Morgunblaðið - 22.02.1983, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1983
35
Finnborg S. Jóns-
dóttir - Minning
Hinn 11. febrúar sl. andaðist á
Landspítalanum vinkona mín
Finnborg Salome Jónsdóttir. Sissa
eins og hún var oftast kölluð var
af vestfirsku bergi brotin í báðar
ættir, dóttir hjónanna Helgu
Kristjánsdóttur og Jóns Stein-
þórssonar. Hún ólst upp hjá elsku-
legum foreldrum sínum til fjórtán
ára aldurs, þá verður hún fyrir
þeirri miklu sorg að missa móður
sína. Eftir það dvaldi hún mörg
sumur hjá föðursystur sinni,
Maríu, en hún var gift föðurbróð-
ur mínum, og bjuggu þeir bræður í
tvíbýli að ytri Hjarðardal í Ön-
undarfirði.
Upp frá því eru okkar kynni, og
tókst þá með okkur sú vinátta sem
aldrei hefur skuggi á fallið, það
voru ár æsku og gleði. Vorið kom
með henni, og hún kom með vorið,
henni fylgdi svo mikil gleði og lífs-
þróttur að mér fannst eins og allir
yrðu að betri manneskjum í návist
hennar. Skapgerð hennar var ein-
stök, og marga glaða stund áttum
við í leik með góðum ungmennum
af næstu bæjum, þessar minn-
ingar voru okkur einkar kærar.
Arin liðu og leiðir skildi um
sinn. Sissa giftist eftirlifandi eig-
inmanni sínum Friðriki Bjarna-
syni málarameistara á ísafirði, og
þar hefur verið þeirra heimili.
Þeim varð sex barna auðið, fimm
eru á lífi, en dóttur sína Helgu
Maríu misstu þau af slysförum
1961. Heimili þeirra hjóna var um
margt sérstakt, gestagangur mik-
ill, og skipti ekki máli á hvaða
tíma sólarhringsins gest bar að
garði. Þar voru allir velkomnir og
voru þau um það einkar vel sam-
taka og sannarlega fór ég ekki
varhluta af gestrisni þeirra, og
fyrir það vil ég þakka af heilum
hug.
Jóhannes föðurbróðir Sissu
dvaldi á heimili þeirra hjóna á
þriðja áratug og bar sú sambúð
vitni um mikinn kærleika. Er ég
kveð nú elskulega vinkonu mína
hrannast upp í huga mér svo
margar og fagrr minningar um
þessa yndislegu manneskju sem ég
hefi átt að vin frá því ég var barn,
og ég er þakklát fyrir allar þær
gleðistundir sem við höfum átt
saman. Minningin um hana minn-
ir mig á vorið, því þannig var það,
hún kom með vorið. Guð geymi
Sissu. Eiginmanni, niðjum, föður-
og systkinum votta ég mína
dýpstu hluttekningu.
Eirný Sæmundsdóttir
SÍMi: 86080
TOYOTA
P. SAMÚELSSON & CO. HF.
UMBOÐIÐ
NÝBÝLAVEGI 8
KÓPAVOGI
SÍMI44144
l