Morgunblaðið - 05.02.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 1983
3
Vann tíu ára
gömul til verð-
launa í ljós-
myndasamkeppni
Félag áhugaljósmyndara heldur
Ijósmyndasýningu í Norræna
húsinu dagana 5.—13. febrúar.
A sýningunni veróa 124 myndir
frá höfundum bæöi innlendum
og erlendum, en sýningin er
haldin í tilefni 30 ára afmælis
félagsins, sem var stofnaö 6.
febrúar 1953. Yngsti þáttakand-
inn í þessari sýningu er 12 ára
gömul stúlka, Astrid Björk að
nafni, sem á þrjár myndir á sýn-
ingunni. Hún hefur þrátt fyrir
ungan aldur meöal annars af-
rekaö það aó vinna til verðlauna
fyrir Ijósmynd, en það var á ár-
inu 1980 í Ijósmyndasamkeppni
sem tímaritið Practical Photo-
graphy efndi til. Morgunblaðið
hafði tal af Astrid og spurði
hana útí feril hennar sem
myndasmiðs.
„Ég byrjaði að taka myndir
fyrir tveim til þremur árum
og hef gert talsvert af því síð-
an. Á þessari sýningu sem nú
er að opna á ég þrjár myndir.
Eina þeirra tók ég síðastliðið
sumar og tvær um sumarið
eða haustið þar áður. Þetta
eru allt saman svarthvítar
myndir. Ein er frá Arnar-
stapa, ein er af lóninu, sem er
á leiðinni inní Þórsmörk, ég
man ekki hvað það heitir í
Astrid Björk með verðlaunin í
Ijósmyndasamkeppninni.
MorgunblaAið/ Kmilía.
augnablikinu og sú þriðja er
af bílum á leið inní Þórs-
mörk,“ sagði Astrid.
Verðlaunamyndin.
Framkallarðu sjálf?
„Nei ekki ein, við pabbi
hjálpumst að við að fram-
kalla.“
Hvernig vél ertu með?
„Það er Yasica max gt, sem
ég hef átt í um tvö ár, en sjálf
vélin er gömul, svona 20—21
árs.“
Nú hefur þú unnið til verð-
launa fyrir ljósmynd áður,
ekki rétt?
„Jú, það var í Englandi fyrir
tveimur árum síðan í ljós-
myndasamkeppni fyrir börn.
Ég sendi inn þrjár myndir og
ég fékk verðlaun fyrir eina,
myndina sem tekin er við lón-
ið á leiðinni upp í Þórsmörk og
er ein myndanna minna á sýn-
ingunni. Ég fékk þriðju verð-
laun og verðlaunin voru
myndavél. Þá myndavél nota
ég meira innan dyra, því að
hún er með flassi."
Kom þér ekkert á óvart að
vinna til þessara verðlauna?
„Jú svolítið, ég er svo ný-
byrjuð að taka myndir."
Hvað finst þér erfiðast við
að taka myndir?
„Það er erfiðast að vita
hvernig maður á að lýsa
myndirnar og annað í tengsl-
um við það.“
Aðspurð hvort alltaf væri
jafn gaman að taka myndir,
kvað Astrid já við, en hún
hefði þó ekki hugsað sér að
leggja ljósmyndun fyrir sig
þrátt fyrir það, heldur vildi
hún hafa hana sem tóm-
stundagaman áfram.
Sýningin verður opin alla
daga frá 14.00—22.00, nema
opnunardaginn frá 16.00—
22.00.
A sjúkrahús með
slæma matareitrun
TVEIR .sjúklingar úr Húnavatnssýslu
hafa verið lagðir inn á sjúkrahús í
Reykajvík vegna gruns um alvarlega
matareitrun að sögn landlæknisem-
bættisins.
Er talið líklegt að hér sé um að
ræða Botulineitrun. Stafar hún af
sporamyndandi jarðvegsbakteriu,
('lostridium Botulinum, en þessa
bakteriu er að finna víða í jarðvegi
m.a. hérlendis. Bakterian framleiðir
eitur við sérstök skilyrði t.d. í súrefn-
issnauðu umhverfi en eitrið eyði-
leggst við 20 mínútna suðu.
Eitrið veldur lömun tauga, nánar
tiltekið tauga er stjórna augn-
hreyfingum, kyngingu, tali og önd-
un. Eitrun stafar oftast af neyslu
matvöru sem soðin er niður í
heimahúsum. Þó er rétt að geta
þess að oft reynist erfitt að finna
orsök eitrunar. í þessu tilviki sem
um ræðir beinist grunurinn ekki að
neinni einstakri tegund matvæla
en sýni hafa verið tekin á heimili
viðkomandi sjúklinga og þau send
erlendis til rannsóknar.
Botulineitrun var síðast greind
hér á landi 1981 en þá veiktust
fimm manns á sama heimili í
Skagafjarðarsýslu.
Friðrik Sóphusson Magnús L. Sveinsson Sigurður Óskarsson
Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins:
Kvöldráðstefna
um atvinnumál
VERKALÝÐSRÁÐ Sjálfstæðis-
flokksins heldur kvöldráðstefnu um
atvinnumál mánudaginn 7. febrúar í
Valhöll Háaleitisbraut 1 og hefst
hún kl. 20.30.
Á undanförnum vikum hefur at-
vinnuleysið stóraukist sérstaklega
í Reykjavík og á stór-Reykjavík-
ursvæðinu og er fjöldi atvinnu-
lausra nú meira en helmingi fleiri
en á sama tíma á undanförnum
árum og þarf að fara allt aftur til
áranna 1968 og 1969 til að finna
hærri tölur. Því er orðið tímabært
að spyrja Hvað er að gerst í
atvinnumálum?
Frummælendur á kvöldráð-
stefnunni um atvinnumál verða:
Friðrik Sóphusson, alþingismað-
ur, varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins og Magnús L. Sveinsson,
borgarfulltrúi, formaður atvinnu-
málanefndar Reykjavikurborgar.
Fundarstjóri verður: Sigurður
Óskarsson, formaður Verkalýðs-
ráðs Sjálfstæðisflokksins.
(Krá VorkalýAsráði.)
QpiÓ i dag til kl 4
SAAB- eigendur athugið,
tökum þann gamla upp í nýjan
-eða seljum hann fýrir þig
ef þú vilt heldur. Mikil
eftirspurn tryggir hagstæð skipti.
7ÖGGURHR
SAAB
UMBOÐtÐ
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMAR 81530-83104