Morgunblaðið - 22.02.1983, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1983
Dagatal
íylgiblaðanna
* ALLTAF Á ÞRIÐJUDÖGUM *
iþrqtia
ALLTAFÁ FIMMTUDÖGUM
Alltaf á föstudögum
ALLTAF A LAUGARDÖGUM
ALLTAF Á SUNNUDÖGUM
OG EFNISMEIRA BLAÐ!
Fimm sinnum í viku fylgir
auka fróóleikur og skemmtun
Mogganum þínum!
Fólk flýr meö aleigu sína frá þorpum í héraðinu Nelli í Assam á Indlandi þar sem fréttir herma aö 1.000
múhameðstrúarmenn hafi verið myrtir.
„Erum sem útlendingar
í okkar eigin landiu
— segir einn forsprakkanna að baki fjöldamorðunum í Assam-fylki á föstudag
Nýju Delhí, 21. febrúar. AP.
EKKI TÓKST að Ijúka blóðugustu kosningum í sögu Indlands í Assam-
fylki í gærkvöld. Aframhaldandi ókyrrð í 11 af 26 héruðum fylkisins
kom í veg fyrir að hægt væri að kjósa. Átti að reyna að Ijúka kosningun-
um í dag. Kjörsókn hefur almennt verið mjög léleg.
Ekki er enn vitað með vissu
hversu margir hafa látið lífið í
stöðugum erjum, sem geisað hafa í
héraðinu undanfarnar 3 vikur, en
talið er að heildartalan sé rétt
innan við eitt þúsund. Þetta eru
verstu óeirðir sem vitað er um í
Indlandi frá því 1947. Þá létu
hundruð þúsunda lífið í blóðugum
trúarflokkaátökum.
Talið er að á milli 500 og 600
manns hafi verið líflátnir í fjölda-
morðum í Nelli-héraði á föstudag.
Alls munu 17 þorp hafa orðið fyrir
barðinu á árásarmönnunum. Þar
var engu eirt, hvorki gamal-
mennum, konum né börnum, þeg-
ar árásarmenn úr trúarflokkum
hindúa réðust til atlögu gegn mú-
hammeðstrúarmönnum úr röðum
innflytjenda. Voru fórnarlömbin
höggvin í spað með frumstæðum
tólum og stóð atlagan yfir í átta
klukkustundir.
Undirrót morðöldunnar er sú,
að hinir innfæddu vilja að ein
milljón innflytjenda frá Bangla-
desh verði svipt kjörgengi og vísað
úr landi. Flestir þeirra eru mú-
hammeðstrúar. Innfæddir í Ass-
am, sem eru hindúatrúar, halda
því fram, að innflytjendurnir séu
að grafa undan þjóðfélaginu, jafnt
fjárhagslega sem menningarlega.
Ástæðan fyrir árásunum virðist
fyrst og fremst vera sú að hegna
fólkinu fyrir að ganga að kjör-
borði eða gera tilraun til að kjósa.
Komið hefur verið upp hjálpar-
miðstöðvum til að veita mörgum
þeim, sem lifðu árásirnar af, húsa-
skjól og öryggi gegn hugsanlegum
frekari árásum.
Fregnir af fjöldamorðunum
bárust fyrst þegar indverskum
fréttamanni tókst að komast inn í
héraðið, sem hefur verið lokað öll-
um fréttamönnum og ljósmyndur-
um. Sagðist hann hafa talið 253 lík
í 15 smáþorpum og taldi ekki
fjarri lagi að áætla að um 500
manns hefðu verið myrtir.
Fréttamaðurinn náði tali af ein-
um forsprakka árásarmannanna
og sagði hann, að ekki yrði staðar
numið fyrr en allir innflytjend-
urnir hefðu verið líflátnir. „Þetta
fólk hefur gert það að verkum, að
Arafat hylltur í
Þjóðarráði PLO
Vill vinna friðarleið í Mið-Austurlöndum
Algeirsborg, 21. rebrúar. Al\
YASSER Arafat leiðtogi PLO var
klappað óspart lof í lófa á þingi Pal-
estínumanna í dag, er hann flutti
áhrifamikia ræðu til stuðnings þeirri
viðleitni að finna friðarsamkomulag
fyrir löndin fyrir botni Miðjarðar-
hafsins. Arafat flutti einnig ávarp á
fundi þjóðarráðs Palestínumanna,
en sá fundur fór fram fyrir luktum
dyrum. Haft var þó eftir fulltrúum í
ráðinu, að hann hefði virt að vettugi
gagnrýni harðlínumanna á friðar-
stefnu hans, en þessi gagnrýni hefur
verið hávær á fundi ráðsins, sem
staðið hefur yfir í viku. Arafat gagn-
rýndi þó óbeint harðlínumenn fyrir
að hafa valdið innrás ísraelsmanna f
Líbanon og þannig verið valdir að
brottrekstri PLO frá Beirút.
Arafat minnti á toppfund
Arabaríkjanna í Fez í Marokkó,
sem farið hefði út um þúfur á ár-
inu 1981 vegna andstöðu Sýrlend-
inga við allar hugmyndir um frið
við ísrael. „Við máttum greiða
dýru verði fyrir að fyrsti topp-
fundurinn í Fez varð árangurs-
laus. Það gjald var líf 70.000 pal-
estínskra píslarvotta, sem drepnir
voru í innrás ísraelsmanna í Líb-
anon,“ sagði Arafat.
Fundinum í Fez var haldið
áfram í september sl. og þar var
samþykkt friðaráætlun, sem í
fyrsta sinn gerir ráð fyrir gagn-
kvæmri viðurkenningu og frið-
samlegri sambúð milli ísraels og
Arabaríkjanna. Jafnframt er þar
gert ráð fyrir sjálfstæðu ríki Pal-
estínumanna, sem nái yfir vestur-
hluta Jórdans, Gaza og austur-
hluta Jerúsalems.
við erum sem útlendingar í okkar
eigin landi," sagði hann.
Indira Gandhi, forsætisráð-
herra, fór í dag í eins dags heim-
sókn til Assam til að kynna sér
hörmungarástandið í héraðinu.
Hún hefur sætt harðri gagnrýni
fyrir að efna til kosninga í hérað-
inu á svo viðkvæmnum tímum.
Hefur jafnvel verið haft á orði, að
kosningarnar séu hin eiginlega
undirrót fjöldamorðanna. Án til-
komu þeirra hefðu þessir voðaat-
burðir aldrei gerst.
Veður
víða um heim
Akureyrí 5 skýjað
Ameterdam 5 skýjað
Aþena +2 heiðskírt
Barcelona 12 þokumóða
Berlín 0 skýjað
Brilssel 5 akýjað
Chicago 16 skýjað
Dublin 4 heiöskírt
Feneyjar 6 þokumóða
Frankfurt 1 léttskýjaö
Færeyjar 4 skýjað
Genl 3 heiðakírt
Helsinki 0 heiðskírt
Hong Kong 12 skýjaö
Jerúsalem 5 rigning
Jóhannesarborg 28 heiðakirt
Kaupmannahöfn 2 heiöskírt
Kairó 15 heiðskírt
Las Palmas 19 skýjað
Lissabon 16 rigning
London 6 skýjað
Los Angeles 27 heiöskirt
Madríd 13 rigning
Mallorca 13 skýjað
Malaga 13 þokumóða
Mexikóborg 23 heiðakírt
Miami 22 heiðskírt
Moakva +3 skýjað
Nýja Delhí 25 heiðskírt
New York 9 heiðekírt
Osló 0 heiðskírt
París 6 heióskírt
Peking 2 heíöskírt
Perth 28 heiðskirt
Reykjavík 5 skýjaó
Rio de Janeiro 38 heiðskirt
Rómaborg 11 rigning
San Francisco 18 heiðskfrt
Stokkhólmur +2 heiðskírt
Sydney 25 rigning
Tel Aviv 12 rigning
Tókýó 9 heiðskfrt
Vancouver 13 skýjaö
Vínarborg 2 skýjað