Morgunblaðið - 20.01.1983, Side 44

Morgunblaðið - 20.01.1983, Side 44
75 _ ^skriftar- síminn er 830 33 75 jpglýsinga- síminn er 2 24 80 r Islending- ar drukku 333 þúsund lítra af vodka í fyrra Vindlingareykingar jukust áriö 1982 ÍSLENDINGAR reyktu 10 millj- ónum fleiri vindlinga á árinu 1982 en 1981, samkvæmt upplý.s- ingum um tóbaks- og áfengissölu Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins. Hins vegar varó reyk- tóbaksneyzlan á síðastliónu ári rúmlega fjórum tonnum minni en 1981, og áfengisneyzla minnkaói miðaó vió drukkna alkóhóllítra á mann. Samtals reyktu íslendingar 416.443 mill af vindlingum í fyrra, en í hverju milli eru þús- und stykki, miðað við 406.508 mill árið 1981. Þá var neytt 38.950 kílóa af reyktóbaki í fyrra miðað við 43 þúsund kíló 1981. Og loks voru 13,9 milljón- ir vindla (13.976 mill) reyktar í fyrra miðað við 14,4 milljónir (14.448 mill) árið 1981. Áfengisneyzla Islendinga 1982 jafngilti því að hvert mannsbarn hefði drukkið 3,133 alkóhóllítra, miðað við 3,179 lítra 1981. Vodka reyndist mest seldi drykkurinn, samtals voru drukknir 333.200 lítrar af þeim drykk, 326.000 lítrar af brennivíni og 126.580 lítrar af whisky. Loks reyndist neftóbaks- neyzlan í fyrra tæplega 14,5 tonn, minnkaði um 15 kíló frá 1981. Neftóbaksneyzlan hefur dregizt jafnt og þétt saman, var 33—34 tonn fyrir tveimur áratugum. FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1983 Vigfús Andrésson í Berjanesi gefur hrossunum út úr hlöóugrunninum, en veggir og þak fuku í ofviðrinu. Undir veggjarbrotunum sér í fólksbílsflak. Morgunblaöið/RAX. Berjanes undir Austur-Eyjafjöllum 7—800 þúsund króna tjón af völdum veðurs FOKTJÓNIÐ á bænum Berjanesi undir Austur-Kyjafjöllum í skjálftaveðrinu skömmu fyrir jól er talið nema um 700—800 þúsund krónum, samkvæmt upplýsingum bóndans, Vigfúsar Andréssonar. Tvær hlöður stórskemmdust, fjárhús, íbúðarhús, þrír bílar, 35 tonn af heyi fuku og vatn olli mikl- um skemmdum á heyfeng. Þá fóru flestar rúður úr húsum og m.a. fennti inn í fjós þar sem 14 mjólk- andi kýr voru. Kru þær ekki byrj- aðar að mjólka aftur vegna áfalls- ins. Vigfús bóndi sagði að það hefði verið engu líkara en að fellibylur gengi yfir, enda sópað- ist allt leirtau út úr skápum í íbúð á efri hæð hússins þegar veðurhamurinn braut þar alla glugga og los komst á rishæðina. Vigfús kvað illt í efni, því að eins og mál stæðu myndu bætur að- eins duga fyrir nokkrum hluta skemmdanna. Sjá í miðopnu „Kins og brjálað- ir menn sætu undir stýri, en bílarnir voru mannlausír". Benzínlítrinn í 15,50 krónur — Verðlagsráð samþykkti 12,3% hækkun VKKÐLAGSRÁÐ samþykkti á fundi sinum í gærdag að heimila 12,3% hækkun á benzíni, þannig að hver lítri hækkar úr 13,80 krón- um í 15,50 krónur. Á liðnu ári hækkaði benzín um liðlega 63,2%, en frá 31. janúar 1982 hefur benz- ínlítrinn hækkað um liðlega 83,3%. Verðlagsráð samþykkti enn- fremur á fundi sinum, að heim- ila 11% hækkun á fargjöldum í innanlandsflugi. Á síðasta ári hækkuðu fargjöld í innanlands- flugi um 89,3%. Þá samþykkti Verðlagsráð að heimila 6% hækkun á steypu og 15% hækkun á fargjöldum sér- leyfishafa. Janúar-nóvember 1982: Gjaldeyrisviðskipti nei- kvæð um 1200 milljónir Gjaldeyriskaup bankanna nettó voru neikvæð um 1.212 milljónir króna fyrstu ellefu mánuðina í fyrra, en keyptur gjaldeyrir var upp á 12.096 milljónir króna, en seldur gjaldeyrir hins vegar upp á 13.308 milljónir króna. Til samanburðar voru gjaldeyr- iskaup bankanna jákvæð um 823 milljónir króna á sama tíma árið 1981, þegar kaupin voru upp á 12.984 milljónir króna, en gjald- eyrissala upp á 12.161 milljón króna. I nóvembermánuði einum sér voru gjaldeyriskaup bankanna jákvæð um 84 milljónir króna, en þá var keyptur gjaldeyrir upp á 1.758 milljónir króna, en seldur gjaldeyrir upp á 1.674 milljónir króna. Á sama tíma, þ.e. í nóvember 1981, voru gjaldeyriskaup bank- anna jákvæð um 9 milljónir króna, en þá var keyptur gjaldeyrir upp á 1.637 milljónir króna, en seldur gjaldeyrir hins vegar upp á 1.628 milljónir króna. Varðandi tölur fyrir árið 1981 ber þess að geta, að þær eru um- reiknaðar til gengis 1982 sam- kvæmt vísitölu meðalgengis. Á öllu árinu 1981 voru gjaldeyr- iskaup bankanna jákvæð um 401 milljón króna, en þá var keyptur gjaldeyrir upp á 9.244 milljónir króna, en seldur gjaldeyrir upp á Atvinnuhúsnæði hækkaði svip- að og vísitala byggingarkostnaðar og íbúðarhúsnæði utan höfuðborg- arsvæðisins hækkaði um 67% á sama tíma. Þetta gildir þó ekki um íbúðarhúsnæði á höfuðborgar- svæðinu, sem hækkaði talsvert meira, eða um tæp 90% til jafnað- ar, en smáíbúðir hækkuðu meira, 8.843 milljónir króna. Reyndar þarf að fara alveg aftur til ársins 1975 til að finna neikvæð gjaldeyr- iskaup bankanna, en þá voru þau neikvæð um liðlega 45 milljónir króna. sem áður segir. Greiðslukjör voru óhagstæðust í apríl, en þá var til jafnaðar 78% af heildarsöluverði íbúðarhúsa á höfuðborgarsvæðinu greitt á fyrsta ári, og hefur Fast- eignamatið ekki mælt óhagstæð- ari kjör. Þá var fasteignaverð einnig hið hæsta sem reiknað hef- ur verið út, miðað við fast verðlag. Fasteignaverö á höfuöborgarsvæðinu: 100% hækkun á litl- um íbúðum í fyrra LITLAK íbúðir á höfuóborgarsvæóinu, tveggja og þriggja hcrbergja, hækk- uóu á síóasta ári um rúmlega 100% að því er fram kom á blaðamannafundi Fasteignamats ríkisins í gær, þar sem tilkynnt var um drcifingu á nýjum fasteignamatsseólum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.