Morgunblaðið - 20.01.1983, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1983
41
vIlwÍkaNdi
SVARAR Í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
l'orstoinn Pálsson
Árni Johnsen
Nýja menn þarf
til breytinganna
Guðmundur Jónsson verkamaöur
skrifar:
„Velvakandi.
Eg telst víst orðið til aldinna
Sunnlendinga og tala því af nokk-
urri reynslu fyrir mitt kjördæmi.
Óðaverðbólga og mergsognir
atvinnuvegir einkenna þessa
tíma okkar.
Við sem teljumst til verkafólks
sjáum sjaldnast annað en brostn-
ar vonir og tóm launaumslögin
um miðjar vikur og mannlífið allt
ber keim af þessu. Enginn virðist
skara fram úr lengur, meðal-
mennskan er í algleymi, jafnt í
mannlífinu sem á Alþingi.
Við Sunnlendingar eigum svo
sem nokkra rólfæra þingmenn, en
heldur þykir mér nú lágt á þeim
risið til þess að taka einarðlega
afstöðu til vandamálanna og
er víða uggvænlegt að sjá þetta á
húsum við svo fjölfarna götu sem
Laugavegurinn er. Fyrir nokkrum
árum síðan lenti ég í því að bjarga
konu sem varð undir hengju af
snjó og klaka niðri á Hverfisgötu
og hún var mikið meidd. Við vor-
um fjórir sem komum að henni og
grófum hana upp með höndunum
úr dyngjunni. Og ekki eru mörgár
síðan það varð banaslys af þessu á
Akureyri. Það hlýtur að koma i
hlut borgaryfirvalda, sem hafa í
sinni þjónustu lyftubíla, að af-
stýra þessari stórkostlegu hættu,
því að fólk hefur almennt enga
möguleika til þess að annast þetta
verk.
skilja okkur, fólkið í fábrotnu
störfunum.
Ég hef sannfærst um að til
breytinganna þarf nýja menn og
öll erum við sannfærð um að
breytinga er þörf. Ég bendi ykkur
á tvo menn.
Annar þeirra skilur fullkom-
lega þarfir atvinnulífsins og þá
hörku sem þarf að beita gegn
verðbólgunni. Þetta er Þorsteinn
Pálsson.
Hinn maðurinn hefur ávallt
þreifað á púlsi mannlífsins og er
fljótur að gera viðvart í skrifum
sínum, sýnist honum hjartslátt-
urinn veikjast. Hann er alinn upp
á heimili útgerðarmanns og
þekkir því þá baráttu gjörla.
Hann er maður sem er þekktur
fyrir annað en að láta deigan síga
þegar syrtir í álinn. Þetta er auð-
vitað Árni Johnsen.
Sýnum nú kjark, því til breyt-
inganna þurfum við vissulega
nýja menn. Við þurfum þá Árna
og Þorstein."
Þjóðsöng-
urinn og
þingið
I»orsteinn Guöjónsson skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Éiginlega ætlaði ég að vera
hættur að skrifa, en þó komst ég
ekki hjá því að taka eftir nokkrum
greinum hjá þér — og víðar — um
þjóðsönginn og skammarlega
meðferð á honum, sem menn
hljóta að taka afstöðu til, enda
hafa sumir gert það.
Raunar hef ég aldrei verið neinn
sérstakur aðdáandi kvæðisins —
þykir t.d. miklu betra kvæðið
„Leiðsla" sem skáldið Matthías
orti skömmu síðar en þjóðsönginn.
En það kvæði er svo sérstakt að
það hefði aldrei getað orðið þjóð-
söngur. Sumir útlendir menn sem
ég hef átt tal við, hafa verið
stórhrifnir af „Ó, guð vors lands",
og haft mikinn áhuga á persónu
séra Matthíasar í því sambandi.
Og fáir munu bera á móti því að
lag Sveinbjarnar Sveinbjörnsson-
ar við kvæðið sé mikið listaverk.
En hvað sem líður listgildi ljóðs
og lags, virðist það svo sjálfsagt
mál, að þjóðsöngur njóti réttar-
verndar, þannig að ekki geti hvaða
drusla og ómenni traðkað á hon-
um eftir lund sinni, að furðulegt
hlýtur að teljast að slíkt skuli vera
vanrækt. Það er talað um að setj-
ast niður og semja langa laga-
bálka til verndar þjóðsöngnum, í
stað þess að gera eitthvað í mál-
inu! Gott ef það þarf ekki heila
stjórnarskrá tit þess að hægt sé að
gera einföldustu hluti.
Þingmenn og þingmannsefni
hafa verið í kosningaleik í allt
haust og allan vetur — á kostnað
þjóðarinnar. En enginn einasti
þeirra hefur sagt orð til varnar
minningu listamannanna Matthí-
asar Jochumssonar og Sveinbjarn-
ar Sveinbjörnssonar."
Skrifið eða hringið
til Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til aö skrifa þættinum um hvaöeina, sem
hugur þeirra stendur til — eöa hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til
fóstudaga, ef þeir koma því ekki viö aö skrifa. Meöal efnis, sem vel er
þegiö, eru ábendingar og oröaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisróng veröa að fylgja öllu efni til þáttarins, þó aö höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæöa til aö beina því til lesenda blaösins utan
höfuöborgarsvæöisins, aö þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Stofninn telur um þrjú þúsund fugla.
Rétt væri: í stofninum eru um þrjú þúsund fuglar.
S2F SlGGA V/öGA í AiLVtWU
Þorskanet
MM
Viö leitum allir aö því
besta. Besta fáan-
lega hráefninu, bestu
tækninni og ekki síst
besta veröinu.
Nýju H.C.G.-netin eru árangur samvinnu
V-Þýskalands, Japan og Taiwan. Gæöa-
standard kraftaverkanets nr. 12 er:
Þyngt: 3,1 kg
Slitþol þurrt: 21,6 kg
Slitþol blautt: 19,6 kg
Veröiö er ótrúlega hagstætt.
Höfum einnig fyrirliggjandi blýteina og ból-
færaefni.
MÁRCO
Sími 15953 og 13480
MÝRARGATA 26
REYKJAVÍK
HF.
Hamar og sög
er ekki nóg
NEMA ÞÚ VEUIR RÉTTA EFNIÐ**
Vegg- og loftklæðning
í glæsilegu úrvali
úr eik, furu, aski, oregon-pine
gullálmi, perutré, brenni, antik-
eik og 10 tegundum til viöbótar.
. Verö frá aðeins kr. 51 .-pr. m2.
BJORNINN HF
Skúlatúni 4 - Sími 25150 - Reykjavik
ahvrr
A EGRÐ
íiTURTR