Morgunblaðið - 20.01.1983, Síða 27

Morgunblaðið - 20.01.1983, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1983 27 Kiko Korriro Myndlist Valtýr Pétursson Kiko Korriro er ekki gott að gera sér grein fyrir, hvernig til hefur orðið. Þetta er vægast sagt undarlegt nafn, sem hefur fram- andi hljóm, en samt kunnugleg- an. Höfundur þess, Þórður Valdimarsson, hefur valið það, að nokkurs konar listamanns- nafni sínu, og er þvi einn um að vita merkingu þessa nafns og uppruna, en okkur hinum á það aðeins að festast í minni, og þar með er það mál úr sögu. I Listmunahúsinu við Lækj- argötu stendur nú yfir sýning á óvenjulegu myndmáli. Þarna er sýning á verkum Kiko Korriro, og er þetta í fyrsta sinn, sem þessi einkennilegi listamaður sýnir verk, er hann hefur gert á langri ævi. Hann hefur stundað list sína í tugi ára, en myndir hans hafa verið fyrst og fremst hans einkamál og gerðar ein- göngu fyrir hann sjálfan. Þarna eru myndir um þrjátíu ára gaml- ar og jafnvel eldri, sem virðast hafa verið gerðar á undanförn- ura dögum. Þarna eru myndir, sem eiga sér engan tíma og eru því bæði aldnar og ungar í senn. Þarna er ferskur blær yfir myndgleði, sem er tvinnuð pers- ónulegum táknum og draumnum um tilveru, sem er svo framandi og persónuleg, að margur mun staldra við og spyrja, hvað er listamaðurinn að fara? Óvenju- legur heimur, sem venjulegt fólk á afar litla hlutdeild í. Vísir menn gætu eflaust lesið sitt af hverju úr þessum verkum Þórð- ar Valdimarssonar, en ég efast um, að þeim tækist að þýða þessi myndtákn á það mál, sem efst var í huga listamannsins, er hann skóp þessi verk. Sköpun Þórðar er ekkert stundarfyrir- bæri eða eitthvað, sem tekið er upp á efri árum til að forða leið- indum í sambandi við tímann. Hér er það eðlileg tjáningarþörf, sem knúið hefur fram það mynstur og þær fígúrur, sem svo áberandi eru í þessum verkum. Hér spilar sálarlíf og sköpun- armáttur á háum nótum. Hér kveður við mannlegur harmleik- ur og gáskafull veröld. Hér sam- einast jurtir, fiskar og fuglar í nokkurs konar paradísarsöng hins dreymandi manns í hvers- dagsins grámyglu. Hér slær skáldið á hörpu, sem aðeins ör- fáum er gefin í vöggugjöf. Hér sveiflast harka og mýkt fyrir hljómfalli litar og línu í heimi, sem felst í huga einstaklingsins og verður að persónulegri veröld, sem í flestum tilfellum er öðrum lokuð. Þessi sýning á verkum Kiko Korriros er að vísu nokkuð mis- jöfn, en það mun vera óþarft að draga þessi verk í dilka hér. Því er nefnilega þannig farið, að þar skiptir svo greinilega í gott og miður gott málverk, að ábend- ingar er ekki þörf. Það besta á þessari sýningu er afbragð, og það, sem miður fer, er verra, en ekki slæmt. Þessi sýning kom mjög á óvart, og var það vel til fundið hjá frænda listamanns- ins, Gunnari Erni, að draga þessa hluti fram í dagsljósið. Hann á þakkir fyrir að hafa gert þessa sýningu að veruleika, sem svo sannarlega á erindi til al- mennings og einnig skilar nokk- uð góðu framlagi til íslenskrar myndlistar í heild. Þarna er svo sérstæð sýning á ferð, að ég veit ekki, hvort slíkur viðburður verður endurtekinn á næstu ár- um. Myndirnar á þessari sýn- ingu eru gerðar með nokkuð blandaðri tækni, ég held, að vatnslitir og litað blek sé uppi- staðan, en öll meðferð efnisins er á þann veg, að ekki er gott að gera sér fullkomlega grein fyrir aðferðum, en það gerir ekkert til. Listrænt gildi er hvergi Iátið líða fyrir tækni, og það er ein- mitt mál málanna. Þarna er fæddur litameistari á ferð, þegar best lætur, og aðalatriði þessar- ar sýningar er einkum og sér í lagi sá árangur, sem Þórður nær í litameðferð. Það mætti margt meira um þessa sýningu rita, en látum þetta nægja að sinni. Það er von mín, að margir leggi leið sína á þessa sýningu, þrátt fyrir vonda færð og janúarmánuð. Hún er þess fyllilega verð, að henni sé verðugur gaumur gefinn og ég er þess fullviss, að enginn, sem kynnist þessum verkum, á eftir að iðrast þess. Kiko Korriro, Þórður Valdimarsson, þakkir fyrir mikla skemmtan. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Ungur maður sem nylega hefur útskrifast sem stúdent á verslunarsviöi, óskar eftir atvinnu. Allt kemur til greina. Uppl. í síma 75726. ■w-v—y~y— ýmislegt Samkomusalur, leiga Leigjum samkomusal til hvers- konar mannfagnaóa og sam- komuhalds. Félagsheimili Farmanna- og Fiskimannasambands islands Sjómannasamband íslands, Borgartúni 18. Si’mi: 29933 og 38141 á kvöldin. þjónusta Handverksmaöur 3694-7357. S: 18675. I.O.O.F. 11 = 1642018’A = 1.1». UTIVISTARFERÐIR Lækjargötu 6a, 2. hæð. Sími14606 Simsvari utan skrifstofutíma. Þorraferð í Borgarfjöró 21. jan. kl. 20:00. Gist í Brautartungu og í Lundareykjadal. Þorrablót aö þjóólegri hefö. Söngur og söngdansar. Gönguferöir. Helg- arferö aö vetri er krydd í tilver- una Fararstj. Jón I. Bjarnason. Örfá saeti laus. Arsritið er komiö. Félagar vitjiö þess á skrifstofuna. Sjáumst. I.O.O.F. 5 = 16401208’A = BR. Samkoma veröur i Hlaögeröar- koti i kvöld kl. 20.30. Bilferö frá Hverfisgötu 42, kl. 20.00. Alllr velkomnir. Samhjálp. FREEPORT KLÚBBURINN fundur f kv«d kl. 20.30 f SafnsAarMielli Bdstalaklrk|M. Hjálpræðis- r| herinn Kirfcjustræti 2 Hjálpræöisherinn Alþjóöleg bænavika 1983 I kvöld kl.20.30,samkoma, Erling B. Snorrason forstööumaöur 7. dags aöventista talar, 3 stúlkur frá Filadelfíu syngja. Fleiri taka þátt. Allir hjartanlega velkomnir. Fíladelfía Almenn samkoma kl. 20.30. Samkomustjóri Einar J. Gísla- son. Grensáskirkja Almenn samkoma veröur i safn- aöarheimilinu í kvöld kl.20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Séra Halldór S. Gröndal. ADKFUM Amtmannsstíg 2B Fundur í kvöld kl. 20.30, Sigurö- ur Pálsson, námsstjóri sór um efniö: .Skólarnir og kristin- fræöin“. Allir karlmenn velkomnir. Tilkynning frá félaginu Angliu Nk. laugardag 22. janúar veröur haldin barnaskemmtun aö Síöu- múla 11, frá kl. 14—17. Miöar viö inngangin er kr. 60. Sama kvöld á sama staö veröur kvöldskemmtun meö dansleik fyrir fullorðna frá kl. 21—2. Aö- göngumiðar er kr. 80 við inn- ganginn. Stjórn Angliu. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR 11798 og 19533. Dagsferöir sunnudag- inn 23. janúar 1. Kl. 13. Skiöagönguferö á Hell- isheiöi. Skiöakennsla fyrir þá sem þess óska. Fararstjóri: Hjálmar Guömundsson. Verö kr. 100. 2. Kl. 13. Gönguferö á Þorbjarn- arfell (243 m) v/ Grindavikurveg. Fararstjóri: Asgeir Pálsson. Verö kr. 150. Farið frá Umferöarmiöstööinni, austanmegin. Farmiöar viö bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fulloröinna. ICENWOOD / ELDHÚSIÐ B Eigum fyrírliggjancJi: Kæliskápa, frystiskápa og eldhúsviftur Á GAMLA VERÐINU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.