Morgunblaðið - 05.02.1983, Síða 2

Morgunblaðið - 05.02.1983, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 1983 2 Ráðist á lögreglu- menn á Hlemmi Meiðsli óveruleg ALLMAKGIR unglingar gerðu að- súg að lögreglumönnum í biðskýlinu á Hlemmi í fyrrakvöld. Varð að kalla til viðbótarlögreglulið, sem skakkaði leikinn ásamt hjálpsömum vegfar- endum og strætisvagnastjórum. I>rír unglingar voru handteknir. Einn lögreglumaður meiddist lítillega, bólgnaði á enni, og var mættur til vinnu í gærmorgun eins og ekkert hefði í skorizt. Lögreglan var kölluð í skýlið kl. 20.15 í fyrrakvöld. Þar voru fyrir unglingar svo tugum skiptu og voru sumir þeirra til vandræða. Skipti engum togum að unglings- piltur tók sig út úr hópnum og réðst á annan lögregluþjóninn. Fleiri unglingar fylgdu fordæm- inu og réðust að lögreglunni. Féll annar lögregluþjónninn í gólfið en hinn komst út við illan leik og sótti liðsauka, 10 lögregluþjóna. Tókst liðinu að stilla til friðar, en þó ekki fyrr en eftir nokkurn tíma. Þrír unglingar voru handteknir, þar af forsprakkinn, en hann hef- ur áður ráðist á lögreglumenn. Fyrr um kvöldið hafði lögreglan handsamað þrjá unglinga, sem voru að selja töflur, sem stolið hafði verið fyrr um daginn í Aust- urbæjarapóteki. Er talið að þessi handtaka hafi skapað óróa hjá unglingunum, sem á Hlemmi voru. Félag íslenskra iðnrek- enda 50 ára á þessu ári Húsið sem Krabbameinsfélagið hefur fest kaup á að Reykjanesbraut 8. — iðnsýning verður haldin í sumar FÉLAG íslenskra iðnrekenda verður 50 ára næstkomandi sunnudag, 6. febrúar. Verður af því tilefni móttaka fyrir félags- menn og gesti á Hótel Sögu og hefst hún klukkan 15.30, sam- kvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Víglundi Þorsteinssyni formanni félagsins. Félag íslenskra iðnrekenda var stofnað 6. febrúar árið 1933 í Ekkert flogið Reykjavík og var stofnfundur- inn haldinn á Hótel Borg. Aðal- hvatamaður stofnunar félagsins var Sigurður Pétursson sem kenndur er við Álafoss, og var hann raunar fyrsti formaður fé- lagsins, en á stofnfundinn mættu fulltrúar nokkurra iðn- fyrirtækja í Reykjavík. Að sögn Víglundar verður ým- islegt gert til þess að minnast 50 ára afmælisársins, reynt verður að vekja athygli á iðnaðinum í landinu og gerð grein fyrir því hve mikil breiddin er í íslensk- um iðnaði. Meðal annars verður haldin iðnsýning síðla í sumar og mun hún standa yfir í Laug- ardalshöllinni frá 19. ágúst til 4. september. ALLT innanlandsflug lá niðri í gær vegna vcðurs, ef undan er skilið eitt sjúkraflug Flugfélags Austurlands frá Egilsstöðum til Reykjavíkur. Hvorki Flugleiðum né Arnar- flugi tókst að fljúga í gær, né landshlutafélögunum, Flugfélag- inu Erni á Isafirði, Flugfélagi Norðurlands á Akureyri og Flug- félagi Austurlands. JNNLENTV Krabbameinsfélagið kaupir hús á 12,4 milljónir: „Það er þjóðin sem á þetta hús“ — segir frkvstj. Krabbameinsfélagsins „ÞAÐ er þjóðin sem á þetta hús, það var keypt fyrir fé það sem safnaðist í landssöfnuninni í lok októbermánaðar,“ sagði Halldóra Thoroddsen framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins í samtali við Mbl. í gær. Félagið hefur fest kaup á húsinu númer 8 við Keykjanesbraut í Reykjavík. Var kaupverð þess 12,4 milljónir króna og útborgun 8 m. kr., en afgangurinn greiðist á 4 árum. Húsið er keypt af byggingar- aðilanum ístak hf., sem mun af- henda Krabbameinsfélaginu húsið í lok marsmánaðar. Húsið er keypt tilbúið undir tréverk og fullfrágengið að utan. Lóð verð- ur frágengin. Heildarflatarmál hússins er 2.640 fermetrar á fimm hæðum. Áætlað er að húsið muni kosta fullgert nokkru minna en það hús sem Krabbameinsfélag- ið hafði ráðgert að reisa við Hvassaleiti. Nú stendur yfir söfnun meðal fyrirtækja og fleiri aðila til að unnt verði að ljúka við Reykjanesbraut 8 sem fyrst, en stefnt er að því að eitthvað af starfsemi félagsins muni flytja inn í hið nýja hús- næði í lok þessa árs. Krabbameinsfélagið hefur forkaupsrétt að þeim hluta lóð- arinnar sem ekki hefur ennþá verið byggt á, og mun neyta þess réttar ef fjármagn verður fyrir hendi. Lista- og skemmtideild sjónvarps í fjárhagssvelti? Gert ráð fyrir 70% minna ráðstöfiinarfé milli ára — Barið á tilraunum sjónvarps til að vera gjaldgengur íslenzkur miðill, segir Hinrik Bjarnason RÁÐSTÖFUNARFÉ Lista- og skemmtideildar sjónvarpsins fyrir árió 1983 er áætluó 70% lægri en sl. ár miöað við skýrslu um fjárhag sjónvarps 1983 og yfirlit og skiptaáætlun fjármáladeildar Kíkisútvarpsins, sem lögð var fram á útvarpsráðsfundi í gær. Þetta þýðir að ekki er gert ráð fyrir neinu fjármagni fyrir LSD varðandi gerð skemmtiþátta, leikrita, áramót- askaups, til þátta eins og Stiklur, til kaupa á innlendu efni o.s.frv. Morgunblaöið hafði samband við Hinrik Bjarnason dagskrárstjóra Lista- og skcmmtideildar og innti hann álits á þessari áætlun, en Hinrik vísaði til bókunar sem hann lét gera á fundinum, en þar varar hann við þessari þróun og teiur að verið sé að berja niður tilraunir sjónvarps til þess að vera gjaldgengur miðill íslenzkrar menningar og lista. I áætlun fjármáladeildar er gert ráð fyrir 25 millj. kr. til ráðstöfunar fyrir beinan útlagð- an kostnað til dagskrárgerðar. Þar af er gert ráð fyrir 10,4 millj. kr. í innkaup á erlendu efni. Frétta- og fræðsludeild fær samkvæmt áætluninni 10,9 millj. kr. og þar af fara 6,2 millj. í fréttir, 3,6 millj. kr. í íþróttir og 1,1 millj. kr. í þætti eins og t.d. Á döfinni, Hugvekju, sjónvarp næstu viku, hátíðarmessur, Kastljós, innlenda umræðu- þætti, Þingsjá og Á hraðbergi. Lista- og skemmtideild fær alls, samkvæmt áætluninni, 2,4 millj. kr., sem er tveir þriðju hlutar af því sem íþróttum ein- um er áætlað, en í áætluninni til LSD er gert ráð fyrir þessum peningum til Stundarinnar okkar, Jólastundar, Gluggans og Skonrokks. Skiptingin er þá þannig að til kaupa á erlendu efni eru áætlað- ar 10,4 millj. kr., til FFD 10,9 millj. kr. og til LSD 2,4 millj. kr. Á fundi útvarpsráðs í gær kvaðst Hinrik Bjarnason að- spurður hafa gert eftirfarandi bókun vegna þessa máls: Bókun dagskrár- stjóra LSD Áætlun sú, dagsett 27.1. í ár, sem fjármáladeild Ríkisútvarps- ins hefur gert um dagskrá og fjárhag sjónvarps árið 1983, ger- ir ráð fyrir u.þ.b. 50% beinni lækkun á ráðstöfunarfé Lista- og skemmtideildar til innlendrar dagskrárgerðar samanborið við 1982. Miðað við spá forráða- manna Seðlabankans um verð- lagsþróun 1983 þýðir þetta, að ráðstöfunarfé til innlendrar dagskrár LSD í ár er að raun- gildi tæp 30% af áætluðu ráð- stöfunarfé 1982. Er þá í báðum tilvikum stuðst við áætlanir fjármáladeildar. Verði þróun mála með þessum hætti hvað varðar fjárveitingu til innlendrar dagskrárgerðar í þeim fjórum aðalflokkum, sem Lista- og skemmtideild er ætlað að sinna, er augljóst að hvergi verður um skaplegt magn fram- leiðslu að ræða, og í sumum efn- isflokkum verður hún fyrir- sjáanlega lítil eða alls engin. Ég vara við þessari þróun og tel að hér sé verið að berja niður tilraunir sjónvarps til þess að vera gjaldgengur miðill íslenskr- ar menningar og lista. Afleið- ingarnar eru ófyrirsjáanlegar og snerta bæði listgreinar, lista- menn og ekki síst allt annað fólk í landinu. En alvarlegastar verða þær fyrir Ríkisútvarpið sjálft. Prófkjör sjálfstæöis- manna á Reykjanesi: Framboðsfrest- ur rennur út á hádegi FRAMBOÐSFRESTUR til þátttöku í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjancskjördæmi, sem fram fer 26. og 27. febrúar nk. rennur út á hádegi. Albert K. Sanders bæjarstjóri Njarðvík, Gunnar G. Schram próf- essor Reykjavlk, Kristjana Milla Thorsteinsson viðskiptafræðingur Garðabæ sögðu, er Mbl. leitaði til þeirra í gær, að þau gæfu kost á sér í prófkjörinu. Mbl. hefur áður skýrt frá því að þingmenn kjör- dæmisins, þau Ólafur G. Einars- son, Matthías Á. Mathiesen og Salome Þorkelsdóttir, gefa kost á sér, einnig Ellert Eiríksson sveit- arstjóri Garði og Sigurgeir Sig- urðsson bæjarstjóri á Seltjarn- arnesi. JttorjjtmXiXnínfc VEGNA bilunar í prentvél Mbl. vcrður að takmarka stærð blaðs- ins við 40 síður f dag. Af þeim sökum hefur margvíslegt efni orðið að bíða birtingar og eru lesendur beðnir velviröingar á því.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.