Morgunblaðið - 23.02.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1983
Saksóknari kannar meint brot á skráningu vinnutíma í Frfliöfninni:
Ríkisendurskoðun taldi
ekki þörf á aðgerðum
segir Guömundur Karl Jónsson
framkvæmdastjóri
Akureyringar hafa eignast sitt „Strik" eða „Austurstræti“. Umferðin um
Hafnarstræti var ekki mikil, þegar Ijósmyndari Mbl. átti þar leið um
klukkan átta á sunnudagsmorgni. Ljósm. G.Berg.
Skólaskákmót Norðurlanda:
íslendingar sigursælir
EMBÆTTI ríkissaksóknara hefur nú
til athugunar erindi, sem Jón Aðal-
steinn Jónasson, stjórnarmaður f Frí-
höfninni. sendi Rannsóknarlögreglu
ríkisins. í gögnum, sem Jón Aðalsteinn
fékk send frá nokkrum starfsmönnum
Kríhafnarinnar, koma fram ávirðingar
á verkstjóra fyrirtækisins, sérstaklega
er varðar yfirvinnuskráningar og notk-
un stimpilkorta. Morgunblaðið bar
þetta mál undir Guðmund Karl Jóns-
son, framkvæmdastjóra Fríhafnarinn-
ar, í gær og sagði hann meðal annars,
að ríkisendurskoðun hefði yfirfarið
gögn varðandi fyrrnefnd atriði og ekki
séð ástæðu til aðgerða í málinu.
Guðmundur Karl sagði meðal ann-
ars:
„Upphaf þessa máls er, að Jóni
Aðalsteini Jónassyni, stjórnarmanni
í stjórn Fríhafnarinnar, bárust bréf
og munnlegar kærur frá tveim til
þrem starfsmönnum Fríhafnarinnar
um ýmiskonar ávirðingar á sam-
starfsmenn sína í trúnaðarstöðum f
fyrirtækinu. Fyrst og fremst var því
haldið fram að stimpilklukka fyrir-
tækisins hafi verið misnotuð, og
skráð yfirvinna ákveðinna manna
væri meiri en efni stæðu til.
Mál þetta var tekið fyrir á stjórn-
arfundi Fríhafnarinnar 16. nóvem-
ber 1982 og var mér falið að kanna
hvort þetta ætti við rök að styðjast.
Þar sem hér var um alvarlegar ásak-
anir að ræða tilkynnti ég ríkisend-
urskoðun að mál þetta væri komið
upp og eftir athugun mína á málinu
lagði ég greinargerð mína og niður-
stöður, ásamt stimpilkortum í þeirra
hendur. Ríkisendurskoðun taldi
kæruatriði fullskýrð og ekki þörf að-
gerða. Ríkisstarfsmenn njóta sér-
stakrar verndar f starfi gegn æru-
meiðandi aðdróttunum sbr. 108. gr.
almennra hegningalaga.
Jón Aðalsteinn hefur nýlega sent
Rannsóknarlögreglu ríkisins þau
skriflegu gögn f máli þessu, sem
hann hefur undir höndum. Ég hef þá
trú að viðkomandi stjórnarmaður
rengi ekki niðurstöður ríkisendur-
skoðunar, eða vantreysti þeirri
endurskoðun að neinu leyti, heldur
hitt að þær ásakanir sem fram koma
í bréfaskriftum um lögbrot manna í
trúnaðarstöðum.i fyrirtækinu eru
þess eðlis að nauðsynlegt er að þeir
menn, sem slíku halda fram að
ósekju, víki úr starfi og sæti ábyrgð
lögum samkvæmt. Það væri rangt af
viðkomandi stjórnarmanni að stinga
bréfum þessum undir stól og stuðla
þannig að því óbeint, að menn þurfi
ekki að bera ábyrgð á sínum fullyrð-
ingum.“
Guðmundur Karl var spurður
hvort yfirvinna hefði aukizt í fyrir-
tækinu á síðustu árum og sömuleiðis
á hvern hátt vinnu væri háttað í
fyrirtækinu.
„Ef yfirvinna er borin saman árin
1980 og 1982 kemur í ljós, að síðara
ári nam yfirvinna í magni aðeins um
60% af því, sem var árið 1980. Árið
1981 er hins vegar ekki hægt að taka
með í þessum sambandi, en þá voru
sérstakir bónussamningar í gildi.
Stimpilklukku var byrjað að nota í
fyrirtækinu vorið 1981, en erfitt er
að mæla tima í fyrirtækinu vegna
óreglulegs vinnutíma. Menn vinna í
fjóra daga og eiga síðan frí í fjóra
daga, en starfsmenn þurfa að mæta
til vinnu á hvaðá tíma sólarhrings-
ins sem er. Flugvélar koma á öllum
tímum og því er alls ekki um það að
ræða, að starfsmenn vinni aðeins
það sem kalla má venjulegan vinnu-
tíma. Þá þarf að gæta að því sérstak-
lega, að menn fái lágmarkshvíld í
átta tíma á sólarhring eins og lög
kveða á um. Af þessum sökum, og
reyndar fleiri ástæðum, verður
stimplun og yfirvinnuskráning flók-
in, en ég vísa til þess, sem ég sagði
áðan varðandi kærur um misnotkun
á stimpilklukku og rangrar
yfirvinnuskráningar, að ríkisend-
urskoöun sá ekki ástæðu til að-
gerða," sagði Guðmundur Karl
Jónsson að lokum.'
ÍSLENDINGAR uröu sigursælir á
Skólaskákmóti Norrturlanda sem lauk í
Ábo, Finnlandi í gær, hlutu flesta vinn-
inga samanlagt, og sigurvegara í tveim-
ur flokkum af fimm, sem í var keppt á
mótinu. Frá hverju landi voru tíu þátt-
takendur, sem skiptust nirtur tveir í
hvern flokk. Sex umferðir voru tefldar
eftir Monrad-kerfi.
í flokki A, 17 til 20 ára, sigraði
Karl Þorsteins, fékk fimm vinninga
af sex mögulegum. Elvar Guð-
mundsson varð 2. með 4,5 vinninga, 3.
var J. Nielsen frá Danmörku, með 3,5
vinninga.
í B-flokki, 15 til 16 ára, sigraði H.
Danielsen frá Danmörku með 5 vinn-
inga, Halldór Grétar Einarsson varð
2. með 4,5 vinninga, 3. varð S. Sanden
frá Svíþjóð með 3,5 v. og Arnór
Björnsson varð 4. með 3,5 vinninga
einnig, en lægri á stigum.
í C-flokki, 13 og 14 ára, sigraði R.
Winnes frá Svíþjóð með 4,5 vinninga,
í 2. sæti varð L. Hansen, Danmörku,
með 4,5 v., 3. varð Davíð Ólafsson
með 3,5 vinninga. Þröstur Þórhalls-
son fékk 3 vinninga.
í D-flokki, 11 til 12 ára, varð J.
Sorensen, Danmörku, efstur, með 4,5
vinninga, en íslendingunum gekk
heldur verr. Magnús Pálmi Örnólfs-
son fékk 2,5 vinninga og örnoddur
Loftsson 2.
1 E-flokki, 10 ára og yngri, sigraði
Hannes Hlíðar Stefánsson með 6
vinninga af 6 mögulegum, og Þröstur
Árnason varð annar með 5 vinninga.
Hannes var eini keppandinn á mót-
inu, sem vann allar sínar skákir.
APPLE COMPUTER
TILKYNNIR KOMU
SUPER APPLE
99
99
tm
Apple He — tekur nú við af fyrirrennara
sínum — hinni heimsþekktu Apple 11+ og
tryggir áframhaldandi stöðu Apple í hroddi
fylkingar!
ENGIN ÖNNUR TÖLVA í HEIMINUM ER NOTUD AFJAFN
MÖRGUM VIÐ JAFN MARGVÍSLEG VERKEFNl OG APPLE.
.Super Apple" er 64K og stækkanleg í I28K. Vélin er húin stöðluðu
íslensku lyklaborði með stórum og litlum stöfum og hœgt er með einu
handtaki að skipta milli íslensks og erleruis leturs á skjá. Apple fe
notar sömu forrit og Apple //+, en meira en 1000 fyrirtæki hafa
skrifað meira en 16000 forrit fyrir Apple — engin önnur einkatölva
nýtur sliks stuðnings. Apple fe er með innhyggt Applesoft forritun-
armál en getur auk þes notað Pascal, Fortran. Cohol. Forth. Logo og
fleiri tölvumál. Vélin er með innbyggt sjálfsprófunarkerfi (self-test), 16
lita kerfi, Lo-res og Hi-res grafík, og er hönnuð með VLSl, sem gerir
hana einstaklega örugga í rekstri.
Að haki Apple tölvunum stendur stærsti framleiðandi míkrá-
tölva í heiminum — Apple Computer Inc. Nú þegar hafa
verið seldar meir en 750.000 Apple tölvur (40.000 í desember
mánuði sl.). Apple leggur áherslu á gæðin. hver Apple tölva
er prófuð í samfleytt 48 klst. áður en hún fer úr verksmiðj-
unni og vélarnar eru seldar með árs ábyrgð.
Apple — aðalsmerkið
^cippkz computef
SKIPHOLTI 19 SlMI 29800
Tölvudeild
m 4'
V BÚOIN