Morgunblaðið - 22.02.1983, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1983
Pálmi Jónsson landbúnaöarráðherra flytur ávarp við setningu Búnaðarþings 1983.
(Morgunblaðið/RAX.)
Búnaðarþing 1983:
„Mestar áhyggjur af
misjafnri afkomu bænda“
— sagði Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra við setningu þingsins
65. BÚNAÐARÞING var sett í gærmorgun. Ásgeir Bjarnason formaður
Búnaðarfélags íslands setti þingið. Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra
ávarpaði síðan þingið. Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands var viðstödd
setninguna, auk búnaðarþingsfulltrúa og gesta.
í upphafi setningarræðu sinn-
ar minntist Ásgeir Bjarnason
þriggja manna, dr. Kristjáns
Eldjárn, fyrrverandi forseta ís-
lands, Guðmundar Jósafatsson-
ar frá Brandsstöðum og Helga
Kristjánssonar bónda í Leirhöfn.
Ásgeir sagði m.a. í ræðu sinni
að síðustu ár hefðu ekki verið
bændum hagstæð og hefðu
margir bændur safnað skuldum
óeðlilega mikið. Sérstaklega
hefði sauðfjárræktin borið
skarðan hlut frá borði en mjólk-
urframleiðendur hefðu mun
betri afkomu. Ásgeir sagði að af-
koman væri mismunandi eftir
héruðum og kæmi slæm staða
bænda m.a. fram í meiri vanskil-
um við stofnlanadeild landbún-
aðarins. Heildarinnheimta
deildarinnar hefði verið 7% lak-
ari í fyrra en árið 1981.
Hann sagði að verðmæti land-
búnaðarframleiðslunnar í fyrra
hefði verið 3,1 milljarður króna
og spurði: „Hvar gætum við tek-
ið gjaldeyri til að kaupa þessar
vörur ef landbúnaðurinn legðist
af? Landbúnaðurinn hefur miklu
hlutverki að gegna fyrir íslensku
þjóðina og fyrst og fremst sem
gjaldeyrissparandi atvinna."
Ásgeir sagði að hvert ársverk í
loðdýrarækt skilaði meiri gjald-
eyri en ársverk í sjávarútvegi til
dæmis. Árið 1982 hafi landbún-
aðarafurðir verið fluttar út fyrir
577,4 milljónir króna, þar af
væru ullarvörur fluttar út fyrir
363 milljónir og væri það um 50
milljónum meira en verðmæti
útflutts kísilgúrs og kísiljárns
samanlagt.
Ásgeir Bjarnason sagði að lok-
um, að áfram yrði að leita að
nýjum leiðum og hægræða hlut-
unum í Iandbúnaði þar sem
aukning framleiðslu í hinum
hefðbundnu búgreinum væri
ekki lausn til að auka tekjur
bænda við núverandi aðstæður.
Pálmi Jónsson landbúnaðar-
ráðherra sagði m.a. í ávarpi sínu
að sú vinna sem nú væri unnin í
markaðsmálum landbúnaðarins
þyrfti að halda áfram af fullum
þrótti. Hann sagði að ljóst væri
að breyta þyrfti um vinnuaðferð-
ir í sambandi við útflutning á
kindakjöti. Frá því að flytja
kjötið út í heilum skrokkum í
grisjupokum til þess að flytja
það út skykkjað, niðursagað eða
unnið í umbúðum sem í raun
hæfa matvælum. Hann sagði frá
reynslu Ný-Sjálendinga þess
efnis, að kjötið tapaði þunga við
geymslu í grisjupokum en ekki,
sé það geymt í plastumbúðum.
Miðað við ákveðnar forsendur
þýddi það að 400 tonn af kjöti
færu til spillis hjá Islendingum
að verðmæti 30 milljóna króna á
núverandi heildsöluverði.
Pálmi sagði að hann hefði
hafnað því að gera stórfellda
fækkun sauðfjár að opinberri
stefnu og væri hann enn sömu
skoðunar. Vildi hann láta enn
frekar reyna á markaðsmögu-
leika erlendis og sagði að fram-
leiðslan í hefðbundnum búgrein-
um mætti ekki dragast meira
saman er orðið væri fyrr en nýj-
ar búgreinar eða aðrar tekjuöfl-
unarleiðir væru komnar í stað-
inn. f þeim héruðum, sem sam-
drátturinn hefði orðið mestur,
sagðist hann telja að verulega
sjái á fjárhagsafkomu bænda-
stéttarinnar og þar með öryggi
byggðarinnar.
Landbúnaðarráðherra skýrði
frá skipun nefndar sem hefði
það að verkefni að endurskoða
kvótakerfið og kanna hvort ekki
væri réttara að skipta landinu
upp í framleiðslusvæði, sem
hvert um sig hafi rétt á- fullu
verði fyrir tiltekið framleiðslu-
magn mjólkur- og sauðfjáraf-
urða. Með þessum hætti mætti
draga úr afskiptum af athafna-
semi einstakra bænda, en jafn-
framt að leitast við að verja þau
framleiðslusvæði sem veikari
eru og forðast miklar sveiflur í
aukningu eða samdrætti fram-
leiðslu eftir landssvæðum.
Ráðherra ræddi málefni
Áburðarverksmiðju ríkisins.
Kom fram að stjórn verksmiðj-
unnar telur að áburðarverð þurfi
að hækka um allt að 120% á vori
komanda ef ekki koma til aðrar
aðgerðir. Skýrði hann frá þeim
úrræðum sem nú væri unnið að í
samráði við stjórnendur verk-
smiðjunnar. Sagði hann þau
nauðsynleg til að bæta hag verk-
smiðjunnar og forðast það að
verð á áburði þurfi að hækka
umfram aðrar verðlagshækkanir
á þessu ári. Kæmi til þessarar
miklu verðhækkunar á áburði
hefði það miklar afleiðingar í för
með sér fyrir landbúnaðinn og
þjóðfélagið.
Pálmi Jónsson landbúnaðar-
ráðherra sagði einnig: „Við upp-
haf þessa Búnaðarþings hef ég
mestar áhyggjur af misjafnri af-
komu bænda. Þau mál eru í at-
hugun. Á hinn bóginn búum við
ekki lengur við framleiðslu-
vandamál, þannig að um offram-
leiðslu sé að ræða. Ég vara við
meiri samdrætti í búvörufram-
leiðslu bænda, en hvet til auk-
innar hagkvæmni og að lögð
verði rækt við aukna arðsemi
búfjárins."
Búnaðarþing sitja 25 full-
trúar, frá öllum búnaðarsam-
böndum landsins. Þetta er fyrsta
þingið á nýbyrjuðu fjögurra ára
kjörtímabili búnaðarþings-
fulltrúanna, og eru fimm full-
trúar í hópnum sem aldrei hafa
setið búnaðarþing áður. Búist er
við að þingið standi a.m.k. í 10
daga og í lok þingsins verður
kosin stjórn Búnaðarfélags ís-
lands til fjögurra ára. Síðdegis í
gær voru lögð um 20 mál fyrir
þingið auk þess sem Jónas Jóns-
son búnaðarmálastjóri greindi
frá framkvæmd ályktana síðasta
búnaðarþings.
„Gamlar stjörnuru troða
upp á rokkhátíð í Broadway
Fiðringur ætti að fara um marga
gamla rokkunnendur þann 4. mars.
Ákveðið hefur verið að efna til rokk-
hátíðar í veitingahúsinu Broadway
það kvöld og koma þar fram fjölda-
margir, sem gerðu garðinn frægan
hér á árum áður. Margir þeirra, sem
fram koma, hafa ekki verið í sviðs-
Ijósinu í áraraðir.
Björgvin Halldórsson hefur lagt
mikið á sig við að draga margar af
„gömlu" stjörnunum fram í sviðs-
ljósið á ný og þeir sem fram koma
eru: Harald G. Haralds, Guðbergur
Auðunsson, Þorsteinn Eggertsson,
Astrid Jensen, Berti Möller, Anna
Vilhjálms, Mjöll Hólm, Sigurdór
Sigurdórsson, Garðar Guðmunds-
son, Stefán Jónsson, Einar Júlíus-
son og Sigurður Johnny.
Allt eru þetta vel þekktir söngv-
arar og er ekki að efa að marga
fýsir að rifja upp gömul kynni með
þeim.
Sextett Björgvins Halldórssonar
Ieikur undir hjá þessum gömlu
rokkurum, en sveit hans skipa þeir
Björn Thoroddsen, Hjörtur Hows-
er, Rafn Jónsson, Pétur Hjaltested
og Haraldur Þorsteinsson. Auk
þeirra koma þeir Rúnar Georgsson
og Þorleifur Gíslason, saxistar,
fram með hljómsveit Björgvins
þetta kvöld.
Samþykkt Fræðsluráðs Reykjavíkur:
Ný úttekt á lyftu-
málum Hlíðaskóla
— aukin fjölbreytni í lyftum við sérstakar aðstæður
LYFTUAÐSTAÐA fyrir 18 hreyfihömluð börn í Hlíðaskóla hefur verið bar-
áttumál í Hlíðaskólanum í Reykjavík um árabil, en Morgunblaðiö fjallaði um
máliö fyrir skömmu og birti myndir af börnum sem veröa að skríða á milli
hæða í skólanum. Fræðsluráð Reykjavíkur samþykkti á árinu 1981 að setja
upp tvær lyftur í skólanum, en þar sem öryggiseftirlitið samþykkti ekki nema
mjög dýrar lyftur féll málið niður. Fræðsluráð Reykjavíkur tók málið aftur
upp á fundi sínum í gær og samkvæmt upplýsingum Markúsar Arnar Ant-
onssonar, formanns Fræðsluráðs, var samþykkt á fundi ráðsins að láta gera
nýja úttekt á lyftumálinu og gera kostnaðaráætlun hið bráðasta um lyftubún-
að sem öryggiseftirlitið samþykkir.
Markús sagði að á fundi Fræðslu-
ráðs hefði staða sérdeilda við skóla
í borginni verið til umræðu og m.a.
hefði byggingardeild Seljaskóla
verð með fyrirspurn um fyrirhuguð
áform vegna sérdeilda við skólann,
m.a. fyrir fjölfötluð börn. Kvað
Markús Örn Fræðsluráð hafa sam-
þykkt að gera ráð fyrir því að sér-
deild fyrir fjölfötluð börn fengi að-
stöðu í væntanlegu viðbótarhús-
næði við Seljaskóla. Mun Fræðslu-
stjóri Reykjavíkur ræða það mál
við aðila í menntamálaráðuneytinu.
Þá var einnig samþykkt að kanna
hvort deild blindra barna í Laug-
arnesskóla geti fengið betri aðstöðu
í Álftamýrarskóla þar sem nemend-
ur geta lokið grunnskólanámi, en
þröngt mun orðið um deildina í
Laugarnesskóla.
Á síðari árum hefur ör þróun átt
sér stað í lyftubúnaði við sérstakar
aðstæður, m.a. þar sem ekki hefur
sérstaklega verið gert ráð fyrir
lyftubúnaði í byggingum og hefur
slíkum lyftum verið komið fyrir á
allmörgum stöðum á landinu.
Morgunblaðið lét mynda mismun-
andi lyftur af einfaldri gerð á bæj-
arskrifstofum Kópavogs, íþrótta-
húsinu í Hafnarfirði og í Valhúsa-
skóla á Seltjarnarnesi, en þar er ein
hreyfihömluð stúlka við nám.
Skólanefnd Seltjarnarness kannaði
möguleika á einfaldri lyftu fyrir
nemandann og bæjarstjórinn sam-
þykkti framkvæmdina. Um er að
ræða stigalyftu með sæti, en einnig
kom til greina svipuð lyfta gerð
fyrir hjólastól einnig frá lyftudeild
Vélsmiðjunnar Héðins, en lyfturnar
í Kópavogi og Hafnarfirði eru
danskar og þýzkar.
Stigalyfta fyrir hjólastól. Þá
lyftu má setja í alla beina stiga. Um
er að ræða pall sem er nægilega
stór fyrir hjólastól og liggur á gólf-
inu fyrir framan stigann. Hægt er
að stjórna pallinum bæði af pallin-
um sjálfum svo og frá efri og neðri
hæð eftir þörfum. Pallurinn fellur
uppað veggnum þegar hann er ekki
í notkun.
Stigalyfta með sæti. Þá lyftu er
hægt að setja í allar gerðir af stig-
um bæði beina, bogna og pallastiga.
Um er að ræða sæti sem fer eftir
sérstakri braut. Sú lausn er senni-
lega ódýrasta lausnin fyrir alla sem
eiga erfitt með að ganga stiga.
Ljósmynd Mbl. RÁX.
Einar Ólafsson, húsvörður í íþróttahúsinu í Hafnarfirði, sýnir hvernig stóla-
lyftan er notuð, en bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað að tilhlutan byggingar-
nefndar að kaupa lyftuna, sem kostaði liðlega 150 þúsund kr. uppkomin.
Sauðárkrókur:
Jóni Björnssyni tónskáldi
haldinn afmælisfagnaður
Sauðárkróki, 18. febrúar.
MIÐVIKUDAGINN 23. febrúar
næstkomandi verður að tilhlutan
Sauðárkrókssafnaðar haldin sam-
koma í Safnahúsi Skagfirðinga á
Sauðárkróki til heiðurs Jóni Björns-
syni, tónskáldi frá Hafsteinsstöó-
um, en þann dag á hann 80 ára
afmæli.
Jón hefur verið organisti og
söngstjóri við Sauðárkrókskirkju í
rúman áratug, en áður var hann
stjórnandi karlakórsins Heimis í
Skagafirði í um 40 ára skeið. Jón
er afkastamikið tónskáld og hafa
tónsmíðar hans komið út í nokkr-
um heftum á undanförnum árum.
Samkoman í Safnahúsinu hefst
klukkan 21. Þar mun meðal ann-
ars Kirkjukór Sauðárkróks syngja
undir stjórn tónskáldsins og Jó-
hann Már Jóhannsson og Þorberg-
ur Jósefsson syngja einsöng. Allir
eru velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
— Kári.
Gunnar Kvaran á
hádegistónleikum
Háskólatónleikar verða í Nor-
ræna húsinu á morgun, miðviku-
dag, og eru þetta þrettándu hádeg-
istónleikar vetrarins. Gunnar
Kvaran leikur á knéfiðlu og á efn-
isskránni eru knéfiðlusamstæður
eftir Johann Sebastian Bach.