Morgunblaðið - 23.03.1983, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983
55
Kosningabaráttan hafín
Sesselja Sigurðardóttir mælti fyrir
munn þeirra nemenda, sem andvígir
eru hinum nýju kennsluháttum.
getað stundað nauðsynlegt og
þroskandi sjálfsnám. Þetta
nýja fyrirkomulag væri þeim
nemendum því kærkomin
lausn. Þá gat Kristinn þess, að
stundakennarar hefðu leyfi til
þess, vegna lítillar viðverðu
sinnar í skólanum, að skylda
nemendur til að sækja
kennslustundir hina óbundnu
vikudaga.
Kristinn sagðist sannfærður
um ágæti þessa kerfis, en með
því að hlusta á gagnrýnendur
mætti margt laga varðandi
framkvæmd þess.
Kristján Högnason mælti
fyrir munn þess þorra nem-
enda, sem hlynntir eru þessum
nýju kennsluháttum. Taldi
hann höfuðkostinn vera þann,
að fyrir bragðið gætu nemend-
ur betur hagað tíma sínum með
tilliti til kunnáttu sinnar og
stöðu í einstöku námsgreinum.
Nokkrir tóku til máls að
framsöguerindum loknum og
sýndist sitt hverjum, eins og
verða vill, auk þess sem fyrir-
spurnir komu fram.
Guðrún K. Einarsdóttir,
nemandi, kynnti félagslíf nem-
enda í skólanum — og nemend-
ur buðu gestum upp á kaffi-
veitingar.
Heldur fáir foreldrar sátu
fundinn — enda viðraði illa —
og jafnvel illfært um fjallvegi.
— Ólafur
Fyrirlestur
um nýjar að-
ferðir í geð-
lækningum
GEÐHJÁLP, félag gedsjúkra, að-
standenda þeirra og velunnara,
gengst í vetur fyrir fyrirlestrum
um geóheilbrigðismál og skyld
efni. Fyrirlestrarnir verða haldnir
á geðdeild Landspítalans, í
kennslustofu á 3. hæð. Þeir verða
mánaðarlega.
Næsti fyrirlestur verður
fimmtudaginn 24. mars 1983 kl.
20. Jónas Gústafsson sálfræð-
ingur talar um nýjar aðferðir í
geðlækningum. Fyrirlestrarnir
eru bæði fyrir félagsmenn, svo
og alla aðra, sem áhuga kynnu
að hafa.
— eftir Birgi ísl.
Gunnarsson, alþm.
Alþingi hefur verið rofið, kosn-
ingar hafa verið ákveðnar þann
23. apríl nk. og stjórnmálaflokkar
og aðrir, sem bjóða fram, eru að
hefja kosningabaráttu. Þessi bar-
átta verður stutt, en snörp. Páskar
koma inn í almanakið á þessum
tíma og því má búast við að það
verði ekki fyrr en eftir páska, sem
lokatörnin hefst, og mun þá
standa í 2'k viku.
Ringulreið og upplausn
Hvaða mynd er það, sem blasir
við okkur í þjóðfélaginu í upphafi
þessarar kosningabaráttu? Svarið
er ringulreið og upplausn. Ríkis-
stjórninni hefur tekist að koma
málum þannig fyrir að hér ríkir
alvarlegt upplausnarástand. Al-
þýðubandalag og Framsóknar-
flokkur reyna að kenna stjórnar-
andstöðunni um það ástand. Það
er ómerkilegt áróðursbragð.
Stjórnarandstaðan hefur ekki
stöðvað eitt einasta mál stjórnar-
innar. Frá stjórninni hafa engin
mál komið. Hún hefur ekki sýnt af
sér neitt frumkvæði til lausnar
okkar vandamálum.
Einstaka ráðherfar eða flokkar,
sem standa að ríkisstjórninni,
hafa að vísu komið fram með mál,
eins og t.d. vísitölumálið. Aðrir
stjórnaraðilar hafa jafnharðan
brugðið fæti fyrir frumkvæði
hinna. Stjórnarandstaðan hefur
ekkert komið þar við sögu. Allt tal
um að hún hafi sýnt af sér ábyrgð-
arleysi er því sett fram til að
breiða yfir getuleysi, hugmynda-
leysi og sundrungu ríkisstjórnar-
flokkanna.
Jarðvegur upplausnarafla
Það upplausnarástand, sem rík-
isstjórnin hefur komið málum
okkar í, er hættulegt. Mikill fjöldi
fólks finnur að grundvöllurinn er
að bresta. Undir slíkum kringum-
stæðum er hætta á að fólk láti
slíkt ástand bitna á þeim aðilum,
sem það hingað til hefur hallað
sér að og fundið samkennd með.
Þar verða stjórnmálaflokkarnir
fyrst og fremst fyrir barðinu á
vonbrigðum fólks.
Slíkur jarðvegur er mikil gróðr-
arstía fyrir hverskyns upplausn-
aröfl. Reynslan er einnig sú nú, að
nýir flokkar eru stofnaðir og nýir
framboðshópar spretta upp. Slíkt
Birgir ísleifur Gunnarsson
er ekki líklegt til að auka stöðug-
leikann í þjóðfélaginu. Þvert á
móti hefur reynslan í öðrum þjóð-
félögum sýnt, að mikill fjöldi
flokka og flokksbrota eykur á
ringulreiðina og vitleysuna í þjóð-
félaginu.
Tveir kostir
Eftir því sem nær dregur kosn-
ingum verður það æ ljósara, að í
rauninni er einungis um tvo kosti
að velja í næstu kosningum. Ann-
ars vegar höfum við svokallaða
vinstri flokka, semm hafa borið
ábyrgð á stjórn landsins allt frá
1978. Flokksbrot þeirra eru alls
ólíkleg til að bæta þar nokkru um.
Hins vegar höfum við Sjálf-
stæðisflokkinn, sem óneitanlega
er sterkasta aflið í okkar þjóðfé-
lagi og þarf að verða enn sterkari
eftir kosningar. Það er mikilvæg-
ara en oftast áður að þjóðin finni
hvar styrkur hennar liggur þegar
á móti blæs.
Ný tök nauðsynleg
Sagan kennir okkur, að á erfið-
um tímum hefur þjóðin náð að
standa saman og takast á við örð-
ugleikana, ef henni er veitt sterk
forysta. Sjálfstæðismenn vilja
beita nýjum tökum við stjórn
landsins. Við viljum leysa úr læð-
ingi framtak einstaklinganna,
reisa atvinnulífið við á ný, hætta
smásmugulegum ríkisafskiptum
af fólki og fyrirtækjum og laða
alla landsmenn til samstarfs um
lausn á vanda verðbólgu og at-
vinnuleysis. Þessi atriði þarf fólk
vel að hugleiða næstu vikur, þegar
það metur, hverjum það vill greiða
atkvæði sitt.
Húsiö
opnað
kl. 19.30.
Aðgangur
ókeypis.
hjá Seltjarnarneskirkju
í Sigtúni fimmtudaginn 25. marz kl. 20.30.
Skoda-bifreið
að verðmæti
QC þúsund
FJÖLDI GLÆSILEGRA VINNINGA
|T,f jj
i- • j
4. ferðavinningar.
Flugferð til Kaupmanna-
hafnar með Flugleiðum að
verðmæti 18.552.
2. ferðavinningar meö
m.s. Eddu til Bremérhaven
að verðmæti kr. 13.000
hvor.
Innanlands ferð fyrir tvo
að verðmæti 10.000.
Fjöldi annarra góðra vinn-
, inga, svo sem raftæki,
I matarúttektir o.fl.
Heildarverðmæti vinninga:
200.000.
OSAL
EGILL ARNASON HF
Skeifunni 3, sími 82111.
SELTJARN ARNESI
LANDSBANKI tSLANDS
Hjólbarðaverkstæði Vesturbæjar
V/Esso Ægisslðu — Sfmar 23470—26784 (Jón ólafsson)
Aðgangur er ókeypis. Fyrir-
spurnir og umræður verða eftir
fyrirlestrana.