Morgunblaðið - 23.02.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1983
15
xsm.
Hcrmcnn gráir fyrir járnum í varðstödu í Assam.
Margra er einnig saknað, m.a. 7
manna liðs af snjóruðningstækj-
um, sem fengu það verkefni að
ryðja fjallveg nokkurn í Malatya.
Rafmagnsleysi, samgönguleysi og
fleira hefur hrjáð Tyrki í ótíðinni,
skemmdir hafa orðið á ökrum og
allt flug hefur legið niðri. Hvergi
Óætur sovéskur
niðursuðufiskur
á Afríkumarkað
Sunday Telegraph, 20. Tebrúar.
SOVÉTMENN hafa verið staðnir að
því að selja þúsundir tonna af niður-
soðnum makríl til landa í vestur-
hluta Afríku, hráefni sem er svo lé-
legt að það myndi aldrei sleppa fram
hjá breskum reglum um vörugæði.
Sovéskir verksmiðjutogarar
kaupa umræddan makríl af bresk-
um fiskibátum og sjóða niður á
rúmsjó. Er niðursuðunni svo
ábótavant að með ólíkindum hefur
þótt. Með makrílbitunum í hverri
dós er ekki annað en dálítið af
saltvatni, eitt laufblað og dálítið
af sykri. Á breskum rannsókn-
arstofum hafa all margar dósir
hreinlega sprungið áður en sér-
fræðingar hafa getað lagt á þær
hendur með dósahnífa sína. Og
það er ekki nóg með að negrunum
í Afríku sé boðið upp á þetta,
talsvert af ólyfjan þessari er flutt
til Eystrasaltsstranda og Sovét-
Þota hrapaði
Sao l'aulo, Itra.silíu, 22. febr. AP.
BOEING 737 þota hrapaði skömmu
eftir flugtak skammt frá borginni
Manaus. Vélin var í eigu VASP-
flufélagsins brasilíska og er þetta
þriðja þota þess félags sem hrapað
hcfur á tæpu ári.
Aðeins tveir menn voru um
borö, flugmaðurinn og aðstoöar-
maöur hans, og létust þeir báðir.
Danir að verða skuld-
ugasta þjóð í heimi
Kaupmannahofn, 22. febrúar.
DANIR MUNU slá nýtt heimsmet á þessu ári, sem enginn öfundar þá af.
Áður en árið er liðið í aldanna skaut munu þeir vera orðnir skuldugasta þjóð
í heimi, 3500 dollarar í mínus á hvert mannsbarn (hér hefur greinilega
gleymst eins og fyrri daginn að reikna með íslendingum, sem skulda 4000
dollara á hvert höfuð).
En „eitthvað er rotið innan
Danaveldis", sem áður var fyrir-
mynd annarra fyrir búhyggindi og
stöðugleika. Allt frá stríðslökum
hafa jafnaðarmenn farið með
völdin lengst af og staðið fyrir
margvíslegum, félagslegum um-
bótum. Ríkisumsvifin hafa bólgn-
að út (20% vinnuaflsins vinna hjá
ríkinu) og launin voru bundin vís-
itölunni. Síðan kom olíukreppan
og samdrátturinn en Danir flytja
inn allt sitt eldsneyti því að þeir
hafa bannað kjarnorkuver.
Dönum er hins vegar öðru vísi
farið en Svíum, bræðrum þeirra í
norðri, og láta ekki leiðinlegar töl-
ur eyðileggja fyrir sér daginn.
Poul Schlúter, forsætisráðherra,
sem er fyrsti forsætisráðherrann
úr flokki íhaldsmanna á þessari
öld, er líka bara ánægður með ár-
angurinn. „Við stefnum að því að
skera niður ríkisútgjöldin um 24
milljarða dkr. en sættum okkur
loks við 21 milljarð, sem er meira
en við þorðum að vona,“ sagði
hann.
Schlúter hefur einnig tekist að
slá vísitölunni á frest, sem er
kraftaverk út af fyrir sig, og hann
segist gera sér góðar vonir um
vaxtalækkun á sumri komanda,
sem ýtti undir iðnframleiðsluna
og minnkaði atvinnuleysið.
Jafnaðarmenn gera harða hríð
að Schlúter en þeim er þó ekki
eins leitt og þeir láta. „Schlúter er
Tyrkland:
Mannfellir
í kuldakasti
Ankara, Tyrklandi. 22. fcbrúar. AP.
AÐ MINNSTA kosti níu manns hafa farist í miklu kuldakasti sem gengið
hefur yfir Tyrkland síðustu dagana. Hápunktur kastsins var fimm daga
blindbylur með tilheyrandi brunagaddi. Þá féllu flestir hinna níu sem vitað
er um í valinn.
mældist minna en 15 sentimetra
jafnfallinn snjór og víða var allt
að tveggja metra snjór á jörðu.
Alls staðar var hitinn undir frost-
marki, mest mældist frostið 18
stig. Veðurspáin hjá Tyrkjum er
ekki árennileg, svipuðu veðri er
spáð áfram um óákveðinn tíma.
ríkjanna og ætlað heimamönnum.
Makrílvertíðin hefst í Norður-
sjónum innan tíðar og búast Bret-
ar við rússnesku skipunum hvað
og hverju. Sovétmenn hafa reitt
sig á veiðar Breta síðan að togur-
um þeirra var meinað veiða innan
200 mílna efnahagslögsögu Bret-
lands árið 1977.
Sá hlær best sem síðast hlær
l*au voru hálf ömurleg örlög sænska innbrotsþjófsins, sem braust inn í
hljómtækjaverslun Axelssons í Stokkhólmi á dögunum. Þjófurinn
komst klakklaust inn í verslunina, en þegar hann ætlaði sér út með
ránsfenginn kárnaði gamanið. Hann festist í loftræstistokki verslunar-
innar og komst hvergi. Það var ekki fyrr en að vegfarandi heyrði
neyðaróp hans, að hægt var að koma honum til bjargar. Tók það
lögreglu klukkustund að losa hann úr prísundinni. Ekki ber á öðru en
gamla máltækið „sá hlær best, sem síðast hlær“, eigi vel við í þessu
tilviki.
33 tonna jaðibjarg
á sýningu í Burma
Kangoon, Kurma, 22. febrúar. Al’.
YFIRVÖLD í Kangoon lögðu mikið á
sig til að koma 33 tonna grjótkletti til
byggða djúpt úr frumskógum Burma
fyrir skömmu. Steinninn var enginn
venjulegur götuhnullungur, heldur
var á ferðinni stærsti klettur úr
hreinu jaði sem vitað er um. Er jaði-
kletturinn tíu tonnum þyngri en sá
stærsti sem áður var vitað um.
Steinninn fannst í frumskógar-
þykkni 1.280 kílómetra norður af
Rangoon og var lagður sérstakur
130 kílómetra langur akvegur inn í
skóginn gagngert til að nálgast
flykkið og flytja það til byggða, þar
sem það skipar öndvegissess á ár-
legri skrautsteinasýningu sem yf-
irvöld í Burma standa fyrir.
Steinninn var jarðfastur og voru
gríðarþungir vörubílar notaðir til
að losa hann. Sömu trukkarnir
drógu steininn síðan til byggða og
var fjölmennt lögreglulið grátt
fyrir járnum með í þeirri för, enda
reyndu stigamenn hvað eftir annað
að ná gerseminni á sitt vald.
Steinninn verður ekki seldur að
sýningunni aflokinni eins og annað
grjót á henni. Hins vegar hafa
stjórnvöld gefið í skyn að steinn-
inn verði sagaður niður síðar á ár-
inu og væntanlega seldur á næsta
uppboði. Þessi uppboð hófust árið
1964 og voru sett til höfuðs ólög-
legu svartamarkaðsbraski með
skraut-steina. Uppboð síðasta árs
gaf stjórnvöldum 5,36 milljónir
dollara í aðra hönd og tekjur ríkis-
sjóðs Burma af skrautsteinasöl-
unni frá 1964 hafa numið alls 74,5
milljónum.
fínn. Svona þér að segja, þá gerir
hann það, sem við vildum gert
hafa en þorum ekki af ótta við að
meiða flokkinn og missa stuðning
verkalýðsfélaganna. Samt sem áð-
ur, þegar hann hefur gert sitt
gagn ...“ sagði einn þeirra við
fréttamann frá Observer nú fyrir
skemmstu. Síðan dró hann vísi-
fingur eftir bárka sér og hló,
klappaði fréttamanninum á bakið
og sagði: „Fáum okkur einn enn
'áður en allt fer norður og niður.“
(Observer)
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
HULL:
Jan .. 7/3
Jan .. 21/3
Jan .. 4/4
ROTTERDAM:
Jan .. 8/3
Jan .. 22/3
Jan .. 5/4
ANTWERPEN:
Jan .. 23/2
Jan .. 9/3
Jan .. 23/3
Jan .. 6/4
HAMBORG:
Jan .. 25/2
Jan .. 11/3
Jan .. 25/3
Jan .. 8/4
HELSINKI:
Helgafell .. 5/3
Helgafell .. 4/4
LARVIK:
Hvassafell .. 3/3
Hvassafell .. 14/3
Hvassafell .. 28/3
Hvassafell ... 11/4
GAUTABORG:
Hvassafell ... 2/3
Hvassafell ... 15/3
Hvassafell ... 29/3
Hvassafell ... 12/4
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell ... 1/3
Hvassafell ... 16/3
Hvassafell ... 30/3
Hvassafell ... 13/4
SVENDBORG:
Hvassafell ... 28/2
Helgafell ... 9/3
Hvassafell ... 17/3
Hvassafell ... 31/3
Hvassafell ... 14/4
AARHUS:
Hvasssafell ... 28/2
Helgafell ... 9/3
Hvasssafell ... 17/3
Hvassafell ... 31/3
Hvassafell ... 14/4
GLOUCESTER MASS.
Skaftafell ... 23/3
Skaftafell ....... 23/4
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell ........ 25/3
Skaftafell ........ 25/4
1»
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101