Morgunblaðið - 23.02.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1983
Innilegiistu þakkir til cdlra, sem glöddu mig með skeyt-
um og gjöfum á 90 ára afmæli mínu 15. febrúar 1983.
Guð blessi ykkur öll
Jónheidur Guðbrandsdóttir.
KARON
SkÓlÍDD
Rétt líkamsstaða, fallegt göngulag
og góður fótaburður eru ekki með-
fæddir eiginleikar — þetta þarf að
læra.
Ef þú hefur hug á að taka þátt í námskeiðum skólans, þá
færðu m.a. kennslu í andlits- og handsnyrtingu, hárgreiðslu,
fatavali og mataræði og fleira sem lýtur að útliti þínu og fasi.
Ef þessir þættir eru í lagi, kemur sjálfstraustið ósjálfrátt.
Síðustu námskeið vetrarins hefjast mánudaginn
28. febrúar.
Innritun og upplýsingar í síma 38126 frá kl.
16—20 þessa viku.
Hanna Frímannsdóttir.
er viö hæfi aö gefa því letta og laglega skó að
trítla á.
Þess vegna höfurri viö tekið upp ítalska
kvenskó í miklu úrvali, - fallega og netta eins
og vorskór eiga aö vera.
Sjáumst í nýrrí og vandaðri verslun.
Sffvunntcnstrmiur
LAUGAVEGI 71
Stormur í
vatnsglasi
Friðrik Sophusson (S)
sagði í umræðu um vísi-
tölufrumvarpið, að það
væri bitamunur en ekki
fjár á afstöðu forsætisráð-
herra og Alþýðubandalags.
Sérstaða Alþýðubandalags,
sem fram kæmi í séráliti
Þrastar Olafssonar, fælist í
tvennu: I) Að fjögurra
mánaða verðbótatímahil
ha'fist frá og með 1. marz
nk. í stað 1. desember sl.
og 2) að hluti verðlags-
þróunar, sem fram hjá
mælingu færi, væri eilítið
öðru vísi hannaöur, fram-
kvæmdalega. Andóf Al-
þýðubandalagsins hefur
því veðurhæð storms í
vatnsglasi.
Friðrik sagði og, að for-
sætisráðherra, sem sæti
ætti í þingflokki sjálfstæð-
ismanna, a.m.k. að nafninu
til, hefði hvorki kynnt
frumvarp sitt þar né leitað
eftir stuðningi við það!
Hann hefði í einu og öllu
hunzaö þingflokkinn. I>að
væru því látalæti þegar
hann léti nú sem það kæmi
sér á óvart, að þingflokkur-
inn hlypi ekki í fang sér
með stuöning við frum-
varpið.
Frumvarpið er tæknilega
dautt, sagði Friðrik, þó
ekki væri nema vegna
þess, hve seint það er fram
komið. I>að gengur og til
þingnefndar, hvar Guð-
mundur J. Guðmundsson
(Abl) er formaður (í fjar-
veru Halldórs Ásgrímsson-
ar á Norðurlandaþingi), en
bæði Guðmundur og Al-
þýöubandalagið hafa lýst
því yfir, að frumvarpið
veröi tafið í afgreiðslu. I>að
er því eins og hvert annað
grín þegar forsætisráð-
herra lætur sem það hafi
verið meining sín að frum-
varpið, sem ríkisstjórnin
hefur tekizt á um í 6 mán-
uði, verði afgreitt á Alþingi
á nokkrum dægrum og
framkvæmt við launaút-
reikning fyrir komandi
mánaöamót!
Ekki kjara-
skerðing
Gunnar Thoroddsen for-
sætisráðherra sagði það
alls ekki brot á stjórnar-
sáttmála þó einstakur ráð-
herra flytji frumvarp.
Friðrik
Guðrún
Ragnar
Hörkuslagur stjórnarliða á Alþingi
Ráöherrar og þingmenn Alþýöubandalagsins geröu haröa
hríð að forsætisráðherra á Alþingi í fyrradag í umræöu um
vísitölufrumvarp hans. Ragnar Arnalds, fjármálaráöherra,
sagði óviðeigandi aö tefja störf þingsins næstu daga meö
þessu frumvarpi, sem væri alltof seint fram komið til aö
geta haft áhrif á launaútreikning 1. marz nk., jafnvel þótt
meira fylgis nyti en raun væri á. Efnislega væri þaö þann
veg úr garöi gert, aö ekki væri hægt aö afgreiöa það nema
meö þátttöku samningsaðila vinnumarkaöarins. Guörún
Helgadóttir (Abl) taldi frumvarpiö brot á stjórnarsáttmál-
anum, og lítil ástæöa væri til að telja sig til stuðningsliös
ríkisstjórnar, sem ekki héldi samstarfsreglur eigin stjórn-
arsáttmála.
Breyting á vísitiilugrunni
þýddi heldur ekki endilega
kaupmáttarrýrnun. I upp-
hafi árs 1981 hefðu verð-
bætur verið rýrðar um 7
stig en útkoman í árslok
verið 4% kaupmáttaraukn-
ing. Lækkun verðbólgu
hefði sagt til sín sem kjara-
bót. Forsætisráðherra
sagöi ágreining stjórnarliða
og minni en af væri látið.
Annarsvegar væri ágrein-
ingur um hvort fjögurra
mánaða verðbótatímabil
skuli hefjast 1. marz nk.
eða mælast frá 1. desem-
ber sl. Hinsvegar um fram-
kvæmd frádráttar í vísi-
töludæminu.
Forsætisráðherra svaraði
því til, aðspurður, að hann
hefði vænzt þess að frum-
varpið fengi þá meðhöndl-
an á Alþingi að það kæmizt
til framkvæmda fyrir í
hönd farandi verðbóta-
tímabil.
Hversvegna
ekki meiri
verðbóta-
skerðingu?
Friðrik Sophusson
spurði: Ef það er rétt hjá
forsætisráðherra aö 7%
verbótaskerðing, sem hann
og Guðmundur J. stóðu aö
1981, hafi þýtt 4% kaup-
máttarauka vegna lækkun-
ar verðbólgu, hversvegna
var þá ekki framkvæmd
meiri verðbótaskerðing?
Svavar Gestsson kallaði
vísitöluleikinn 1981 „slétt
skipti“. Ef hægt er að
„skipta á sléttu“, eins og
Svavar lýsti hlutunum
1981, eða jafnvel auka
kaupmátt, eins og forsæt-
isráðherra staðhæfir,
hversvegna höggva þá ekki
þessir samráðherrar aftur í
sama knérunn, í Ijósi til-
tækrar reynslu? Hvers-
vegna þá þessi hanaslagur
í ríkisstjórninni nú?
í ríkisstjórninni er ekki
samstaða um eitt eða neitt
sem máli skiptir. I>ar vegur
hver í annars bak meðan
verðbólgan æðir áfram, er-
lendar skuldir hrannast
upp, atvinnusamdráttur
segir til sín, innlendur
sparnaður hrynur saman
og atvinnuvegirnir ramba á
barmi rekstrarstöðvunar.
Átök stjórnarliða um vísi-
tölufrumvarpið er aðeins
ein perla í hálsfesti hennar,
en sú perla er óekta —
eins og allar hinar.
HITAMÆLAR
m
St ©cö)
Vesturgötu 16,
símí 13280.
Djúpslökun
&
spennulosun
Læröu hvernig djúpslökun getur hjálpaö þér til
aö:
• ná aöhliða vööva- og taugaslökun
• fyrirbyggja höfuðverki, vöðvabólgu o.fl.
• yfirvinna kvíða, svefntruflanir og óöryggi
• ná betri árangri í námi og starfi
• bæta sjálfsímyndina og tjáningarhæfni
Djúpslökunarkerfiö er talið meðal áhrifaríkustu aðferða til
vöðva- og taugaslökunar, en það byggir á tónlistarlækn-
ingum, beitingu ímyndunaraflsins, sjálfsefjun og öndun-
artækni.
Fræðslumiðstöðin Miðgarður Bárugötu 11 býöur upp á
ítarlega kennslu í djúpslökunarkerfinu:
Helgarnámskeið: 11,—13. feb., 18,—20. feb. og 25.-27.
feb. Námsefni og tveir kvöldfundir fylgja meö. Jafnframt
vikulegir hóptímar í slökun.
Einkatímar: Tvisvar í viku í átta vikur, klukkustund í senn.
Jafnframt vikulegir hóptímar.
Kennari: Guðmundur S. Jónasson.
Skráning og upplýsingar í síma: 12980 milli kl.
10—18.
A1IÐG/1RÐUR