Morgunblaðið - 23.02.1983, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.02.1983, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1983 26 Gísli Jónsson Patreks- firöi - Minning Hinn 27. janúar sl. lést á Borg- arspítalanum í Reykjavík Gísli Jónsson frá Patreksfirði. Gísli var fæddur á Arnarstapa í Tálknafirði 14. febrúar 1912 og var því 71 árs er hann lést. Foreldrar hans voru hjónin ólína Guð- mundsdóttir og Jón Jóhannesson, útvegsbóndi. ðlína var fædd í Stóra-Laugardal í Tálknafirði 17. október 1893, dáin 3. ágúst 1969. Móðir hennar var Svanborg Ein- arsdóttir, fædd á Gili í Örlygs- höfn, Rauðasandshr., Einarsson- ar, síðar bóndi á Lambavatni í sömu sveit. Enn síðar fluttist hann á Vatneyri við Patreksfjörð, en hann var lærður smiður og vann þar að iðn sinni. Hann lést á miðjum aldri. Guðmundur Jó- hannes, faðir ólínu, var sonur Guðmundar Jónssonar, f. 1831 í Hokinsdal í Arnarfirði, en bjó rausnarbúi á kirkjujörðinni Stóra-Laugardal. Jón, faðir Gísla, f. 3. apríl 1884, d. 8. febrúar 1950, var sonur hins mæta héraðshöfðingja í Tálkna- firði, Jóhannesar Þorgrímssonar á Sveinseyri, er var heiðraður með Dannebrogsorðu fyrir framtaks- semi í búskap og hjálparstörf við nauðstadda samfélagsmenn, en hann var lengi hreppstjóri sveit- arinnar. Faðir Jóhannesar var Þorgrímur Jónsson, f. 23. sept- ember 1804, Þórðarsonar á Kvíg- indisfelli í Tálknafirði. Móðir Jó- hannesar var Sigríður Gísladóttir, f. 10. nóvember 1792, dóttir hins göfuga prests á Selárdal í Arnar- firði frá 1785 til 1829. Gísli fædd- ist árið 1739, d. 31. ágúst 1834, son- ur Einars rektors í Skálholti og síðar sýslumanns. Gísli gegndi áð- ur prestsstarfi í Skálholti. Sr. Gísli var kvongaður Ragnheiði Bogadóttur, f. 21. júní 1765, Bene- diktssonar fræðimanns og sýslu- manns í Hrappsey á Breiðafirði og síðar á Staðarfelli á Fellsströnd, Dalasýslu. Bogi var kvæntur Ragnheiði dóttur Skúla Magnús- sonar landfógeta í Viðey. Eftir fæðingu Jóhannesar slitu Sigríður og Þorgrímur samvistum og ólst Jóhannes því upp hjá afa sínum Gísla og hjá móðurbróður sínum, sr. Einari Gíslasyni, f. 23. ágúst 1787, d. 20. janúar 1866, er tók við prestsskap af föður sínum á Selárdal og þjónaði í 51 ár til 1863. Einar var mikið valmenni og mjög vel virtur kennimaður. Sr. Einar var kvongaður Ragnhildi Jónsdóttur frá Suðureyri, Tálkna- firði, f. 26. ágúst 1789. Jóhannes á Sveinseyri var þríkvæntur og tvær síðari konur hans voru Kristín og Ragnheiður Kristín, dætur Gísla Árnasonar Gíslasonar prests í Selárdal og Þórunnar Einarsdóttur Gíslason- ar prests í Selárdal. Gísli og Þór- unn voru því systkinabörn, og bjuggu á Neðribæ í Selárdal. Þess- ar tvær konur Jóhannesar voru því náskyldar honum. Með Krist- ínu átti hann Ólaf, f. árið 1867, hinn kunna framkvæmdamann og frumkvöðul í togaraútgerð og öðr- um framfaramálum á Patreksfirði á fyrri hluta þessarar aldar. Jón, faðir Gísla, sem hér er minnst, var hins vegar sonur Ragnheiðar Kristínar. Frá Jóhannesi á Sveins- eyri er kominn allmikill ættbogi, m.a. i Reykjavík og á Akureyri. Jón Jóhannesson var tvíkvænt- ur. Fyrri konuna, Rannveigu Jónsdóttur Ólafssonar, fædd á Álftamýri í Arnarfirði, missti Jón frá ungum syni, Ólafi. Hann bjó á Patreksfirði. Ólínu, móður Gísla, kvæntist Jón árið 1912 og hóf þá búskap á Arnarstapa. Önnur börn þeirra eru Kristinn, f. 1917, út- gerðarmaður á Patreksfirði, Fanney, f. 1922, húsmóðir á Akur- eyri og Björg f. 1935, húsmóðir í Reykjavík. Jón var fjölgáfaður maður, at- orkusamur sjósóknari, söngmaður góður, gleðirnaður, en gekk jafnan hægt um gleðinnar dyr. ólína, kona hans, var fríðleikskona, mild í viðmóti og hafði vakandi auga á velferð fjölskyldunnar. Árið 1933 kvæntist Gísli eftirlif- andi konu sinni, Lovísu Magnús- dóttur, Guðmundssonar, fæddur á Holti í Fífustaðadal í Ketildölum. Móðir Lovísu var Guðrún Guð- mundsdóttir, Sörenssonar, f. 1846 í Otradalssókn, kvæntur Kristínu Bjarnadóttur, f. 1855, Torfasonar, ættaður úr Rauðasandshreppi, dá- inn 53ja ára 1873, þá bóndi á Ytri-Bakka, Tálknafirði. Kona Bjarna var Sigríður Bjarnadóttir, fædd í Keflavík í Rauðasands- hreppi. Við giftinguna gafst Gísla góður kvenkostur, sem stóð við hlið hans í harðri lífsbaráttu og endurvakti yndi nýs lífs í fjölskyldunni. Börn Lovísu og Gísla eru: Mag- dís, gift Ingimar Jóhannssyni, vél- stjóra á Patreksfirði, þau eiga 7 börn. Jón Óli, skipstjóri í Reykja- vík, kvæntur Jóhönnu Þorbergs- dóttur. Þau eiga 3 börn. Erla, gift Birgi Péturssyni, verkstjóra á Patreksfirði. Þau eiga 7 börn. Svala, gift Ásmundi Kristjáns- syni, bónda á Stöng í Mývatns- sveit. Þau eiga 4 börn. Yngstur er Jón Björn, byggingarmeistari á Patreksfirði, kvæntur Sigríði Sig- fúsdóttur. Þau eiga 3 börn. Gísli og Lovísa hófu búskap í sambýli með foreldrum Gísla á Arnarstapa, en árið 1934 keypti fjölskyldan Innri-Bakka í Tálkna- firði og hélt þar áfram sambýli. Á Arnarstapa og víkunum þar innan við í landi Sellátra var frá fornu fari alþekkt útgerðarstöð. Hins vegar er jörðin landlítil og háði það mjög athafnasömum mönnum við búrekstur. Er vélar komu til sögunnar og bátar stækkuðu, hæfðu lendingarskilyrði illa, en innfirðis var öllu hægara til at- hafna á stærri bátum. Innri-Bakki bauð ennfremur upp á meiri land- kosti til búrekstrar en Arnarstapi. Gísli bar svip ætta sinna, allhár og þrekvaxinn, dökkhærður, fríður vel, glaðlyndur og hafði yndi af góðum samskiptum við meðbræð- ur sína. Hann hafði andlegt og lík- amlegt atgervi til þess að gegna hverju því starfi, sem aðstæður leiddu hann í, en skyldurækni við foreldra haslaði honum völl á heimavettvangi. Til marks um trygglyndi hans má geta þess að yngsta son sinn lét hann heita nafni bernsku- og æskuvinar síns Jóns Björns Einarssonar á Sel- látrum, sem drukknaði í sjóslysi við strendur Ameríku árið 1945. Á unglingsárum mínum um 1940 bauð æskuvinur minn, Krist- t JÓN PÁLSSON, sundkennari, lést í Landakotsspítala, mánudaginn 21. febrúar. Þórunn Sigurðardóttir, Páll Jónsson, Amalía Svala Jónsdóttir, Sigurður K. Sigurkarlsson og barnabörn. t Faðir minn, GUNNAR SÆMUNDSSON, bóndi, Breiðablík, Arborg Manitoba, andaöist 18. febrúar í sjúkrahúsi í Arborg. Anna Svava Sæmundsson. t Minningarathöfn um ÖNNU GUÐMUNDSDÓTTUR, Ijósmóður, Tómasarhaga 46, Reykjavík, verður í Fossvogskirkju, miövikudaginn 23. febrúar kl. 15.00. Jarösett veröur frá Grenivíkurkirkju, laugardaginn 26. febrúar kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Slysavarnafélag fslands. Guðmundur Þorbjörnsson, Auðbjörg Ingimundardóttír, Njáll Þorbjörnsson, Laufey Þorbjarnardóttir, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Guörún Þorbjarnardóttir, Sigríður Þorbjarnardóttir. Jóna Jónsdóttir, Jón Sigurösson, Jónas Matthíasson, Guðmundur Sigurðsson, t Þökkum innilega öllum þeim sem auösýndu okkur samúð og hlý- hug við fráfall og útför, RAGNARS G. GUÐJÓNSSONAR, Laufskógum 17, Hveragerði. Guörún Magnúsdóttir, Ragnar Gunnsteinn Ragnarsson. t Þökkum innilega fyrir samúð og vináttu viö andlát, EGGERTS Þ. BRIEM. Halldóra Bríem og börn, Þóra Briem, Gunnlaugur E. Briem, Guðrún Briem, Þráinn Þórhallsson, Garöar Briem, Hrafnhildur Bríem. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur, afa og langafa, ÞORKELS V. ÞÓRÐARSONAR, Hörgshlíð 6. Guðrún Kristjánsdóttir, Ragnheiöur Þorkelsdóttir, Helgi Sigfússon, Þóröur Þorkelsson, Svanhildur Guðnadóttir, Óskar Þorkelsson, Sigurbjörg Sighvatsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Tove Kerima Labidi — Kveðja Fædd 29. júlí 1981 Dáin 9. febrúar 1983 Lítill sólargeisli er að endingu slokknaður, sólargeisli, er aldrei fékk tækifæri til að skína með sín- um fulla styrk þau tæpu tvö ár sem honum var ætlað að lifa. Þó að henni Tove litlu skorti þrek til að geta lifað og þroskast eins og önnur börn, átti hún sinn „fjársjóð", brosið. Þetta bros gat brætt hjarta manns á svipstundu, jafnvel á þeim stundum þegar all- ir geislar sólarinnar í sínum fulla styrk dugðu ekki til. Tæp tvö ár er ekki langur tími af ævi manns eða það finnst þeim fullorðnu að minnsta kosti ekki. Hver er þá tilgangurinn með því að kveikja á nýju lífi og slökkva á því aftur eftir svo skamma viðdvöl á þessari jarðvist? Þessi spurning hefur óneitanlega leitað oft á huga minn síðastliðna viku. Eitt er víst að fátt er um sanngjörn svör. Sanngjarnasta svarið er þó eflaust að finna handan móðunnar miklu t Ég sendi innilegustu þakkir til allra þeirra er sýndu mér hlýhug og aöstoö viö fráfall mannsins míns, MAGNÚSAR ANDRÉSSONAR, Hvolsvegi 17, Hvolsvöllum. Og sérstakar þakkir sendi ég til heimilisins aö Skaröi. Einnig vil ég þakka læknum, hjúkrunarfólki og öðrum, sem hafa hjálpaö mér svo vel í veikindum mínum undanfarna mánuöi. Guð blessi ykkur öll og varöveiti. Hafliöína G. Hafliðadóttír. inn bróðir Gísla, mér í vikudvöl til fjölskyldu sinnar að Innri-Bakka, en við höfðum kynnst á skólum á Akureyri. Þar var unað við úti- veru, spil og hvers konar skoðana- skipti og umræður um landsins gagn og vandamál. Kærleiksrík fjölskyldan bar ungæðingslæti okkar af umburðarlyndi og Gísli, sem var meginstólpi búsins, tók þátt í leikjum hinna yngri af hjartans lyst, þegar tími gafst. Nú hefur búseta á þessum bæj- um lagst af, en um tugi ára hefi ég notið þeirrar velsældar að dvelja þar meira og minna á vor- og sumardögum, notið friðsældar og einstakrar náttúrufegurðar. Þótt fá séu þar merki er minni á starf og lífshætti fyrri kynslóða, finnst mér ég jafnan vera þar í samfélagi við forvera mína á þessum slóðum, því saga þeirra og byggðarinnar lifir í vitund þeirra, sem unna landinu. Fyrir tólf árum átti ég þess kost að ganga út með ystu bæjum, sem í byggð höfðu verið á norðurströnd Tálknafjarðar ásamt Gísla og fleiri Tálknfirðing- um. Það var heitur sumardagur, en frásagnir Gísla um einstaka at- burði, starfshætti fólksins og skipan mannvirkja varpa mestum ljóma á þann dag. Árið 1946 tók Gísli sig upp frá Innri-Bakka með fjölskyldu sína og foreldra og flutti til Patreks- fjarðar. Þó atvinnusviðið breyttist mikið var hugur Gísla bundinn við sjósóknina og störf að sjávarfangi. Vegna atorku sinnar og samvisku- semi var hann eftirsóttur til starfa og öll seinni árin sá hann um veiðarfæri og stjórnaði veið- arfæraverkstæði útgerðarfélags- ins Skjaldar á Patreksfirði. Hugur hans var þó jafnan bundinn hinu frjálsa lífi veiðimannsins. Hann gjörþekkti fengsæl fiskimiðin undan norðurströnd Tálknafjarð- ar og í Patreksfjarðarflóa. Á hverju vori sótti hann þangað sér og sínum björg í bú og naut frels- isins í víðáttu hafsins í ríkum mæli. Undanfarin ár þjáðist Gísli af erfiðum sjúkdómi innvortis og er dag tók að lengja elnaði sjúkdóm- urinn og hann lést hinn 27. jan. sl. Hann var jarðaður á Patreksfirði 5. febr. sl. Ég þykist vita, að hann hafi vonast til að geta enn um sinn notið vordýrðarinnar við strendur fyrri heimabyggðar. Án efa hefur hann sofnað inn í þann draum er sólin sindrar um haf, bárur kvika hljóðlega við bátssúð, í nánd er gróið land, en í heiðríkjunni kveð- ur við ástarsöngur, forboði vakn- andi lífs úr vetrardái. Við hjónin og fjölskyldan frá Sellátrum sendum Lovísu, konu Gísla, börnum þeirra og öðrum að- standendum innilegar samúðar- kveðjur. Sigurjón Davíðsson á því tilverustigi þar sem Tove, Viðar, Bjarki og öll litlu börnin sem tapað hafa stríðinu við slynga sláttumanninn, vistast án allra sjúkdóma, sársauka og fötlunar. Ekkert þar mun hefta þroska þeirra til að ná settu marki sem mótað var við fæðingu þeirra. Anna mín, megi góður Guð hjálpa þér að yfirstíga sárasta söknuðinn yfir missi lítillar dóttur og viðhalda ósveigjanlegum styrk þínum og vilja, sem þú hefur svo margsinnis sýnt að þú býrð yfir í ríkum mæli. Vinkona

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.