Morgunblaðið - 22.02.1983, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1983
45
TV7 /v
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
^ TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . . .
Samþykktir
Sameinuðu
þjóðanna ekki
bindandi fyrir
aðildarríkin
Þorsteinn Sæmundsson hringdi
og hafði eftirfarandi að segja: —
Mig langaði til að gera smáat-
hugasemd við bréf sem birtist í
Velvakanda í blaðinu í dag
(föstud. 18. febr.) eftir H. Kr.,
þar sem hann er að reyna að
réttlæta misrétti í atkvæðvægi á
íslandi með því að vitna til alls-
herjarþings Sameinuðu þjóð-
anna. Hann segir þar að miðað
við mannfjölda hafi íslendingar
eitt atkvæði jafnt og Kínverjar.
Mig langar til að benda H. Kr. á
það, að samþykktir Sameinuðu
þjóðanna eru ekki lagalega bind-
andi fyrir aðildarríkin. Ef sam-
þykktir Alþingis væru ekki lag-
alega bindandi, held ég að flest-
um gæti verið sama um, hvernig
vægi atkvæða væri háttað við al-
þingiskosningar.
Er ekki hugs-
anlegt að leita
nýrra ráða?
Gerður I’álma hafði samband
við þáttinn og sagði eftirfarandi:
— Það hefur mikið verið rætt og
ritað um fjárhagsvandræði
Strætisvagna Reykjavíkur og
leiðir til lausnar á þeim. Væri
ekki hugsanlegt að leysa þessi
vandræði eftir einhverjum
öðrum leiðum en að hækka far-
gjöldin, þ.e. að leita nýrra og
ferskra ráða. Mér dettur t.d. í
hug, að SVR kæmi upp auglýs-
ingaskiltum á öllum viðkomu-
stöðum vagnanna og leigði til af-
nota fyrir þá sem koma þurfa
skilaboðum áleiðis til borgar-
anna. Þarna mundi t.d. vera um
að ræða auglýsingar um það sem
væri að gerast í borginni og
nágrenni á hverjum tíma og
fengju auglýsendur að líma
plaköt sín á skiltin. Með þessu
ynnist m.a. að SVR hefði komið
sér upp nýjum og öruggum
tekjustofni, aðgengilegt væri
fyrir fólk að fylgjast með því
sem væri að gerast á höfuðborg-
arsvæðinu, eins og lengi hefur
tíðkast t.d. á járnbrautarstöðv-
um erlendis, og síðast en ekki
síst mundu piakötin, sem oft eru
listavel gerð, auðga umhverfið
og færa með sér líf og lit. Og
veitir svo sannarlega ekki af
hérna hjá okkur. En vafalaust
mundu ótal fleiri ráð finnast til
að afla SVR tekna, ef menn bara
gæfu nýjum hugmyndum tæki-
færi, en gripu ekki alltaf sjálf-
krafa til sömu úrræðanna, að
hækka fargjöldin.
Marteinn Lúther:
Því ekki að gera
honum vandaða bók
- og halla þá ekki réttu máli
Ragnar Þorsteinsson skrifar:
í Velvakanda 12. febr. sl. skrifar
Karl Karlsson um ár Marteins
Lúthers, en á þessu ári eru 500 ár
liðin frá fæðingu hans. Hann vill
láta gefa út bók um Lúther og
vanda vel til hennar. Honum
finnst íslenska þjóðkirkjan vera
farin að halla sér frá Lúther og í
átt til kaþólskunnar og segir orð-
Enn
finnst
náð í
þrautum
„Bóndi“ sendi okkur eftir-
farandi vísur í tilefni af frétt
sem birt var nýlega hér í blað-
inu um tæknifrjóvgun kvenna:
„Örugg leið til æxlunar
opnast fyrir landann,
ef að danskir íspinnar
allan leysa vandann.
Alltaf kvenna eflast ráð,
enn finnst náð í þrautum;
fósturlandsins freyjur sáð
fá úr dönskum nautum.
Eftir fregn af undrinu
er sú spurn á reiki:
Gæti fylgt með glundrinu
gin- og klaufaveiki?"
rétt: „ .... við eigum að vera
ógleymin á afrek Lúthers, yfir-
burðamannsins og hetjunnar
miklu."
Ekki eru nú allir sammála um
ágæti Marteins Lúthers eða kenn-
ingar hans. En því ekki að gera
honum vandaða bók og halla þá
ekki réttu máli. Ég vil láta birta
þar þau fyrirmæli, sem meistar-
inn gaf fylgjendum sínum, um
hvað ætti að gera við Gyðinga:
„Bera eld að skólum þeirra og
bænahúsum og brenna þau til
grunna. Brjóta sömuleiðis og eyði-
leggja íbúðarhús þeirra, því þar
iðka þeir sömu iðju og í skólum
sínum. Taka af þeim bænabækur
og talmúðinn, en af þessum ritum
læra þeir afguðadýrkun, lygi,
formælingar og róg. Banna rabbí-
um, að viðlagðri dauðarefsinu, að
stunda kennslu. Banna Gyðingum
með öllu frjálsa för um vegina.
Banna þeim að stunda okur og
taka af þeim alla peninga og verð-
mæti úr gulli og silfri. Að fá ung-
um gyðingapiltum og stúlkum í
hendur haka og skóflu og rokk og
snældu og láta þau strita fyrir
brauðinu í svita síns andlitis."
Lúther lét einnig í ljós það álit
sitt að engin þjóð sé eins hefni-
gjörn og blóðþyrst sem Gyðingar.
Það leynir sér ekki að landi
^
Ar Marteins
Lúthers
Karl Karlsson skrifar:
ní viðtali við biskup íslands, herra
Pétur Sigurgeirsson, í sjónvarpinu
um áramótin síðustu lét hann þess
getiö, að íslenska þjóðkirkjan hygð-
ist með veglegum hætti minnast 500
ára afmælis siðbótarmannsins
mikla. Marteins Lúthers, er fæddist
Sumum hefur fundist votta fvrir
farín h'h nSka Þj6ðk,rkJa" vær,
í hT, hallast 1 átt til rómversk-
Ma£LSk\o? Þurf‘ að ”rétta 3‘K af“
VnnLT Hé[átt Viðsuma PresUna
störf hennar verða árangursrík.
hans, Adolf Hitler, hefur h;
svipaðar hugmyndir um lau
gyðingavandamálsins og ef til \
hefur hann að hluta sótt þær
Lúthers enda þótt fjórar ali
skilji þá að.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Þeir fóru inn í sitthvort húsið.
Rétt væri: Þeir fóru inn í sitt húsið hvor.
Leiðréttum börn sem flaska á þessu.
Að gefnu tilefni vill Barnaverndarnefnd Reykjavíkur vekja
athygli foreldra og fólks í Reykjavík sem hyggst taka börn í
dagvistun á einkaheimili á aö slík dagvistun er háð leyfi
Barnaverndarnefndar. Engum er heimilt að taka börn í
dagvistun nema hafa slíkt leyfi undir höndum, foreldrum er
því bent á að kanna hvort tilskilinna leyfa hefi veriö aflað
áður en þeir setja þörn sín í dagvistun á einkaheimilum. Um
leyfin er sótt á Njálsgötu 9, s. 22360, en þar starfa fóstrur \
aö lögbundnu eftirliti.
V-----------------------------------------------)
ISi Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
\ i f Vonarstræti 4 sími 25500
Þorskanet
MM
Viö leitum allir að því
besta. Besta fáan-
lega hráefninu, bestu
tækninni og ekki síst
besta veröinu.
Nýju H.C.G.-netin eru árangur samvinnu V-Þýska-
lands, Japan og Taiwan. Gæöastandard krafta-
verkanets nr. 12 er:
Þyngt: 3,1 kg
Slitþol þurrt: 21,6 kg
Slitþol blautt: 19,6 kg
Verðiö er ótrúlega hagstætt.
Höfum einr
efni.
fyrirliggjandi blýteina og bólfæra-
MARCO HE
Sími 15953 og 13480,
Mýrargata 26,
Reykjavík.
Hamar og sög
er ekki nóg
NEMA ÞÚ VEUIR RÉTTA EFNIÐ^
Vegg- og loftklæðning
í glæsilegu úrvali 1#t
úr eik, furu, aski, oregon-pine
gullálmi, perutré, brenni, antik-
eik og 10 tegundum til viðbótar.
„ Verö frá aðeins kr. 51 •-pr. m2.
BJORNINN HF
Skúlatúni 4 - Simi 25I50 - Reykjavik