Morgunblaðið - 22.02.1983, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1983
27
• Sigursveit Menntaskólans á Akureyrí í göngu á móti framhaldsskóla
sem fram fór í Hveradölum. Sveitina skipuöu Axel Ásgeirsson, Sigurö-
ur Sigurgeirsson og Þorvaldur Jónsson.
Háskólinn sigraði
í svigkeppninni
SKÍÐAMÓT framhaldsskólanna
fór fram í Hveradölum í síöustu
viku. Fimm skólar kepptu í svig-
keppninni en í henni bar Háskól-
inn sigur úr býtum. Sigursveit
skólans skipuöu þeir Einar
Ólafsson, Kristinn Sigurðsson,
Trausti Sigurðsson og Jónas
Ólafsson. Tími sveitarinnar var
96,3 sek. Menntaskólinn vió Sund
varö í ööru sæti á 107,2 sek.
í göngukeppninni sigraöi
Menntaskólinn á Akureyri, gekk á
107,2 sek. Sigursveitina skipuðu
Axel Ásgeirsson, Siguröur Sigur-
geirsson og Þorvaldur Jónsson. f
öðru sæti varð íþróttakennara-
skólinn á Laugarvatni. — ÞR.
Þórsarar unnu
í öllum flokkum
SÍÐUSTU leikirnir í Noröur-
landsriöli í handknattleik fóru
fram um heigina. Þór Akureyri
varö sigurvegari í öllum flokkum.
Úrslit síöustu leikja í riölinum
uröu þessi:
3. fl. karla Þór — KA 10—9
4. fl. karla KA — Þór 5—11
5. fl. karla KA — Þór 4—8
5. fl. karla KA — Dalvik 10—6
5. fl. karla Þór — Dalvík 10—6
5. fl. karla KA — Dalvík 4—7
5. fl. karla Þór — Dalvík 15—2
3. fl. kv. Þór — Völsungur 6—2
2. fl. kv. Þór — Völsungur 16—3
Lokastaðan í riðlinum varö
þessi:
3. fl. karla:
Þór 10 stig, KA 8 stig, Völsungur 0
stig
4. fl. karla:
Þór 5 stig, KA 1 stig.
5. fl. karla:
Þór 12 stig, KA 4 stig, Dalvík 2
stig.
3. fl. kvenna:
Þór 6 stig, Völsungur 0 stig.
2. fl. kvenna:
Þór 6 stig, Völsungur 0 stig.
AS
Júdómót á Akureyri
JÚDÓRÁÐ Akureyrar hélt opiö
mót í júdó sl. laugardag á Akur-
eyrí. Keppendur voru 40, þar af 27
frá Reykjavík og Keflavík. Margir
af bestu júdómönnum landsins
voru meðal keppenda. Mótsstjóri
var Þorsteinn Hjaltason og fór
mótíð mjög vel fram.
Úrslit urðu þessi:
Kvennaflokkur:
1. Margrét Þráinsdóttir Ármanni
2. Lisbet Birgite ÍBA
3. Eygló Siguröard. Ármanni
3 kyu og yfir + 78 kg:
1. Bjarni Friöriksson Ármanni
2. Kolbeinn Gíslason Ármanni
3. Siguröur Hauksson UMFK
3 kyu og yfir + 71 kg:
1. Halldór Guðbjörnsson JFR
2. Sigurbjörn Sigurösson UMFK
3. Broddi Magnússon ÍBA
Unglingaflokkur:
1. Magni Hauksson ÍBA
2. Friöbjörn Benediktsson ÍBA
3. Ástvaldur Sigurbergss. Ármanni
4 kyu + 78 kg:
1. Sævar Kristjánsson Gerplu
2. Árni Ingólfsson ÍBA
3. _4. Magnús Skúlason Ármanni
3.-4. Geir Karlsson UMFK
+78 kg:
1. Runólfur Gunnlaugss. Ármanni
2. Kristján Þorkelsson ÍBA
3. Kristján Kristjánsson Ármanni
3 kyu + 78 kg:
1. Ómar Sigurösson UMFK
2. Gísli Wíum Ármanni
3. —4. Magnús Hauksson UMFK
3.-4. Níels Hermannss. Ármanni
AS
ÍR-ingar sigruðu Valsmenn
í frábærum körfuboltaleik
„ÞETTA var hreint frábær leikur, og mér líöur alveg stórkostlega vel.“
Þetta voru orð Jim Dooley eftir leik liös hans ÍR gegn Val á sunnu-
dagskvöldió í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, og getur víst enginn láó
honum þau, þar sem ÍR sigraöi sanngjarnt meö 81 stigi gegn 78.
„Reyndar brotnuóum við niður á köflum en bættum þaö vel upp
þessá milli og gerðum minni mistök en þeir. Þetta var afar mikilvægur
sigur, en næstu leikir verða erfiöir," sagöi Dooley ennfremur. Leikur
þessi var bráðskemmtilegur á að horfa og bauð upp á mikla spennu,
enda mikiö í húfi fyrir bæöi liðin, en auöséö er að IR er að sækja í sig
veðrið svo um munar og leikur betur meö hverjum leik.“
IR-Valur
81:78
Þaö var Hreinn Þorkelsson sem
gaf ÍR-ingum tóninn meö fjórum
körfum í röö og fyrr en varöi var
staöan oröin 10—2 þeim í vil.
Valsmenn fóru þá aö taka viö sér
og undir miöjan fyrri hálfleik náöu
þeir aö jafna og skömmu síöar
kom Tim Dwyer þeim yfir, 20—18.
Þá voru þaö ÍR-ingar sem sögöu
hingaö og ekki lengra meö þá Pét-
ur Guömundsson og Kristin Jör-
undsson í fararbroddi, náöu for-
ystunni aftur sem þeir hóldu út all-
an fyrri hálfleikinn, en staöan í
hálfleik var 44—35 ÍR í vil.
Bæði liöin mættu ákveöin til
seinni hálfleiksins, og þó einkum
Valsarar sem tóku aö saxa litillega
á forskotiö, en alltaf vantaöi
herslumuninn, en einnig settu
slæm mistök strik í reikninginn.
Þaö var einu sinni í seinni hálf-
leiknum sem forysta ÍR-inga var
fallvölt, þegar 9 mínútur voru eftir
og staöan 62—61, en þá voru
Torfi í Val og Hreinn i ÍR nýfarnir
útaf meö 5 villur hvor. Meö góöum
spretti, og smáhjálp dómaranna
náöu ÍR-ingar góöri forystu aftur
og þegar 3 mínútur voru eftir var
staöan 77—69. Tveimur mínútum
seinna höföu ÍR-ingar 10 stiga for-
skot, 81—71. Þar meö voru ÍR-
ingar sprungnir og Valsmenn skor-
uöu 7 stig í röö, en allt kom fyrir
ekki, leiktíma var lokið áöur en
þeir gátu svaraö betur fyrir sig, og
úrslitin því 81—78.
Hjá ÍR voru Kristinn, Pétur og
Hreinn mjög góöir, Pétur hirti
fjöldann allan af fráköstum og
Kristinn og Hreinn skoruðu mikið
og á mikilvægum augnablikum, þó
einkum sá fyrrnefndi.
Ríkharður og Dwyer voru lang-
bestir í liöi Vals, hittni Ríkharös var
oft á tíöum meö ólíkindum og allt
mjög fallegar körfur. Tim Dwyer
mátti sín ekki mikils í fráköstunum
gegn Pétri, en baröist samt vel og
skoraði mikiö.
Góður árangur
í frjálsum
Tvö vestur-þýsk met í frjálsum
iþróttum innanhúss voru sett í
Dortmund í tandskeppni Vestur-
Þýskalands og Bretlands um
helgina. Þjóöverjarnir sigruöu í
landskeppninni — karlarnir með
86 stigum gegn 52 og konurnar
meö 76,5 gegn 40,5.
Gerhardt Schmidt setti v-þýskt
met í stangarstökki, stökk 5.55
metra, og hitt metiö setti Christian
Haas er hann hljóp 50 metra á
5.75 sek.
Metið í 50 m. hiaupinu haföi
staöið síöan 1971 er Jobst Hirscht
fór á 5.79 sek. Larry Christie,
Bretlandi, hljóp einnig hraðar en
gamla þýska metiö, fór á 5.76 sek.,
en átti ekki möguleika á aö ná
Haas.
Carlo Thraenhardt frá Köln
stökk 2.32 metra í hástökki, sem
er besti árangur í heiminum í ár.
Gerd Nagel V-Þýskalandi og
Bandaríkjamöurinn Jerome Chart-
er höfðu báöir stokkiö 2.31 í ár.
Hin 18 ára gamla Ulrike Denk
hljóp 60 m. grindahlaup á 8.06
sek. á sama móti og jafnaöi þar
meö þýska metiö sem landi hennar
Silvia Kempin setti fyrir fimm ár-
um.
Stig ÍR: Kristinn Jörundsson 23,
Hreinn Þorkelsson 18, Pétur Guö-
mundsson 16, Gylfi Þorkelsson 10,
Jón Jörundsson 8 og Kolbeinn
Kristinsson 6.
Stig Vals: Tim Dwyer 27, Rík-
haröur Hrafnkelsson 19, Kristján
Ágústsson 16, Jón Steingrímsson
og Torfi Magnússon 6 hvor og
Leifur Gústafsson 4.
Stjörnur:
ÍR:
Kristinn Jörundsson ★ ★
Pétur Guömundsson ★ ★
Hreinn Þorkelsson ★ ★
VALUR:
Ríkharður Hrafnkelsson ★ ★★
Kristján Ágústsson ★ ★
Jón Steingrímsson ★
BJ.
• Kristinn Jörundsson sýndi i loiknum gegn Val að hann er ekki
dauöur úr öllum æöum. Hann lék mjög vel og skoraði grimmt fyrir liö
sitt.
11 Rússar yfir
17 m í þrístökki
SOVÉTMENN hafa löngum átt
góða þrístökkvara og getur eng-
inn þjóð státaö af jafnmikilli
breidd í einni grein frjálsíþrótta,
nema kannski aö undanskildum
spretthlaupunum í Bandaríkjun-
um.
í fyrra stukku 17 menn í heim-
inum yfir 17 metra í þrístökki, þar
af 11 Sovétmenn. Áriö 1981
stukku 16 menn yfir 17 metra og
voru þá aöeins fimm þeirra frá
Sovétríkjunum.
Þrátt fyrir þessa miklu breidd
Sovétmanna var þeirra bezti maö-
ur, Gennadij Valjukevitj, aöeins í
þriðja sæti á heimsskránni meö
17,42 metra. Beztur var Bretinn
Keith Connors meö 17,57 metra
og í öðru sæti Ástralíumaöurinn
Ken Lorraway meö 17,46 metra.
Fjóröi á skránni er Aleksánder
Beskrovnij Sovétríkjunum meö
17,37, fimmti Willie Banks Banda-
ríkjunum meö 17,36 og sjötti
Sovétmaðurinn Vasilij Gritjenkov
meö 17,26 metra.
Noröurlandametiö í þrístökki á
Finninn Pertti Pousi, sem stökk 17
metra slétta áriö 1968. Vilhjálmur
Einarsson ÍR stökk á sínum tíma
16,70 metra, sem jafngilti þágild-
andi heimsmeti.