Morgunblaðið - 23.02.1983, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1983
17
31. fundur Norðurlandaráös í Osló
Bókmennta
verðlaun Norður-
landaráðs afhent
Krá Sijjtrygjíssyni fréttastjóra
Morj'unhlaósins í Osló
Osló, 22. febrúar.
BÓKMENNTAVERÐLAUN
Norðurlandaráðs voru afhent
við hátíðlega athöfn í „Oslo
konserthus“ í kvöld. Verðlaun-
in hlaut sem kunnugt er danski
rithöfundurinn Peter Seeberg
fyrir bók sína „Om fjorten
dage“, sem kom út árið 1981.
Hann tók við verðlaununum úr
hendi Jo Benkow, forseta
Norðurlandaráðs. Verðlauna-
hafinn flutti ávarp við þetta
tækifæri.
Einn dómnefndarmanna,
Ulla-Britta Lagerroth, pró-
fessor, gerði grein fyrir
skáldinu og verkum þess i
ítarlegri ræðu. Hún sagði
m.a. að nú væru níu ár liðin
síðan Danir hefðu síðast unn-
ið til þessara verðlauna. Nú
féllu þau Peter Seeberg í
skaut og hér væri verið að
„heiðra merkilega bók sem
kemur víða við“, eins og hún
orðaði það. Að lesa bókina
væri mikil reynsla, eins kon-
ar ferð um rúm og tíma. Hún
fjallaði bæði um hið minnsta
og hið stærsta, „milli guðs og
snigils", eins og frúin orðaði
það.
Peter Seeberg er tæpra 58
ára, fæddur á Jótlandi. Hann
hefur víða komið við í lífinu.
Hann var í Berlín í stríðinu.
Hann hefur tekið þátt í forn-
leifauppgreftri í Bergen og
Kuwait og farið í rann-
sóknarleiðangur til Hudson
Bay. Hann hefur um langa
hríð starfað sem safnvörður
og hefur verið formaður
danska rithöfundasambands-
ins síðan 1981. Hann hefur
gefið út þrettán bækur, þá
fyrstu 1956, skáldsögur, smá-
sögur, leikrit, kvikmynda-
handrit og fræðibækur.
Pétur Sigurdsson og Sverrir Hermannsson ræðast við á þingi Norðurlandaráðs í Osló í gær.
Almennu umræðurnar á Norðurlandaráðsþingi:
Atvinnuleysi, efnahags-
vopnunarmál ofarlega á
Osló, 22. febrúar.
ATVINNUMÁL, efnahagsmál og afvopnunarmál hafa sett mestan svip á
tveggja daga almennar umræður á 31. þingi Norðurlandaráðs í Ósló.
Það hefur komið mjög sterkt fram hjá mörgum þingfulltrúum, að nú
verði að ráðast af alvöru gegn atvinnuleysinu á Norðurlöndum, sem
aldrei hefur verið alvarlegra. Nú eru 700 þúsund vinnufærir menn á
Norðurlöndum án atvinnu og menn tala um samnorrænt átak gegn
atvinnuleysinu.
Þetta viðhorf kemur vel fram í
ræðu Anker Jörgensen, fyrrver-
andi forsætisráðherra Danmerk-
ur, sem sagði í ræðu sinni m.a.:
„Með tilliti til hinna atvinnu-
lausu og til samfélagsins í heild
og af-
baugi
er nauðsynlegt að snúa við þeirri
þróun, sem átt hefur sér stað sl.
10 ár á meðan þetta kreppu-
ástand hefur varað. Þetta er ekki
síst mikilvægt vegna unga fólks-
ins, sem taka á við samfélaginu,
Aukin aðild Færeyinga,
Grænlendinga og Álands-
eyinga til umræðu í dag
Osló, 22. febrúar.
SAMGÖNGUMÁL og lagamál
verða til umræðu á 31. þingi Norð-
urlandaráðs á miðvikudag. Hall-
dór Ásgrímsson situr í laganefnd-
inni fyrir íslands hönd og Stefán
Jónsson situr í samgöngumála-
nefndinni. Blaðamaður Mbl. bað
þá að skýra frá því sem er efst á
baugi í þessum málaflokki.
— Aðild Grænlendinga og
aukin aðild Færeyinga og
Álandseyinga verður stærsta
málið sem laganefndin leggur
fyrir þetta þing Norðurlanda-
ráðs sagði Halldór Ásgrímsson.
— Samkomulag hefur orðið
um það í laganefndinni að þessar
þrjár þjóðir fái sérstakar sendi-
nefndir hjá Norðurlandaráði.
Færeyingar hafa hingað til verið
með tvo menn í dönsku nefnd-
inni en verða framvegis með
tveggja manna nefnd í eigin
nafni, Álandseyingar sem
hingað til hafa verið með einn
mann í finnsku nefndinni fá
tveggja manna eigin nefnd og
sömuleiðis munu Grænlendingar
fá eigin tveggja manna nefnd.
Hingað til hafa þeir ekki haft
neinn mann í dönsku nefndinni,
nema hvað einn Grænlendingur
hefur verið í hópi dönsku full-
trúanna.
— Gert er ráð fyrir því að
þjóðirnar þrjár eigi aðild að
ákveðnum nefndum en geti setið
fundi í öllum fastanefndum
nema forsætisnefndinni með
rétti til tillöguflutnings. Tillaga
þarf að hljóta samþykki þjóð-
þinga áður en hún fær gildi. Það
þýðir að nýja fyrirkomulagið
mun ekki taka gildi að fullu fyrr
en árið 1984.
— Ég tel að með þessu fyrir-
komulagi hafi náðst fram veru-
leg viðurkenning á sjálfstæði
þessarra þriggja þjóða. Það ligg-
ur einnig fyrir að þær fái að
óbreyttu ekki sama rétt og stofn-
þjóðirnar fimm, sem allar eru
fullvalda þjóðir. En ef Færey-
ingar ákveða að stofna sjálf-
stætt ríki, munu þeir að sjálfs-
ögðu fá öll sömu réttindi og
stofnþjóðirnar fimm, sagði Hall-
dór Ásgrímsson að lokum.
Ferjumálið mun
koma fram
enn einu sinni
— Ferjumálið margnefnda
verður rætt hér eins og á mörg-
um fyrri þingum, sagði Stefán
Jónsson, aðspurður um helstu
samgöngumálin, sem verða til
umræðu hér í Osló.
— Það liggur fyrir gömul
samþykkt Norðurlandaráðs um
ferju sem verði í förum allt árið
milli Islands, Færeyja og hinna
Norðurlandanna, sagði Stefán.
Gerð var skýrsla árið 1975, sem
sýndi að þetta fyrirtæki gæti
borgað sig. Síðan komu ný við-
horf, olíuverðshækkanir og
fleira og þá dofnaði yfir hug-
myndinni og meira að segja
Steingrímur Hermannsson lýsti
því yfir á fundi norrænna
samgönguráðherra að ríkis-
stjórnir Norðurlandanna hefðu
ekki áhuga á þessu máli, en við í
samgöngunefndinni viljum ekki
gefast upp og viljum að skýrslan
frá 1975 um rekstursafkomu
ferjunnar verði endurmetin.
— Annað mál, sem hér mun
koma til umræðu er Grænlands-
flugið. SAS hefur sem kunnugt
er hætt millilendingum á íslandi
og eru nú engar ferðir milli ís-
lands og Grænlands nema í
gegnum Kaupmannahöfn.
Ástandið er svo slæmt að nefnd
um aukin samskipti Islands,
Færeyja og Grænlands, skipuð
fulltrúum þessara þjóða, hefur
neyðst til að halda fundi í Kaup-
mannahöfn.
— Samgöngumálanefndin var
upphaflega stofnuð til að gera
samgöngur milli Norðurland-
anna auðveldari. Nú beinist
starfið hins vegar meira og
meira að því að mæta erfiðleik-
um, sem stafa af miklum og góð-
um samgöngum milli skandin-
avísku landanna. En ég vil alls
ekki gera lítið úr starfi nefndar-
innar, hún hefur leitt af sér
margt gott, sagði Stefán Jónsson
að lokum.
en hefur átt alltof takmarkaðan
aðgang að atvinnulífinu. Við
megum heldur ekki gleyma því
að börnin í dag eiga erfitt með
að ímynda sér atvinnuleysi sem
eitthvað sem muni hverfa. Þau
hafa ekki þekkt annað ástand.
Ef við snúum ekki við blaðinu,
kann það að hafa áhrif á skiln-
ing þeirra á samfélaginu.
Norrænn
heimamarkaður
Norrænn heimamarkaður er
slagorð sem margir hafa minnst
á, þ.e. aukin efnahagssamvinna
Norðurlanda og aukin viðskipti
þeirra á milli. Áhuginn er vissu-
lega fyrir hendi hjá öllum Norð-
urlandaþjóðunum. Það kemur
fram í ræðum manna en margir
hafa efasemdir um að þetta tak-
ist nema að litlu leyti þegar til
kastanna kemur. Komið hafa
fram ásakanir hjá fulltrúum
þjóðanna í hvers annars garð um
verndaraðgerðir og styrkjakerfi,
sem leysi vandamál einstakra
þjóða á kostnað annarra. Það
hefur ennfremur komið fram
gagnrýni á gengisfellingar Svía,
sem hafi hjálpað útflutnings-
greinum þeirra á kostnað ná-
grannanna. En hvað um það, all-
ir eru sammála um að reyna af
fremsta megni að auka efna-
hagssamvinnu Norðurlandanna.
Afvopnunarmál
Ýmsir hafa gert afvopnun-
armál að umtalsefni í ræðum
sínum þótt svo eigi að heita að
utanríkismál skuli ekki rædd á
þingum Norðurlandaráðs. Gagn-
rýni hefur komið fram um þetta,
m.a. hjá Svavari Gestssyni, sem
vildi fá umræður og tillögu-
flutning um afvopnunarmál á
vettvangi Norðurlandaráðs.
Nokkrar umræður spunnust
um afvopnunarmál að lokinni
ræðu Olof Palme, forsætisráð-
herra Svía, í morgun. Hann
gerði þessi mál að umtalsefni og
lýsti yfir ánægju með friðar-
hreyfingar og gerðir þeirra.
Danski ráðherrann Arne
Melchior tók til máls á eftir
Palme og sagði m.a. að svokall-
aðar friðarhreyfingar hefðu eng-
an einkarétt á friði. Stærsta
friðarhreyfingin, a.m.k. í Dan-
mörku og Noregi, væri sá stóri
hópur fólks sem fylkti sér um
friðarhreyfinguna, sem nefndist
Atlantshafsbandalagið.
íslendingum hælt
fyrir að mótmæla
ekki hvalveiðibanni
Osló. 22. febrúar.
DANSKUR prestur, Margaret
Auken, þingmaður Socialistisk
folkeparti, flutti alþingi íslendinga
lof og prís á fundi Norðurlanda-
ráðs í dag. Ástæðan var sú ákvörð-
un þingsins að mótmæla ekki
hvalveiðibanni Alþjóðahvalveiði-
ráðsins. Þessi sami þingmaður
skammaði íslendinga á þingi
Norðurlandaráðs í fyrra fyrir að
veiða hval.
Margaret Auken sagði að með
ákvörðun sinni hafi Islendingar
aukið hróður Norðurlanda á al-
þjóða vettvangi. Hún skammaði
Norðmenn hins vegar harkalega
fyrir þeirra afstöðu í hvakeiði-
málum og sagðist óttast að hún
ætti eftir að hafa alvarlegar af-
leiðingar fyrir þá og önnur Norð-
urlönd. Margaret Auken kom
einnig með harða gagnrýni á
Svía fyrir stefnuna í kjarnorku-
málum. Bæði var það vegna
reksturs Barsebáck-kjarnorku-
versins sem stendur skammt frá
Kaupmannahöfn og vegna samn-
ingsins, sem Svíar gerðu á sínum
tíma við Frakka er þeir síðar-
nefndu tóku að sér að koma
geislavirkum úrgangi frá sænsk-
um kjarnorkuverum fyrir katt-
arnef. Úrgangurinn hefur til
þessa verið fluttur sjóleiðis í
gegnum Eyrarsund til franskrar
hafnarborgar, sem hefur valdið
gagnrýni í Danmörku. Þingmað-
urinn taldi vafa leika á hvort
skipið sem væri í þessum flutn-
ingum stæðist aiþjóðlegar ör-
yggiskröfur.