Morgunblaðið - 22.02.1983, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1983
Peninga-
markadurinn
GENGISSKRANING
NR. 34 — 21. FEBRÚAR
1983
Kr. Kr.
Kaup Sala
Eining Kl. 09.15
1 Bandaríkjadollari
1 Sterlingspund
1 Kanadadollari
1 Dönsk króna
1 Norsk króna
1 Sænsk króna
1 Finnskt mark
1 Franskur franki
Belg. franki
Svissn. franki
Hollenzkt gyllini
1 V-þýzkt mark
1 ítölsk líra
1 Austurr. sch.
1 Portúg. escudo
1 Spánskur peseti
1 Japansktyen
1 írskt pund
(Sérstök
dráttarréttindi)
18/02
19,260 19,320
29,598 29,690
15,741 15,790
2,2773 2,2644
2,7317 2,7402
2,6158 2,6239
3,6115 3,6227
2,8384 2,8472
0,4090 0,4103
9,6699 9,7000
7,2880 7,3107
8,0535 8,0786
0,01396 0,01400
1,1461 1,1497
0,2105 0,2111
0,1502 0,1506
0,08285 0,08311
26,728 26,811
21,0828 21,1465
----------------------N
GENGISSKRÁNING
FERÐAMANNAGJALDEYRIS
21. FEBR. 1983
— TOLLGENGI f FEBR. —
Eining Kl. 09.15
1 Bandaríkjadollari
1 Sterlingspund
1 Kanadadollari
1 Dönsk króna
1 Norsk króna
1 Sænsk króna
1 Finnskt mark
1 Franskur franki
1 Belg. franki
1 Svissn. franki
1 Hollenzkt gyllini
1 V-þýzkt mark
1 ítölsk líra
1 Austurr. sch.
1 Portúg. escudo
1 Spánskur peseti
1 Japansktyen
1 írskt pund
Kr. Toll-
Sala gengi
21,252 18.790
32,659 28,899
17,369 15,202
2,5128 2,1955
3,0142 2,6305
2,8863 2,5344
3,9850 3,4816
3,1319 2,7252
0,4513 0,3938
10,6700 9,4452
8,0418 7,0217
8,8865 7,7230
0,01540 0,01341
1,2647 1,0998
0,2322 0,2031
0,1657 0,1456
0,09142 0,07943
29,492 25,691
Vextir: (ársvextir)
INNLÁNSVEXTIR:
1. Sparisjóðsbækur.................42,0%
2. Sparisjóðsreikningar, 3 mán.* a. b. c. d. * * * * * * * 1).45,0%
3. Sparisjóðsreikningar, 12. mán. 11... 47,0%
4. Verðtryggðir 3 mán. reikningar.. 0,0%
5. Verðtryggðir 12 mán. reikningar............................ 1,0%
6. Avísana-og hlaupareikningar................................ 27,0%
7. Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innstæður í dollurum.......... 8,0%
b. innstæður í sterlingspundum. 7,0%
c. innstæður í v-þýzkum mörkum ... 5,0%
d. innstæður i dönskum krónum.. 8,0%
1) Vextir færðir tvisvar á ári.
ÚTLÁNSVEXTIR:
(Verðbótaþáttur í sviga)
1. Vixlar, forvextir..... (32,5%) 38,0%
2. Hlaupareikningar ...... (34,0%) 39,0%
3. Afurðalan ............. (25,5%) 29,0%
4. Skuldabréf ............ (40,5%) 47,0%
5. Vísitölubundin skuldabréf:
a. Lánstími minnst 9 mán. 2,0%
b. Lánstími minnst 2% ár 2,5%
c. Lánstími minnst 5 ár 3,0%
6. Vanskilavextir á mán............5,0%
Lífeyrissjóðslán:
Lifeyrissjóður starfsmanna ríkisins:
Lánsupphaeð er nú 150 þúsund ný-
krónur og er lánið visitölubundiö meö
lánskjaravisitölu, en ársvextir eru 2%.
Lánstimi er allt að 25 ár, en getur veriö
skemmri, óski lántakandi þess, og eins
ef eign sú, sem veö er i er lítilfjörleg, þá
getur sjóðurinn stytt lánstímann.
Lífeyrissjóöur verzlunarmanna:
Lánsupphæð er nú eftir 3ja ára aöild aö
lífeyrissjóðnum 84.000 nýkrónur, en
fyrir hvern ársfjóröung umfram 3 ár
bætast viö lániö 7.000 nýkrónur, unz
sjóösfélagi hefur náö 5 ára aöild aö
sjóðnum. Á timabilinu frá 5 til 10 ára
sjóösaöild bætast við höfuöstól leyfi-
legrar lánsupphæöar 3.500 nýkrónur á
hverjum ársfjóröungi, en eftir 10 ára
sjóðsaðild er lánsupphæðin oröin
210.000 nýkrónur. Eftir 10 ára aöild
bætast viö 1.750 nýkrónur fyrir hvern
ársfjóröung sem liöur. Þvi er i raun ekk-
ert hámarkslán í sjóönum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur með
byggingavísitölu, en lánsupphæöin ber
2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 32 ár
aö vali lántakanda.
Lánskjaravísitala fyrir febrúar 1983
er 512 stig og er þá miöaö viö vísitöluna
100 1. júní 1979.
Byggingavísitala fyrir janúar er 1482
stig og er þá miöað viö 100 i október
1975.
Handhafaskuldabréf í fasteigna-
viöskiptum. Algengustu ársvextir eru nú
18—20%.
Ferdamál kl. 11.45:
Ferðaþjón-
usta bænda
Kirna G. Rjarnlrifsdóttir
Á dagskrá hljóðvarps kl. 11.45 er
þátturinn Feröamál. llmsjón: Bima
G. Bjarnleifsdóttir.
— Þátturinn snýst um ferða-
þjónustu bænda, sagði Birna. —
Ég ræði við Oddnýju Björgvins-
dóttur og hún segir frá þessari
starfsemi, hvernig hún hefur þró-
ast, hvers konar þjónustu bændur
bjóða ferðamönnum o.s.frv.
Ennfremur segir hún frá nám-
skeiði sem haldið var á Varma-
landi í Borgarfirði núna í byrjun
febrúar, fyrir bændakonur, til að
undirbúa þær undir að geta tekið
sómasamlega á móti ferðafólki.
Það eru núna um 30 sveitaheimili
sem hafa það að atvinnu að taka
á móti ferðamönnum og bjóða þá
gistingu og mat og útvega hesta í
sumum tilfellum eða veiði í ná-
lægri á eða vatni. Aðallega eru
það útlendingar sem hafa not-
fært sér þessa þjónustu, en að
sjálfsögðu stendur hún íslending-
um einnig til boða.
Kimi kl. 23.20:
„Maður eða Guð?w
Á dagskrá hljóðvarps kl. 23.20 er
þátlurinn Kimi, um götuna, drauminn
og sólina. Annar kafli: „Maður eða
Guð?“ llmsjónarmenn: Guðni Kúnar
og Haraldur Flosi.
Guðlaugur Ottarsson drengur.
— Við vörpum fram þessari
spurningu um manngildið og eigin-
leika mannsins, sagði Guðni Rúnar,
— um það hvers maðurinn sé megn-
ugur. Öðrum þræði snýst þátturinn
þó um Guðlaug Óttarsson, sem ræð-
ur aðallega ferðinni, gefur yfirlýs-
ingar, velur tónlist og segir frá
sjálfum sér, hvað hann er að gera.
Hann bendir á nýja heimsmynd,
nýjar lífsskoðanir; ekki til að sanna
yfirburði þeirra yfir ríkjandi lífs-
skoðunum; þessu er bara varpað
fram til umhugsunar. Þarna er ekki
verið. að vitna í nöfn, en samt er
langur slóði frægra andans manna
sem hafa sagt svipaða hluti. Angi af
þessu öllu er hljóðfæri sem Guð-
laugur hefur smíðað og kynnir
okkur í tali og tónum. Hann nefnir
það „Fourier," eftir frönskum
stærðfræðingi. Grunnhugmyndin á
bak við þetta byltingarkennda
hljóðfæri er í samræmi við heims-
mynd hans; fremur lifandi en vél-
rænt. Guðlaugur er 28 ára gamall og
starfar sem gítarleikari með
hljómsveitinni Þey, auk þess sem
hann hefur látið til sín taka í félags-
skap, sem nefnist Miðstöð mann-
legra möguleika.
„Áður fyrr á árunum“ kl. 10.30:
Ævispor
í álfum tveim
Á dagskrá hljóðvarps kl. 10.30 er
þátturinn „Áður fyrr á árunum".
llmsjón: Ágústa Björnsdóttir.
— Ágústu sagðist svo frá um
efni þáttarins: Sumarið 1902
fluttist Björg Snorradóttir frá
Geitafelli í S-Þingeyjarsýslu
vestur um haf með dætur sínar 5
og 2ja ára gamlar. Mann sinn
Bjarna Jónsson sem ættaður var
vestan frá Kirkjubóli í Múlasveit
hafði Björg þá misst fyrir þrem
árum. Þegar vestur kom settust
þær mæðgur fyrst að hjá fólki
heiman frá íslandi, ekki alllangt
frá þorpinu Baldur í Argyle-
byggð í Kanada. Ýmislegt dreif á
daga þeirra eftir að vestur kom,
en þrátt fyrir erfiðleika tókst
Björgu að koma dætrum sínum
til mennta og í þættinum í dag
verður aðallega sagt frá nokkrum
æviatriðum eldri dótturinnar Að-
albjargar Bjarnadóttur, en eins
og nafn frásagnarinnar gefur til
kynna má segja að ævispor Aðal-
bjargar deildust nokkuð jafnt
milli heimsálfanna tveggja sín
hvoru megin Atlantshafsins.
Ekki verða æviatriðin að neinu
rakin í þessari kynningu, en rétt
er að geta þess að um árabil eftir
1930 starfaði Aðalbjörg við mót-
Aðalbjörg Bjarnadóttir — Alla
Johnson. Myndin er frá þeim tíma
er Alla var blaðamaður við dagblað-
jð Winnipeg Free Press.
töku erlendra frétta fyrir ís-
lenska útvarpið og var hún hér
mörgum kunn undir hinu vestur-
íslenska nafni sínu Alla Johnson.
Brynhildur Bjarnadóttir ljósmóð-
ir á Húsavík, dóttir Aðalbjargar,
hefur tekið saman þessi minn-
ingabrot og flytur þau.
Svavar tlestsson
Svavar situr
fyrir svörum
Á dagskrá sjónvarps kl. er við-
ræðuþátturinn Á hraðbergi. Umsjón-
armenn: Halldór Halldórsson og
Ingvi Hrafn Jónsson.
— Það verður Svavar Gestsson,
heilbrigðis- og félagsmálaráðherra
og formaður Alþýðubandalagsins,
sem situr fyrir svörum hjá okkur
að þessu sinni, sagði Ingvi Hrafn.
— Það hafa verið miklar svipt-
ingar í kringum Alþýðubandalagið
í stjórninni og er ætlunin að víkja
að stjórnarsamstarfinu, álmálinu,
vísitölumálinu, komandi kosning-
um, skipulagsbreytingum í flokkn-
um o.fl.
L Úlvarp Reykjavlk
K _______________________________í_______________ __A
ÞRIÐJUDKGUR
22. febrúar
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Gull í mund. 7.25 Leikfimi. 7.55
Daglegt mál. Endurtekinn þátt-
ur Árna Böðvarssonar frá
kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Vedurfregnir.
Morgunorð: Séra Bjarni Sig-
urðsson lektor talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.).
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Vefurinn hennar Karlottu"
eftir E.B. White. Ragnar Þor-
steinsson þýddi. Geirlaug Þor-
valdsdóttir les (3).
9.20 Leikfimi. Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 „Áður fyrr á árunum.“
Ágústa Björnsdóttir sér um
þáttinn.
11.00 íslenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
11.30 Vinnuvernd. llmsjón: Vigfús
Geirdal.
11.45 Ferðamál. I'msjón: Birna G.
Bjarnleifsdóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar.
Þriðjudagssyrpa — Páll Þor-
SÍÐDEGIÐ
steinsson og Þorgeir Ástvalds-
son.
14.30 „Vegurinn að brúnni“ eftir
Stefán Jónsson. Þórhallur Sig-
urðsson les (7).
15.00 Miðdegistónleikar: Tónlist
eftir Felix Mendelssohn. Julius
Katchen leikur á píanó Rondó
capriccioso/ I Musici kammer-
flokkurinn leikur Oktett í Es-
dúr op. 20.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 Lagið mitt. Helga Þ. Steph-
ensen kynnir óskalög barna.
17.00 „SPIJTNIK“. Sitthvað úr
heimi vísindanna. Dr. Þór Jak-
obsson sér um þáttinn.
17.20 Sjóndeildarhringurinn. Um-
sjónarmaóur: Ólafur Torfason
(RÚVAK).
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
SKJÁNUM
ÞRIÐJUDAGUR
22. febrúar
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sögur úr Snæfjöllum
Barnamynd frá Tékkósióvakíu.
Þýðandi Jón Gunnarsson. Sögu-
maður Þórhallur Sigurðsson.
20.40 Líf og heilsa
Geðheilsa — Fyrri hluti
f þessum þætti verður fjallaö
um geðsjúkdóma og skilgrein-
ingu þeirra, tíðni, áhættuþætti
og fyrirbyggjandi aögerðir.
Rætt verður við sjúklinga og
vandamenn þeirra um fordóma
gagnvart geðsjúklingum.
Sérfræðilega aðstoð veittu
læknarnir Sigmundur Sigfússon
og Högni Ólafsson, auk fleiri
sem tengjast geðheilbrigðis-
þjónustu. Umsjón og stjórn:
Maríanna Friðjónsdóttir.
21.35 Útlegó
Sjötti þáttur. Hanns.
Þýskur framhaldsflokkur í sjö
þáttum. Þýðandi Veturliði
Guðnason.
22.30 Á hraðbergi
Viðræðuþáttur í umsjón Hall-
dórs llalldórssonar og Ingva
Hrafns Jónssonar.
23.25 Dagskrárlok j
KVÖLDID ____________
19.00 Kvöldfréttir.
19.45 Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Kvöldtónleikar.
a. Hátíðarpolonesa eftir Johan
Svendsen. Harmoniku-hljóm-
sveitin í Bergen leikur; Karsten
Anderscn stj.
b. Holberg svíta op. 40 eftir
Fdvard Grieg. kammersveit
Sibeliusartónlistarháskólans í
Helsinki leikur; Jorma Panula
stj.
c. Píanókvintett op. 5 eftir
('hristian Sinding. Eva Knar-
dahl og Arne Monn-Iversen
strengjakvartettinn leika.
d. Sinfónína nr. 4 í a-moll op.
63 eftir Jean Sibelius. Konung-
lega fílharmóníusveitin í Lund-
únum lcikur; Loris Tjeknavori-
an stj.
21.40 Útvarpssagan: „Sonur him-
ins og jarðar" eftir Káre Ilolt.
Sigurður Gunnarsson les þýð-
ingu sína (20).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Lest-
ur Passíusálma (20).
22.40 Áttu barn? 3. þáttur um upp-
eldismál í umsjá Andrésar
Ragnarssonar.
io.23.20 Kimi. Þáttur um göt-
una, drauminn og sólina. Annar
kafli: „Maður eða Guð“. Um-
sjónarmenn: Guðni Rúnar og
Haraldur Flosi.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.