Morgunblaðið - 23.03.1983, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983
59
gagnvart ólöglegum tiltækjum. Þá
beitti félagið refsingu gagnvart
brotlegum veiðimönnum, með því
að útiloka þá frá frekari veiðiskap
í ánni.
Veiðimannahús
f rúman áratug eftir að veiðifé-
lagið var stofnað, urðu aðkomandi
stangveiðimenn sem veiði stund-
uðu í Laxá að búa í tjöldum eða
tryggja sér gistingu með öðrum
hætti, t.d. gistu sumir í Búðardal.
Árið 1947 vænkaðist hagur veiði-
manna þegar félagið tók á leigu
hús eyðibýlisins Þrándarkots og
bjó það út fyrir veiðimenn með
nauðsynlegum húsgögnum, áhöld-
um og tækjum.
Húsmálið var öðru hverju á
dagskrá hjá félaginu á þessum ár-
um. Framsýnir menn gerðu sér
grein fyrir því að reisa þyrfti
veiðimannahús við ána, ef unnt
ætti að vera að leigja veiði í ánni á
sómasamlegan hátt. Árið 1947
stofnaði 'félagið sérstakan hús-
byggingarsjóð og 1955 var lagt
fram fé til sjóðsins, þó enn yrði
bið á framkvæmd í þessu skyni.
Þegar „Papi“ leigði ána 1952, kom
félagið með eigið hús, sem sett var
niður við neðsta hluta árinnar.
„Papi“ notaði húsið allan sinn
tíma. Um það leyti sem leigutím-
anum var að ljúka, komst húsmál-
ið á verulega hreyfingu innan
veiðifélagsins, því árið 1965 var
samþykkt á fundi að leggja í hús-
byggingarsjóð 100 þús. kr. og ári
síðar var ákveðið að kaupa jörðina
Þrándarkot í því skyni að þar risi
veiðimannahúsið. Um svipað leyti
festi félagið kaup á gömlu veiði-
mannahúsi sem hafði verið við
Miðfjarðarár, en þeirri ráðstöfun
var síðar hafnað og húsið selt.
Hins vegar var hafist handa um
byggingu húss í landi Þrándarkots
og var það tekið í notkun í upphafi
veiðitímans 1966 enda þótt það
væri ekki fullbúið. Árið 1970 og
síðar voru gerðar ýmsar lagfær-
ingar á húsinu og rafmagn var
leitt í það 1971. Á árunum
1978—1980 var húsið stækkað
verulega og ýmsar umbætur gerð-
ar á húsnæðinu og búnaði fyrir
veiðimenn, svo sem komið fyrir
frystigeymslu og fleiru. Veiði-
mannahúsið við Þrándargil er
tvímælalaust ein af bestu bygg-
ingum sinnar tegundar í landinu.
Skógrækt o.fl.
Á vegum veiðifélagsins við Laxá
hefur nokkuð verið unnið að
skógrækt og annarri ræktun á
landi félagsins. Þá hefur félagið
að sjálfsögðu notað veiðihúsið til
eigin fundahalda, enda einskonar
félagsheimili, og þar hafa verið
haldin spilakvöld fyrir hreppsbúa
að vetrinum. — Veiðifélagið varð
aðili að Landssambandi veiðifé-
laga 1959, eða strax eftir að þau
samtök voru sett á fót, og verið
virkur þátttakandi í starfi á veg-
um þeirra.
Tekjur af veiði
Tekjur af veiði hjá Veiðifélagi
Laxdæla hafa verið afbragðsgóðar
og námu heildartekjur félagsins á
árinu 1982 rúml. 912 þús. kr., en
það ár var greitt í arð til félags-
manna 700 þúsund kr. Afrakstur
veiðihlunninda Laxár hefur tví-
mælalaust verið byggðinni í
Laxárdal mikils virði, m.a. átt
þátt í að tryggja blómlegri búsetu
þar.
Arðskráin
Arðskrá félagsins, er sýnir
hlutdeild jarða í veiði eða arði af
henni og er jafnframt gjaldskrá,
hefur verið endurskoðuð sex sinn-
um. Heimild er að gera slíkt á átta
ára fresti, ef menn vilja, nema í
fyrsta skipti sem eru fimm ár. Við
lauslega skoðun á arðskránni frá
1935 og 1941 og hins vegar þeirri
er gildi tók 1973, kom í ljós, að
verulegar breytingar hafa átt sér
stað til jöfnunar á arði milli jarða.
Fellur það vel að tilgangi og
ákvæðum laga um lax- og silungs-
veiði.
lleimildir:
Kundargorðir Vf. Laxdæla,
Valnamadin^ar, Orkustofnun,
Veiðimálastofnun.
lífslýsingar sem stuðla markvisst
að því að lesarinn verður þátt-
takandi í þessu friðsæla um-
hverfi. Auk þess prýða bókina
margar fallegar og skemmtilegar
myndir sem gefa henni meira
gildi. Teiknarinn heitir Þóra Sig-
urðardóttir.
Mál bókarinnar er einfalt og
auðskilið og mun því ekki valda
yngstu lesendunum neinum erf-
iðleikum. Asbjörn Hildremyr
hefur þýtt bókina og á heiður
skilið fyrir góða þýðingu.
Blaðamaður frá Fjordingen, Stoyn,
skrifar:
Þessi bók sem kemur út á-
norsku er hreinasta perla fyrir
börn í fyrsu bekkjum grunnskól-
ans. Hún er ekki aðeins ágætt
lesefni fyrir læs börn, heldur
hentar hún einnig mjög vel til
upplestrar fyrir börn sem ekki
kunna enn að lesa.
S.G.
Armann Kr. Kinarsson
• •
„Ommustelpa“ fær lof-
samlega dóma í Noregi
Á síðasta ári kom enn út bók á
norsku eftir Ármann Kr. Ein-
arsson rithöfund. Var það bókin
Ömmustelpa, sem á norsku hlaut
nafnið Jenta som ville bli högtalar.
Er það 13. bók höfundar sem
kemur út á norsku.
Nú hafa nýlega borist um bók-
ina umsagnir margra norskra
blaða og eru þær einkar jákvæð-
ar. Verða hér tilfærð þrjú sýn-
ishorn:
Marianne Lystrup skrifar í Vort
Land, Ósló:
Bókaútgáfa Norska barna-
blaðsins hefur verið athafnamik-
il á þessu ári. Tíu nýjar bækur
frá því forlagi liggja hér fyrir
framan mig. Ein af þeim er frá
íslandi, einkar áhugaverð bók,
Jenta som ville bli högtalar, eftir
rithöfundinn Ármann Kr. Ein-
arsson. Það er sjaldgæft að fá
barnabækur þar sem aðalpersón-
an er aðeins fjögurra ára telpa.
Frásögn höfundar er hröð og ein-
staklega lífræn og mun áreiðan-
lega verða hugstæð öllum börn-
um, sem njóta þess að lesa
skemmtilegar sögur eða hlusta á
þær.
Ingunn Flatöy skrifar í Sunn-
hordland, Stord:
Bókin er bæði fjörlega skrifuð
og fyndin. Og þar er einnig að
finna margar ágætar náttúru-
T ZZ Skaftahlíð 24 • 105 Reykjavík • Sími 27700
JSLENSK ÞEKkInG-ALPJÓÐLEG TÆKNI
Ef þú heldur að það sé óskaplega
dýrt að breyta yfir í IBM System/34,
þá er kominn
tími til að þú
fáir réttar
upplýsingar
Það er staðreynd að System/34 frá nokkrum vikum eftir að þú ákveður
IBM er ein hagkvæmasta tölvan sem kaup á henni. Uppsetning og
hægt er að fá fyrir íslenskar að- undirbúningur er ódýrari en þú
stæður. IBM System/34 kom fyrst til heldur og þjónustan fyrsta flokks.
íslands 1978 og hefur allar götur
síðan reynst frábær starfskraftur hjá
íslenskum fyrirtækjum.
System/34 hefur verið í stöðugri
þróun frá því að hún kom á markað-
inn og er því enn í dag í fullu gildi.
Nú býður IBM þér meðal annars tvær
nýjar gerðir af skermum. Annar
þeirra er litaskermur sem skilar 7
litum. Hann opnar þér nýja mögu-
leika í framsetningu á upplýsingum,
meðal annars á myndrænan hátt.
IBM System/34 getur verið komin í
fulla vinnu fyrir starfsemi þína
IBM System/34 krefst ekki sérnáms í
tölvufræðum enda er hún notuð í
flestum greinum atvinnulífsins, ekki
síður hjá litlum fyrirtækjum en
stórum.
Þegar þú kaupir IBM System/34 ertu
því að fjárfesta í öruggu kerfi sem
hefur verið aðlagað íslenskum
verkháttum.
Það er staðreynd að kaupverð
System/34 hefur nýverið lækkað um
40% hérlendis vegna hagstæðrar
framleiðsluþróunar hjá IBM. Þú gerir
því góð kaup í IBM System/34.