Morgunblaðið - 14.04.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.04.1983, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1983 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir BJÖRN BJARNASON Bretar ættu þá eins og nú kjarn- orkueldflaugar bæði á sjó og á landi. í ákvörðuninni um að fá bandarískar kjarnorkueldflaug- ar til Evrópu felst eindregin við- leitni til að tengja kjarnorku- varnir Bandaríkjanna og banda- manna þeirra í Evrópu saman með trúverðugum hætti svo að hugsanlegum árásaraðila sé ljóst að átök sem hann stofnar til muni magnast stig af stigi og breytast í gjöreyðingarstríð að lokum. Með þessum hætti telja Atlantshafsbandalagsríkin að trygging sé fengin fyrir því að enginn nema sá sem er vitstola þori að leggja til atlögu við þau. Án gagnráðstafana muni Sov- étmenn hins vegar fá óþolandi einokunaraðstöðu með yfir- þyrmandi kjarnorkumætti gegn Evrópuþjóðunum. 1 hugmyndinni um bráða- birgðasamkomulag krefst Reag- an þess að Sovétmenn fækki kjarnaoddum í meðallangdræg- um eldflaugum sínum alhliða, það er ekki aðeins þeim sem beint er gegn skotmörkum í Evrópu. Þessi krafa á rætur að Andrei Gromyko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, á blaðamannafundin um í Moskvu 2. apríl sl., hinum fyrsta sem hann heldur í fjögur ár. Eldflaugastríðið held- ur áfram í Evrópu ÁÐUR en síðustu lotu í viðræðum Bandarfkjamanna og Sovétmanna um meðallangdrægu eldflaugarnar í Evrópu (INF-viðræðunum) lauk í Genf þriðjudaginn 29. mars síðastliðinn lögðu Bandaríkjamenn fram málamiðlunartillögu sem er frávik frá lokamarkmiði þeirra sem felst í „núll-lausninni“. Þessi tillaga nýtur stuðnings aöildarlanda Atlants- hafsbandalagsins en henni hefur verið hafnað af Sovétmönnum. Andrei Gromyko, utanríkisráöherra, gerði það formlega á fyrsta blaðamanna- fundi sínum í fjögur ár sem hann efndi til 2. aprí). Síðan hafa utanríkis- ráðherrar Varsjárbandalagslanda hist á fundi og tekið undir sovéska sjónarmiðið. í tengslum við þann fund hélt Dimitri Ustinov, varnar- málaráðherra Sovétríkjanna, ræðu þar sem hann hótaði Banda- ríkjunum að Sovétmenn myndu gera ráðstafanir til að geta gert út af við þau með meðallangdrægum eldflaugum ef Bandaríkjamenn tækju til við að setja upp slíkar eldflaugar í Vestur-Evrópu. Hinn 30. mars hélt Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, ræðu og skýrði opinberlega frá þeim tillögum sem stjórn hans hafði lagt fram í Genf daginn áður. Fram til þessa hefur Reagan haldið fast við hina svonefndu „núll-lausn", það er að segja að Bandaríkjastjórn muni hætta við áform um að koma fyrir 108 Pershing 2-eld- flaugum og 464 stýriflaugum í Vestur-Evrópu ef Sovétmenn fjarlægðu allar 600 SS-20-eld- flaugar sínar af yfirborði jarðar og einnig eldri gerðir meðal- langdrægra eldflauga, SS-4 og SS-5. Nú segir forsetinn hins vegar að það sé „betra að hafa þó ekki nema fáeinar en marg- ar“ eldflaugar og leggur því fram hugmynd um bráðabirgða- samkomulag sem felur í sér að kjarnaoddum sem þessar eld- flaugar geta flutt sé fækkað. Ástæðan fyrir því að forsetinn talar um kjarnaodda en ekki eldflaugar í tillögu sinni er sú, að í hverri SS-20-eldflaug eru þrír kjarnaoddar, það er að segja með hverri flaug má senda kjarnorkusprengju á þrjá mis- munandi staði, en í hverri bandarískri flaug á að vera einn kjarnaoddur, ein kjarnorku- sprengja. Hugmynd forsetans er einnig sú, að Bandaríkjamenn myndu í desember á þessu ári byrja að koma Pershing 2 og stýriflaugum fyrir í Vestur- Evrópu en ekki miða endanlega fjölda þeirra við töluna 572. Næði hugmynd Reagans fram yrðu Sovétmenn að fjarlægja nokkurn fjölda meðallang- drægra eldflauga sinna. Það færi eftir niðurstöðum samning- anna, hvað þær yrðu margar. Sovétmenn hafa alfarið neitað að fallast á „núll-lausnina“. Þeirra markmið í viðræðunum er hins vegar að koma í veg fyrir að bandarísku Pershing 2-flaug- arnar verði settar niður í Evr- ópu, þeir óttast þessar flaugar vegna þess hve þær þurfa skamman tíma til að ná til skotmarka innan sovésku landa- mæranna. Öðru máli gegnir um stýriflaugarnar sem eru eins konar mannlausar flugvélar og fara hægar yfir. Sovétmenn lögðu upphaflega til að við það yrði miðað í Evrópu, að hvor að- ili um sig hefði yfir að ráða 300 kjarnorkueldflaugum og sprengjuvélum á árinu 1990. I desember 1982 breyttu Sovét- menn um stefnu og sögðust vilja miða fjölda „burðartækja" við 162 hjá hvorum aðila um sig. Þeir miðuðu þann fjölda við þær eldflaugar á sjó og landi sem Frakkar og Bretar eiga og geta flutt kjarnorkuvopn. Þetta sov- éska tilboð var bundið því skil- yrði að hætt yrði við að koma bandarísku flaugunum fyrir í Evrópu. Atlantshafsbandalagsríkin hafa hafnað þessari tillögu Sov- étmanna, enda ákváðu þau 12. desemeber 1979 að svara SS-20-eldflaugum Sovétríkj- anna með ofangreindum gagn- ráðstöfunum, þótt Frakkar og rekja til þess að SS-20-eldflaug- arnar eru á flutningavögnum svo að auðveldlega má flytja þær sem nú er beint gegn Evr- ópu til þeirra staða í Sovétríkj- unum þar sem þær ná til skot- marka í Asíu. Á blaðamannafundi sínum sagði Andrei Gromyko að til- lögu Bandaríkjastjórnar um bráðabirgðasamkomulag væri ekki unnt að samykkja af eftir- farandi þremur ástæðum: I fyrsta lagi nái hún ekki til breskra og franskra meðal- langdrægra kjarnorkuvoppna, þar á meðal 162 eldflauga. I öðru lagi nái hún ekki til mörg hundruð bandarískra flugvéla í Vestur-Evrópu og á flugmóð- urskipum sem geta borið kjarn- orkuvopn. Og í þriðja lagi ætti einnig að eyðileggja meðal- langdrægar eldflaugar í Asíu- hluta Sovétríkjanna, þótt þær séu ekki í neinum tengslum við Evrópu. í ummælum vestrænna blaða um fund Gromykos kemur fram, að hann hafi ekki verið eins harðorður og ýmsir væntu. Það sé því ekki með öllu vonlaust að þoki í rétta átt þegar samninga- nefndarmennirnir hittast aftur í Genf 17. maí næstkomandi. Hótanir Ustinovs, varnarmála- ráðherra, gagnvart Bandaríkj- unum hafa að vísu ekki aukið bjartsýni manna og ljóst er að enn vona Sovétmenn að þeir geti haft áhrif á stefnu vestrænna ríkisstjórna fyrir tilstuðlan þeirra friðarhreyfinga sem mest láta til sín heyra. Um páska- helgina sagði Eugene V. Rostow, sem lét af störfum sem yfirmað- ur bandarísku afvopnunarstofn- unarinnar í janúar, í sjón- varpsviðtali, að hann héldi enn fast við þá skoðun sem hann hefði hvað eftir annað látið í ljós, að Sovétmenn yrðu óhagg- anlegir þar til á síðustu stundu, þegar þeir sæju að bandarísku eldflaugunum yrði örugglega komið fyrir í Evrópu. (ílcimild Al’) Hvar eru skeytin nú? — eftir Birgi /s7. Gunnarsson, alþm.: Þegar sósíalistinn Mitterand sigraði í forsetakosningunum í Frakkiandi fyrir um 22 mánuðum, kepptust þeir Svavar Gestsson og Kjartan Jóhannsson um að senda honum heillaóskaskeyti frá Al- þýðubandalagi og Alþýðuflokki. Með því vildu þeir undirstrika að Mitterand væri þeirra maður — sósíalisminn væri á uppleið. Mitterand hófst þegar handa. Hann þjóðnýtti fyrirtæki, hækk- aði skatta og stórjók opinber út- gjöld. Allar aðgerðirnar voru í svipuðum dúr og lesa má um í stefnuskrá Alþýðubandalagsins að leysa muni allan vanda, þ.e. dæmi- gerðar vinstri stjórnar aðgerðir. Nú eru afleiðingarnar að koma í Ijós. Verðbólga er meiri í Frakk- landi en í nágrannalöndunum, 2 milljónir manna ganga atvinnu- lausar og stjórnin hefur fylgt eyðslustefnu, sem setur efnahag landsins í hættu, en gerir hvorki að draga úr atvinnuleysi né verð- bólgu. Þetta ástand kallar á enn frek- ari aðgerðir í efnahagsmálum. Þær voru tilkynntar viku fyrir páska og eru áfram í sama dúr vinstri stjórna. Gengið var fellt, skattar hækkaðir og höft sett á gjaldeyrissölu. Frakkar, sem vilja fara til útlanda, fá ekki nema 2000 franka (ca. 6000,- ísl. kr.). Þetta er rifjað hér upp vegna þess að vinstri menn á íslandi vilja helst kenna atvinnuleysi í út- löndum við þau hjúin Reagan og Thatcher. í kosningabaráttunni á íslandi er efnahagsstefna þeirra notuð sem grýla og víti til varnað- ar. Nú er það að vísu svo, að verð- bólga hefur verulega minnkað í Bretlandi og Bandaríkjunum, en atvinnuleysið er enn við lýði. Und- ir sósíalistastjórninni í Frakk- landi hefur hvorutveggja vaxið, verðbólga og atvinnuleysi. Nú er það auðvitað útilokað að draga beinar ályktanir af því, sem gerist í einstökum ríkjum erlend- is. Aðstæður í hverju landi eru það sérstakar. Dæmið frá Frakk- landi kennir okkur þó tvennt: Aukin verðbólga lækkar ekki atvinnuleysið eins og vinstri menn á fslandi halda fram — og að atvinnuleysi fylgir ekki síður efnahagsstjórn sósíalista. Alþýðubandalagið hefur á stefnuskrá sinni fyrir þessar kosn- Birgir ísl. Gunnarsson „Dæmiö frá Frakklandi kennir okkur þó tvennt: Aukin veröbólga lækkar ekki atvinnuleysiö eins og vinstri menn á Is- landi halda fram — og að atvinnuleysi fylgir ekki síöur efna- hagsstjórn sósíalista.“ ingar að taka upp haftastefnu. Þá stefnu er Mitterand nú að fram- kvæma í Frakklandi. Ekki virðist hún ætla að skila þeim árangri, sem að hefur verið stefnt. Það vissu hægri menn fyrir, en til- raunin í Frakklandi virðist ætla að verða dýr. Alþýðubandalagið vill fá að gera samskonar tilraunir á ís- landi. Kjósendur einir geta komið í veg fyrir það í þeim kosningum, sem framundan eru. En meðal annarra orða. Ekkert hefur heyrst um það nýlega að Svavar og Kjartan hafi sent Mitt- erand skeyti, hvorki til að óska honum til hamingju með árangur í efnahagsmálum né til að lýsa með honum samstöðu. Hvernig skyldi standa á því? Birgir ísl. (lunnarsson skipar 3. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Einsöngur og dúettar Tónlist Jón Ásgeirsson UNNUR Jensdóttir, sópran- söngkona og Andrew Knight enskur baritonsöngvari, héldu tónleika sl. mánudag í Norræna húsinu, með aðstoð Jónínu Gísladóttur. Á efnisskránni voru einsöngslög eftir Schu- bert, Granados, Garald Finzi, Sigvalda Kaldalóns, Gershwin og einnig íslensk og frönsk þjóðlög, sungin án undirleiks. Dúettarnir eru eftir Purcell, Mozart og Gershwin. Efn- isskráin var mjög fjölbreytt og spannár allt frá barokk til nú- tímatónlistar og jazzlistar. Þrátt fyrir margbreytnina var nokkuð sterkur heildarsvipur yfir tónleikunum og margt vel sungið. Unnur er öruggur tón- listarmaður og hefur fallega rödd, sem ekki virðist vera full- mótuð og slá frá því að liggja bæði hátt og lágt á sópransvið- inu, þó lægra sviðið sé það sem henti röddinni betur. I viðbót við þessa ósátt vantar nokkuð á þéttleika raddarinnar, eins og öndun og tónmyndun séu enn einangruð vandamál en ekki samstæð virkni í söng og túlk- un. Styrkleikasvið raddarinnar er mjög mikið og væri fróðlegt að heyra Unni syngja með hljómsveit, t.d. í óperu. Varð- andi söng Unnar að þessu sinni verður ekki betur séð en að að- eins vanti herslumuninn á þjálfun raddarinnar til að hér sé á ferðinni góð söngkona. Andrew Knight er góður söngv- ari, kunnáttumaður og söng mjög vel lögin eftir Finzi. Frönsku þjóðlögin söng hann frábærlega vel og sama má segja um söng Unnar á nokkr- um íslenskum þjóðlögum, þar sem falleg rödd hennar naut sín einkar vel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.