabúnað sem komið er fyrir í búki hjartasjúklinga. Tækið myndi hjálpa veiku hjarta að ná sér eftir áfall og vera því síðan til trausts og halds, eða það myndi taka alfarið við, ef viðkomandi hjarta næði sér ekki eftir veikindin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.