Morgunblaðið - 23.02.1983, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1983
13
82744
Safamýri
Skemmtilegt 6 herb. parhús á
tveim hæöum. Góöur bílskúr.
Falleg lóö. Verð 2,9 millj.
Hverfisgata, Hafn.
Skemmtilegt nýuppgert einbýli
(timbur). Kjallari, hæö og ris.
Samtals 150 fm. Nýtt gler. Nýjar
lagnir. Verö 1700 þús.
Ásbúð
Nýtt ca. 200 fm endaráöhús á
tveim hæöum auk 50 fm bíl-
skúrs. Vandaðar innréttingar.
Verð 2,5 millj.
Heiðarás
Vandað ca. 340 fm endaraðhús
á einni hæö ásamt bílskúr.
Góöar innréttingar. Verö 2 millj.
Byggðarholt
Nýlegt 143 fm endaraöhús á
einni hæö ásamt bílskúr. Góöar
innréttingar. Verö 2 millj.
Arnarhraun
Mjög rúmgóð 120 fm 4ra herb.
íbúö á 2. hæð. Góðar innrétt-
ingar. Bílskúrsréttur. Verð 1250
þús.
Álfaskeið — sérhæð
114 fm 4ra herb. efri sérhæö í
tvíbýli. Sér inngangur. Suöur
svalir. Bílskúrsréttur. Verö 1300
þús.
Boðagrandi
Falleg 2ja herb. íbúð á 1. hæð.
Vandaöar innréttingar. Verö
950 þús.
LAUFÁS
SÍÐUMÚLA 17
Magnús Axelsson
Ráðstefna um umferð
og skipulag gatnakerfis
Á ANNAÐ hundrað manns munu sitja ráðstefnu í Reykjavík næstkomandi
fimmtudag og föstudag um meðferð og skipulag gatnakerfis. Tilgangur hennar er
m.a. að ræða hvernig draga megi úr umferðarslysum með lagfæringum á núver-
andi gatnakerfi og með breytingum á skipulagi svo umferðin verði hættuminni.
Kynntar verða nýjar leiðir, sem reyndar hafa verið erlendis og farið í skoðunar-
ferð um ný hverfi í Reykjavík.
Flutt verða fjórtán framsöguer-
indi og málefnið rætt frá ýmsum
sjónarhornum. í hópi þátttakenda er
einkum fólk, sem skipar umferðar-
nefndir og skipulagsnefndir sveitar-
félaga svo og tæknimenn sveitarfé-
laganna.
Að ráðstefnunni standa Samband
íslenzkra sveitarfélaga i samráði við
Umferðarráð, Skipulag ríkisins,
Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðis-
ins, Rannsóknastofnun byggingar-
iðnaðarins og þær stofnanir Reykja-
víkurborgar, er fara með umferð-
armál.
Ráðstefna þessi er þáttur í aðgerð-
um í tilefni af norræna umferðarör-
yggisárinu 1983.
Aðalsteinn Davíðsson og Gösta Holm vinna að samningu
orðabókarinnar.
k-íslenzku
Sænsk-íslenzk orða-
bók komin út hjá AB
ÚT ER komin sænsk íslenzk orðabók
eftir þá Gösta Holm, prófessor í nor-
rænum fræðum í Lundi í Svíþjóð, og
Aðalstein Davíðsson, menntaskóia-
kennara í Reykjavík. Auk þess hafa
ýmsir fleiri unnið við bókina, norrænu-
fræöingar við háskólann í Lundi og Is-
lendingarnir Gyða Helgadóttir, Erna
Árnadóttir, Ólafur Sigurðsson og dr.
Sigurður bórarinsson. l'etta er fyrsta
sænsk-íslenzka orðabókin sem lítur
Akrasel einbýlishús
300 fm fallegt hús á góöum staö m. frábæru
útsýni. Húsiö er tvær hæöir og möguleiki á sér-
íbúö á jaröhæö. Skipti möguleg á raöhúsi í Selja
hverfi.
Eignaumboðið, Laugavegi 87,
símar 16688 og 13837.
Til sölu
Uröarbakki
Raðhús á 2 hæöum, sem er 2 samliggjandi stofur, 4 svefnherbergi,
eldhús meö borðkrók, baðherbergi, snyrting, þvottahús og forstof-
ur. Bílskúr. Stærð ca. 145 fm auk bílskúrsins. Skemmtileg eign.
Stórar svalir. Góöur garöur. Ágætur staöur. Teikning til sýnis.
Einkasala.
Eskihlíö
5 herbergja íbúö á jaröhæö. Er rúmir 130 fm. Björt íbúö meö
góöum gluggum. Hefur veriö mikið endurnýjuö og er því í góöu
standi. Rólegur staöur. Einkasala.
Vesturberg
4ra herbergja íbúö á 3. hæð í húsi á góöum staö viö Vesturberg.
Ein stofa, 3 svefnherbergi. Lagt fyrir þvottavél í baöherbergi. Út-
sýni. Laus strax. Einkasala.
Arni Stefánsson, hrl.
Málflutningur. Fasteignasala.
Suöurgötu 4. Sími:14314.
Kvöldsými: 34231.
dagsins Ijós og er myndarlega af stað
farið, þar sem stærð hennar er um 900
bls.
Bókin kemur út samtímis hér og í
Svíþjóð, hinn íslenzki útgefandi er
Almenna bókafélagið og hinn sænski
Walter Ekstrand Bokförlag, Lundi.
Hún héTur verið í smíðum í 13 ár og
vinnan einkum farið fram í Lundi.
Við samninguna hefur verið lögð
áherzla á að bókin sé handhæg not-
endum hvort heldur þeir eru íslenzk-
ir eða sænskir. í upphafi hennar er
greinargerð um sænskan framburð
og málfræði og einnig íslenzkan
framburð og beygingarfræði íslenzk-
unnar. Þá eru og skrár yfir starfs-
heiti sænskra og íslenzkra starfs-
manna ríkis og kirkju og skrá yfir
allmörg staðanöfn víðsvegar um
heim á sænsku og íslenzku.
Þá er lögð mikil áherzla á sænsk
orðtök og fundin tilsvarandi íslenzk
ef til eru. Dæmi: kasta yxan i sjön:
leggja árar í bát.
Margt tækniorða er að finna í bók-
inni og orða úr daglegu lífi sem
sjaldgæf eru í orðabókum. Dæmi
karcnstid sem skýrt er þannig: tími
áður en bótagreiðslur hefjast (frá
sjúkrasamlagi, tryggingarfélagi
o.þ.h.).
Bókin veitir einnig miklar upplýs-
ingar um íslenzkuna með hliðsjón af
erlendum notendum. Við íslensku
orðin stendur tölustafur sem vísar
til kafla í beygingarfræðinni. Við
orðið jörð stendur t.d. talan 40 og
flettum við upp á því í beygingar-
fræðinni sjáum við þar að orðið
beygist eins og höfn.
Egilsstaðir:
Barnaskemmtun
leikfélagsins
KgilsNtöúum, 14. febrúar.
LEIKFÉLAG Fljótsdalshéraðs tók upp þann góða sið fyrir einum 6
árum að efna til sérstakrar skemmtunar fyrir yngstu kynslóðina á
öskudaginn. En með vaxandi útivinnu beggja foreldra þótti betur henta
að halda skemmtun þessa á almennum frídegi, svo að foreldrum gæfist
kostur á að taka þátt í skemmtan barna sinna. Því hefur skcmmtun
þessi verið haldin sunnudaginn fyrir öskudag hin síðari ár.
1 gær var skemmtun þessi
haldin samkvæmt venju og
komu margir til leiks í dular-
gervi eins og hæfir „öskudags-
skemmtun". Mátti þar líta sjó-
ræningja, skipstjóra aftan úr
grárri forneskju, vofur og jafn-
vel Línu langsokk og alls konar
trúða.
Til skemmtunar nærstöddum
flutti leikfélagsfólk þætti úr
Kardimommubæ Thorbjörns
Egner; fýlupokar, galdramaður
og Fóa feykirófa tróðu upp að
ógleymdu harðsnúnu liði leik-
skólabarna, sem sungu og léku.
Að lokum var stiginn dans og
virtust fullorðnir ekki skemmta
sér síður en börnin.
Þrjár leikfélagskonur, Pálína
Hauksdóttir, Jóhanna Illuga-
dóttir og Sigríður Halldórsdótt-
ir, undirbjuggu skemmtun þessa.
Formaður Leikfélags Fljóts-
dalshéraðs er Kristrún Jónsdótt-
ir. Leikfélagið var stofnað fyrir
hartnær 14 árum.
Ólafur.
Neikvæður — Jákvæður
Vestmannaeyjar til
sölu góð jörð
Til sölu ca 11 hektara vel ræktuö jörö, erföafestu-
land. Á jöröinni eru 3 útihús og nýtt 140 fm íbúðar-
hús. Jöröin hentar mjög vel fyrir hæsnarækt eöa
minni búskap. Skipti koma til greina á 2ja til 3ja herb.
íbúö á Reykjavíkursvæðinu. Verð 1.700 þús.
Upplýsingar gefur
Huginn fasteignamiölun,
Templarasundi 3, símar 25722 og
15522.
—eftir Garðar H.
Svavarsson
Nú undanfarið er ég hef rætt við
flokkssystkin mín um fyrirhugað
prófkjör sjálfstæðismanna í Reykja-
neskjördæmi, hefur eitt vakið furðu
mína.
Það er sú fullyrðing að Ólafur G.
Einarsson sé afar neikvæður maður.
Þessi stadhæfing er byggð á þeim
rökum að Ólafur hafi undanfarin ár
verið mjög neikvæður í öllum þeim
viðtölum, sem fréttamenn hafi átt
við hann. Þetta finnst mér furðuleg
afstaða, sérstaklega þegar þess er
gætt, hvað umræðuefnið hefur verið.
Umræðuefnið hefur nefnilega
alltaf verið sú vinstrisinnaða rík-
isstjórn, sem nú situr við völd á
íslandi. í mínum huga getur það
ekki talist neikvætt fyrir sjálf-
Olafur G. Einarsson
stæðismann að vera á móti þessari
ríkisstjórn og óstjórn hennar á
fjármálum, sveitarstjórnamálum,
atvinnumálum og yfirleitt öllum
málum.
Nei, flokksbræður góðir, ólafur
G. Einarsson er ekki neikvæður
maður. Öll hans afstaða hefur ver-
ið jákvæð, því það hlýtur að vera
jákvætt fyrir flokk sem berst fyrir
frelsi einstaklingsins og einka-
framtaksins að vera á móti stjórn
sem þeirri, er nú situr við völd á
íslandi. Og það hlýtur að vera
jákvætt fyrir Sjálfstæðisflokkinn
að hafa slíkan mann sem Ólaf G.
Einarsson í öruggu sæti á fram-
boðslista flokksins í Reykjanes-
kjördæmi við komandi Alþingis-
kosningar.
Mætum því í prófkjörinu og
kjósum Ólaf G. Einarsson í öruggt
sæti.