Morgunblaðið - 22.02.1983, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1983
Tek að mér hlut-
verk, sé ég beðinn
— segir Ingólfur Guðnason alþingismaður
„ÉG HEF ekki nema lítið um það að segja. Það verður auðvitað fjöldi manna
sem ákveður skipan listans, ef af verður, en ég styð hann og ef ég verð
beðinn að taka að mér hlutverk, þá mun ég náttúrlega gera það,“ sagði
Ingólfur Guðnason alþingismaður, er Mbl. spurði hann, hvort hann hygðist
gefa kost á sér á sérstakan lista framsóknarmanna í Norðurlandi vestra, en
sérframboð er þar í undirbúningi og verður væntanlega tekin ákvörðun um
það á næstu dögum.
Framsóknarmenn úr hópi
þeirra sem gengu af fundi kjör-
dæmisþings, þegar gengið var frá
framboðslista flokksins nýverið,
komu saman sl. föstudag. Voru
fundarmenn 33 talsins. Flestir
fundarmanna voru úr Húna-
vatnssýslum, og lýstu Austur-
Húnvetningar sig tilbúna til fram-
boðsins. Vestur-Húnvetningar
funda annað kvöld og er endan-
legrar ákvörðunar að vænta eftir
þann fund. Undirbúningur fram-
boðsins er þegar hafinn.
Framboðið er gegn
Sjálfstæðisflokknum
— og mun berjast gegn því sem slíku,
segir Matthías Bjarnason
„ÉG lít á þetta framboð sem
framboð gegn Sjálfstæðisflokkn-
um og mun berjast gegn því, eins
og öðrum framboðum andstæð-
inga Sjálfstæðisflokksins," sagði
Matthías Bjarnason, efsti maður
á lista Sjálfstæðisflokksins í Vest-
fjarðarkjördæmi, aðspurður um
álit á fyrirhuguðu sérframboði
sjálfstæðismanna í kjördæminu.
Tveir
í gæsiu
TVEIR ungir menn, annar 16 ára
og hinn tvítugur, voru í gær úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald til 30.
mars vegna síbrota, samkvæmt
upplýsingum sem Mbl. fékk hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins í
gær.
Mennirnir voru staðnir að
verki í gærmorgun í innbroti
við Smiðshöfða, en þar höfðu
þeir farið inn á nokkrum stöð-
um. Þeir eiga sök á mörgum
innbrotum og skemmdarverk-
um, allt frá því í desember,
m.a. brutust þeir inn í Isbjörn-
inn nýlega og frömdu þar
skemmdarverk.
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son, annar maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins, sagði: „Ef
framboð þetta verður að veru-
leika hlýt ég að harma það af
því að því er stefnt gegn Sjálf-
stæðisflokknum. Hins vegar er
ég þess fullviss, að slíkir til-
burðir muni ekki veikja flokk-
inn á Vestfjörðum heldur verða
sjálfstæðismönnum þar öflug
hvatning til þeirrar baráttu,
sem mun tryggja sigur fram-
boðslista flokksins í næstu
Alþingiskosningum."
Sigurlaug Bjarnadóttir, sem
er aðalforsvarsmaður sérfram-
boðsins, sagði aðspurð um stöðu
mála: „Ekkert nýtt. Þetta bara
heldur áfram, við erum að
byggja upp skoðanakönnunina
okkar sem við ætlum að hafa.
Við stefnum á fyrstu helgina í
marz, 5. og 6. marz, þá erum við
að finna okkur trúnaðarmenn."
Annað vildi Sigurlaug ekki láta
hafa eftir sér um málið. Guð-
mundur Ingólfsson, bæjar-
fulltrúi á ísafirði, sem nefndur
hefur verið sem hugsanlegur
frambjóðandi á listann, vildi
ekki tjá sig um málið í gær-
kvöldi.
Slökkviliðsmenn aö störfum við ruslageymslu benzínstöðvarinnar við Nesveg. Ljósmynd Mbl. Emilía.
Eldur laus í ruslageymslu benzínstöðvar
ELDUR varð laus í ruslageymslu benzínstöðvar Esso við Nesveg í gærkvöldi og var allt slökkvilið Reykjavíkur
kallað út vegna mikillar sprengihættu í benzínstöðinni. Slökkviliðið náði þegar að slökkva eldinn, sem hafði
læst sig í þil yfir ruslatunnugeymslunni og m.a. kviknaði í viðarkolum inni í vörugeymslu benzínstöðvarinnar.
Allt fylltist af reyk í verzlun stöðvarinnar, en eldur komst aldrei nærri benzíngeymunum.
Bráðabirgðalögin enn ekki afgreidd frá Alþingi:
Veldur óvissu við
ákvörðim verðbóta
BRÁÐABIRGÐALÖG ríkisstjórnarinnar hafa enn ekki verið afgreidd frá
efri deild Alþingis. Því ríkir enn óvissa varðandi greiðslu verðbóta á laun 1.
marz, vegna deilna um skýringu á lögunum.
í bráðabirgðalögunum frá því í
ágúst á síðasta ári sagði, að
„vegna samdráttar þjóðartekna og
í þeim tilgangi að draga úr víxl-
gangi kaupgjalds og verðlags skal
frá 1. desember fella niður helm-
ing af þeirri verðbótahækkun
launa er ella hefði orðið."
Ýmsir vildu túlka þetta ákvæði
þannig, að helmings skerðing
verðbóta kæmi einnig til fram-
kvæmda 1. marz. f áliti Sigurðar
Líndal lagaprófessors, sem hann
greindi frá á fundi í fjárhags- og
viðskiptanefnd efri deildar lýsti
hann þeim skilningi, „að orðalag
ákvæðisins yrði ekki skilið á ann-
an veg en þann að verðbótahækk-
anir skertust sem þessu næmi öll
verðbótatímabil, sem lögin héldu
gildi. Öðrum kosti hefði verið
nauðsynlegt að kveða á um það
berum orðum til hvaða verðbóta-
tímabila lögin tækju."
Til að taka af öll tvímæli hvað
þetta atriði áhrærði flutti forsæt-
isráðherra og meirihluti fjárhags-
og viðskiptanefndar efri deildar
breytingartillögu, þar sem segir
að fyrrnefnd skerðing taki aðeins
til tímabilsins frá 1. desember
1982 til 28. febrúar 1983. Þessi
breytingartillaga hefur ekki hlotið
samþykki Alþingis frekar en önn-
ur ákvæði bráðabirgðalaganna.
Kauplagsnefnd kemur saman til
fundar í dag til að fjalla um vísi-
töluna og verðbætur á laun og er
búist við að fyrrnefnd atriði verði
meðal annars til umræðu á þeim
fundi.
Sr. Kristján
Bjarnason
látinn
SÉRA Kristján Bjarnason fyrrum
prestur að Reynivöllum í Kjós lést
að heimili sínu að morgni síðastlið-
ins sunnudags. Hann var 68 ára er
hann lést. Eftirlifandi kona hans er
Guðrún Guömundsdóttir og áttu þau
8 börn, sem öll eru á lífi.
Kristján var fæddur 25. júní ár-
ið 1914 að Brún á Stokkseyri, son-
ur Bjarna Benediktssonar sjó-
manns þar og Ólafíu Kristrúnar
Magnúsdóttur. Kristján lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1938. Sama ár lauk
hann sveinsprófi í múrsmíði.
Hann stundaði nám í reksturs-
hagfræði við Háskólann í Leipzig
veturinn 1938—1939 og lauk við-
skiptafræði frá Háskóla íslands
árið 1941. Kristján hóf síðan
guðfræðinám við Háskóla íslands
og lauk guðfræðiprófi árið 1947.
Hann var sóknarprestur í Sval-
barðsprestakalli 1947—1950 og sat
á Raufarhöfn. Frá 1. júní árið 1950
til ársins 1975 var Kristján sókn-
arprestur í Reynivallaprestakalli í
Kjós. Kristján gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir byggðar-
lagið, sat meðal annars í hrepps-
nefnd um tíma.
Albert Guðmundsson:
Skattalækkun til þeirra sem
láta af störfum sakir aldurs
Sr. Kristján Bjarnason.
Albert Guðmundsson og ellefu
aðrir alþingismenn úr öllum þing-
flokkum hafa lagt fram frumvarp til
laga um breytingar á lögum um
tekjuskatt. Gerir frumvarpið ráð
fyrir að skattframtalsskyldar tekjur
þeirra er látið hafa af störfum sakir
aldurs, skuli lækkaðar um helming.
Er þá átt við þær tekjur sem unnið
er fyrir næstu tólf mánuði áður en
viðkomandi lætur af störfum.
Frumvarpið er svohljóðandi:
„Tekjuskattsstofn manna, sem
Alþýðubandalagið á Norðurlandi vestra:
Ragnar í efsta sæti
RAGNAR Arnalds fjármálaráðherra verður í efsta sæti framboðshsta Al-
þýðubandalagsins á Norðurlandi vestra í næstu alþingiskosningum. Á fundi
kjördæmisráðs flokksins á Sauðárkróki um helgina var tekin ákvörðun um
skipan fjögurra efstu sætanna.
í öðru sæti verður Þórður
Skúlason sveitarstjóri á Hvamms-
tanga, Ingibjörg Hafstað í Vík í
Skagafirði verður í þriðja, og
Hannes Baldvinsson fram-
kvæmdastjóri á Siglufirði verður í
fjórða.
látið hafa af störfum sakir aldurs,
skal lækkaður um helming við út-
reikning skatts af tekjum sem þeir
hafa aflað síðustu tólf mánuði
starfstíma síns. Lög þessi öðlast
þegar gildi og skulu koma til
framkvæmda við álagningu tekju-
skatts á árinu 1983 af tekjum árs-
ins 1982.“
í greinargerð með frumvarpinu
segir meðal annars: „óþarfi hlýtur
að vera að tíunda þá erfiðleika,
sem oft blasa við þeim launþegum
sem láta af störfum vegna aldurs.
Breytingin hefur oft sálræn áhrif
sem seint verður bætt, því heilsan
er þar að veði. Því til viðbótar
bætast áhyggjur af greiðslu
opinberra gjalda sem koma með
ö
INNLENT
fullum þunga á fyrsta ári eftir að
starfsævi lýkur.
Þetta frumvarp er flutt til að
koma til móts við launþega, sem
þannig er ástatt fyrir, enda hafa
sömu aðilar greitt sína skatta og
gjöld á langri starfsævi.
Vilja ekki
áfengisútsölu
Á VEGUM Bæjarblaðsins á Eski-
firði var í síðustu viku gerð skoð-
anakönnun meðal bæjarbúa um
afstöðuna til opnunar áfengisút-
sölu á staönum. Mikill meirihluti
þáttakenda lýsti sig andvígan
áfengisútsölu á staðnum.
Að sögn Guðmundar Gísla-
sonar, ritstjóra Bæjarblaðsins,
voru 549 atkvæðaseðlar sendir
út og skilaði 321 seðill sér inn.
92 sögðu já eða 29% gildra at-
kvæða, 225 sögðu nei, eða 71%
af gildum atkvæðum. Fjórir
seðlar voru auðir.