Morgunblaðið - 05.02.1983, Page 1
40SÍÐUR OGLESBÓK
29. tbl. 70. árg. LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Frá fréttamannafundi þeirra Helmut Kohls og Margareth Thatchers í gær, sem
haldinn var í kjölfar fundar þeirra, en þar ræddu þau einkum möguleika á
takmörkunum á kjarnorkueldflaugum í Evrópu en jafnframt alþjóðleg pen-
ingamál og atvinnuleysisvandann, sem fer enn vaxandi bæói í Vestur-l>ýzka-
landi og Bretlandi. ap.
Norræni menningarmálasjóðurinn:
Meira fé komi í
hlut íslendinga
Kaupmannahöfn, 4. fehrúar. Frá fréllarilara
Morgunblaósins, Ib Björnbak.
ÍSLANI) á aó fá meira en áöur í sinn hlut af því samnoræna fé, sem varið
er til menningarmála. ('hr. Christiansen skýrði frá þessu á fundi með
fréttamönnum í dag, en hann er sá ráðherra dönsku stjórnarinnar, sem fer
með samnorræn mál af hálfu Danmerkur. Fréttamannafundurinn í dag var
liður í undirbúningi undir þing Norðurlandaráðs, sem fram fer í Osló
21.—25. febrúar nk.
Kohl og Thatcher:
Styðjum eindregið
núll-lausn Reagans
London, 4. febrúar. Al\
Að svo komnu er aetlunin að
auka veitinguna til íslands um 2
millj. d. kr., en ekki hefur verið
tekin endanleg ákvörðun um,
hvort enn meira fé verði veitt til
íslands úr þessum samnorræna
menningarmálasjóði. Ástæðan
fyrir auknum fjárveitingum til ís-
lendinga nú er m.a. sú, að verð-
bólgan hefur af íslendingum hluta
þess fjár, sem þeir ættu að fá úr
sjóðnum. Þess vegna á nú að taka
upp nýtt reikningskerfi til úthlut-
unar á þessu fé, þar sem hlutur
íslands verður ekki fyrir borð bor-
inn af völdum verðbólgunnar.
Fjárhagsáætlun Menningar-
málasjóðs Norðurlandaráðs fyrir
árið 1984 nemur um 140 millj. d.kr.
Á fundi ráðsins í Osló gefst í
fyrsta sinn tækifæri til þess að
ræða fjárhagsáætlanir þess, áður
en þær eru samþykktar. Þá verða
einnig til meðferðar tillögur um
að fjölga fulltrúum í ráðinu úr 78 í
87, þar sem Grænland, Færeyjar
og Álandseyjar eiga hvert um sig
að fá tveggja manna sendinefnd í
ráðinu í framtíðinni. Þá er jafn-
framt áformað að fjölga fulltrúum
íslands í Norðurlandaráði úr 6 í 7.
HELMUT Kohl, kanslari Vestur-
Þýzkalands og frú Margaret Thatch-
er, forsætisráðherra Bretlands lýstu
því sameiginlega yfir í dag, að þau
styddu eindregið svonefnda núll-
lausn, en markmiö hennar væri, að
engar meðaldrægar kjarnorkueld-
flaugar væru í Evrópu. En jafnframt
lýstu þau bæði því yfir, að þetta væri
„ekki eina lausnin" á þessu máli.
í sameiginlegri yfirlýsingu eftir
fund þeirra á Chequers, sveitasetri
frú Thatcher, sagði ennfremur, að
núlllausnin væri „langbezta leiðin"
til þess að hernaðarjafnvægi kæm-
izt á milli þeirra SS-eldflauga, sem
Sovétmenn hafa komið fyrir í Evr-
ópu og þeirra eldflauga af Peersh-
ing-gerð svo og stýrieldflauga, sem
áformað er af hálfu NATO-ríkj-
anna að koma fyrir í Vestur-Evrópu
á þessu ári.
En þau Kohl og frú Thatcher
sögðu ennfremur, að aðrar leiðir
væru mögulegar, svo framarlega
sem þær byggðust örugglega á
grundvallarreglunni um jafnvægi í
kjarnorkuvopnabúnaði milli NATO
og Sovétríkjanna. „Kanslarinn og
ég erum sammála um, að ekki komi
til mála, að Sovétríkin hafi einokun
á þessari tegund vopna“, sagði frú
Thatcher við fréttamenn eftir fund
hennar og Kohls, sem stóð í 4‘k
klukkustund. Þau lýstu jafnframt
bæði yfir stuðningi sínum við til-
lögu Reagans Bandaríkjaforseta
um fund hans og Yuri Andropovs,
ANTONIO EANES, forseti
Portúgals rauf þing í dag og
boöaði til almennra þing-
leiðtoga Sovétríkjanna, þar sem
undirritað yrði samkomulag um
bann við öllum meðaldrægum eld-
flaugum. Þessari tillögu hefur þeg-
ar verið hafnað af Andropov.
Gert var ráð fyrir, að Kohl færi
flugleiðis heim til Vestur-Þýzka-
GEORGE Bush, varaforseti
Bandaríkjanna, lýsti því yfir í
ræðu, sem hann flutti í dag
fyrir afvopnunarnefnd Sam-
einuöu þjóöanna í Genf, aö
Bandaríkjammönnum væri
þaö „fyllsta alvara“ að komast
aö samkomulagi um meðal-
drægar kjarnorkueldflaugar.
BaÖ hann sovézku fuiltrúana í
nefndinni aö færa ráða-
mönnum í Moskvu þessi skila-
boð.
Bush sagði, að viðræður sínar
við sovézku nefndarmennina
hefðu verið mjög gagnlegar. Hann
kosninga í landinu 25. apríl
nk. í því skyni aö binda enda
á sjö vikna stjórnarkreppu,
sem hófst meö því að Franc-
isco Pinto Balsemao forsæt-
isaráöherra sagöi af sér 20.
desember sl.
Þetta verður í tíunda sinn, sem
þingkosningar fara fram í Portú-
gal, eftir að lýðræði var aftur
komið á í landinu 1974. Sú ríkis-
stjórn, sem mynduð verður í kjöl-
far kosninganna, verður sú fimm-
tánda á 9 árum. Dagurinn, sem
Eanes foseti hefur valið til þing-
kosninganna er afmælisdagur
byltingarinnar, er einræðinu var
ste.vpt í Portúgal, en það hafði
verið við lýði í nær hálfa öld.
Balsemao kunngerði þá „óaft-
urkallanlegu" ákvörðun að segja
af sér einni viku eftir að sam-
steypustjorn hans, þar sem átt
höfðu aðild jafnaðarmenn, kristi-
legir demókratar og konungssinn-
ar, hafði beðið ósigur í almennum
bæjar- og sveitarstjórnarkosning-
um. Þá bar. hann einnig fyrir sig
stöðugar deilur milli stjórnar-
flokkanna sem ástæðu fyrir af-
sögn sinni.
lands í dag. Á fundi hans og frú
Thatcher voru einnig til meðferðar
þau vandamál, sem efst eru á baugi
í alþjóðlegum peningamálum, at-
vinnuleysið, sem fer vaxandi í lönd-
um þeirra beggja og fjárhagsáætl-
un Efnahagsbandalags Evrópu.
gaf það þó alls ekki í skyn, að sam-
komulag væri á næsta leiti, hvorki
að því er snertir takmarkanir á
meðaldrægum né langdrægum
kjarnorkueldflaugum. Sagðist
hann ekki hafa heyrt neitt það frá
sovézku fulltrúunum, sem tilefni
gæfi til þess að álíta, að Sovét-
menn hefðu breytt afstöðu sinni.
Sovézka fréttastofan TASS
skýrði svo frá í dag, að Bush hefði
ekki tekizt að sýna fram á, að
Bandaríkjastjórn væri alvara í
þeirri viðleitni að takmarka
kjarnorkuvopnabúnað sinn. Hann
hefði aðeins ítrekað tillögu Reag-
ans forseta um að eyðileggja
kjarnorkueldflaugar i Evrópu.
Sjá bls. 18.
jm
m
Mesta tap
hjá Pan Am
New Vork, 4. febrúar. Al\
PAN AM-flugfélagið hefur
kunngert, að meira tap hafi orðið
á innaniandsflugi félagsins í
Bandaríkjunum en nokkru sinni
áður eða 485.3 millj. dollarar. Á
síðasta ársfjrórðungi 1982 var tap-
ið 272.9 millj. dnllarar eða um 3
millj. dollarar á dag.
Pan Am heldur uppi flugi um
allan heini. Af hálfu félagsins
er auknum peningaskiptum í
erlendum gjaldeyri m. a. kennt
um lélegan árangur þess á síð-
asta ári. Mikið af farmiðum
með vélunt félagsins innanlands
í Bandarikjunum eru greiddir
með gjaldmiðli þess staðar, þar
sem þeir eru keyptir og er þessu
fé stðan skipt fyrir dollara. Þar
sent dollarinn hafi stöðugt verið
að ha'kka undanfarin ár gagn-
vart flestum öðrum gjaldmiðl-
unt, hafi félagið borið miklu
lakari hlut frá borði en ella.
Týnd Mozartsinfónía
finnst í Óðinsvéum
OAinsvúum, 4. febrúar. Al\
SÉRFR/EDINGAR hal'a nú skorið
úr um, að nótnahandrit, sem fannst
í bókasafni sinfóníuhljómsveitarinn-
ar í Oðinsvéum, hafi að geyma sin-
fóníu eftir Wolfgang Amadeus Moz-
art frá því hann var 12 ára gamall.
Þetta verk Mozarts hefur verið týnt
í tvær aldir.
Gunnar Thygesen, bókavörður
hjá sinfóníunni í Óðinsvéum, seg-
ist hafa fundið handritið fyrir
nærri ári innan um alls konar
gögn, sem borgarskjalasafnið af-
henti sinfóníuhljómsveitinni.
Hann þóttist strax vita hvers kyns
var en hafði ekki hátt um það fyrr
en sérfræðingar höfðu staðfest
gruninn. Sinfóníuhljómsveitin í
Oðinsvéum ætlar að flytja verkið
seint á þessu ári en það er í þrem-
ur þáttum, allegro moderato, and-
antino og rondo. Fyrsti og þriðji
þátturinn eru í moll.
Jens Peter Larsen, prófessor í
Kaupmannahöfn, og víðfrægur
sérfræðingur í Joseph Haydn, seg-
ist ekki vera í neinum vafa um að
verkið sé eftir Mozart. „Ég hef leg-
ið yfir því dögum og vikum saman
og er alveg viss í minni sök. Hér er
ekki um að ræða eina af bestu sin-
fóníunum, en mjög fallegt verk
engu að síður,“ sagði hann. Thyge-
sen sagði, að alltaf hefði verið vit-
að um þetta verk þótt það hefði
ekki fundist fyrr en nú.
Sannað þykir, að „Klubben",
tónlistarfélag í Óðinsvéum, hafi
komist yfir handritið árið 1798, sjö
árum eftir lát Mozarts og er jafn-
vel talið, að sinfónían hafi verið
flutt á vegum þess.
Mozart, sem var Austurríkis-
maður, lést árið 1791, 35 ára gam-
all. Hann samdi sitt fyrsta verk
fimm ára gamall en alls samdi
hann 626 tónverk, þar af 40 sin-
fóníur.
Þingkosningar í
Portúgal 25. apríl
Eanes forseti rauf þing í gær
Lissabon, 4. fobrúar. Al\
Fyllsta alvara ad
takmarka vígbúnað
— sagði Bush í viðræðunum í Genf
(ienf, 4. febrúar. Al\