Morgunblaðið - 23.02.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1983
19
Bæjarstjóm Seyðisfjarðar:
Má búast við flóttamannastraumi
frá landsbyggðinni til SV-hornsins
verði mismunur á orkuverði ekki lagfærður
BÆJARSTJÓRN SeyðisfjarAar fjall-
aði á fundi sínutn fyrir skömmu um
samanburð orkukostnaðar í Seyðis-
firði annars vegar og á Faxaflóa-
svsðinu hins vegar. Þar kom fram
að verulegur verðmunur er á orku á
þessum stöðum. A fundinum lagði
bæjarráð fram eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórn Seyðisfjarðar sam-
þykkir að ekki verði lengur unað við
þá verðlagningu orku sem viðgengst
í dreifbýli og vill í því sambandi
benda á eftirfarandi greinargerð:
Vegna síhækkandi orkukostnað-
ar heimila (og fyrirtækja) í Seyð-
isfjarðarkaupstað er nú svo komið
að algengt er að orkukostnaður til
Lagasetning
í Grágás
SIGIIRÐUR Líndal prófessor
flytur í kvöld erindi á fundi
Lögfræðingafélags íslands, sem
hann nefnir: Hugmyndir um lög
og lagasetningu í Grágás. í er-
indi þcssu mun Sigurður einkum
fjalla um hugmyndir manna í
Kvrópu um eðli laga og lagasetn-
ingar og leitast við að skýra
ákvæði Grágásar með hliðsjón af
þeim.
Þessi ákvæði verða einkum
tekin til skoðunar: Um laga-
uppsögu lögsögumanns, um
hlutverk lögréttu, um laga-
skrár og um lögmálsþrætur. í
erindi sínu mun próf. Sigurður
gera grein fyrir skoðunum
fræðimanna, einkum þeirra
Vilhjálms Finsen og Konráðs
Maurer, en einnig lýsa skoðun-
um Páls Briem og Peter G.
Foote. Loks verður leitast við
að tengja hugmyndirnar, sem
búa að baki ákvæðum Grágás-
ar við nokkrar réttarhugmynd-
ir og stórnspekihugmyndir
nútímans.
Erindi sitt flytur próf. Sig-
urður Líndal kl. 20.30 í kvöld í
stofu 101 að Lögbergi, húsi
lagadeildar Háskólans.
almennrar heimilisnotkunar og
upphitunar sé um 4.000—5.000
krónur á mánuði. Hér er um að
ræða rúmlega hálfsmánaðar laun
verkamanns í dagvinnu. Auðsætt
er, að þegar þessar frumþarfir
nútímaþjóðfélags eru svo dýrar,
sem raun ber vitni, gengur það
kraftaverki næst, að endar nái
saman hjá heimilunum. Ef tekið
STJÖRNUBÍÓ frumsýnir í dag
kvikmyndina Keppnin, bandari.sk
kvikmynd í litum, sem að sögn
kvikmyndahússins hefur fengið
frábærar viðtökur erlendis.
Aðalhlutverk í myndinni leika
FÉLAG viðskiptafræðinga og hag-
fræðinga heldur hádegisverðarfund
á morgun, fimmtudag, í Þingholti,
klukkan 12.15—13.45, þar sem dr.
Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri,
mun flytja erindi er nefnist „Er
er tímabilið nóv. 1981 til nóv. 1982
og bornar saman hækkanir á
launum annars vegar og orku
hinsvegar kemur í ljós að laun
hafa hækkað um u.þ.b. 50% en
orka til heimilisnotkunar hefur á
sama tíma hækkað um 70—125%.
{ raun er dæmið verra en hér
segir því heildartekjur launafólks
hafa ekki náð 50% meðalhækkun
milli ára vegna minnkandi sjávar-
afla. Því miður sér ekki fyrir end-
Richard Dreyfuss, Amy Irving,
Lee Remick, Sam Wanamaker
o.fl. Handrit hefur samið Joel
Oliansky og er hann einnig leik-
stjóri. Sinfóníuhljómsveit Los
Angeles leikur í myndinni.
frjáls utanríkisverzlun dauð?“.
Þetta er fyrsti fundur félagsins
á þessu ári af fjórum, en í bígerð
er að halda fundi um ýmis hag-
fræðileg málefni á vegum fræðslu-
nefndar félagsins.
ann á þessari þróun, og er nýleg
21,3% hækkun orkutaxta glöggt
dæmi þar um.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að Seyðisfjörður er ekkert
sértilfelli í þessum efnum. í kaup-
stað eftir kaupstað, fjölda þorpa
og í sveitum landsins þurfa menn
að sæta afarkjörum í verðlagn-
ingu á orku til heimilanna. Verði
þetta ekki lagfært hið fyrsta, og
lagfært þannig að verulega muni
um fyrir heimilishaldið, má búast
við flóttamannastraumi frá lands-
byggðinni til SV-hornsins, sem
býður margfalt betri kjör hvað
þetta varðar.
Oft er um það rætt að fjárveit-
ingar til mismunandi hluta séu
mishagkvæmar þjóðhagslega. Ef
eitthvað er virkilega þjóðhagslega
slæmt, jafnvel hættulegt, þá er
það of mikill fólksflutningur á
skömmum tíma af einu svæði á
annað. Stórfelld hætta er á slíku
meðan óeðlilega mikill munur er á
verðlagi brýnustu lífsnauðsynja. í
ljósi þessa má líta á „réttláta"
verðlagningu orku til almennings
sem þjóðhagslega hagkvæma,
bráðnauðsynlega og óumflýj-
anlega ráðstöfun.
DAGANA 24. febrúar til 2. mars
verður haldin svokölluð opin vika
í Fjölbrautaskólanum á Akra-
nesi. Þessa daga munu nemend-
ur vinna að ýmiskonar verkefn-
um og haldnir verða fyrirlestrar
um fjölmörg efni.
Ýmislegt verður einnig til
skemmtunár, meðal annars
flytja nemendur skólans leik-
ritið „Klerka í klípu" og verða
sýningar á því á föstudags- og
Bíóhöllin
sýnir
„Oþokkana“
BÍÓHÖLLIN hefur hafið sýningar á
myndinni „Oþokkarnir", sem fjallar
um atburði, er látnir eru gerast á
dögunum, þegar New York myrkv-
aðist.
{ kynningu kvikmyndahússins
segir: „Að vera staddur í New
York rafmagnslausri er ekkert
grín. Á því fá þeir að kenna, sem
verða á vegi óþokkanna fjögurra,
sem sleppa undan lögreglunni í
öllum látunum. Liftur stöðvast,
umferðin fer öll í rugling og allt er
á öðrum endanum einn júlídag ár-
ið 1977 ...“
sunnudagskvöld. Nemendur
munu einnig starfrækja út-
varpsstöð, sem mun senda út
margvíslegt efni alla daga vik-
unnar frá klukkan 9.00 til 11.00
fyrir hádegi og 13.30 til 15.00.
Utvarpsstöðin mun senda út á
98,7 mhz (FM)
Akurnesingar eru hvattir til
að taka virkan þátt í starfsemi
skólans þennan tíma.
J.G.
Úr myndinni Keppnin.
Stjörnubíó sýnir Keppnina
Hádegisverðarfundur FVH:
„Er frjáls utanríkisverzlun dauð?“
Akranes:
Opin vika í Fjöl-
brautaskólanum
Akranesi, 22. Tebrúar.
• mm
Bestubílakaupin ídag!
Mazda929 Hardtop Limited
Innifalinn búnaður:
Veltistýri • Rafdriínar rúdur og hurdarlæsingar • Vatns-
sprautur á adalljós • „Cruise control“ • Mælabord með
snertirofum • Útiapcglar beggja vegna • Advörunartölva •
Quarts klukka • Stokkur milli framsæta med geymsluhólfi •
Opnun á bensínloki og farangursgeymsiu innan frá • Halo-
genframljós • Litad gler í rúdum • Innfelld rúllubelti á fram
og aftursætum • Hædarstilling á ökumannssæti og fjölmargt
fleira.
VERÐ AÐEINS KR.
248.500
gengisskr. 16.2 83
BILABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99
Bestubílakaupin ídag!
MAZDA 929 Limited 4 dyra með öllu
Innifalinn búnaður:
Sjálfskipting - Vökvastýri - Álfelgur - Raf-
knúin sóllúga - Rafknúnar rúdur - Rafknúnar
hurdarlæsingar - Veltistýri - Luxusinnrétting
og fjölmargt fleira
VERÐ MEÐ OLLU ÞESSU AÐEINS KR.
276.500
gengisskr. 16.2.’83
BILABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99