Morgunblaðið - 20.01.1983, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 20.01.1983, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1983 VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF — umsjón Sighvatur Blöndahl 99 Bank of America“: 30D. i 1 € 29,5. » i • 1 29,0. / 1 L 1 i 28,5. / "J 285 M |k imðv. 1» ■!«hS j 1 iB.fM.ai4. pf rnibn. Im Im UB. 1ÞM. i ijat. Jr 7,70. ! 1 I 1 PMdBB j 7.10. / j aiá þr. rmóv þV. méto. fim.fM Dollarinn hækkaði um 0,77% í sl. viku TILTÖLULEGA litlar breytingar urðu á gengi íslenzku krónunnar í síðustu viku. Bandaríkjadollar hækkaði um 0,77% í verði, en solugengi hans var í upphafi vikunnar skráð 18,270 krónur, en sl. fristudag var það skráð 18,410 krónur. Ef þróun Bandaríkjadollars er skoðuð frá áramótum, kemur í ljós, að hann hefur hækkað um 10,57%. Sölugengi hans var skráð 16,650 krónur í upphafi ársins. Loks má geta þess, að Bandaríkjadollar hefur hækkað um 124,92% frá áramótum 1981—1982, en í upphafi síðasta árs var sölugengi hans skráð 8,185 krón- BREZKA PUNDIÐ Brezka pundið lækkaði um 0,52% í liðinni viku, en við upphaf hennar var sölugengi brezka pundsins skráð 29,250 krónur, en sl. föstudag var það komið niður í 29,097 krónur. Reyndar hefur verið töluverð hreyfing á brezka pundinu á erlendum gjald- eyrismörkuðum að undanförnu. Frá áramótum hefur brezka pund- ið síðan hækkað um 8,45%, en í upp- hafi árs var sölugengi þess skráð 26,831 króna. Frá áramótum 1981 — 1982 hefur brezka pundið síð- an hækkað um 85,9%, en í upphafi sl. árs var sölugengi þess skráð 15,652 krónur. DANSKA KRÓNAN Danska krónan hækkaði aðeins um liðlega 0,2% í liðinni viku, en við upp- haf hennar var sölugengi dönsku krónunnar skráð 2,2169 krónur, en sl. föstudag var það skráð 2,2220 krónur. Frá áramótum hefur danska krón- an hækkað um 11,93%, en í upphafi ársins var sölugengi hennar skráð 1,9851 króna. Þá má geta þess, að danska krónan hefur hækkað um 98,59% frá áramótum 1981—1982, en í upphafi síðasta árs var sölugengi hennar skráð 1,1189 krónur. VESTUR-ÞÝZKA MARKIÐ Vestur-þýzka markið hækkaði um tæplega 0,21% í liðinni viku, en við upphaf hennar var sölugengi vestur- þýzka marksins skráð 7,8311 krónur, en sl. föstudag var það skráð 7,8474 krónur. Frá áramótum hefur vestur-þýzka markið síðan hækkað um 12,03%, en í upphafi ársins var sölugengi þess skráð 7,0046 krónur. Frá áramótum 1981—1982 hefur vestur-þýzka mark- ið síðan hækkað um 115,48%, en í upphafi síðasta árs var sölugengi þess skráð 3,6418 krónur. Hagvöxtur í heiminum verður um 2% á árinu Samkeppnishæfni bandarískra útflytjenda hefur rýrnað um 25% á 2V2 ári EFNAHAGSÁSTANDIÐ í heimin- um mun batna eitthvað á þessu ári, en uppgangurinn verður mjög hæg- ur, hægari en menn höfðu vonað, segir í niðurstöðu yfirlits „Bank of America**, stærsta viðskiptabanka heims, um efnahagshorfur i heimin- um á þessu nýbyrjaða ári. í yfirliti bankans segir, að hag- vöxtur verði að meðaltali rétt inn- an við 2%, en þá er miðað við, að meðaltalsaukning þjóðarfram- leiðslu ríkja heimsins, hafi verið í námunda við 0,5% á liðnu ári. „Uppgangur efnahagslífsins í heiminum almennt veltur að mestu leyti á því hvernig til tekst í Bandaríkjunum og nú eru mörg spurningamerki á lofti á þeim bæ,“ segir í yfirliti bankans. Ennfremur segir, að búast megi við því, að alþjóðaviðskipti muni aukast lítilsháttar, eða jafnvel standa alveg í stað á þessu nýbyrj- aða ári. „Þótt eitthvað fari að rofa til í efnahagsmálum heimsins á næstunni, má búast við því, að það taki efnahagsástandið a.m.k. 10 ár, að verða eitthvað í líkingu við það sem gerðist á áratugnum 1960—1970,“ segir ennfremur. í yfirlitinu segir, að samkeppn- isstaða bandarískra útflutnings- vara sé um 25% lakari en hún var fyrir aðeins tveimur árum, vegna stöðugrar styrkingar doilarans gagnvart öðrum gjaldmiðlum. „Hins vegar má gera ráð fyrir, með auknum viðskiptum Banda- 'kjamanna og auknum viðskipta- að dollarinn muni eitthvað veikjast gagnvart vestur-þýzka markinu, svissneska frankanum og japanska jeninu á árinu," segir ennfremur. „Þrátt fyrir þá staðreynd, að verðbólga hefur verið frekar á undanhaldi í flestum iðnríkjum heimsins, hefur fjármálaástand í þessum löndum lítt skánað, m.a. vegna sívaxandi halla á viðskipt- um við útlönd og halla á fjárlögum ríkjanna. Það er alveg ljóst, að þau lönd, sem glíma við mikinn halla eiga fyrir höndum erfitt ár í ár“. Að síðustu varar bankinn ein- dregið við því, að ríki fari að taka upp verndaraðgerðir í einhverju formi, til að laga stöðuna. „Það er aðeins gálgafrestur". Alitalia kaupir 30 DC-9-80 farþegaþotur af McDonnell Douglas: Stærsti samningur eins flugfélags við fyrirtækið — en hann er upp á liðlega einn milljarð dollara ÍTALSKA flugfélagið Alitalia skrif- aði undir samning við McDonnell Douglas flugvélaverksmiðjurnar bandarísku um kaup á 30 nýjum DC-9-80-þotum í liðinni viku, auk þess að hafa rétt á kaupum á 10 vélum til viðbótar. Samningnum, sem hljóðar upp á liðlega milljarð Bandaríkjadoll- Bandaríkin: Reiknað er með enn frekari lækkun vaxta FLENTIR bankar Bandaríkjanna lækkuðu forvexti sína úr 11,5% í 11% á dögunum og hafa vextir í Bandaríkjunum ekki verið lægri í liðlega tvö og hálft ár. Vaxtalækkunin kemur i kjölfar lækkunar á öðrum vöxtum í Banda- ríkjunum, svo og vegna sívaxandi eftirspurnar fyrirtækja eftir skamm- tíma fjármagnsfyrirgreiðslu. Tals- menn banka og fjármálastofnana segja líklegt að þessir tveir þættir eigi enn eftir að þrýsta vöxtum niður, þannig að innan fárra vikna muni þeir verða lækkaðir niður í 10,5% og síðan jafnvel niður í 10%. Það var Chase Manhattan- bankinn sem reið á vaðið um miðj- an desembermánuð sl. og tilkynnti um lækkunina, en síðan fylgdu aðrir bankar í kjölfarið eftir ára- mótin. Þá hafa vextir af svokölluðum „federal funds", sem er nokkurs konar millibankamarkaður, lækk- að úr 8,34% í 8,25% í síðustu viku, en þeir vextir voru liðlega 10,21% fyrir skömmu. Stöðug lækkun vaxta í Banda- ríkjunum og reyndar í fleiri lönd- um á síðustu mánuðum hefur leitt til þess, að meiri gróska hefur færst í alþjóðalánamarkaði, m.a. var um metár að ræða á hinum svokallaða „Euro-bond“-markaði í fyrra, en aukningin í viðskiptum var liðlega 79,3%. ara, var lýst af Stanford McDonn- ell, aðalforstjóra McDonnell Douglas, sem mikilvægasta sam- ningi sem nokkurt flugfélaga hefði gert við verksmiðjuna. Talsmaður Alitalia sagði, að vélarnar yrðu notaðar á styttri og millivegalengdum félagsins og kæmu í stað eldri véla af gerðinni DC-9-30 og Boeing 727-100 og Boeing 727-200. Hann sagði enn- fremur, að nýju vélarnar væru bæði hljóðlátari, tækju fleiri far- þega, og væru auk þess eyðslu- grennri en þær eldri vélar félags- ins sem eru í notkun. Samningur Alitalia og Mc- Donnell Douglas gerir ráð fyrir að McDonnell Douglas kaupi allar 18 Boeing 727-vélar félagsins, þrjár DC-10 breiðþotur og fjórar DC-8 þotur. Auk þess mun McDonnell Douglas taka sex DC-9-30-vélar og skipta um mótora á þeim, auk ýmiss konar endurbóta. Fyrstu tvær nýju vélarnar verða afhentar Alitalia í desem- ber á þessu ári, en reiknað er með að þær verði allar komnar í notk- un fyrir árslok 1986. Alitalia verður síðan að staðfesta endan- lega kaup sín á viðbótarvélunum tíu fyrir mitt ár 1985. Um 85% af samningunum verða fjármögnuð af Eximbank og Bandaríska útflutningssjóðn- um. Það sem á vantar verður Alit- alia, sem er ríkisrekið félag, að standa skil á. íslenzkar vörur koma hagstætt út í Færeyjum SÉRSTAKT útflutningsátak stendur nú yfir í Færeyjum, en fulltrúi Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins var þar á ferð um mánaðamótin nóvcmber-desem- ber sl. Hann er nú á förum að nýju til að reka erindi 22 íslenzkra fyrirtækja að því er segir í fréttabréfi FÍI. Hér er um að ræða bæði erindi fyrir þá sem þegar eru í útflutningi til Fær- eyja og einnig þá sem óska að hefja útflutning þangað. „Ýms- ar íslenzkar vörur virðast koma hagstætt út í Færeyjum um þessar mundir og samgöng- ur til Færeyja hafa stórbatn- að,“ segir ennfremur í frétt- abréfi FÍI.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.